Fleiri fréttir Hlutabréf í Roskilde bank enn í frjálsu falli Hlutabréf í Roskilde bank hafa verið í frjálsu falli frá því að kauphöllin í Kaupmannahöfn opnaði í morgun. Björgunaraðgerðir Seðlabanka Danmerkur fyrir helgina hafa ekki náð að róa fjárfesta. 14.7.2008 09:20 Stoðir Invest bjarga Nyhedsavisen Viðskiptasíður danskra blaða segja í morgun að Stoðir Invest muni koma Nyhedsavisen til bjargar. Samkomulag hafi náðist milli Stoða og Morten Lund meirihlutaeigenda útgáfunnar um helgina og verði það kynnt síðar í dag. 14.7.2008 09:13 Stærsti bjórframleiðandi heims varð til um helgina Stærsti bjórframleiðandi í heimi varð til um helgina er Anheuser-Busch, sem framleiðir Budwaiser-bjórinn. samþykkti yfirtöku belgíska InBev brygghúsana sem framleiða Stella Artois bjórinn. 14.7.2008 07:47 Fasteignasjóðum í Bandaríkjunum bjargað frá þroti Fjármálaráðherra Bandaríkjanna hefur gefið út yfirlýsingu um að tveimur stærstu íbúðalánasjóðum landsins verði komið til aðstoðar. Bæði ríkissjóður landsins og seðlabanki munu koma að málinu. 14.7.2008 06:43 Þriðjungur Airbus-pantana í uppnámi EADS, sem framleiðir Airbus-farþegaþoturnar í Evrópu, gerir ráð fyrir því að allt að þriðjungur þeirra pantana sem flugfélögin hafa lagt inn hjá fyrirtækinu gæti endað í ruslinu vegna þeirrar úlfakreppu sem hækkandi eldsneytisverð hefur valdið flugfélögum um allan heim. 13.7.2008 18:07 Skuldir vegna SMS-lána hlaðast upp í Finnlandi Finnskar fjármálastofnanir riðu fyrir þremur árum á vaðið með SMS-lán, nýja kynslóð bankalána sem afgreidd eru á þremur mínútum. Nú er svo komið að skuldir tengdar þessum lánum eru orðnar 20 prósent vandræðaskulda Finna 13.7.2008 14:04 Yahoo! hafnaði tilboði Microsoft um kaup á leitarvélahluta Yahoo! hafnaði í dag tilboði Microsoft og milljarðamæringsins Carls Icahns um kaup á leitarvélahluta fyrirtækisins. 13.7.2008 12:27 Ísland auðmannanna 12.7.2008 14:21
Sjá næstu 50 fréttir
Hlutabréf í Roskilde bank enn í frjálsu falli Hlutabréf í Roskilde bank hafa verið í frjálsu falli frá því að kauphöllin í Kaupmannahöfn opnaði í morgun. Björgunaraðgerðir Seðlabanka Danmerkur fyrir helgina hafa ekki náð að róa fjárfesta. 14.7.2008 09:20
Stoðir Invest bjarga Nyhedsavisen Viðskiptasíður danskra blaða segja í morgun að Stoðir Invest muni koma Nyhedsavisen til bjargar. Samkomulag hafi náðist milli Stoða og Morten Lund meirihlutaeigenda útgáfunnar um helgina og verði það kynnt síðar í dag. 14.7.2008 09:13
Stærsti bjórframleiðandi heims varð til um helgina Stærsti bjórframleiðandi í heimi varð til um helgina er Anheuser-Busch, sem framleiðir Budwaiser-bjórinn. samþykkti yfirtöku belgíska InBev brygghúsana sem framleiða Stella Artois bjórinn. 14.7.2008 07:47
Fasteignasjóðum í Bandaríkjunum bjargað frá þroti Fjármálaráðherra Bandaríkjanna hefur gefið út yfirlýsingu um að tveimur stærstu íbúðalánasjóðum landsins verði komið til aðstoðar. Bæði ríkissjóður landsins og seðlabanki munu koma að málinu. 14.7.2008 06:43
Þriðjungur Airbus-pantana í uppnámi EADS, sem framleiðir Airbus-farþegaþoturnar í Evrópu, gerir ráð fyrir því að allt að þriðjungur þeirra pantana sem flugfélögin hafa lagt inn hjá fyrirtækinu gæti endað í ruslinu vegna þeirrar úlfakreppu sem hækkandi eldsneytisverð hefur valdið flugfélögum um allan heim. 13.7.2008 18:07
Skuldir vegna SMS-lána hlaðast upp í Finnlandi Finnskar fjármálastofnanir riðu fyrir þremur árum á vaðið með SMS-lán, nýja kynslóð bankalána sem afgreidd eru á þremur mínútum. Nú er svo komið að skuldir tengdar þessum lánum eru orðnar 20 prósent vandræðaskulda Finna 13.7.2008 14:04
Yahoo! hafnaði tilboði Microsoft um kaup á leitarvélahluta Yahoo! hafnaði í dag tilboði Microsoft og milljarðamæringsins Carls Icahns um kaup á leitarvélahluta fyrirtækisins. 13.7.2008 12:27
