Fleiri fréttir

McDonalds sektað fyrir ólöglega starfsmenn

Félag sem rekur 11 McDonalds veitingahús í Nevada hefur verið sektað um eina milljón dollara eftir að í ljós kom að tæplega 60 ólöglegir innflytjendur unnu á veitingahúsunum.

Nýir eigendur Ræsis

"Þetta er frágengið með ákveðnum fyrirvörum,“ segir Hjálmar Helgason spurður um hvort eigendaskipti hafi átt sér stað á Ræsi. Hjálmar verður framkvæmdastjóri Ræsis, en kaupandi er fyrirtækið Íshlutir í Mosfellsbæ.

Hráolíuverðið lækkaði hratt í dag

Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði um fjóra dali á tunnu í dag eftir að bandaríska orkumálaráðuneytið greindi frá því að olíubirgðir vestanhafs hefðu aukist á milli vikna. Þetta kom markaðsaðilum á óvart enda höfðu þeir reiknað með frekari samdrætti.

Atvinnuleysi eykst

Atvinnuleysi á öðrum ársfjórðungi var 3,1% að meðaltali samkvæmt mælikvarða Hagstofunnar. Atvinnuþátttaka dróst saman um eitt prósentustig miðað við seinasta ár. Þetta kom fram í Hálffimm fréttum greiningardeildar Kaupþings í dag.

Teymi lækkaði mest í dag

Gengi bréfa í Teymi lækkaði um 7,14 prósent á markaði í dag og er það mesta fallið í Kauphöll Íslands. Gengið seig um 10 prósent þegar verst lét. Af öllum þeim fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöllina hækkaði gengi Glitnis mest, eða um 1,55 prósen, og í Landsbankanum, sem skreið upp um 0,22 prósent.

Enn lækkar Teymi

Gengi hlutabréfa í Teymi féll um tíu prósent í Kauphölllinni á fremur rauðum degi í morgun. Það jafnaði sig lítillega en lækkun bréfa í félaginu nemur nú 8,3 prósentum. Gengi bréfa í því féll um 13 prósent í gær og nemur heildarlækkunin því rúmu 21 prósenti á tveimur dögum.

Breytingar hjá Skiptum

Hjá Skiptum hafa verið stofnuð tvö ný svið, Mannauðssvið og Viðskiptaþjónusta, sem leysa munu af hólmi Starfsmannasvið félagsins.

Átján ára tölvuþrjótur sýknaður

Nýsjálenskur unglingur sem játaði að hafa tekið þátt í alþjóðlegum tölvuglæp hefur verið sleppt eftir að ákæra á hendur á honum var látin niður falla. Lögreglan segir að hópurinn hafi „hakkað“ sig inn á yfir milljón tölvur og tekið þaðan a.m.k 20,4 milljónir dollara af bankareikningum fólks.

Metverðbólga á evrusvæðinu

Verðbólga mældist 4,0 prósent á evrusvæðinu í síðasta mánuði. Þetta er 0,3 prósentustiga hækkun á milli mánaða og hefur hún aldrei verið meiri.

Eik Banki fellur um 10% á markaðinum í Kaupmannahöfn

Tveir litlir bankar á markaðinum í Kaupmannahöfn hafa fallið mikið frá því í morgun. Hinn færeyski Eik Banki hefur fallið um 10% en hann er einnig skráður í kauphöllina hérlendis. Þá hefur Bonusbanken fallið um rúm 7%.

Íbúðalánum bankana fækkar um 93% milli ára

Íbúðalán innlánastofnana í júnímánuði voru 46 talsins og fækkaði um 30 frá fyrri mánuði. Í júní fyrir ári síðan voru íbúðalán innlánastofnanna hinsvegar 660 talsins og hefur þeim því fækkað um 93% á milli ára.

Exista lækkar í litlum viðskiptum

Gengi hlutabréfa í Existu lækkaði um 2,24 prósent í fyrstu viðskiptunum í Kauphöll Íslands í dag. Gengið stendur í 6,11 krónum og hefur aldrei verið lægra. Viðskipti með bréf í félaginu eru ekki mikil, eða rúmar 24 milljónir króna.

Gengið fellur um 0,57%

Gengi krónunnar hefur fallið um 0,57% á gjaldeyrismarkaðinum eftir rólega byrjun í morgun. Gengisvísitalan hefur hækkað um 0,57% og stendur í 158,4 stigum.

Fjöldi fasteignafélaga á Spáni orðin gjaldþrota

Fasteignafélög á Spáni standa nú í röðum eftir að lýsa sig gjaldþrota. Þetta kemur í kjölfar þess að um 40.000 fasteignasalar í landinu hafa lokað skrifstofum sínum frá því í fyrra.

