Fleiri fréttir

Ábyrgð eða ógæfa

Æ fleirum er að verða ljóst hversu stórt óheillaspor stóriðjustefnan er og afleiðingar hennar fyrir þjóðina um langa framtíð. Stöðugt fleiri gera sér grein fyrir þeim mikla „fórnarkostnaði” sem felst í náttúruspjöllunum. Sívaxandi er sá fjöldi sem gerir sér grein fyrir þeirri skammsýni sem ráðið hefir gerðum núverandi forystumanna.

Kársnesið: Sveit í borg

Á Kársnesinu í Kópavogi eru komnar fram mjög vafasamar hugmyndir um nýja byggð með uppfyllingu í sjó fram. Við sem byggjum Kársnesið höfum miklar áhyggjur af þessu máli.

Í fréttum: Þetta helst ...

Alþingiskosningar nálgast. Þess vegna reyna fjölmiðlar og kjósendur eftir megni að fylgjast með og greina stöðu mála í þjóðfélaginu til að geta tekið yfirvegaða afstöðu á kjördegi. Á hinni ágætu netsíðu mbl.is er hægt að sjá hvaða fréttir vekja mesta athygli og má af því draga ýmsar ályktanir.

Afskipt börn

Við höfum komið okkur upp eins konar kerfi aðskilnaðarstefnu þar sem börnin eru geymd á stofnunum frá því í frumbernsku. Við getum reyndar ekki heldur beðið eftir því að skutla gamla fólkinu inn á stofnanir líka...

Vont er þitt frjálslyndi

Íslenskan er skemmtilega gegnsætt mál nema þegar kemur að pólitík. Sá flokkur sem harðast gengur fram í því að undirselja landið erlendu herveldi kennir sig við sjálfstæði, flokkurinn með úreltustu framtíðarhugmyndirnar kennir sig við framsókn og sá flokkur sem erfiðast er að tengja frjálslyndi í einhverri óbrjálaðri merkingu orðsins kallar sig Frjálslynda.

Afmæli Kims, Evróvisjón, maður í ræktinni, spjótkast

Kim Jong-il, hinn mikli leiðtogi Norður-Kóreu, varð sextíu og fimm ára í vikunni. Erfitt að trúa því. Það er bara eins og séu örfá ár síðan hann var ungur maður við fótskör föður síns, Kims Il Sung...

Ekki blóta

Guðmundur Steingrímsson skrifar

Fyrir ári síðan eða svo sá Umferðarstofa sig tilneydda til þess að ráðast í heila auglýsingaherferð í útvarpi, sjónvarpi, blöðum og á flettiskiltum til þess að segja fullorðnu fólki að hætta að blóta svona mikið í umferðinni. Ekki síst var lögð áhersla á það að við blótuðum ekki svona mikið frammi fyrir yngstu kynslóðinni, sem gæti pikkað upp taktana.

Illugi settur út í horn

Árni Páll Árnason skrifar

Eins og niðurlæging Sjálfstæðisflokksins í umhverfismálum væri ekki næg lýsti svo Geir H. Haarde því yfir í Silfri Egils að Guðlaugur Þór Þórðarson og Illugi Gunnarsson væru vonarsprotar íhaldsins í umhverfismálum. Bittinú. Sama dag og Morgunblaðið krýnir Illuga sem hugmyndafræðing flokksins í umhverfismálum, setur formaðurinn hann í handlangarasæti hjá Guðlaugi Þór, stjórnarformanni Orkuveitunnar.

Eru óperur leiðinlegar?

Ef eitthvað getur orðið banabiti íslensku óperunnar þá er þá er það ef hún setur upp kassastykki eins og Carmen eða La Bohème. Eitthvað sem fólkið vill sjá. Þess vegna er sett upp obskúr ópera eftir frekar leiðinlegt tónskáld, Stravinsky...

Nokkur skúbb

Í ljósi undanfarinna skúbba um allskonar heimili útá landi þar sem miður skemmtilegir hlutir áttu sér stað langar mig að bauna hérna nokkrum nýjum skúbbum sem fjölmiðlar landsins geta smjattað á næstu vikur. Ónefndur maður klauf annan mann í herðar niður fyrir um þúsund árum síðan.

Nýr Dyrhólagatisti?

