Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dauf byrjun í Kauphöllinni Lækkun einkennir byrjun dags í Kauphöllinni. Gengi Bakkavarar hefur lækkað um 0,82 prósent, Össurar um 0,51 prósent og Marel Food Systems um 0,13 prósent. 6.1.2009 11:05
Spáir því að 200.000 Danir gætu misst vinnuna Seðlabanki Danmerkur, Nationalbanken, spáir því að allt að 200.000 Danir gætu misst vinnuna á næstu tveimur árum. Bankinn segir að fari allt á versta veg verði kreppan í landinu í ár sú versta frá lokum seinni heimstryjaldarinnar. 6.1.2009 10:45
Salan hjá Debenhams minnkaði um 3,3% Salan hjá verslanakeðjunni Debenhams, sem er að hluta til í eigu Baugs, minnkaði um 3,3% á síðasta ársfjórðungi ársins 2008. Þá tilkynnti verslankeðjan Next að salan hjá þeim hefði minnkað um 7% á síðustu sex mánuðum. 6.1.2009 10:22
Annað stærsta ár Flugfélagsins frá upphafi Fjöldi farþega Flugfélags Íslands dróst saman um 2% á árinu 2008 miðað við árið 2007 en árið varð annað stærsta ár félagsins frá upphafi. Heildarfjöldi farþega í áætlunarflugi var um 420 þúsund þar af voru um 22 þúsund farþegar í millilandaflugi til Færeyja og Grænlands. 6.1.2009 10:08
MP Banki hf. fær bankanúmerið 700 Fjármálaeftirlitið veitti MP Banka hf. viðskiptabankaleyfi þann 10. október sl. Leyfið var í fyrstu veitt til 31. desember 2008. Eftir frekari samskipti FME og MP Banka hf. hefur bankinn nú fengið staðfest viðskiptabankaleyfi. 6.1.2009 10:04
Skortur á gasi í Evrópulöndum innan nokkurra tíma Búið er að skrúfa fyrir gasleiðslur frá Rússlandi á landamærum Rúmeníu og þýðir það að gasskortur verður í Búlgaríu, Grikklandi, Tyrklandi og Makedóníu innan nokkura tíma. 6.1.2009 09:53
Mikið verðfall á húsnæði í Bretlandi Verð á húsnæði í Bretlandi lækkaði að meðaltali um 15,9 prósent á nýliðnu ári, samkvæmt upplýsingum breska fasteignalánaveitandans Nationwide. 6.1.2009 09:47
Seðlabankinn velur þröngu viðskiptavogina Ákveðið hefur verið að breyta grunni einnar af fjórum gengisvísitölum Seðlabankans þannig að 2. janúar 2009 taki hún sama gildi og gengisskráningarvísitalan. 6.1.2009 09:32
Gjaldþrot Sterling með því stærsta í Danmörku Gjaldþrot Sterling flugfélagsins í Danmörku stefnir í að verða eitt það stærsta í Danmörku á síðustu árum. Kröfur í þrotabúið nema nú 870 milljónum danskra kr. eða hátt í 20 milljörðum kr. og fer kröfunum enn fjölgandi. 6.1.2009 09:12
Tæplega 83 milljarða kr. viðsnúningur á vöruskiptum Fyrstu ellefu mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 413,1 milljarð króna en inn fyrir 442,0 milljarða króna. Hallinn á vöruskiptunum við útlönd nam 28,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 111,6 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 82,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður. 6.1.2009 09:05
Japönsk hátæknifyrirtæki rjúka upp Um helmingur asískra hlutabréfavísitalna sýndi hækkun í morgun, þó ekki alltaf mikla. Japanska Nikkei-vísitalan hækkaði um tæplega hálft prósentustig en hátæknifyrirtæki eiga mestu hækkanir dagsins, til að mynda hækkuðu bréf Samsung-fyrirtækisins um tæplega 4,5 prósentustig. 6.1.2009 07:37
Olíverð hækkar áfram Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka og er nú komið upp í 48 dollara á tunnuna. Það er hækkun um hátt í tíu dollara á skömmum tíma. Ástæðan er meðal annars sögð óróinn í Mið-Austurlöndum og ótryggt ástand í Nígeríu, þar sem uppreisnarmenn sprengdu upp olíuleiðslu um helgina. 6.1.2009 07:19
Ríkisstjórnin styður málshöfðanir gegn Bretum Skilanefnd Kaupþings hefur afráðið að höfða mál gegn breskum stjórnvöldum og nýtur til þess fulls stuðnings ríkisstjórnarinnar, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. 5.1.2009 17:44
Útlán nýju ríkisbankanna yfir leyfilegu hámarki Útlán nýju bankanna til nokkurra einstaklinga og fyrirtækja eru yfir leyfilegu hámarki. Það þýðir að skuldir einstakra aðila geta numið 50 milljörðum eða meira. Forstjóri fjármálaeftirlitsins segir unnið að því að laga þetta. 5.1.2009 19:16
Hyggst stofna sjóð til að tryggja innistæður í Luxemborg Fjármálaráðherra Belgíu mun leggja til á morgun að stofnaður verði sjóður sem tryggi innistæður á reikningum Kaupþings í Luxemborg. Samningaviðræður um sölu bankans hafa legið niðri undanfarnar vikur en munu nú að öllum líkindum hefjast aftur. 5.1.2009 19:12
Century Aluminum hækkaði mest í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hækkaði um 1,85 prósent í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa í Marel Food Systems fylgdi á eftir með 0,9 prósent hækkun. Þá hækkaði gengi bréfa í Eimskip um 0,81 prósent og í Færeyjabanka um 0,41 prósent. 5.1.2009 16:39
Ætla að tryggja innistæður Kaupþings í Luxemborg Didier Reynders fjármálaráðherra Belgíu mun leggja til á morgun að stofnaður verði sjóður sem tryggi innistæður á reikningum Kaupþings í Luxemborg. 5.1.2009 15:02
Veltan á fasteignmarkaðinum minnkaði um 78% í desember Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember 2008 var 157. Þegar desember 2008 er borinn saman við desember 2007 fækkar kaupsamningum um 71% og velta minnkar um 77,8%. 5.1.2009 14:36
Mrs Moneypenny vongóð um innstæðu sína hjá Kaupþingi Mrs Moneypenny, ein af þekktari dálkahöfundum Financial Times er vongóð um að fá borgaða innistæðu sem hún brann inni með hjá Singer & Friedlander bankanum í London þegar Kaupþing varð gjaldþrota í haust. 5.1.2009 13:37
Stjórnarformaður Tals vísar gagnrýni á bug Meirihluti stjórnar tók ákvörðun um það að segja Hermanni upp störfum og ráða nýjan forstjóra og sú ákvörðun stendur, segir Þórdís J. Sigurðardóttir, stjórnarformaður Tals. 5.1.2009 13:26
Kaupþingsmaður í stjórastöðu hjá Carlsberg Bruggverksmiðjurnar Carlsberg í Danmörku hafa ráðið Peter Kondrup í stöðu forstjóra yfir samskiptasviði fjárfesta hjá verksmiðjunum. Kondrup er fyrrum yfirmaður í greiningardeild Kaupþings í Danmörku. 5.1.2009 12:56
Gengisvísitala krónunnar heyrir sögunni til Viðbúið er að sú mikla áhersla á gengisvísitölu krónu sem verið hefur í hérlendum gjaldeyrisviðskiptum síðustu ár heyri að verulegu leyti sögunni til. Slík viðskipti verði hér eftir fyrst og fremst með einstaka gjaldmiðla gagnvart krónunni. 5.1.2009 12:20
Hrun bankanna hefur kostað 6.600 manns atvinnuna Atvinnulausum á Íslandi hefur fjölgað um rúmlega 6.600 manns frá því að íslenska bankakerfið hrundi í haust. 5.1.2009 11:58
Krefst forstjórastöðu Tals á ný Hermann Jónasson sem nýverið var sagt upp störfum sem forstjóri Tals fundaði með starfsfólki fyrirtækisins í morgun. 5.1.2009 11:43