Danir baula á konur á barneignaraldri

Mörg fyrirtæki ráða fremur aðra umsækjendur en konur á barneignaraldri. Þetta kemur fram í Börsen en þar er sagt frá rannsókn sem greiningarstöðin Zapera gerði með því að taka viðtöl við 252 starfsmannastjóra í dönskum fyrirtækjum.

Sparisjóðirnir eru kaupfélög nútímans

Rekstarfyrirkomulag sparisjóðanna er barn síns tíma. Markaðsaðstæður knýja á um hagræðingu hjá fjármálastofnunum. Sparisjóðirnir hafa ekki varið eigið fé sitt með sama hætti og viðskiptabankarnir. Hagræðingarmöguleikar til staðar segir prófessor við HÍ.

RÚV ekki einsdæmi

Andsvör Þorsteins Þorsteinssonar, markaðsstjóra RÚV, vegna ásakana Sigríðar Margrétar og Péturs um ósanngjarna samkeppnisstöðu:

Fersk blóm nauðsynleg

Fastakúnni Dans á rósum kaupir mikið af blómum fyrir sjálfa sig. Framkvæmdastjóri Flugleiðahótela segir ekkert alvöru hótel geta verið án ferskra blóma.

Alltaf á tánum í hlutabréfaviðskiptum

Hans-Ole Jochumsen, forstjóri OMX-kauphallasamstæðunnar á Norðurlöndunum, segir að sífellt sé leitað leiða til að bæta hlutabréfamarkaðinn. Hraði og nýsköpun er lykillinn í harðri samkeppni. Forstjórinn spjallaði við Jón Aðalstein Bergsveinsson.

Framtíð á bláþræði

Mikil ólga hefur umleikið danska fríblaðið Nyhedsavisen að undanförnu. Áður óþekkt skuldabréf í eigu Stoða Invest upp á 4 milljarða íslenskra króna setti strik í reikninginn við endurfjármögnun blaðsins sem nú stendur yfir. Skuldabréfið fékk Stoðir Invest fyrir að færa meirihlutaeign í félaginu bak við Ny­heds­avisen til Morten Lund.

Ósanngjörn staða á auglýsingamarkaði

Harðnandi samkeppni fjölmiðla virðist yfirvofandi á auglýsingamarkaði. Fækkun útgáfudaga og samrunar fjölmiðlafyrirtækja eru talin líkleg á næstu mánuðum. Forsvarsmenn Skjás eins og 365 miðla segja stöðu RÚV á auglýsingamarkaði ósanngjarna.

Dregur úr einkaneyslu

Kaldir vindar hafi blásið um íslenskt efnahagslíf á öðrum fjórðungi þessa árs og vísbendingar benda því til þess að verulega hafi hallað undan fæti í einkaneyslu á ársfjórðungnum. Þetta kom fram í Hálffimm fréttum greiningardeildar Kaupþings í dag.

Greiningadeild Kaupþings spáir 13,2% verðbólgu

Greiningardeild Kaupþings gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs í júlí hækki um u.þ.b. 0,6%. Mun þá 12 mánaða verðbólga standa í 13,2% og er útlit fyrir að hámarkinu verði náð í ágúst í kringum 14%. Útsöluáhrif til lækkunar vísitölu neysluverð verða töluverð að þessu sinni. Til hækkunar munuvega þyngst ferðir og flutningar, húsnæðisliður og matur og drykkur

General Motors segir upp 16 þúsund manns

Rick Wagoner, forstjóri bandaríska bílaframleiðandans General Motors, tilkynnti í dag að fyrirtækið ætli að segja upp 20 prósentum af skrifstofufólki sínu fram á næsta ári. Horft er til þess að uppsagnirnar spari fyrirtæki fimmtán milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 1.164 milljarða íslenskra króna.

Hráolíuverðið féll í dag

Heimsmarkaðsverð á hráolíu féll um tíu dali á tunnu í kjölfar ummæla Bens Bernanke, seðlabankastjóra, að útlit sé fyrir að einkaneysla muni dragast saman á árinu. Þá helst verðlækkunin í hendur við lækkun á gengi hlutabréfa en fjárfestar seldu mikið magn bréfa vegna fregna um slæma fjárhagsburði fjármálafyrirtækja.

Teymi féll um 13,3 prósent

Gengi hlutabréfa í Teymi féll um 13,3 prósent í Kauphöllinni í dag og er það mesta fall dagsins á annars mjög rauðum degi. Einungis gengi bréfa í Eimskipafélaginu hækkaði á sama tíma, eða um 0,.35 prósent.

Geir Haarde í lok dags: Aðgerða er að vænta

Geir H. Haarde forsætisráðherra var gestur Sindra Sindrasonar í lok dags hér á Vísi. Fór Sindri yfir víðan völl með ráðherranum sem hefur setið undir nokkurri gagnrýni undanfarið. Geir sagði meðal annars að aðgerða í efnahagsmálum væri að vænta og erlendu lánin sem búið er að boða yrðu tekin í nokkrum skrefum. Hann gat hinsvegar ekki sagt hvenær það yrði.