Öllum getur skjátlast. En það er misjafnt, hversu illa þeim verður á og hversu vel þeir taka því síðan. Frægt var, þegar Finnur prófessor Magnússon las í maí 1834 kvæði undir fornyrðislagi úr jökulrispum í Runamo í Svíþjóð. Þótti það einhver mesta háðung, sem orðið hefði í norrænum fræðum. Mikill lærdómur leiddi hann í gönur. Finnur var hinn vænsti maður, en lét lítið fara fyrir sér eftir þetta.

Réttlát og óhlutdræg málsmeðferð?

Við aðalmeðferð í svokölluðu Baugsmáli þann 13. febrúar sl. krafðist verjandi ákærða Jóns Ásgeirs Jóhannessonar að ég viki af dómþingi meðan skýrsla væri tekin af ákærða. Kröfu þessari mótmælti ég þar sem ég ætti skýlausan rétt lögum samkvæmt að vera viðstaddur aðalmeðferð í máli þar sem ég sætti ákæru um refsiverða háttsemi.

Ný stefna setur markið hátt

Loftslagsbreytingar af mannavöldum eru eitt af helstu viðfangsefnum mannkyns á þessari öld. Ný skýrsla Vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar tekur af tvímæli um að hlýnun andrúmsloftsins sé af mannavöldum. Óheft losun gróðurhúsalofttegunda getur valdið jarðarbúum þungum búsifjum á næstu áratugum verði ekkert að gert.

Er nægjanlegt að játa mistök?

Þessa dagana skelfur þjóðfélagið vegna fjármálasukks Byrgisins. Eftirlitslaust hefur fjármagni verið ausið til óvandaðra aðila sem virðast ekki gera sér neina grein fyrir hvernig eigi að fara með þá ábyrgð sem þeim var falin. Einnig vekja athygli vinnubrögð félagsmálaráðuneytisins við úthlutun fjármuna borgaranna.

Laugavegur 74

Í borgum eða bæjum í Evrópu eru oft á tíðum svæði á stærð við 101, eða jafnvel enn stærri, sett undir svokallaða hverfisvernd eða öðru nafni verndun götumynda. Þar er það velþekkt að stundum er gripið til þess ráðs að byggja hús sem eru eftirlíkingar af annað hvort húsinu sem stóð fyrir á reitnum eða einfaldlega af húsastílnum sem er ríkjandi. Þetta getur verið mjög eðlileg ráðstöfun til að yfirbragð hverfisins haldi sér á svæðum þar sem meginreglan er samt sem áður að ekki megi hrófla við neinu.

Opið bréf til oddvita um Árnesfundinn

Bréfið er ritað í tilefni af endurteknum ummælum oddvita Skeiða og Gnúpverjahrepps í fjölmiðlum síðustu daga. Oddvitinn heldur því fram að fundur virkjanaandstæðinga í Árnesi segi ekkert um vilja heimamanna, því þar hafi aðallega verið aðkomufólk. Undirrituð benda honum á nokkur atriði til umhugsunar.

Börnum á Norðurlöndum líður best

Í vikunni birtist skýrsla Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna um velferð barna og ungmenna í þeim löndum sem eru efnahagslega best sett í heiminum.

Baugsmálið, Króníkan, klámþing og femínistar

Baugsmálið er farið að minna mig á leikrit eftir Harold Pinter. Pinter samdi verk þar sem allir tala í kross, enginn skilur neinn, öll samskipti milli fólks eru meira eða minna markleysa...

Ójöfnuður um heiminn

Um það er ekki deilt úti í heimi, að ójöfnuður í skiptingu auðs og tekna milli manna hefur víða færzt í vöxt undangengin ár. Til þess liggja ýmsar ástæður, sem vert er að skoða.

Sögð og ósögð orð

Halldór Reynisson á fræðslusviði Biskupsstofu heldur því fram í Fréttablaðinu 8. febrúar að málflutningur gegn Vinaleiðinni sé „ófaglegur“. Ástæðan virðistvera sú að hann telur vegið ómaklega að sr. Hans Guðbergi, sem er fulltrúi trúfélags inni í grunnskólum. En persóna eða drengskapur þessa manns kemur málinu nákvæmlega ekkert við.

Líf eða dauði

Við erum með fremstu þjóðum heims á mörgum sviðum, svo sem fiskveiðiflota og flestu sem lýtur að nýtingu og úrvinnslu sjávarfurða. Rafvæðingu í heimsklassa. Erum með stæsta flugflota heims miðað við fræga höfðatölu. Við byggjum hús í háum gæðastaðli.

