Umfangsmestu sýndarréttarhöld Íslandssögunnar? Jón Ásgeir Jóhannesson skrifar 12. febrúar 2007 14:29 Nú er komið að flutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli ákæruvaldsins gegn mér og fleirum í eftirhreytum Baugsmálsins. Aðalmeðferð hefst með skýrslutökum og vitnaleiðslum mánudaginn 12. febrúar 2007 og er áætlað að málflutningi ljúki 30. mars nk. Sér þá loks fyrir endann á máli sem hófst með húsleit lögreglunnar á skrifstofum Baugs hf. 28. ágúst 2002. Um leið og húsleit var heimiluð var gefin út handtökuskipun á hendur mér sem stjórnarformanni Baugs og Tryggva Jónssyni sem forstjóra Baugs. Mikið lá við. Tryggvi fékk að dúsa í fangageymslum lögreglunnar þessa nótt en ég slapp þar sem ég var staddur í viðskiptaerindum í Lundúnum. Að kvöldi innrásardagsins kom í ljós að ásakanir Jóns Geralds Sullenbergers um fjárdrátt okkar Tryggva fengu ekki staðist. Menn gerðu ekki greinarmun á debet og kredit. Nærtækar og eðlilegar skýringar voru til á öllum reikningum er tengdust viðskiptum Baugs og fyrirtækis Jóns Geralds, Nordica, en á þær skýringar var ekki hlustað af hálfu lögreglunnar. Niðurstaða rannsóknarinnar lá fyrir áður en hún hófst. Við vorum glæpamenn. Ekkert gat því breytt. Málið var að finna sannanir. Hófst þá leit - sumir kalla hana saum-nálarleit - í bókhaldi Baugs að ávirðingum er réttlætt gætu upphafið eftir að fyrir lá að ásakanir Jóns Geralds féllu dauðar niður. Mér og fleirum varð fljótlega ljóst að of mikið lá undir af hálfu lögreglunnar til að aftur yrði snúið. Heiður áhrifamanna var í húfi. Manna sem höfðu ljáð ásökunum Jóns Geralds fulltingi og hvatt lögregluna til dáða. Síðar kom í ljós hverjir þeir voru þegar tölvupóstar Styrmis voru birtir í Fréttablaðinu. Styrmir, Kjartan, Jón Steinar, Haraldur og ónefndur foringi hinna innmúruðu að nafni Davíð. Miklu veldur sá er upphafinu veldur. Frá upphafi hefur legið fyrir að rannsókn lögreglunnar hvílir á veikum grunni. Hún hefur ávallt einkennst af fumi og fáti og lítilli þekkingu á viðskiptum og bókhaldi. Sífellt var beðið um afhendingu nýrra gagna og oft á tíðum var beðið um gögn og skýringar sem þegar höfðu verið afhent. Starfsmenn félagsins máttu þola endalausar yfirheyrslur og dulbúnar hótanir. Stjórn félagsins sat undir hótunum um að aftur yrði gerð innrás í Baug Allt var reynt. Rangar upplýsingar voru bornar á milli vitna, þeim var hótað og þau vöruð við afleiðingum þess að spila ekki með lögreglunni, þá yrðu þau sett á sakamannabekk. Rannsóknin var illa skipulögð og hroðvirknisleg. Stjórnendur hennar lögðu fyrirfram engan trúnað á skýringar sakborninga, starfsmanna félagsins, endurskoðenda þess eða stjórnar. Allt kapp var lagt á að finna glæpinn. Sama hvað það kostaði. Með reglulegu millibili var því lekið í fjölmiðla að rannsóknin væri að vinda upp á sig og hún krefðist sífellt nýrri og nýrri aðgerða. Loks dró til tíðinda þegar fyrsta ákæran í Baugsmálinu leit dagsins ljós 1. júlí 2005. 1) Héraðsdómur vísaði málinu frá í heild sinni 20. september 2005. 2) Hinn 10. október 2005 staðfesti Hæstiréttur frávísunina að stærstum hluta en lagði fyrir héraðsdóm að taka átta ákæruliði til efnismeðferðar. 3) Ríkislögreglustjóri sagði sig frá málinu daginn eftir. 4) Héraðsdómur sýknaði sakborninga í öllum þeim liðum sem eftir voru. 5) Hæstiréttur staðfesti sýknudóma varðandi þá sex ákæruliði sem komu til kasta dómsins með áfrýjun ákæruvaldsins. 6) Björn Bjarnason skipaði nýjan saksóknara til að halda málinu áfram. Sesar var fallinn sagði Björn en sagan var ekki öll! Áfram skyldi haldið þessari vegferð. 