Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hagnast um 900 milljónir í Noregi Líklegt er að Burðárás hagnist um 900 milljónir á yfirtökutilboði í norska olíuleitarfyrirtækið Exploration Resources en Burðarás hefur frá því fyrr í sumar átt 8,3 prósenta hlut í fyrirtækinu. Í tilkynningu frá Burðarási segir að miðað við gengi félagsins í dag hafi markaðsverðmæti hlutar Burðaráss aukist úr um 90 milljónum norskra króna í 172 milljónir en mismunurinn nemur um 900 milljónum íslenskra króna. 15.8.2005 00:01
Sænskt hugvit í þýskar þotur Sænsk tækni verður væntanlega nýtt í þýsku Tornado-orrustuþoturnar en Saab hefur skrifað undir framleiðslusamning að upphæð einn milljarður sænskra króna, sem samsvarar 8,5 milljörðum íslenskra króna, við þýska hluta flugvélaframleiðandans EADS samkvæmt Vegvísi Landsbankans í dag. 15.8.2005 00:01
Litlar líkur á yfirtöku Markaðssérfræðingar Sunday Times spá í líkurnar á yfirtökutilboði FL-Group, sem á Icelandair, í easyJet. Bent er á að gengi bréfa í easyJet hafi verið hærra fyrir helgi en allt árið á undan og er sú hækkun rakin til hugsanlegrar yfirtöku. 14.8.2005 00:01
Yfirtökuskylda könnuð Yfirtökunefnd er nú að kanna hvort nýir hluthafar í Icelandair, eða FL Group, séu svo tengdir Baugi og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni fjárhagslega, að yfirtökuskylda hafi myndast. Yfirtökunefnd hefur fjallað um málefni FL Group á nokkrum fundum sínum og skipað sérstaka nefnd til þess að kanna hvort nokkrir hluthafar í fyrirtækinu væru svo efnahagslega tengdir að yfirtökuskylda hafi myndast. 14.8.2005 00:01
Ráða framkvæmdastjóra Enex-Kína Hans Bragi Bernharðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Enex-Kína ehf. Félagið vinnur að þróun og uppbyggingu hitaveitna í Kína í samstarfi við þarlenda aðila og sem stendur er m.a. unnið að undirbúningi hitaveitu í borginni Xianyang í Shaanxi-héraði. Enn fremur vinnur Enex-Kína að útvegun og sölu búnaðar frá Kína til Evrópu. 12.8.2005 00:01
Ágæt afkoma Verðbréfaþings Hagnaður Eignarhaldsfélagsins Verðbréfaþings hf., sem á og rekur Kauphöll Íslands og Verðbréfaskráningu Íslands, fyrstu sex mánuði ársins nam 36,7 milljónum króna og jókst um tæpar tvær milljónir frá sama tíma í fyrra. 12.8.2005 00:01
Olíuútgjöld mun meiri en ætlað var Olíureikningur Icelandair, eða Flugleiða, er orðinn einum milljarði hærri en gert var ráð fyrir um áramót. Sérstakt olíugjald, sem lagt hefur verið á hvern farmiða, hrekkur hvergi nærri upp í mismuninn. 12.8.2005 00:01
Hive kvartar yfir fjarskiptarisum Fjarskiptafyrirtækið Hive hefur sent inn kvörtun til Samkeppniseftirlitsins þar sem fyrirtækið telur að Síminn og Og Vodafone tvinni saman á óeðlilegan og samkeppnishindrandi hátt fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu og brjóti þar með gegn gildandi úrskurði samkeppnisyfirvalda varðandi samruna fjarskipta og sjónvarps. 12.8.2005 00:01
Tíu ár frá upphafi netbólunnar Tíu ár eru liðin frá hlutafjárútboði Netscape en það er talið marka upphaf netbólunnar miklu sem sprakk með látum árið 2000. Fram að útboði Netscape höfðu félög sem sóttust eftir skráningu á markað þurft að sýna mikla tekjuaukningu í þrjá ársfjórðunga og aukinn hagnað eða hagnaðarmöguleika áður en hlutafjárútboð fór fram. 12.8.2005 00:01
Einar hættir hjá Flugleiðum Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri rekstrarstýringar og viðskiptaþróunar hjá FL Group lætur af störfum um næstu mánaðamót. Hann var um árabil hægri hönd Sigurðar Helgasonar, fyrrverandi forstjóra Flugleiða, og á sínum tíma var hann fyrsti útvarpsstjóri Bylgjunnar. Þá hefur Þorsteinn Örn Guðmundsson byggingaverkfræðingur verið ráðinn framkvæmdastjóri stefnumótunar og viðskiptaþróunar hjá félaginu. 11.8.2005 00:01