Allt að 800 metra biðraðir eftir nýja iPhone-símanum Gloppur í hugbúnaði nýja iPhone-símans frá Apple og takmarkað upplag hans í mörgum verslunum sló marga kaupendur út af laginu í gær þegar sala á gripnum hófst í 22 löndum en hans hefur verið beðið með eftirvæntingu síðan í vor þegar fréttir tóku að berast af nýjum iPhone-síma. 12.7.2008 11:41
Bensínverð hækkar - dauðaslysum í umferð fækkar Ný rannsókn í Bandaríkjunum leiðir í ljós að dauðaslysum í umferðinni gæti fækkað um þriðjung vegna nýlegra hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. 11.7.2008 21:54
Færeyingar féllu mest Gengi hlutabréfa í hinum færeyska Eik banka féll um tæp sjö prósent í dag en það er mesta lækkun dagsins í Kauphöllinni. Færeyjabanki fylgdi löndum sínum eftir en gengi bréfa í bankanum féll um 2,76 prósent. Eina íslenska félagið sé féll um rúm tvö prósent var Exista en gengisfall þess í dag nemur 2,62 prósentum. Gengi bréfa í félaginu endaði í 6,69 krónum á hlut og hefur það aldrei verið lægra. 11.7.2008 15:34
Tryggingarmiðstöðin styrkir Þjóðhátíð vegna bruna Tryggingamiðstöðin (TM) hefur ákveðið að styrkja aðstandendur Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum til uppbyggingar á þeim mannvirkjum sem skemmdust eða eyðilögðust í eldsvoða í lok maí. Um er að ræða umgjörð Þjóðhátíðar sem haldin er árlega um verslunarmannahelgina í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. 11.7.2008 15:30
Krónan veiktist hastarlega eftir hádegið Gengi krónunnar hefur fallið um 2,17prósent eftir nokkuð óbreytta stöðu í morgun. Vísitalan stendur í 156 stigum, sem er svipað ról og hún var á í byrjun mánaðar. 11.7.2008 14:29
Lækkun á bandarískum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa hefur almennt lækkaði á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Hátt olíuverð á hlut að máli auk þess sem fregnir um slæma fjárhagsstöðu bandarísku fasteignasjóðanna Fannie Mae og Freddie Mac varð til þess að fjárfestar losuðu sig við hlutabréf og færðu fjármuni sína í öruggara skjól. 11.7.2008 13:37
Hráolíuverð aftur í methæðir Heimsmarkaðsverð sló nýtt met í dag þegar það hækkaði verulega og snerti 146 dali á tunnu. Ástæðan er vaxandi spenna fyrir botni Miðjarðarhafs, fyrirhugað nokkurra daga verkfall í olíuframleiðslu í Brasilíu og árásir á olíuvinnslustöðvar í Nígeríu. 11.7.2008 13:14
Færeysku bankarnir lækka mest Íslenska úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,22% í dag Mest hefur gengið í færeyska Eik bankanum lækkað um 8,61% og Føroya Banka 4,83%. 11.7.2008 12:56
Gengi fasteignasjóðanna hrynur Gengi bréfa í fasteignasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac hafa fallið um helming fyrir upphaf viðskiptadagsins í dag. Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, vísaði því á bug í gær að sjóðirnir væru að keyra í þrot og benti á að þeir væru of mikilvægir fyrir bandarískt efnahagslíf til að svo geti farið. 11.7.2008 12:56
Fleiri danskir bankar en Roskilde bank í erfiðleikum Fjölmiðlar í Danmörku hafa skrifað mikið um erfiðleika Roskilde bank sem nú hefur fengið 12 milljarða kr. lán frá danska seðlabankanum til að halda sér á floti. Fjárfestingarstjóri Straums-Burðarás í Danmörku segir að Roskilde bank sé ekki einstakt tilfelli og að fleiri danskir bankar muni lenda í vandræðum. 11.7.2008 11:25
Olíuverðið dragbítur rekstrarfélaga Hátt olíuverð er helsta ástæða þess að gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag. Rekstrarfélög, svo sem bílaframleiðendur og flugfélög, hafa lækkað nokkuð enda vegur olíuverðið þungt í efnahagsreikningi þeirra. 11.7.2008 11:00