7) Hinn 31. mars 2006 voru nýjar ákærur gefnar út í 19 liðum. 8) Hinn 21. júlí 2006 vísaði Héraðsdómur viðamesta ákæruliðnum frá dómi með þeim rökstuðningi að þar væri ekki lýst fjársvikum heldur viðskiptum! Hæstiréttur staðfesti frávísunina nokkru síðar. Aðgerðir lögreglu gagnvart fyrirtæki mínu, fjölskyldu minni, samstarfsmönnum og mér sjálfum hafa nú staðið yfir í hartnær fimm ár. Loks sér fyrir endann á þessum ósköpum. Eins og að framan er lýst hafa aðgerðir lögreglunnar einkennst af kappi fremur en forsjá - afar lítilli fagmennsku - og reyndar hafa helstu forkólfar og ábyrgðarmenn málsins, Haraldur, Arnar og Jón H.B., hrökklast frá því við illan leik, rúnir öllu áliti og trausti. Eigi að síður hefur þetta verið mjög erfiður tími fyrir mig, fjölskyldu mína, vini og samstarfsmenn. Ég get ekki óskað neinum þess að ganga í gegnum slíka raun. Systir mín og faðir lágu undir ásökunum í málinu í rúm 4 ár. Þau hafa nú verið sýknuð af öllum ákærum. Eftir situr þó biturleiki og reiði. Hvernig er hægt að halda fólki í gíslingu sem þessari í svo langan tíma? Um leið hlýtur maður að spyrja hvað þeir menn hafa eiginlega verið að hugsa sem ábyrgð bera á þessari rannsókn og staðið hafa að henni með þeim hætti sem raun ber vitni. Ómögulegt er að átta sig á því hvað þetta hefur kostað ríkissjóð. Eru engin takmörk fyrir því hve langt menn mega ganga í slíkum ofsóknum? Verður enginn dreginn til ábyrgðar? Nú þegar hefur ríkið þurft að greiða tugi milljóna króna til sakborninga vegna málskostnaðar. Þrátt fyrir allt framangreint er stórkostlegt að hugsa til þess að á sama tíma og klúður lögreglunnar hefur staðið yfir hefur okkur Baugsmönnum tekist að efla fyrir-tækið og vera í fararbroddi þeirra íslensku fyrirtækja er staðið hafa fyrir útrás atvinnulífsins, byggt upp eignir og starfsemi í öðrum löndum. Baugur er í dag margfalt öflugri en í ágúst 2002. Ég er þakklátur öllum þeim stóra hópi vina og vandamanna sem gert hafa mér og samstarfsfólki mínu þetta kleift. Ekki er þó vafi í mínum huga um að félagið hefur orðið af viðskiptatækifærum er nema hundruðum milljarða króna. Þó að lyktir Baugsmálsins sýnist loks í sjónmáli er framundan mikill sirkus í Héraðsdómi Reykjavíkur. Áætlað er að aðalmeðferð í málinu taki 6-7 vikur. Rétt þykir mér því að draga saman í stuttu máli um hvað verður deilt og hvað mér er ætlað að sanna í réttarhöldunum. Lögreglan og ákæruvaldið virðast nefnilega líta svo á, að sakaðir menn sýni fram á sakleysi sitt. Sú er í öllu falli reynsla mín af samskiptum við þessa aðila. Ákærunni má í grófum dráttum skipta í þrjá flokka: Í fyrsta lagi eru meintar ólögmætar lánveitingar þar sem ákæruvaldið reynir að gera viðskipti milli Baugs og Gaums tortryggileg en Gaumur er fyrirtæki í eigu fjölskyldu minnar. Gaumur gekk á undan í ákveðnum viðskiptum og tók áhættu. Ekkert er í lögum sem bannar slíka hluti. Ekki var verið að hygla Gaumi á nokkurn hátt eins og sýnt verður fram á undir rekstri málsins þar sem skýrt mun koma fram hvernig Gaumur studdi við framgang félagsins með myndarlegum hætti. Vondir menn hvísluðu því að lögreglunni og ákæruvaldinu að orðatiltækið "að gefa gaum" hefði öðlast nýja merkingu. Það er þó fjarri lagi en þannig starfar nú Gróa á Leiti. Í öðru lagi eru meint bókhaldsbrot þar sem ákært er fyrir einstakar færslur og staðhæft að þeim hafi verið ætlað að fegra uppgjör félagsins og hafa þannig áhrif á gengi Baugs á hlutabréfamarkaði. Hafi slíkt verið tilgangurinn voru til aðrar, mun einfaldari aðferðir