Róbert Melax stýrir Degi Group Ákveðið hefur verið að Róbert Melax, stjórnarformaður og aðaleigandi Dags Group, taki við forstjórastarfi hjá félaginu en hann leysir af hólmi Sverri Berg Steinarsson sem starfað hefur sem forstjóri félagsins síðastliðið ár. Sverrir hefur undanfarið unnið að fjárfestingarverkefnum erlendis og mun hann á næstunni beina kröftum sínum að þeim verkefnum ásamt því að taka sæti í stjórn félagsins, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. 11.8.2005 00:01
Amide fær leyfi fyrir nýju lyfi Actavis Group hefur fengið samþykki bandarísku Matvæla- og lyfjastofnunarinnar fyrir markaðsleyfi á lyfinu Loxapine í gegnum bandarískt dótturfélag sitt, Amide. Loxapine er geðdeyfðarlyf og notað til meðferðar á geðklofa. Í tilkynningu frá Actavis segir að lyfið sé góð viðbót við lyfjaúrval Amide á Bandaríkjamarkaði en þó er ekki búist við því að tekjur af sölu lyfsins muni hafa veruleg áhrif á afkomu félagsins árið 2005. 11.8.2005 00:01
Íslenskir forstjórar í 21. sæti Það eru til forstjórar á Íslandi sem fá fleiri milljónir í laun á mánuði. Sjálfsagt finnst einhverjum það býsna gott. En íslenskir forstjórar eru ekki hálfdrættingar á við kollega sína í öðrum Evrópulöndum; verma 21. sætið yfir launahæstu forstjórana í álfunni. 11.8.2005 00:01
Óvæntar verðbólgufréttir Vísitala neysluverðs í ágúst 2005 hækkaði um 0,21 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Markaðsaðilar höfðu spáð því að vísitalan lækkaði örlítið eða stæði í stað 11.8.2005 00:01
Möguleiki á yfirtöku Gengi easyJet hækkaði í gær um rúm sjö prósent og fór um tíma yfir 310 pens. Talið er að FL Group sé enn að auka hlut sinn í félaginu. Stelios Haji-Ioannou, aðaleigandi easyJet, myndi vilja fá að minnsta kosti 310 pensa boð í hvern hlut áður en hann íhugaði að selja. 11.8.2005 00:01
Fær 20 milljóna starfslokasamning Andri Teitsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri KEA, fær tæpar tuttugu milljónir króna í starfslokasamning og stjórnarmenn í KEA höfðu fundið að einkafjárfestingum hans á meðan hann var í vinnu við fjárfestingar fyrir KEA 10.8.2005 00:01
Icelandair kaupir meira í easyJet Icelandair hefur aukið hlut sinn í lággjaldaflugfélaginu easyJet. Meðeigandi Icelandair segir ekki koma til greina að selja þeim allt félagið. 10.8.2005 00:01
FL Group kaupir meira í easyJet FL Group hefur tilkynnt um kaup á 1,5 prósenta hlut í breska lággjaldaflugfélaginu easyJet. Mikil viðskipti hafa verið með bréf í easyJet uppi á síðkastið og skiptu 27 milljónir hluta, eða 2,5 prósent hlutafjár, um hendur á föstudag og mánudag. 10.8.2005 00:01
Aukin erlend verðbréfakaup Erlend verðbréfakaup námu 8,9 milljörðum króna í júní, kemur fram á vef greiningardeildar Íslandsbanka. Það er rúmlega helmingi meira en á sama tíma í fyrra. Mest er keypt af erlendum hlutabréfum. 10.8.2005 00:01
Fríverslunarviðræður í strand Allt virðist stopp í viðræðum milli Íslands og Kína um gerð fríverslunarsamnings landanna. Samkvæmt heimildum Markaðarins er ástæðan sú að íslensk stjórnvöld heimiluðu utanríkisráðherra Taívan að koma til landsins í byrjun júlí í sumar þrátt fyrir mótmæli Kínverja. 10.8.2005 00:01
Útilokar ekki yfirtöku á easyJet Allt er falt, segir stjórnarformaður FL Group vegna ummæla meirihlutaeiganda Easy Jet um að hlutur hans sé ekki til sölu. Hannes segir áhuga á félaginu mikinn og útilokar ekki yfirtöku. 10.8.2005 00:01
Kannar kröfur banka um kennitölu Bankar krefja alla um kennitölu þegar keyptur er gjaldeyrir. Samkvæmt lögum er bönkum og sparisjóðum skylt að biðja um hana, fari upphæðin yfir 1,2 milljónir, en annars ekki. Það gera þeir samt og er málið í athugun hjá Persónuvernd. 10.8.2005 00:01
Tekjur Actavis jukust um 14,4% Heildartekjur Actavis námu 9,8 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi og jukust um 14,4 prósent. Það finnst stjórnendum tæpast nóg, en búast við betri afkomu síðari hluta ársins. Robert Wessman, forstjóri Actavis, segir að ársfjórðungurinn hafi verið annasamur hjá félaginu þar sem bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Amide var keypt. 9.8.2005 00:01
Hagnaðaraukning hjá Og Vodafone 321 milljóna króna hagnaður varð á rekstri Og fjarskipta hf. sem aftur skiptist í Og Vodafone og 365 prent- og ljósvakamiðla, eftir tekjuskatt á fyrri helmingi ársins 2005 samanborið við 222 milljóna króna hagnað miðað við sama tímabil í fyrra. 8.8.2005 00:01
Hagnaður Alcan lækkaði um 42% Í fréttum frá Greiningardeild Landsbankans er greint frá því að hagnaður Alcan, næst stærsta álframleiðanda í heimi, hafi numið 190 milljónum dollara á öðrum ársfjórðungi og hefur lækkað um 42% frá sama tíma í fyrra, en þá nam hann 330 milljónum dollara. 8.8.2005 00:01
Stefna að fiskútrás í Asíu Íslenskt fiskmeti hefur slegið í gegn í Malasíu undanfarnar vikur. Útflutningsfyrirtækið Triton stefnir að mikilli fiskútrás í Asíu þar sem gæði verða tekin fram yfir lágt verð. 7.8.2005 00:01
Markaðsvirði félaga um 1500 milljarðar Markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöll Íslands jókst um tæplega 61 milljarð króna í júlí. Markaðsvirði félaganna nemur því í dag um 1500 milljörðum króna. 6.8.2005 00:01
Hækkun á við verð Símans Markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöll Íslands jókst um tæplega 61 milljarð króna í júlí einum saman sem er nálægt því verði sem Landssíminn seldist á eftir eitt hundrað ára uppbyggingu. 6.8.2005 00:01
Fullyrðingar séu óviðeigandi Það er undarlegt að ríkisskattstjóri skuli láta uppi persónulega skoðun sína á skattkerfinu, segir framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja. Hann segir fullyrðingarnar óviðeigandi. 6.8.2005 00:01
Fasteignamat sumarhúsa hækkar Fasteignamat á sumarhúsum og sumarhúsalóðum hefur að meðaltali hækkað um tæpan fjórðung. Fasteignamat ríkisins mat 8.800 sumarhús og eftir endurmatið er virði þeirra metið samtals 47 milljarðar króna. Meðalfasteignamat sumarhúsa eftir endurmatið er rúmar 5,3 milljónir. Fasteignamat tæplega 130 eigna lækkaði en mat tæplega 8700 eigna hækkaði eða stóð í stað. 5.8.2005 00:01
British Airways flýgur til Íslands Samkeppni í flugi á milli Keflavíkur og London mun aukast verulega í mars þegar breski flugrisinn British Airways ætlar að taka upp áætlunarflug á milli Gatwick í London og Keflavíkur fimm daga í viku. Vélarnar fara frá Gatwick snemma á morgnana og héðan klukkan hálfellefu fyrir hádegi. 5.8.2005 00:01
Líflegt í Kauphöllinni í gær Mikið gekk á í Kauphöll Íslands í gær. Í <em>Morgunkorni</em> Íslandsbanka kemur fram að viðskipti með hlutabréf námu alls 19,2 milljörðum króna, sem er langt yfir meðalveltu. Mest viðskipti voru með bréf bankanna - Íslandsbanka, KB banka og Landsbanka. Svo virðist sem að fréttin um skiptingu Burðaráss hafi hleypt nýju lífi í markaðinn og flest stærstu félaganna í úrvalsvísitölunni hafa hækkað mikið í vikunni. 5.8.2005 00:01
Jón verður forstjóri Magasin Jón Björnsson, núverandi forstjóri Haga, hefur verið skipaður forstjóri Magasin du Nord í Danmörku frá og með 1. október. Jón hefur átt sæti í stjórn Magasin síðan í ársbyrjun 2005 en hann tekur við forstjórastarfinu af Peter Husum. Þá hefur Finnur Árnason verið ráðinn forstjóri Haga í stað Jóns og tekur hann við þann 10. ágúst næstkomandi. 5.8.2005 00:01
Andri hættir hjá KEA Framkvæmdastjóri KEA, Andri Teitsson, hefur sagt starfi sínu lausu af persónulegum ástæðum. Í tilkynningu frá KEA kemur fram að hann og kona hans eigi von á tvíburum auk þess sem þau eigi fyrir fjögur börn 8 ára og yngri svo Andri hyggst taka sér langt feðraorlof. Segir í tilkynningunni að þetta hefði leitt til þess að málefni KEA hefðu verið í biðstöðu um lengri tíma og það taldi stjórnin óheppilegt. 5.8.2005 00:01