Neikvæðar horfur á hlutabréfamarkaði til áramóta Greining Glitnis telur horfurnar fyrir íslenskan hlutabréfamarkað neikvæðar til loka árs og sér ekki kauptækifæri í íslenskum hlutabréfum horft til skamms tíma. 11.7.2008 10:42
Verð á hráolíu rýkur upp á mörkuðum í Evrópu Verðið á olíutunnunni hefur rokið upp á mörkuðum í Evrópu í morgun. Um tíuleytið var tunnan af Brent-olíu komin yfir 144 dollara sem er hækkun um hátt í þrjá dollara frá því í gærkvöldi. 11.7.2008 10:28
Olíuverð nálægt methæðum Heimsmarkaðsverð hækkaði um 2,5 prósent í morgun og er nú komið nálægt methæðum á nýjan leik. Þetta er jafnframt þriðji dagurinn í röð sem verðið hækkar. 11.7.2008 10:24
Bakkavör hækkar í litlum viðskiptum Gengi hlutabréfa í Bakkavör hefur hækkað um 1,82 prósent í upphafi viðskiptadagsins hér í dag. Þá hefur gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkað um 0,07 prósent. Engin breyting er á gengi annarra félaga. 11.7.2008 10:16
Rekstur Sellafield-versins boðinn út Breska ríkið hefur tilnefnt þrjú félög beggja vegna Atlantsála til að hreina og reka kjarnorkuverið í Sellafield þar í landi. Í nýlegri skýrslu breskra yfirvalda kemur fram að hugsanlega taki það rúma öld að hreinsa svæðið og tryggja öryggi þess.Breska ríkið mun eftir sem áður eiga eignir kjarnorkuversins. 11.7.2008 10:02
Abramovich kaupir dýrasta hús í heimi Auðjöfurinn Roman Abramovich hefur fest kaup á dýrasta húsi í heimi. Roman borgaði tæplega 35 milljarða kr. Fyrir húsið La Leopolda sem stendur við frönsku rivieruna nálægt Monte Carlo. 11.7.2008 09:55
Royal Bank of Scotland selur undan ABN Amro Royal Bank of Scotlandi er að skoða sölu á starfseiningu hollenska bankans ABN Amro í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. 11.7.2008 09:46
Actavis fyrst á markað með krabbameinslyf Actavis hefur sett krabbameinslyfið Bicalutamid á markaði í Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi. Bicalutamid frá Actavis er fyrsta samheitalyf lyfsins sem fáanlegt er á þessum þremur mörkuðum. 11.7.2008 08:17
Stjórn Nyhedsavisen hótar að segja af sér Stjórn útgáfufélagsins á bakvið fríblaðið Nyhedsavisen hótar nú að segja af sér ef eigendur útgáfunnar, Morten Lund og Stoðir Invest, tryggi ekki mjög bráðlega nýtt fjármagn til rekstursins. 11.7.2008 07:58
Raunverð fasteigna hefur lækkað um 8,5% Fasteignir hafa lækkað um hátt í átta og hálft prósent að raunvirði, þegar litið er eitt ár aftur í tímann, að mati greiningardeildar Kaupþings. 11.7.2008 07:30
Olíuverðið rauk upp um 5 dollara í lok markaða Aðeins hálftíma áður en olíumarkaðir heimsins lokuðu seint í gærkvöldi rauk verðið á olíutunnunni upp um röska 5 dollara og stendur nú í ríflega 141 dollar á tunnuna. 11.7.2008 07:18
Hvetur fólk til að halda sér fast í efnahagsöldunni Björgólfur Guðmundsson bað landsmenn að halda sér fast meðan efnahagsaldan skylli á okkur. Þetta sagði hann í ávarpi af tilefni af opnun Gestastofu Tónlistar og ráðstefnuhúss þar sem gestum gefst færi á að virða fyrir sér byggingu þessa risamannvirkis. 10.7.2008 20:58
Íbúðaverð lækkar á milli mánaða Vísitala íbúðaverðs lækkaði í júní um 0,1% milli mánaða. Í Hálf-fimm fréttum Kaupþings segir að þessi lækkun komi í kjölfar hækkunar um hálft prósent í síðasta mánuði en þriggja mánaða breytingin mælist nú neikvæð um 1,2%. 10.7.2008 17:02
Krónan veiktist síðdegis Gengi íslensku krónunnar veiktist um 0,37 prósent í dag. Það sveiflaðist nokkuð yfir daginn, styrktist fram yfir hádegi en tók þá að veikjast aftur lítillega. 10.7.2008 15:51
Enn lækkar Bakkavör Gengi hlutabréfa í Bakkavör féll um 4,62 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Það stendurnú í 24,8 krónum á hlut og hefur ekki verið lægra síðan í janúar árið 2005. Þá féll gengi bréfa í Existu, sem Bakkavör er stærsti hluthafinn í, um 2 prósent. 10.7.2008 15:32
