Viðskipti innlent

Ferðaskrifstofa Íslands á barmi gjaldþrots

Þorsteinn Guðjónsson forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands.
Þorsteinn Guðjónsson forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands.

Flugi sem átti að fara frá Íslandi til Tenerife klukkan 07:00 í morgun hefur verið frestað til klukkan 18:00. Farþegarnir eru á vegum Ferðaskrifstofu Íslands sem er á barmi gjaldþrots. Félagið hefur tilkynnt Samgönguráðuneytinu um erfiðleika sína en forstjórinn vill ekki meina að félagið sé gjaldþrota. Um hundrað störf eru í húfi. Heimildir Vísis herma að fjárfestir sé í viðræðum um kaup á félaginu.

„Nei við vonum það ekki," segir Þorsteinn Guðjónsson forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands aðspurður hvort félagið sé gjaldþrota.

Ferðaskrifstofa Íslands er ein stærsta ferðaskrifstofa landsins en undir hana heyra Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir.

„Við erum búnir að vera í nokkurn tíma í því að endurskipuleggja okkur og endurfjármagna ákveðna hluti, við erum vonandi búnir að loka því," segir Þorsteinn.

Heimildir Vísis herma að seinkunin á umræddu flugi til Tenerife tengist fjárhagserfiðleikum félagsins. „Eigum við ekki bara að segja að það hafi verið af tæknilegum orsökum," segir Þorsteinn aðspurður um ástæður seinkunarinnar.

Ferðaskrifstofan hefur látið Samgönguráðuneytið vita af erfiðleikum sínum og segir Þorsteinn það eðlilegt þar sem rekstur þeirra sé tryggður í gegnum ráðuneytið. „Við vorum bara í sambandi við þá og leyfðum þeim að fylgjast með hvað væri í gangi í okkar rekstri, það eru eðlileg vinnubrögð."

Samkvæmt heimildum Vísis er allavega einn áhugasamur fjárfestir sem vill kaupa félagið. „Já þetta er verðmætt félag," segir Þorsteinn sem vildi annars lítið tjá sig um hugsanlega sölu á félaginu.

Um 100 manns starfa hjá Ferðaskrifstofu Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×