líkt og allir þeir vita sem fást við rekstur og bókhald fyrirtækja. Ekki er horft á ársreikninga Baugs í heildarsamhengi. Með ákærunni opinberar ákæruvaldið skilningsleysi sitt á ýmsum lykilhugtökum í viðskiptalífinu. Þetta verður opinberað undir rekstri málsins, jafnvel á fyrstu dögum réttarhaldanna. Í þriðja lagi er meintur fjárdráttur þar sem ákæruvaldið byggir á framburði Jóns Geralds Sullenbergers sem m.a. hefur hótað mér lífláti. Yfirvöld gerðu ekkert með þær hótanir. Um er að ræða greiðslur til fyrirtækis fyrir þjónustu. Fleiri fengu slíkan stuðning frá Baugi á þessum tíma er gegndu svipuðu hlutverki og hann gagnvart íslenskum heildsölum. Ekki stendur steinn yfir steini í ásökunum Jóns Geralds og ákæruvaldsins eins og fram mun koma undir rekstri málsins. Bækur félagsins gefa rétta mynd af stöðu félagsins. Þetta er staðfest af endurskoðendum og stjórn. Ég sem forstjóri hef haft fullan stuðning allra hluthafa í málinu. Því má í raun segja þegar horft er á þessar staðreyndir að það sé ótrúlegt að málið sé á leið inn í réttarsal. Valdamiklir stjórnmálamenn og háttsettir menn innan lögreglunnar hafa um nokkra hríð hvíslað því að fólki - ekki síst fjölmiðlafólki - að Baugsmálið sé eitt umfangsmesta ,,fjársvikamál" sem yfirvöld hafa fengist við. Síðar bættist við ,,stærsta skattsvikamál sögunnar". Þegar liggur fyrir hvað er svona stórt og mikið við þetta mál. Í fyrsta lagi eru þess fá ef nokkur dæmi að æðstu yfirvöld landsins hafi haft önnur eins afskipti og lagt eins mikið undir í nokkru opinberu máli. Í öðru lagi eru þess fá ef nokkur dæmi að helstu áhrifamenn í stærsta stjórnmálaflokki þjóðarinnar, fyrir atbeina ritstjóra eins helsta morgunblaðs landsins, hafi haft önnur eins áhrif á aðkomu lögreglu í opinberu máli. Í þriðja lagi eru þess fá ef nokkur dæmi að opinbert mál hafi verið rekið áfram af öðru eins ofstæki og eins miklu kostað til og raun ber vitni. Í fjórða lagi eru þess fá ef nokkur dæmi að blásið hafi verið til sóknar í áberandi máli á eins veikum forsendum og í Baugsmálinu. Í fimmta lagi eru þess fá ef nokkur dæmi að ákæruvaldið hafi blásið til eins umfangsmikillar aðalmeðferðar fyrir dómi - ég vil kalla þetta sýndarréttarhöld - og í þessu máli. Hvað eiga öll þessi vitni að bera um? Þetta er stórt mál en einkum er það stórt vegna þess að þegar hátt er reitt til höggs og af rangindum þá verður fallið hátt og drunurnar miklar svo að undir tekur í fjöllunum þegar málið hrynur fyrir hinum innmúruðu og innvígðu valdsherrum og erindrekum þeirra sem ábyrgð bera á málatilbúnaði ákæruvaldsins í Baugsmálinu. Höfundur er forstjóri Baugs Group. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar Skoðun Ekki nóg að ráða – við þurfum að rækta Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason skrifar Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson skrifar Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson skrifar Skoðun Vaxtarmörk eða valdsmörk sveitarstjórna Orri Björnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa og leiðin til Siglufjarðar Pétur Heimisson skrifar Skoðun Sterkur skólabær – vinnum þetta saman Jóhannes Már Pétursson skrifar Skoðun Það sem skiptir raunverulega máli Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar
Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar
Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar
Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar
Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar
Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar