Viðskipti erlent

McDonalds sektað fyrir ólöglega starfsmenn

Félag sem rekur 11 McDonalds veitingahús í Nevada hefur verið sektað um eina milljón dollara eftir að í ljós kom að tæplega 60 ólöglegir innflytjendur unnu á veitingahúsunum.

Félagið vissi að um ólöglegan starfskraft væri að ræða. Af þeim sökum á aðstoðarforstjóri félagsins nú yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi.

Helmingur starfsmannana er farin aftur til heimalands síns en helming hefur verið leyft að dvelja áfram í Nevada þar til málinu verður að fullu lokið fyrir dómstólum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×