Met sett í skipakomum á Grundartanga í fyrra Nú liggur fyrir að skipakomur á Grundartanga árið 2008 voru fleiri en nokkru sinni fyrr. Flutningar um höfnina eru um 1.3 milljón tonn, en fjöldi skipa á árinu var 271, sem er nokkur aukning frá því sem best þekktist áður. 5.1.2009 10:45
Marel eitt á uppleið Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur hækkað um 0,51 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er eina hækkunin það sem af er. Á móti hefur gengi bréfa í Straumi lækkað um 0,54 prósent. 5.1.2009 10:25
Reikna með að olíuverðið fari í 70 dollara fyrir áramótin Mikill meirihluti markaðssérfræðinga í olíusölu reiknar með að heimsmarkaðsverð á olíu fari í 70 dollara á tunnuna á síðasta ársfjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram í umfjöllun um þróun olíuverð á Bloomberg-fréttaveitunni. 5.1.2009 10:21
Hlutabréf í Carnegie hafa fimmfaldast í verði Hlutabréf í sænska bankanum Carnegie fimmfölduðust í verði yfir áramótin. Við lok markaðarins á föstudag voru hlutirnir seldir á 1,25 kr. sænskar en fyrir áramót er HQ Direct hóf viðskipti með hlutina utanmarkaðar þann 29. desember var verð þeirra 25 aurar sænskir. 5.1.2009 09:53
Verslunarkeðja í eigu Milestone á barmi gjaldþrots Breska verslunarkeðjan Blooming Marvellous rambar nú á barmi gjaldþrots en keðjan er að stórum hluta í eigu Milestone í gegnum fjárfestignarsjóðinn Kcaj. 5.1.2009 08:57
Rætt við Philip Green og Alchemy um kaup á Mosaic Fashion Derek Lovelock forstjóri Mosaic Fashion hefur átt viðræður við bæði fjárfestingarfélagið Alchemy og breska auðjöfurinn sir Philip Green um sölu á Mosaic Fashion. Þetta kemur fram í frétt á Reuters í dag. 5.1.2009 08:41
Asíubréf á uppleið áttunda daginn í röð Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í morgun, áttunda daginn í röð og er þar með um lengstu samfelldu hækkun bréfa þar í álfu að ræða síðan árið 2004. 5.1.2009 08:20
Segja lausafé Mosaic vera að þurrkast upp Mosaic sem meðal annars rekur verslanir Karen Millen, Oasis og Principles hefur hafið viðræður við lánadrottna félagsins. Það er The Sunday Times sem segir frá þessu í dag. 4.1.2009 19:48
Iceland Express í viðræðum um meirihlutaeign í F.Í Forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands, móðurfélags Úrvals Útsýnar, Sumarferða og Plúsferða, fullyrðir að tekist hafi að bjarga fyrirtækinu í dag með aðkomu nýrra fjárfesta. Brottför flugvélar til Kanaríeyja hefur frestast frá því í morgun vegna greiðsluerfiðleika. 4.1.2009 18:45
Ferðaskrifstofa Íslands á barmi gjaldþrots Flugi sem átti að fara frá Íslandi til Tenerife klukkan 07:00 í morgun hefur verið frestað til klukkan 18:00. Farþegarnir eru á vegum Ferðaskrifstofu Íslands sem er á barmi gjaldþrots. Félagið hefur tilkynnt Samgönguráðuneytinu um erfiðleika sína en forstjórinn vill ekki meina að félagið sé gjaldþrota. Um hundrað störf eru í húfi. Heimildir Vísis herma að fjárfestir sé í viðræðum um kaup á félaginu. 4.1.2009 15:05
Rafmagnsbíll Mitsubishi á íslenskum þjóðvegum Japanski bílaframleiðandinn Mitsubishi ætlar að gera íslendingum kleift að keyra MiEV rafmagnsbílinn sinn fyrstir allra í komandi framtíð. Þannig ætlar bílaframleiðandinn að hjálpa íslendingum að ná takmarki sínu um að vera lausir við jarðefnaeldsneyti árið 2050. 4.1.2009 13:01
Bresk stjórnvöld kynna aðgerðaráætlun á vinnumarkaði Bresk stjórnvöld hyggjast nota 10 milljarða punda á þessu ári til að efla atvinnulífið í landinu. Þetta kom fram í máli Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands, í viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC 4.1.2009 12:01
Forbes segir eignir Björgólfs engar Björgólfur Guðmundsson situr í fjórða sæti á lista Forbes viðskiptatímaritsins yfir þá sem tapað hafa mest á árinu. Eignir hans voru metnar á 1,1 milljarð badaríkjadala í mars á síðasta ári en eignir hans nú eru sagðar núll. 3.1.2009 19:12
Þurfa að leita nýrra leiða til að bjarga fjármálamörkuðum Bresk stjórnvöld verða væntanlega að grípa til nýrra aðgerða til að koma þarlendum fjármálamörkuðum til bjargar. Þrátt fyrir margra milljarða punda innspýtingu á síðasta ári hafa breskir bankar haldið áfram að draga úr útlánum. 3.1.2009 12:32
Forstjóri Tals: Óþægilegt að láta öryggisvörð fylgja sér út Hermanni Jónassyni forstjóra Tals var sagt upp störfum 30. desember sl. Ástæðan er sögð sú að hann hafi gert samning við Símann án þess að hafa samráð við stjórn fyrirtækisins en annar samningur var í gildi við Vodafone. Hermann segist eingöngu hafa haft hagsmuni viðskiptavina Tals að leiðarljósi og vísar því á bug að stjórnin hafi ekki vitað af samningnum. Öryggisvörður og lögfræðingur stóðu yfir honum þegar hann yfirgaf vinnustað sinn. „Óþægileg tilfinning," segir Hermann sem íhugar að leita réttar síns. 3.1.2009 12:00
Krónan styrktist lítillega Gengi krónunnar styrktist um 0,2% í dag og stendur gengisvísitalan nú í rétt tæpum 216 stigum. Bandaríkjadalur kostar nú tæpar 122 krónur, evran liðlega 168 krónur og sterlingspund 176. 2.1.2009 20:05
Ný hlutabréfavísitala innleidd Frá og með deginum í dag mun hefjast útreikningur á OMXI6 nýrri hlutabréfavísitölu á NASDAQ OMX Iceland sem tekur við hlutverki OMXI15. ,,Nýir tímar kalla á nýja vísitölu. OMXI6 Úrvalsvísitalan miðar að því að búa í haginn fyrir endurreisn hlutabréfamarkaðarins á Íslandi”, segir Þórður Friðjónsson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland í tilkynningu. 2.1.2009 18:19
Century Aluminum hækkaði um 24 prósent Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hækkaði um 24,3 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er langmesta hækkunin á þessum fyrsta viðskiptadegi ársins. 2.1.2009 17:29
Kristján hættur hjá Kaupþingi Kristján Arason hefur látið af störfum hjá Kaupþingi sem framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs bankans. Kristján tilkynnti samstarfsmönnum þetta í tölvupósti fyrir stundu. 2.1.2009 17:10
Markaðir í Evrópu byrja vel á nýju ári Evrópsk hlutabréf hækkuðu víðast hvar í verði á fyrsta viðskiptadegi ársins. FTSEurofirst 300 vísitalan sem nær yfir alla Evrópu hækkaði um 2,6 prósent í dag en hún hafði fallið um heil 44 prósent árið 2008. Helsta skýring þessa er hækkandi verð á fyrirtækjum í orkugeiranum og félög á borð við BP, Shell og Total fóru upp um 4,2 og 5,1. 2.1.2009 16:59
400 gætu misst vinnuna hjá Bakkavör Bakkavör hefur uppi áform um að endurskipuleggja rekstur sinn í Lincolnshire á Englandi þar sem félagið rekur þrjú matvælaframleiðslufyrirtæki. Um 400 manns gætu misst vinnuna að því er segir í frétt BBC um málið. 2.1.2009 16:46