Fleiri fréttir

Hafa reynst sannspáir um verðbólgu

Tímaritið Vísbending er tuttugu og fimm ára um þessar mundir. Af þessu tilefni ræddi Magnús Sveinn Helgason við Benedikt Jóhannesson, forstjóra útgáfufélagsins Heims og ritstjóra Vísbendingar, um sögu blaðsins og efnistök.

Augun opnast fyrir jarðvarmanum – og veskin með

Mikill áhugi á jarðvarmaráðstefnu í New York á dögunum þykir til marks um að jarðvarminn sé loks að brjóta sér leið upp á yfirborðið. Markmiðið var að fræða fjármálaheiminn um jarðvarma og kveikja áhuga. Forskot Íslands er að hverfa, segir forsetinn.

Hinn hljóði heimur

Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, stundar svifflug yfir sumarið og hefur gert það undanfarin 30 ár.

Dýrustu ár landsins

Ekkert lát hefur verið á sölu veiðileyfa þrátt fyrir slæm tíðindi úr efnahagslífinu undanfarið. Veiðileyfissalar segja ástæðuna fyrir því vera að flest veiðileyfin voru seld á síðasta ári áður en að fór að kreppa að.

Merrill Lynch býst til varnar

Bandaríski fjárfestingabankinn Merrill Lynch tilkynnti fyrr í dag um útgáfu nýs hlutafjár til að styrkja eiginfjárstöðu bankans. Áætlað er að safna um 8,5 milljörðum dollara í nýju hlutafé og hefur Temasek Holdings, ríkisfjárfestingarsjóður Singapúr, samþykkt að kaupa 3,4 milljarða af þeirri upphæð. Þetta kom fram í Hálffimm fréttum greiningardeildar Kaupþings í dag.

Krónan styrkist og hækkun í Kauphöllinni

Krónan styrktist um heil 3,64 prósent í dag. Stendur gengisvísitalan nú í 160,4 stigum. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,43 prósent og stendur nú í 4139 stigum. Landsbankinn og Össur hækka mest.

Hagnaður Landsbankans að mestu vegna gengisvarna

Hagnað Landsbankans á öðrum ársfjórðungi má að stórum hluta rekja til jákvæðrar afkomu af gengisvörnum eiginfjár á tímabilinu en krónan heldur áfram að vera stór áhrifaþáttur á eignir og rekstur bankanna.

Landsbankinn og Össur hækka

Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,16 prósent við opnun markaða. Össur hækkar um 1,54 prósent og Landsbankinn um 1,12 prósent en bæði félögin kynntu sex mánaða uppgjör sín í morgun.

Krónan styrkist

Krónan hefur styrkst um 1,03 prósent í morgunsárið. Gengisvísitalan er aftur komin undir 165 stig og stendur nú í 164,7 stigum. Evran kostar nú 128,7 krónur, dollarinn 81,7 krónur, breska pundið 162,2 krónur og danska krónan 17,15 krónur.

Össur eykur hagnað sinn

Hagnaður Össurar hf. á öðrum ársfjórðungi ársins nam um 320 milljónum króna samanborið við tæplega 130 milljónir króna á sama tímabili í fyrra.

Landsbankinn skilaði 12 milljarða kr. hagnaði

Landsbankinn skilaði 12 milljarða króna hagnaði eftir skatta á öðrum ársfjórðungi ársins. Er hagnaður bankans á fyrstu sex mánuðum ársins því orðinn tæplega 30 milljarðar króna eftir skatta.

Útgáfufélag Nyhedsavisen tapar 632 milljónum

Danskir fjölmiðlar greina frá því að Dagsbrun Media, útgáfufélag Nyhedsavisen, tapaði 632 milljónum danskra króna á síðasta ári. Tapið er jafnvirði 10,7 milljarðar íslenskra króna. Eigið fé fyrirtækisins er neikvætt upp á ríflega 230 milljónir.

Svartsýni í Þýskalandi

Þýskir neytendur hafa ekki verið svartsýnni í fimm ár ef marka má nýjustu mælingu væntingavísitölu þar í landi. Í júlí féll vísitalan niður í 2,1 stig sem er lægsta gildi vísitölunnar síðan í júní 2003. Þetta kom fram í Hálffimm fréttum greiningardeildar Kaupþings í dag.

Krónan og úrvalsvísitalan á niðurleið

Krónan veiktist um 1,38 prósent í dag og úrvalsvísitalan um 0,73 prósent. Gengisvísitalan stendur nú í 4121 stigum og gengisvísitalan í 166,5 stigum. Century Aluminium hækkar um átta prósent og Teymi lækkar um 1,94 prósent.

Válega horfir vogunarsjóðum

Útkoma vogunarsjóða eftir júlímánuð gæti orðið sú versta í fimm ár í kjölfar þess að spár um þróun hlutabréfamarkaðarins og hráolíuverðs reyndust byggðar á sandi. Vísitala Hedge Fund Research Inc. sem heldur utan um 55

Nyhedsavisen á markað á næsta ári

„Jú, það er rétt að það er stefnt að því að skrá Nyhedsavisen á markað á næsta ári,“ segir Þórdís Sigurðardóttir, forstjóri Stoða Invest, um frétt danska blaðsins Berlingske Tidende þess efnis að Nyhedsavisen sé hugsanlega á leið á markað.

McDonald´s fer í mál við sjálft sig

Nytjaleyfishafar McDonald´s í Noregi hafa höfðað mál gegn höfuðstöðvum keðjunnar í Bandaríkjunum. Norðmennirnir ná vart upp í nefið á sér af reiði yfir að vera þvingaðir til að greiða fyrir viðhald staðanna að utanverðu

Úrvalsvísitalan á niðurleið

Úrvalsvísitalan heldur áfram að lækka við opnun markaða. Hefur hún lækkað um 0,93 prósent og stendur nú í 4113 stigum. Bréf Landsbankans hafa lækkað um 2,19 prósent, Glitnis um 0,87 prósent og bréf Marels um 0,83 prósent.

Nýja Batman-myndin heldur áfram að setja sölumet

The Dark Night, nýja Batman-myndin heldur áfram að setja sölumet vestanhafs. Tekjurnar af henni eftir tæpa 10 daga í sýningu eru orðnar rúmlega 314 milljónir dollara eða um 25 milljarðar kr.

Ársreikningur Nyhedsavisen enn ekki kominn

Nú er liðin vika frá lokafresti Nyhedsavisen til að leggja fram ársreiking sinn. Reikningurinn hefur enn ekki verið lagður fram og engin svör er að fá hjá stjórnendum útgáfunnar.

Enn lækkar krónan

Gengisvísitalan heldur áfram að hækka og stendur nú í 165,3 stigum. Hefur hún hækkað um 0,65 prósent í morgunsárið og gengið veikst sem því nemur.

McCain segir Wall Street eiga sök á kreppunni

John McCain frambjóðandi Repúblikana til forsetaembættisins í Bandaríkjunum skýtur föstum skotum á forstjórana á Wall Street. Hann segir að getuleysi þeirra hafi valdið undirmálslánakreppunni þar í landi og í framhaldinu kreppunni á lánsfjármörkuðum heimsins.

Verkfall lamar Lufthansa

Allar flugáhafnir þýska flugfélagsins Lufthansa eru komnar í ótímabundið verkfall.

365 fer af markaði í byrjun ágúst

OMX Nordic Exhcange Iceland hf. hefur samþykkt beiðni 365 hf. um töku hlutabréfa félagsins úr viðskiptum. Hlutabréfin verða tekin úr viðskiptum eftir lokun viðskipta föstudaginn 8. ágúst 2008. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem einnig er rætt um uppgjör á öðrum ársfjórðungi 2008.

Lagafrumvarp samþykkt til hjálpar húsnæðiskreppunni

Bandaríska þingið samþykkti í dag lagafrumvarp til þess að koma fjármálasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac til bjargar. Frumvarpið felur í sér að settur verði á laggirnar sjóður upp á 300 milljarða dollara til þess að koma þeim sem eiga mikið veðsettar eignir til bjargar.

Yfirmaður hjá UBS bankanum rekinn

Svissneski bankinn UBS AG rak í gær David Shulman yfirmann verðbréfa og skuldabréfa í Bandaríkjunum, að sögn aðila sem þekkja til. Það er The Wall Street Journal sem greinir frá þessu í dag.

Dræm sala ríkisbréfa hjá Seðlabanka Íslands

Í gær fór fram útboð á ríkisbréfum hjá Seðlabanka Íslands þar sem óskað var eftir tilboðum fyrir allt að sextán milljarða króna í tvo flokka. Útgáfan fékk hins vegar takmörkuð viðbrögð.

Olíutunnan í 126 dali eftir daginn

Verðið á olíutunnu fór yfir 126 bandaríkjadali á mörkuðum í dag eftir þó nokkrar lækkanir síðustu tveggja vikna. Veikari bandaríkjadalur virðist fylla fjárfesta bjartsýni segja greiningaraðilar.

Hagnaður Honda meiri en vænst var

Hagnaður Honda framleiðendanna jókst á öðrum ársfjórðungi 2008. Framleiðendurnir búast þó við því að hagnaðurinn minnki þegar litið verði til ársins í heild.

Royal Unibrew ætlar í útrás til austurs

Royal Unibrew, næststærsta brygghús Danmerkur, sér möguleika á auknum vexti á mörkuðum í Austur-Evrópu. Samhliða er ætlunin að skera verulega niður rekstrarkostnað félagsins. FL Group á rúmlega 25% Í Royal Unibrew.

Úrvalsvísitalan á niðurleið

Úrvalsvísitalan lækkar um 1,06 prósent við opnun markaða. Exista lækkar um 3,5 prósent, Glitnir og Kaupþing um 1,2 prósent . Bandaríska álfyrirtækið Century Aluminium hækkar um 2,20 prósent og færeyska félagið Atlantic Airways hækkar um 1,05 prósent.

Century Aluminium skilar tapi

Bandaríski álframleiðandinn Century Aluminium skilaði 2,3 milljón dollara tapi á öðrum ársfjórðungi eða sem svarar 187 milljónum íslenskra króna. Það er töluvert betri afkoma í samanburði við annan ársfjórðung árið 2007 þegar félagið skilaði 60,7 milljón dollara tapi.

Krónan að veikjast

Króna veikist í byrjun dags og stendur gengisvísitalan nú í 163,8 stigum. Hefur vísitalan styrkst um 0,63 prósent í morgun. Evran kostar nú 127,9 krónur, dollarinn 81,4 krónur, breska pundið 162,3 krónur og danska krónan 17,15 krónur.

Verðbólgan er 13,6%

Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,2% sem jafngildir 13,6% verðbólgu á ári, en 13,5% verðbólga án húsnæðis, samkvæmt tölum Hagstofunnar.

Íbúðalánasjóður fjölgar veðhæfum bréfum

Íbúðalánasjóður birti í dag reglur sem gilda um lán sjóðsins til fjármálafyrirtækja gegn veði í íbúðalánum viðkomandi stofnana. Eins og áður hefur verið greint verður að hámarki þrjátíu milljörðum varið til aðgerðanna sem ætlað er að létta á þeim lausafjárskorti sem ríkir á innlendum fjármálamarkaði.

Úrvalsvísitalan hækkar lítillega

Þrátt fyrir afar lítil viðskipti í Kauphöllinni í dag hækkar úrvalsvísitalan um 0,20 prósent. Stendur hún nú í 4168 stigum. Bakkavör hækkaði um 1,19 prósent, Kaupþing um 0,7 prósent og Straumur um 0,54 prósent. Hinn færeyski Eik banki lækkaði um 4,7 prósent, SPRON um 3,23 og Teymi um 3,13

Sjá næstu 50 fréttir