Fleiri fréttir

Föstudagsplaylisti Ragnheiðar Elísabetar
Hússtjóri og höfuðpaur Mengisgengis nokkurs vefaði saman lagalista vikunnar.

Einangraði sig í hljóðveri í Reykjavík fyrir plötuna sem kom út í dag
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds gaf í dag út sína fimmtu breiðskífu, some kind of peace. Platan er sögð vera hans persónulegasta til þessa. Platan er nú komin á allar helstu efnisveitur.

Jóhanna Guðrún lagði blóð, svita og tár í nýja jólaplötu
Fyrr í dag tilkynnti Jóhanna Guðrún glænýja tíu laga jólaplötu sem er væntanleg frá henni þann 19. nóvember. Platan heitir Jól með Jóhönnu og var það Davíð Sigurgeirsson eiginmaður hennar Jóhönnu sem stýrði upptökum.

Fagna nýrri plötu með stuttmyndböndum í stað útgáfutónleika
Hljómsveitin Tendra gefur á morgun út samnefnda breiðskífu hjá Smekkleysu. Hljómsveitina skipa tvíeykið Mikael Máni og Marína Ósk. Breiðskífan „Tendra“, sem er jafnframt fyrsta plata samnefndrar hljómsveitar, kemur út á CD og vínyl 6. nóvember 2020 hjá Smekkleysu.

Akkúrat árið og tíminn til að gefa út jólaplötu saman
Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson eru að leggja lokahönd á jólaplötu og mun hún koma út þann 27. nóvember næstkomandi. Platan kallast einfaldlega Það eru jól.

Föstudagsplaylisti Theodóru Bjarkar Guðjónsdóttur
Listi einkum hugsaður sem spúkí og þægileg bakgrunnstónlist fyrir grunnskólastelpur í andaglasi.

Nýtt myndband Harry Styles fer á flug
Tónlistarmaðurinn Harry Styles gaf út nýtt myndband við lagið Golden fyrir tveimur dögum og hefur það heldur betur slegið í gegn síðan þá.

Ariana Grande í Hvíta húsinu
Ariana Grande frumsýndi í gær tónlistarmyndband við nýjasta lag sitt, Positions. Myndbandið var frumsýnt stuttu eftir að kappræðum Donald Trumps og Joe Biden forsetaframbjóðenda lauk.

Kristín Sesselja gefur út nýja plötu um ástarsorg
Söngkonan Kristín Sesselja sendi í dag frá sér plötuna Breakup Blues og er hún sjálf höfundur allra laga og texta. Hinn efnilegi Baldvin Hlynsson útsetti öll lögin á plötunni nema tvö sem þau útsettu saman

Tóku upp atriði í Iðnó fyrir Jimmy Fallon
Of Monsters and Men frumfluttu nýja lagið sitt, Visitor, í lok spjallþáttar hins bandaríska Jimmy Fallon í nótt.

Innblásin af ímynduðu matarboði með Björgvini og Eddu
Tónlistarkonan Una Stefánsdóttir sendi frá sér lagið Með þér í dag ásamt Babies flokknum. Lagið er þemalag þáttanna Ísbíltúr með mömmu en fyrsti þáttur mæðginanna Eddu Björgvins og Björgvin Franz Gíslasonar fer í loftið í kvöld.

Föstudagsplaylisti MSEA
Hitastigið nálgast frostmark.

Sigurvegari Eurovision 2019 gefur út tónlistarmyndband
Hollendingurinn Duncan Laurence fór með sigur úr býtum í Eurovision í Tel Aviv árið 2019. Í sömu keppni vakti Hatari mikla athygli fyrir þátttöku sína með laginu, Hatrið mun sigra.

Beta og Barði gefa út lag saman í fyrsta skipti
Listamennirnir Elísabet Eyþórsdóttir og Barði Jóhannsson gáfu út lag saman á miðnætti undir nafninu Redwood Moon en þau hafa unnið að verkefninu síðan í vor. Það var Ellen Kristjáns móðir Elísabetar sem kynnti parið fyrir ári síðan.

Bríet frumflutti plötuna með ljósasýningu undir stjörnubjörtum himni í Krýsuvík
Sönkonan Bríet Ísis Elfar gaf út nýja plötu um helgina, Kveðja Bríet. Hún frumflutti plötuna með bílahlustun í yfirgefinni naumu í Krýsuvík. Platan er persónuleg og fjallar um það hvað djúp sár gróa hægt.

Klara gefur út eigin tónlist: „Endaði með að gera heila plötu um þetta misheppnaða samband“
Söngkonan Klara Elíasdóttir gaf út nýtt lag í dag. Lagið Paralyzed gefur hún út undir nafninu Klara Elias og er myndbandið við lagið væntanlegt í kvöld. Þetta er fyrsta sólólag söngkonunnar og er plata væntanleg frá henni á næstu mánuðum.

Eddie Van Halen látinn
Eddie Van Halen gítarleikari hljómsveitarinnar Van Halen er látinn eftir baráttu við krabbamein. Van Halen var 65 ára gamall.

Föstudagsplaylisti Korters í flog
Korter í flog reiða sig á óreiðuna.

Bein útsending: Samtal við Tjörnina
Tónsmíðanemendur við Listaháskóla Íslands hafa verið að vinna verkefni í gagnvirkri tónlist síðustu viku og verða niðurstöður tilrauna þeirra sýndar í beinni útsendingu í dag.