Samdráttur í smásöluverslun í júní Velta í dagvöruverslun minnkaði um 2,2% í júní síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Á breytilegu verðlagi jókst velta í dagvöruverslun hins vegar um 13,5% á milli ára. Verð á dagvöru hækkaði um 16,1% á einu ári, frá júní í fyrra til júní á þessu ári. Á milli mánaðanna maí og júní minnkaði velta dagvöruverslana um 3,4% á föstu verðlagi og um 2,6% á breytilegu verðlagi. 10.7.2008 14:04
Eignir lífeyrissjóðanna rýrna að raunvirði Aukning á hreinni eign lífeyrissjóða hélt ekki í við verðbólgu á tímabilinu frá maílokum 2007 til sama tíma á þessu ári. Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis. 10.7.2008 11:24
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í fimm prósentum. Þetta er í samræmi við flestar spár. Í rökstuðningi bankans fyrir ákvörðuninni kemur fram að stefnt sé að því að halda verðbólgu niðri en hætt sé við að hún komi niður á vexti hagkerfisins. 10.7.2008 11:04
Skellur hjá Sports Direct Hagnaður Sports Direct, umsvifamestu íþróttavöruverslun Bretlands, nam 85 milljónum punda á síðasta rekstrarári. Þetta jafngildir 12,8 milljörðum íslenskra króna og er helmingi minna en verslunin skilaði árið á undan. 10.7.2008 10:45
Exista leiðir lækkunarlestina Gengi hlutabréfa í Existu féll um tvö prósent við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í dag en það er jafnframt mesta lækkun dagsins. Þetta er nokkuð í takt við þróunina á norrænum hlutabréfamörkuðum í dag. 10.7.2008 10:07
Krónan veikist í byrjun dags Gengi íslensku krónunnar lækkaði um 0,45 prósent í morgun en styrktist fljótlega og stendur nú nándar óbreytt frá í gær. Vísitala hennar stendur í 152,2 stigum. Gengið hefur styrkst nokkuð síðustu daga og stóð við 151,8 stigin í gær en það hefur ekki farið undir 150 stigin síðan seint í maí. 10.7.2008 09:27
Talsverð lækkun á evrópskum mörkuðum Gengi hlutabréfa í Kaupþingi á markaði í Svíþjóð hafa lækkað um 2,12 prósent frá því hlutabréfamarkaðir opnuðu í morgun. Aðrir eignir íslenskra félaga hafa sömuleiðis lækkað. Þetta er í takt við þróunina á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum í dag. 10.7.2008 09:09
Arabar festa kaup á Crysler byggingunni í New York Fjárfestingarsjóður í eigu stjórnvalda í Abu Dhabi hefur fest kaup á þekktasta húsi New York borgar, Chrysler byggingunni. 10.7.2008 07:44
Krónan styrkist áfram Krónan hefur styrkst nær samfellt síðan 24. júní þegar hún náði sínu lægsta sögulega gildi í kringum 170 stigin. Í dag styrktist krónan um 1,21% og stendur gengisvísitalan í rúmum 152 stigum, evran stendur í 118,8 og dollar í 75,5. Það sem vekur kannski nokkra furðu er að þessi styrking skuli eiga sér stað á sama tíma og þróun á hlutabréfamörkuðum hérlendis og erlendis hefur verið neikvæð sem allajafna veikir krónuna. 9.7.2008 16:34
Century Aluminum hækkar eftir fall í gær Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi álversins á Grundartanga, hækkaði um rúm 8,4 prósent í Kauphöllinni í dag. Gengið féll um rúm fimmtán prósent í gær eftir að félagið innleysti framvirka samninga á áli og greiddi fyrir 130 milljarða íslenskra króna. Þá stefnir það á hlutafjárútboð. 9.7.2008 16:21
Saga Capital styrkir Jökulsárhlaup Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur ákveðið að styrkja Jökulsárhlaup, víðavangshlaup um eitt fallegasta svæði landsins og hvetja þannig til íþróttaiðkunar og útivistar ásamt því að kynna þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum. 9.7.2008 12:58
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent