Tónlist

Klara gefur út eigin tónlist: „Endaði með að gera heila plötu um þetta misheppnaða samband“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Söngkonan Klara Elias gaf í dag út lagið Paralyzed. Lagið er af plötu sem hún gefur út í byrjun næsta árs.
Söngkonan Klara Elias gaf í dag út lagið Paralyzed. Lagið er af plötu sem hún gefur út í byrjun næsta árs. Michael Clifford

Söngkonan Klara Elíasdóttir gaf út nýtt lag í dag. Lagið Paralyzed gefur hún út undir nafninu Klara Elias og er myndbandið við lagið væntanlegt í kvöld. Þetta er fyrsta sólólag söngkonunnar og er plata væntanleg frá henni á næstu mánuðum.

„Lagið samdi ég ásamt Ölmu Guðmundsdóttur og James “Gladius” Wong. Hann sá einnig um að útsetja. Lagið er mér mjög dýrmætt því að það fjallar um flókið samband sem ég kannski áttaði mig ekki á hvað var að hafa slæm áhrif á mig fyrr en þetta lag kom saman. Ég endaði með að gera heila plötu um þetta misheppnaða samband svo það kom eitthvað gott úr því allavega,“ segir Klara í samtali við Vísi. Myndbandið kemur út á miðnætti og var það tekið upp í Bandaríkjunum þar sem tónlistarkonan hefur búið síðustu tíu ár.

Setti allt í samhengi

„Myndbandið og myndirnar fyrir plötuna tók ljósmyndarinn Michael Clifford í eyðimörkinni fyrir utan Los Angeles. Ég sá um eftirvinnslu sjálf ásamt mjög hæfileikaríkum klippara og hugsaði myndbandið upprunalega sem textamyndband. Mér fannst það svo skemmtilegt þegar það var tilbúið að ég ákvað að gefa það út sem „official“ myndband.“

„Ég er búin að vinna nær eingöngu í að semja fyrir aðra og tók mér pásu frá því að syngja sjálf fyrir nokkrum árum. Ég var búin að vera á milljón síðan ég var 18 ára gömul og syngja og koma fram og ég þurfti á því að halda að gefa því smá hlé,“ 

útskýrir Klara, en hún varð þekkt hér á landi fyrir hljómsveitina NYLON. Síðustu ár hefur hún búið í Bandaríkjunum og starfað við lagasmíðar og tónlist.

„Ég hélt að ég myndi aldrei vilja eða þurfa syngja aftur og að lagasmíðar og að syngja demó, það er að syngja lögin sem eru samin áður en tónlistarmaðurinn fær þau, væri nóg. Svo kom Covid. Allt í einu var eins og heimurinn væri að hrynja og ég vissi ekkert hvort ég kæmist heim eða hvort það væru flug til Íslands aftur eða hvað. Og það einfaldaði hlutina líka mjög. Setti allt í samhengi. Eina sem ég vildi var að faðma fjölskylduna mína og syngja aftur. Svo það er nákvæmlega það sem ég er að gera.“

Lagið Paralyzed má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Klara Elias - Paralized

Á topplistum í Asíu

Klara segir að önnur smáskífa komi út í næsta mánuði en platan hennar kemur svo út í byrjun næsta árs.

„Ég er að leggja lokahönd á lögin núna og ég get ekki beðið eftir að hún komi út.“

Fyrr á árinu sögðum við frá því hér á Vísi að lag eftir þær Klöru og Ölmu væri komið á topplistana í Asíu í flutningi vinsællar poppstjörnu, Baekhyun.

Klara hefur verið að syngja síðan hún var lítil stúlka en þetta er hennar fyrsta sólóplata.STEFANIE MOSER_

„Lagið var búið að vera næstum því gefið út mörgum sinnum af frekar vinsælum tónlistarmönnum áður en það rataði inn á borð hjá plötufyrirtæki Baekhyun. Kóreisk fyrirtæki sækja nú orðið mjög mikið af tónlist til Los Angeles og frá lagahöfunum þar. Þó að við hefðum alltaf haft mikla trú á þessu lagi þá var það auðvitað alveg sturlað hvað þetta gekk allt svo vel. Það er annað lag sem ég samdi að koma út fyrir jól með öðrum stórum kóreskum tónlistarmanni, Taemin, sem ég er mjög spennt fyrir,“ segir Klara um það ævintýri.

Þakklát fyrir vináttuna

Klara og Alma hafa báðar verið búsettar í Los Angeles í mörg ár og vinna mjög mikið saman þó að Nylon ævintýrinu sé lokið. 

Við elskum að vinna saman og gerum það eins mikið og við getum. Við höfum unnið saman náið í yfir 16 ár, eða síðan við vorum bara 18 og 19 ára gamlar og okkur var hent út í djúpu laugina þegar Nylon var stofnað. Við höfum gengið saman í gegnum allt stórt og smátt í okkar lífi, síðan þá. Meira að segja eftir að Steinunn flutti heim fyrir fjórum árum tölum við þrjár enn saman oft á dag. Ég er ólýsanlega þakklát fyrir þær og okkar vináttu.“

Klara segir að Covid hafi sett hlutina í samhengi.Michael Clifford

Klara segir að það sé ekki gott að búa í Los Angeles í augnablikinu.

„Los Angeles er í sérstaklega slæmu ástandi eins og í raun alls staðar annarsstaðar í Bandaríkjunum. Það lá allt í lamasessi frá því í Mars og það var óhugnanlegt að sjá tölurnar rjúka upp og svo var allt meira og minna alveg lokað. Þar að auki í ofanálag við alvarlegar óeirðir og mótmæli, geisa þar hræðilegir eldar sem menga loftið sem ekki var gott fyrir. Allir bestu hlutirnir við borgina eru bara ekki í boði núna. Ég vona bara að það verði gripið til hertari aðgerða svo að borgin komi aftur til sjálfrar sín fyrr.“

Faraldurinn hefur sett hlutina í samhengi fyrir Klöru. „Það að upplifa sig fasta á hinum endanum á hnettinum og vita ekki hvenær eða hvort þú kemst heim er óhugnanleg tilfinning. Í miðjunni á þessum hörmungum áttaði ég mig virkilega á því hvað skiptir mig máli og hvað drífur mig áfram í lífinu. Svo ég ákvað að koma heim, halda utan um fólkið mitt og gera það sem ég hef elskað að gera síðan ég var lítil stelpa, syngja og búa til tónlist.“


Tengdar fréttir

Klara Elías með fallega Presley ábreiðu

Söngkonan og lagahöfundurinn Klara Elías birti á samfélagsmiðlum fallega ábreiðu af Elvis Presley laginu . Lagið er í miklu uppáhaldi hjá Klöru, sem býr í Los Angeles í Bandaríkjunum. Myndband Klöru má finna í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×