Fleiri fréttir

Endurtekið efni um helgina

Magnús Guðmundsson skrifar

Tveir af gömlu fjórflokkunum héldu sína landsfundi nú um helgina sem var að líða. Annar flokkurinn deilir völdum í höfuðborginni en hinn á landsvísu en ekki verður nú sagt að kjósendur hafi gripið andann á lofti yfir stórviðburðum.

Er Ísland stjórnlaust samfélag?

Guðbjörn Jónsson skrifar

Ég er búinn að velta ofangreindri spurningu fyrir mér lengi og ár eftir ár er ályktunin sú sama.

Eru Vinstri grænir alveg grænir?

Ívar Halldórsson skrifar

Við lesum í fjölmiðlum í gær um vilja íslenskra stjórnarafla til að leggja viðskiptabönn á Ísrael og slíta öllu stjórnarsamstarfi við lýðræðisríkið á þeim forsendum að Ísrael stundi þjóðarmorð.

Þytur í laufi

Berglind Pétursdóttir skrifar

Ekkert öskrar íslenskur realismi eins og stingandi ískalt loft og laufhrúgur í innkeyrslu. Brennið sólstólana og dragið fram kakóið, veturinn er loksins kominn.

Að fá stjörnur …

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Um daginn fór ég að hugsa um stjörnugjafir í listdómum, alveg út í loftið, eiginlega himinhvolfið. Ég hafði lesið nokkra dóma um listviðburði þennan daginn, misgáfulega eins og gengur, og tók allt í einu eftir þessum fjárans stjörnum sem mér þóttu hanga utan á ritsmíðunum, eins og óþarfir og roggnir forstjórar.

Örbirgð upprætt?

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar

Þjóðir heims fagna 70 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna í dag. Örbirgð er óréttlát og henni þarf að útrýma. Það er einmitt höfuðmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Börn sem búa við sára fátækt ráða sjálf engu um stöðu sína. Bestu fréttir samtímans eru að nú dregur úr sárustu örbirgð. Kynslóðin sem núna vex úr grasi er sú fyrsta, sem horfir fram á að hugsanlega megi uppræta fátækt.

Víst frelsi einstaklinga

Pawel Bartoszek skrifar

Í umræðum um vínfrumvarpið á þingi sagði Katrín Jakobsdóttir að málið snerist ekki um einstaklingsfrelsi, heldur verslunarfrelsi. Svipuð rök hefur heimspekingurinn Róbert H. Haraldsson sett fram. Hugmyndin er nokkurn veginn þessi: "Áfengi er lögleg vara. Einstaklingar geta keypt áfengi ef þeir vilja. Einstaklingsfrelsi er ekki skert.“ Vandinn er bara að þessi skilgreining á "einstaklingsfrelsi“ er ansi þröng.

Drap konur án þess að fatta það

Sif Sigmarsdóttir skrifar

Hver seldi þér kaffið sem þú keyptir á leiðinni í vinnuna í morgun? Var það karl eða kona? Skiptir það máli? Skiptir máli hvort karl eða kona las Sjónvarpsfréttirnar í gær? Skiptir máli hvort það verður karl eða kona sem fær Íslandsbanka á silfurfati einhvern tímann á næstu misserum? Skiptir máli hvort það er karl eða kona sem skrifar þennan pistil?

Greint frá góðum árangri

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Stundum er því haldið fram að í fréttir rati ekki nema slæmar fréttir, að breytingar til batnaðar og gott gengi einhvers staðar fái takmarkaða athygli. Áhersla á það sem aflaga fer, án stærra samhengis hlutanna, verði svo til þess að upp sé brugðið skekktri og svartari mynd af stöðu heimsmála en ástæða sé til.

Grátt í höllinni

Birta Björnsdóttir skrifar

Málefni flóttamanna og innflytjenda eru í algleymingi og stór hluti umræðunnar snýst um hvernig búa megi í haginn til þess að þeim sem náðarsamlegast fá hingað að flytja líði vel.

Biti þeirra sem best hafa það

Valgerður Bjarnadóttir skrifar

Fjármálaráðherrann sagði í vikunni að hann væri orðinn talsvert leiður á því að fólk teldi sanngjarnt að þær stéttir sem nú eiga í samningaviðræðum við ríkisvaldið fái kjarabætur í takt við það sem aðrar stéttir hafa fengið.

Fólki blöskrar

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar

Í tengslum við flóttamannaumræðuna, sem farið hefur hátt undanfarið, hefur töluverð umræða skapast um Útlendingastofnun. Í gær voru stofnuninni afhentar 10.000 undirskriftir sem safnast höfðu til stuðnings albanskri fjölskyldu sem fær ekki hæli hér á landi.

Hvar gifta hinir ópassandi sig?

Svanur Sigurbjörnsson skrifar

„Stundum vill fólk beygja svolítið leikreglurnar. Það vill fá rómantíkina sem fylgir því að vera í fallegu kirkjuhúsi og fá jafnframt að halda í heiðri eigin lífsgildi án trúar í athöfninni. Þetta er skrítið í huga hreinlínufólks en er eins konar rómantísk gagnsemishyggja.“

Hlutverk forseta Íslands

Ari Trausti Guðmundsson skrifar

Í framhaldi af grein Stefáns Jóns Hafstein sl. helgi blanda ég mér í umræðuna. Sem frambjóðandi 2012 bý ég yfir margs konar reynslu og stefnumótun sem á erindi til lesenda Fbl.

Misrétti í launastefnu ríkisfyrirtækja?

Þorsteinn Þorsteinsson skrifar

Greinarhöfundur starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Ríkisútvarpinu (RÚV) 1999-2014. Eitt af því sem vakti undrun mína á þessum tíma var hve mjög misjafnlega virðist vera gefið þegar kemur að rekstrarfé ríkisfyrirtækja. Sum þeirra virðast fitna eins og púkinn á fjósbitanum á meðan önnur berjast í bökkum.

Börnin látin bíða

Magnús Baldursson og Katrín Davíðsdóttir skrifar

Það hefur verið ánægjulegt að sjá geðheilbrigðismál barna og unglinga komast í brennidepil umræðunnar síðustu vikur og má hrósa fjölmiðlum fyrir það. Sérstaklega var áhrifaríkt að heyra frásagnir foreldranna og barnanna sjálfra, þær fá okkur sem samfélag til að horfast betur í augu við þessi erfiðu vandamál.

Lýðræði! Hvað er nú það?

Örn Sigurðsson skrifar

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2015 verður haldinn 23.-25. október nk. Frá stofnun lýðveldis 1944 hefur flokkurinn átt aðild að ríkisstjórnum í 680 mánuði af 850 eða í um 80% tímabilsins og átt forsætisráðherra í 490 mánuði eða í um 57% lýðveldistímans.

Mannúð og meðferð í stað róttækrar refsistefnu

Björgvin G. Sigurðsson skrifar

Refsistefnan í ávana- og fíkniefnamálum hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Allt of langt er t.d. gengið með því að dæma burðardýr í smyglmálum, oft fárveika fíkla, í fangelsi um langt árabil. Það skilar engum árangri að dæma af fólki langt æviskeið í refsingarskyni fyrir þess háttar brot.

Það er veisla!

Frosti Logason skrifar

Á Vesturlöndum gerast nú víða spennandi hlutir í stjórnmálum. Í Bandaríkjunum fer eldri borgarinn Bernie Sanders um sem öskrandi byltingarmaður, boðar nýjar áherslur sem hingað til hafa þótt helgispjöll þar í landi. Mannsæmandi kjör fyrir almúgann á kostnað hinna moldríku.

Bjargræði eða böl? Vonlaus staða flóttamanna á Íslandi

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar

Lög þau sem á Íslandi gilda um dvalarleyfi til útlendinga eru svo götótt og geðþóttaleg að furðu vekur. Þau fela ráðherra nánast alræðisvald varðandi það að setja reglur og veita undanþágur frá reglum.

Aldraðir hafa skilað sínu vinnuframlagi!

Björgvin Guðmundsson skrifar

Svo virðist sem Alþingi ætli ekki að taka rögg á sig og afgreiða kjaramál aldraðra og öryrkja með myndarskap. Ég hafði greinilega of mikla trú á Alþingi. Ég vonaði og trúði því, að Alþingi gæti tekið í taumana og leiðrétt þau mistök, sem ríkisstjórn nú og áður hafði gert í málefnum lífeyrisþega.

Meira norrænt samstarf!

Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði skrifar

Dagana 25.–29. október kemur Norðurlandaráð saman í Hörpu, þar sem 87 þingmenn, fulltrúar allra þjóðþinga Norðurlandanna ræða og taka ákvarðanir um mikilvægustu verkefni norrænnar samvinnu á komandi misserum.

Dómnefndir og Hæstiréttur

Birgir Guðjónsson skrifar

Nú er skrattanum skemmt og mér líka. Virðulegir hæstaréttarlögmenn sem sækjast eftir stöðu hæstaréttardómara leyfa sér að mótmæla verðleikamati (merita) kollega sinna í dómnefnd um ágæti þeirra til starfans. Þeir ættu að fara varlega og muna að þetta þótti hin mesta óhæfa þegar þetta var fyrst gert fyrir nokkrum áratugum.

Stjórnarskrárnefnd Bjarna Benediktssonar

Þorvaldur Gylfason skrifar

Vert er að halda til haga þætti Bjarna Benediktssonar, síðar formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, í stjórnarskrármálinu árin eftir lýðveldisstofnunina 1944.

Aftur á upphafsreit

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Fari svo að ríkið eignist Íslandsbanka að fullu, líkt og tillaga kröfuhafa bankans gerir ráð fyrir, minnir staðan um margt á ástandið áður en lagt var upp í söluferli bankanna sumarið 2001. Þá hétu bankar ríkisins Landsbanki og Búnaðarbanki (í stað Íslandsbanka nú).

Klikkuð körfuboltakvöld

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Barátta sjónvarpsstöðvanna er hörð á föstudagskvöldum þar sem félagarnir Gísli Marteinn og Logi Bergmann bjóða þekktum Íslendingum í sófana sína og reyna að keppa við raunveruleikaþáttinn The Voice á Skjá einum. Sjálfur er ég hvorki aðdáandi raunveruleikaþátta né spjallþátta og átti þar til síðastliðinn föstudag ekki von á því að föstudagskvöld yrðu sjónvarpskvöld.

Foreldrar og sjálfsmynd barna

Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar

"Lífið er læk!” En þarf það að vera svoleiðis? Hvernig geta foreldrar haft áhrif á sjálfsmynd barna sinna?

Hvers vegna kvennafrí?

Kristín Ástgeirsdóttir skrifar

Á þessu mikla afmælisári höldum við ekki bara upp á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna til Alþingis heldur á kvennafrídagurinn (eða kvennaverkfallið) 40 ára afmæli.

Að hemja lúpínu – hvað dugar?

Þorvaldur Örn Árnason skrifar

Þann 13. okt. sl. sagði Fréttablaðið frá hugmyndum Dalvíkinga um að eyða lúpínu og fleiri ágengum jurtum til að vernda tiltekin gróðurlendi, m.a. friðland.

Í tilefni landsfunda: Kosningaréttur kvenna hvað?

Þór Saari skrifar

Í ár hefur þess verið minnst með pompi og prakt og það fyllilega verðskuldað að hundrað á eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt á Íslandi og er það vel.

Þróunaraðstoð verði minni, en landamærin opnari

Lars Christensen skrifar

Í síðustu viku fékk Angus Deaton, prófessor við Princeton-háskólann, Nóbelsverðlaunin í hagfræði meðal annars „fyrir greiningu hans á neyslu, fátækt og velferð“.

Óréttlæti virðisaukaskattslaganna

Brynhildur S. Björnsdóttir skrifar

Miðað við fjölda mála sem hafa komið upp undanfarið þá virðist sem Ríkisskattstjóri sé nú í átaki við að innheimta virðisaukaskattsskuldir í gegnum þriðja aðila.

Spurning um skynsemi

Katrín Jakobsdóttir skrifar

Það eru ýmis jákvæð teikn á lofti í íslensku efnahagslífi, fyrst og fremst vegna aukinna umsvifa í ferðaþjónustu.

Fornleifar þurfa ekki að koma á óvart

Oddgeir Isaksen og Orri Vésteinsson skrifar

Í sumar hafa fundist í miðbæ Reykjavíkur fornleifar frá sitthvorum enda Íslandssögunnar – skáli frá víkingaöld við Lækjargötu og hafnargarðar frá fyrri hluta 20. aldar neðan við Arnarhól. Í báðum tilfellum var ráðist í fornleifauppgröft vegna þess að fyrirhugað er að byggja á lóðunum og í báðum tilfellum hefur sprottið upp umræða um nauðsyn þess að varðveita minjarnar.

Hennar líf vér kjósum

Kristján Jóhannesson skrifar

Nú þegar allt lítur út fyrir að gamli skólinn minn ætli að deyja drottni sínum langt fyrir aldur fram vegna valdatafls hinna háu herra í borgarstjórn annars vegar og þeirra í ráðuneyti mennta- og menningarmála hins vegar, get ég ekki lengur orða bundist.

Jörðin er undir

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar

„Við verðum að ná árangri, ekki bara fyrir þessa kynslóð heldur fyrir komandi kynslóðir,“ sagði François Hollande, forseti Frakklands, í stefnuræðu sinni á Arctic Circle ráðstefnunni sem haldin var í Hörpunni um nýliðna helgi. Hollande varð tíðrætt um loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á heiminn.

Manneskjur sem við áttum aldrei að kynnast

Erla Björg Gunnarsdóttir. skrifar

Við erum að berjast fyrir nágranna, skólasystur og félaga. Þetta eru ekki lengur tölur, heldur manneskjur. Þetta er ekki tilfinningaklám, heldur raunveruleiki.

Sjá næstu 50 greinar