Viðskipti erlent

Verðbólga í Bandaríkjunum aldrei hækkað eins mikið á milli mánaða í 26 ár

SHA skrifar

Verðbólga í Bandaríkjunum hefur ekki hækkað jafn mikið á milli mánuða síðan árið 1982. Verðlag í landinu hækkaði um 1,1% og um 5% á ársgrundvelli sem er það hæsta frá árinu 1991. BBC greinir frá.

Seðlabankastjóri Bandaríkjanna, Ben Bernanke, sagði í gær að hætta á aukinni verðbólgu hefði aukist til muna. Því liggur ljóst fyrir að verðbólgan mun reynast seðlabankanum Þrándur í götu í öllum komandi aðgerðum hans, til dæmis við að lækka stýrivexti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×