Gengisvísitala krónunnar heyrir sögunni til 5. janúar 2009 12:20
Viðbúið er að sú mikla áhersla á gengisvísitölu krónu sem verið hefur í hérlendum gjaldeyrisviðskiptum síðustu ár heyri að verulegu leyti sögunni til. Slík viðskipti verði hér eftir fyrst og fremst með einstaka gjaldmiðla gagnvart krónunni. Verður evran þar fyrirferðamest, enda er meira en helmingur utanríkisviðskipta okkar beint eða óbeint tengdur evru. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að í nýlegri tilkynningu á vef Seðlabankans kemur fram að bankinn hætti útreikningi vísitölu gengisskráningar, þ.e. þeirri sem í daglegu tali er kölluð gengisvísitala krónu, um áramótin. Bankinn hefur um tveggja ára skeið reiknað fjórar vísitölur meðalgengis sem endurspegla utanríkisviðskipti á misbreiðum grunni, auk gengisvísitölunnar gömlu. Þessar fjórar vísitölur munu hér eftir væntanlega taka við því hlutverki sem gengisvísitalan hefur gegnt sem viðmið fyrir almenna gengisþróun gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Miða þær annarsvegar við vöruskipti og hinsvegar við vöru- og þjónustuviðskipti Samkvæmt nýjum vogum fyrir vísitölurnar fjórar, sem gilda frá 1. desember síðastliðnum, er vægi evru á bilinu 45-47%, vægi Bandaríkjadollara og breska pundsins 10-11% fyrir hvora mynt og vægi dönsku krónunnar 7-8% eftir því við hvaða vog er stuðst. Mikilvægi gengisþróunar evru fyrir utanríkisviðskipti er þó meira á heildina litið. Gengi dönsku krónunnar er þannig fast gagnvart evru og sama gildir um Eystrasaltslöndin. Sé þetta tekið með í reikninginn er heildarvægi evru, beint og óbeint, á bilinu 54 -55% í utanríkisviðskiptum.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira