Fastir pennar

Baugsmálið, Króníkan, klámþing og femínistar

Baugsmálið er farið að minna mig á leikrit eftir Harold Pinter. Pinter samdi verk þar sem allir tala í kross, enginn skilur neinn, öll samskipti milli fólks eru meira eða minna markleysa. Það er einkennileg upplifun að horfa á leikrit eins og Afmælisveisluna eða Húsvörðinn.

Nú gæti eitthvert leikritaskáldið tekið sig til og samið verk upp úr samskiptum þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Sigurðar Tómasar Magnússonar í réttarsal. Höfundurinn þyrfti ekki annað en gulan penna til að strika yfir staðina sem eru mest absúrd. Svo yrði verkið sett upp í Þjóðleikhúsinu og gagnrýnendur myndu vera samdóma um að það væri pintereskt.

--- --- ---

Þegar ég vann á Helgarpóstinum sællar minningar stóð hann yfirleitt ekki undir nema fimm skrifandi starfsmönnum, tveimur ritstjórum og þremur blaðamönnum. Samt voru oft áhöld um hvort maður fengi útborgað. Þegar áraði sérstaklega vel var bætt við einum blaðamanni - einu sinni tveimur en útgáfan reis ekki undir því.

Af þessum sökum hef ég pínulitlar efasemdir um Króníkuna, nýja blaðið sem Sigríður Dögg Auðunsdóttir er að ritstýra. Ég keypti blaðið í dag í Melabúðinni. Fannst það ágætt - en samt dálítið bragðdauft. Held að þurfi að gefa dálítið í ef þetta á að standa undir þeim fjölda blaðamanna sem mér skilst að vinni við blaðið.

Annars er nokkuð um auglýsingar í blaðinu. Það voru yfirleitt aldrei neinar auglýsingar í Helgarpóstinum. Í mesta lagi frá einhverjum sjoppum. Ef svona blað á að rísa undir nafni þarf það helst að eignast marga óvini - sem veldur því að auglýsendur hlaupa burt í ofboði.

--- --- ---

Nú komast femínistar á Íslandi í feitt. Heilt klámþing stendur fyrir dyrum á Hótel Sögu. Jafnvel í bígerð að taka hér upp klámmyndir. Ég verð fyrir vonbrigðum með femínistana ef þeim tekst ekki að flæma þennan óþjóðalýð úr landinu. Þykist reyndar viss um að þeir geri það. Ísland er að sumu leyti púritanískt land - meðfram afar frjálslegu viðhorfi til kynlífs ungmenna og utan hjónabands - það á eftir að koma dónunum á óvart hvað verða mikil vandræði.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×