Viðskipti innlent

Kristján hættur hjá Kaupþingi

Kristján Arason hefur látið af störfum hjá Kaupþingi sem framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs bankans. Kristján tilkynnti samstarfsmönnum þetta í tölvupósti fyrir stundu.

Í byrjun vikunnar var fimm yfirmönnum bankans sagt upp. Bjarki H. Diego yfirmaður fyrirtækjasviðs, Þórarinn Sveinsson yfirmaður eignastýringar og Guðný Arna Sveinsdóttur sem hefur verið yfir rekstrar- og fjármálasviði var öllum sagt upp á mánudaginn. Degi síðar voru Benedikt Sigurðsson upplýsingafulltrúi og Jónas Sigurgeirsson forstöðumaður samskiptasviðs bankans látnir taka pokann sinn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×