Skrifað undir kaupsamning Símans Geir H. Haarde fjármálaráðherra undirritaði í dag kaupsamning fyrir hönd íslenska ríkisins við Skipti ehf. um kaup Skipta á 98,8 prósenta hlut ríkisins í Símanum. Kaupsamningurinn er gerður á grundvelli tilboðs sem Skipti ehf. gerðu í hlutabréf ríkisins í Símanum þann 28. júlí síðastliðinn, en það hljóðaði upp á 66,7 milljarða króna og var hæst þriggja tilboða sem bárust í eignarhlut ríkisins. 5.8.2005 00:01
Mikil auking á markaðsvirði félaga Markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöll Íslands hefur aukist um 58,3 milljarða króna fyrstu fjóra daga ágústmánaðar. Þetta kemur fram í <em>Hálffimmfréttum</em> KB banka í dag. Samtals hefur því markaðsvirði félaganna aukist um 436 milljarða króna á árinu. Samanlagt markaðsvirði félaganna í Kauphöllinni stóð í um 1.520 milljörðum króna í lok dagsins. 5.8.2005 00:01
Lánshæfismat ríkissjóðs óbreytt Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur tilkynnt að mat þess á lánshæfi ríkssjóðs sé óbreytt. Lánshæfieinkunn ríkissjóðs gagnvart erlendum skuldum er því enn AA- og AAA gagnvart skuldum í innlendri mynt. 5.8.2005 00:01
Orlof sé fyrir almenna starfsmenn Framkvæmdastjóri KEA hefur sagt starfi sínu lausu. Hann bað um að fá að fara í fæðingarorlof en stjórn KEA var því mótfallin. Stjórnarformaður KEA telur að lög um fæðingarorlof hafi fyrst og fremst verið sett til að tryggja réttarstöðu almennra starfsmanna. 5.8.2005 00:01
I-Holding yfirtekur ILLUM vöruhúsið í Kaupmannahöfn Hópur íslenskra fjárfesta, I-Holding ehf., hefur gengið frá kaupum á 80% hlut í ILLUM vöruhúsinu í Danmörku ásamt fasteignininni sem hýsir reksturinn af Merrill Lynch International Global Principal Investment. 4.8.2005 00:01
Dagsbrún móðurfélag 365 miðla Og fjarskipti hf. ráðgera að nýtt skipulag samstæðunnar muni taka gildi 1. október nk. Hið nýja nafn samstæðunnar mun verða Dagsbrún hf. Fjarskiptarekstri félagsins verður komið fyrir í dótturfélaginu Og fjarskipti (Og Vodafone) sem heyra mun undir móðurfélagið ásamt 365 prentmiðlum ehf. og 365 ljósvakamiðlar ehf. 4.8.2005 00:01
Danir hljóma gramir Baugur, Straumur og fyrirtæki í eigu Birgis Þórs Bieltvedts hafa keypt stórverslunina Illum við Strikið í Kaupmannahöfn en sami hópur keypti nýverið Magasin du Nord þar í borg. Dönsk blöð greina frá þessum viðskiptum með ítarlegum hætti í morgun og er ekki laust við að úr textanum megi lesa að Dönum þyki berin súr. 4.8.2005 00:01
Þjónustugjöld ekki felld niður Ekki er líklegt að þjónustugjöld bankanna verði felld niður í bráð eins og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins lagði til í gær. Bankarnir skiluðu allir methagnaði á fyrri hluta ársins, samtals um 54 milljörðum króna. 4.8.2005 00:01
855 milljóna tap deCode Tap deCode, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, nam 855 milljónum íslenskra króna á öðrum ársfjórðungi þessa árs og var óbreytt frá sama tímabili í fyrra. Fyrstu sex mánuði ársins nam tap félagsins tæpum tveimur milljörðum króna en stjórnendur fyrirtækisins segja aukin útgjöld vegna lyfjaþróunarverkefna ástæðuna fyrir tapinu. 3.8.2005 00:01
Olíuverðið nálgast sögulegt hámark Olíuverð fór yfir sextíu og tvo dollara á fatið í morgun og nálgast nú metverðið sem náðist fyrr í sumar. Ástæðan er sú að talið er að olíubirgðir Bandaríkjanna séu í lágmarki og frést hefur af töluverðum vandkvæðum hjá olíuhreinsunarstöðvum. 3.8.2005 00:01
Skoða uppskipti Burðaráss Bæði Fjármálaeftirlitið og yfirtökunefnd munu skoða uppskipti Burðaráss á milli Landsbankans og Straums fjárfestingabanka. 3.8.2005 00:01