Euromoney valdi Kaupþing besta banka á Íslandi

Kaupþing hefur verið valinn besti bankinn á Íslandi af alþjóðlega viðskiptatímaritinu Euromoney. Viðurkenningin var afhent fulltrúum bankans nýverið við hátíðlega athöfn í Lundúnum.

Bush ver björgun húsnæðislánasjóðanna

Húsnæðislánasjóðirnir Fannie Mae og Freddie Mac eru nægilega fjármagnaðir. Þetta sagði George W. Bush, forseti Bandríkjanna, á blaðamannafundi sem nú stendur yfir í Hvíta húsinu. Hann vísaði því á bug að ákvörðun ríkisstjórnarinnar að auka hlutafé sjóðanna í skugga mikilla afskrifta vegna þrenginga á fasteignamarkaði sé til þess fallið að bjarga hluthöfum sjóðanna.

Enn falla húsnæðislánasjóðirnir

Gengi hlutabréfa í bandarísku húsnæðislánasjóðunum Fannie Mae og Freddy Mac féll á ný í dag þrátt fyrir að bandaríska ríkið hafi ákveðið að grípa til björgunaraðgerða til að forða fyrirtækjunum frá þroti.

Smásöluverslun í Bandaríkjunum undir væntingum

Smásöluverslun í Bandaríkjunum jókst aðeins um 0,1 prósent í júní en sérfræðingar höfðu spáð aukningu upp á nærri hálft prósentustig. Helsta ástæðan er talin vera minni sala á bílum en hún lækkaði um 3,3 prósent í mánuðnum.

Um 4-5% samdráttur í einkaneyslu

Um 4-5% samdráttur hefur orðið í einkaneyslu á öðrum ársfjórðungi 2008 miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta segir í Morgunkorni Glitnis og miðar greiningadeildin tölur sínar við þróun kortaveltu á tímabilinu.

Þriðjungur fyrirtækja í lánsfjárvanda

Nærri þrjú af hverjum fjórum aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins hafa ráðist í hagræðingaraðgerðir á árinu eða hyggjast gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun á rekstrarhorfum fyrirtækjanna.

Exista leiðir lækkanalestina

Gengi bréfa í Existu féll um 3,33 prósent við upphaf viðskipta í Kauphöll Íslands í dag. Það jafnaði sig lítillega skömmu síðar. Gengið stendur nú í 6,44 krónum á hlut og hefur aldrei verið lægra. Bankar og fjárfestingafélög fylgja fast á hæla Existu á rauðum degi.

Risavaxinn afgangur á vöruskiptum í Noregi

Hið háa olíuverð í heiminum fær Norðmenn til að brosa breitt þessa dagana. Afgangurinn af vöruskiptum þeirra við útlönd nam yfir 500 milljörðum kr. í júnímánuði einum saman.

Deilt um íslenskan efnahag á lesendasíðu FT

Deilur um íslenskan efnahag og nánustu framtíðarhorfur hérlendis eru nú sprottnar upp á lesendasíðu viðskiptablaðsins Financial Times. Eigast þar við Íslandsvinurinn prófessor Robert Wade annarsvegar og prófessorarnir Friðrik Már Baldursson og Richard Portes hinsvegar.

Mikil verðbólga í Bretlandi

Verðbólga mældist 3,8 prósent í Bretlandi í síðasta mánuði, samkvæmt nýjustu tölum bresku hagstofunnar. Hún hefur ekki verið meiri í áratug.

Lækkanir á Asíumörkuðum í morgun

Fjármálafyrirtæki leiddu lækkun á hlutabréfamörkuðum í Asíu í morgun. Fylgir Asía þar með í fótspor markaða í Bandaríkjunum í gær.

Um 650 fjárfestar hluthafar í 365

Eigendur um 7% hlutafjár í fjölmiðla- og afþreyingarfélaginu 365 hf. um 165 aðilar tóku kauptilboði félagsins í tengslum við fyrirhugaða afskráningu 365 úr Kauphöll Íslands.

Íslendingar fjárfesta í dönsku framleiðslufyrirtæki

Íslenskir fjárfestar hafa fest kaup á Toraco Finmekanik, dönsku fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á málmhlutum. VBS fjárfestingarbanki hf. hafði milligöngu um kaupin á fyrirtækinu og sá um samninga við Danske Bank sem fjármagnaði kaupin. Kaupverð er trúnaðarmál. Þetta kemur fram í tilkynnin

Færeyingarnir neðstir í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í færeyska bankanum Eik banka féll um 3,97 prósent á fremur rauðum degi í Kauphöllinni í dag. Landar Færeyinganna hjá olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum fylgdi fast á eftir með lækkun upp á 2,94 prósent.

Sjá næstu 50 fréttir