Rausnarlegur ránsfengur úr ríkissjóði

Lögin um fjármál stjórnmálaflokka sem samþykkt voru í desember s.l. fá litla sem enga umfjöllun fjölmiðla þrátt fyrir að vera einhver mesta atlaga sem gerð hefur verið að lýðræðinu.

Að greinast með ADHD

Síðastliðið haust hefur verið skrifað margt um skólamál í dagblöðum og öðrum ritum. Þar á meðal hefur verið rætt um hversu greiningar á börnum séu óþarfar vegna þess að kennarar barnanna viti hvort eð er hvað sé að og með kolrangri nálgun. Úrræðaleysi og uppgjöf vegna þess að það væri undir sérfræðingunum komið, sem greina börnin hvert framhaldið yrði fyrir þessi börn sem greindust með ADHD.

Konur og Samfylkingin

Jafnréttismál verða að vera kosningamál í vor. Samfylkingin mun leggja sitt af mörkum til að svo megi verða. Á þessu kjörtímabili hefur Samfylkingin reglulega tekið jafnréttismál upp á þingi og bent á nauðsynlegar aðgerðir en einnig gagnrýnt ítrekuð brot ríkisstjórnarflokkanna á jafnréttislögunum í tengslum við stöðuveitingar.

Stofnfundur Íbúasamtaka Háaleitis norður

Undirbúningshópur að stofnun Íbúasamtaka Háaleitis norður, stendur fyrir borgarafundi fimmtudaginn 15. febrúar í samkomusal Álftamýrarskóla og hefst hann kl. 17. Íbúar við Álftamýri, Fellsmúla, Háaleitisbraut (norðan Miklubrautar), Safamýri og Starmýri eru boðaðir á fundinn.

Háspennulínur skera landið

Forstjóri Landsvirkjunar, Friðrik Sophusson, er mjúkmáll þessa dagana. Honum veitir ekki af í andófinu sem er að magnast í kringum hann. Friðrik lítur á mótmæli við frekari virkjunum í Þjórsá sem velferðarvandamál og segir mönnum hollast að minnast þess að fyrr eða síðar kreppi á dalnum í þjóðarbúinu.

Peningalyktin

Skynfærin leika stóran þátt í lífi okkar, öll nema lyktarskynið. Ilmvötn og reykelsi eru reyndar gerð fyrir nefið en samt er ljóst að tungan, eyrun og augun fá miklu meira til að dunda sér við. Um það vitnar matargerðar-, tón- og myndlistin. Hvar er lyktar-listin?

Kosningatrix, samgöngumiðstöð, Bjargsmálið, Latino-Nordics

Er eitthvað að marka samgönguáætlun sem Sturla Böðvarsson lagði fram í gær? Það er allsendis óvíst að Sturla sitji í næstu ríkisstjórn – dagar hans sem ráðherra eru líklega taldir. Ríkisvaldið er líka þekkt fyrir annað en að fara eftir svona áætlunum...

Vakandi samfélag

Í síðustu viku fréttist af innrás lögreglu – nú í Austurríki – í enn einn barnaklámhringinn sem náði vítt um veröld. Líka til Íslands. Hjá Interpol er geymd hálf milljón klámmynda með börnum sem allar hafa verið teknar úr fórum þeirra sem una sér við að sjá börnum misþyrmt.

Umfangsmestu sýndarréttarhöld Íslandssögunnar?

Jón Ásgeir Jóhannesson skrifar

Frá upphafi hefur legið fyrir að rannsókn lögreglunnar hvílir á veikum grunni. Hún hefur ávallt einkennst af fumi og fáti og lítilli þekkingu á viðskiptum og bókhaldi. Sífellt var beðið um afhendingu nýrra gagna og oft á tíðum var beðið um gögn og skýringar sem þegar höfðu verið afhent. Starfsmenn félagsins máttu þola endalausar yfirheyrslur og dulbúnar hótanir.

Líf og dauði Sankti Kildu

Eyjaskeggjum var hótað vítisvist ef þeir iðkuðu söng og dansa. Mikill tími fór í kirkjulegar athafnir – fólkinu var bannað að vinna á sunnudögum. Það var heldur óráðlegt, því lífsbaráttan var svo hörð að helst mátti ekki missa úr dag...

Framsókn í útrýmingarhættu

Skoðanakönnun Fréttablaðsins frá því um helgina er sérstaklega athyglisverð fyrir tvennt. Í fyrsta lagi gefur hún sterka vísbendingu um vinstri sveiflu í samfélaginu, og í öðru lagi að raunveruleg hætta er á því að Framsóknarflokkurinn verði nánast þurrkaður út af sjónarsviði íslenskra stjórnmála í vor.

Verkefni nýrrar ríkisstjórnar

Félagsleg velferð, efnahagslegur stöðugleiki og sterkt atvinnulíf, með þungri áherslu á menntun allra, eru grunngildin í stefnu okkar jafnaðarmanna. Í henni felst skýr valkostur við þá leið, sem núverandi ríkisstjórn hefur fylgt.

Kosningaspá

Skoðanakannanir hafa þann augljósa galla að í þeim getur fólk aðeins látið upp afstöðu sína á því augnabliki sem spurningin er borin upp. Tiltölulega einfalt er að svara spurningu eins og: „Hvort langar þig meira í kjöt eða fisk?“ Verra er að gefa rétt svar við spurningunni: „Hvort langar þig meira í kjöt eða fisk 12. maí næstkomandi?“

Paradís fyrir fjármagnið

Þetta er blautur nýfrjálshyggjudraumur. Það er eins hægt að ganga með skilti í kröfugöngu. Þetta er stéttabarátta þar sem frekur og valdamikill minnihluti vill tryggja sér lífskjör sem eru órafjarri því sem tíðkast meðal fjöldans...

Samkeppnishæfni er lykilatriði

Á nýliðnu Viðskiptaþingi boðaði Geir H. Haarde breytingar á skattalögum sem eru til einföldunar á skattkerfinu og til þess að tryggja samkeppnishæfni landsins í skattalegu tilliti. Þessar breytingar eru skynsamlegar. Þær auka líkur á að verðmæt starfsemi haldist í landinu og skili ávinningi inn í samfélagið. Einnig að skattheimta sem kostar meira að halda úti en gefur í aðra hönd verði aflögð.

Danir og alþjóðavæðingin

Tillögur dönsku ríkisstjórnarinnar um breytingar á skattalöggjöfinni eru athyglisverðar. Þær endurspegla umræðu sem fer nú fram bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum um alþjóðavæðinguna og þá sérstaklega þann hluta hennar sem snýr að frjálsu flæði fjármagns á milli landa.

Hlustum á börnin!

Katrín Jakobsdóttir skrifar

Atburðirnir á unglingaheimilinu í Breiðavík hafa hreyft við mörgum og hefur Kastljós Sjónvarpsins þar vakið athygli á viðkvæmu en mikilvægu máli. Málið hefur nú verið rætt á Alþingi og er sjálfsagt að skoða þessi mál bæði í sögulegu samhengi og til að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig.

Meðal svína

Spyrjið mig ekki hvers vegna, en meðal bókanna á náttborðinu mínu er Saga svínaræktar á Íslandi. Í hinu fróðlega riti um þessa öndvegisskepnu er meðal annars greint frá muninum á villisvíni og alisvíni. Hann er meðal annars sá að 70 prósent líkamsþunga villisvínsins eru bundin við fremri hluta skrokksins en 30 prósent við þann aftari. Með alisvínið er þessu öfugt farið.

Vel mannað Silfur

Geir H. Haarde, Bragi Kristjónsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Össur Skarphéðinsson, Guðrún Pétursdóttir og Bjarni Harðarson eru meðal gesta í Silfrinu á morgun...

Færumst nær og nær ESB

Innan tíðar skilar Evrópunefnd ríkisstjórnarinnar væntanlega af sér. Hún er skipuð fulltrúum þeirra flokka sem nú eiga setu á Alþingi og hefur starfað frá því um mitt ár 2004, undir forystu dómsmálaráðherra.

Sjónvarpið

Tvisvar sinnum kom ég að mér kærkominni manneskju grátandi fyrir framan sjónvarpið í vikunni. Það er vel yfir meðaltali. Það sem fékk svona á viðkomandi manneskju voru annars vegar viðtölin við fórnarlömbin frá Breiðavík í Kastljósi - átakanlegar hörmungar - og hins vegar American Idol - amerískur afþreyingariðnaður í öllu sínu veldi.

Biblía laus við kynjað tungutak

Nú á að fara að gefa út svonefnda Biblíu 21. aldarinnar – það mun vera ný Biblíuþýðing, Hún er þegar farin að valda deilum, enda er þar tekið mið af svonefndu "máli beggja kynja" en fyrir því hefur verið rekinn áróður innan þjóðkirkjunnar, ekki síst úr röðum Kvennakirkjunnar...

Sjá næstu 50 greinar