Hennar líf vér kjósum Kristján Jóhannesson skrifar 21. október 2015 00:00 Nú þegar allt lítur út fyrir að gamli skólinn minn ætli að deyja drottni sínum langt fyrir aldur fram vegna valdatafls hinna háu herra í borgarstjórn annars vegar og þeirra í ráðuneyti mennta- og menningarmála hins vegar, get ég ekki lengur orða bundist. Hvorki ég né foreldrar mínir sjáum eftir þeim fjármunum sem við lögðum í fimm ára langt söngnám mitt við Söngskóla Sigurðar Demetz. Það sama er ekki hægt að segja um ráðamenn. Núverandi stjórnvöld virðast í ofanálag ekki heldur hafa mikinn áhuga á að fjármagna framhaldsnám söngvara eða annarra sem stunda háskólanám, ef út í það er farið. Síðan ég hóf nám hér ytra fyrir rúmu einu og hálfu ári hafa framfærslulánin sem ég þigg frá Lánasjóði íslenskra námsmanna lækkað um sem nemur rúmri hálfri milljón króna á ári.Tæplega starfi sínu vaxnir Ef borgarstjóri og ráðherra mennta- og menningarmála eru ekki tilbúnir til þess að veita fjármuni til eflingar mannauðs eru þeir tæplega starfi sínu vaxnir. Ef við sem þjóð sjáum okkur ekki fært að fjárfesta í menningu komum við til með að hafa lítið annað að státa af en þetta snotra sker sem við byggjum. Hvað verður þá um Gunnar og Njál, Snorra og Egil, Jónas og Kiljan, Kaldalóns og Leifs, Kjarval og Erró, Björk og Sigurrós? Verður mín kynslóð sú síðasta til þess að halda út í tónlistarnám og efla þannig veg okkar og menningu í samfélagi þjóðanna?Skal glaður lifa á grjónagraut Hér með biðla ég til þeirra sem valdið hafa að gera eins og skáldið býður og kjósa líf þessarar þjóðar, sögur hennar og ljóð, áður en framtaksleysi þeirra drepur mikilvægan póst í menningarlífi okkar. Ég skal glaður lifa á grjónagraut í staðinn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Sjá meira
Nú þegar allt lítur út fyrir að gamli skólinn minn ætli að deyja drottni sínum langt fyrir aldur fram vegna valdatafls hinna háu herra í borgarstjórn annars vegar og þeirra í ráðuneyti mennta- og menningarmála hins vegar, get ég ekki lengur orða bundist. Hvorki ég né foreldrar mínir sjáum eftir þeim fjármunum sem við lögðum í fimm ára langt söngnám mitt við Söngskóla Sigurðar Demetz. Það sama er ekki hægt að segja um ráðamenn. Núverandi stjórnvöld virðast í ofanálag ekki heldur hafa mikinn áhuga á að fjármagna framhaldsnám söngvara eða annarra sem stunda háskólanám, ef út í það er farið. Síðan ég hóf nám hér ytra fyrir rúmu einu og hálfu ári hafa framfærslulánin sem ég þigg frá Lánasjóði íslenskra námsmanna lækkað um sem nemur rúmri hálfri milljón króna á ári.Tæplega starfi sínu vaxnir Ef borgarstjóri og ráðherra mennta- og menningarmála eru ekki tilbúnir til þess að veita fjármuni til eflingar mannauðs eru þeir tæplega starfi sínu vaxnir. Ef við sem þjóð sjáum okkur ekki fært að fjárfesta í menningu komum við til með að hafa lítið annað að státa af en þetta snotra sker sem við byggjum. Hvað verður þá um Gunnar og Njál, Snorra og Egil, Jónas og Kiljan, Kaldalóns og Leifs, Kjarval og Erró, Björk og Sigurrós? Verður mín kynslóð sú síðasta til þess að halda út í tónlistarnám og efla þannig veg okkar og menningu í samfélagi þjóðanna?Skal glaður lifa á grjónagraut Hér með biðla ég til þeirra sem valdið hafa að gera eins og skáldið býður og kjósa líf þessarar þjóðar, sögur hennar og ljóð, áður en framtaksleysi þeirra drepur mikilvægan póst í menningarlífi okkar. Ég skal glaður lifa á grjónagraut í staðinn.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar