Fleiri fréttir

Sigurjón digri vígður formlega

Það vantar ekki frumlegheitin og fjörið þegar þeir Simmi og Jói eiga í hlut en þeir vígðu nýjan hamborgara á Hamborgarafabrikkunni, í gær sem ber nafnið Sigurjón digri, og sömuleiðis eina frægustu tertu Íslandssögunnar, Astraltertu, sem aldrei hefur verið bökuð áður. Sigurjón digri og Astraltertan komu fyrir í Stuðmannamyndinni Með allt á hreinu eins og alþjóð veit en myndin er þrjátíu ára um þessar mundir. Eins og sjá má á myndunum mætti hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn, og tóku lagið Sigrujón digra við mikinn fögnuð matargesta Hamborgarafabrikkunnar. Sindri Sindrason mætti á staðinn en vigslan sýnd í Íslandi í dag á Stöð 2 á mánudaginn kemur strax að loknum kvöldfréttum.

Miley Cyrus spreðar í sportbíl

Turtildúfurnar Miley Cyrus og Liam Hemsworth eiga greinilega nægan pening því þær keyptu sér nýverið McLaren-sportbíl á eitthvað yfir tvö hundruð þúsund dollara, tæpar 25 milljónir króna.

Epísk tískuslys á rauða dreglinum

Emmy-verðlaunahátíðin verður haldin hátíðleg á sunnudaginn. Þar keppast stjörnurnar í Hollywood ekki aðeins um verðlaunastyttu heldur líka hver getur borið af á rauða dreglinum.

Auðmjúkur gagnvart verkinu

Þormóður Dagsson og hljómsveit hans Tilbury hafa tekið upp ábreiðu af lagi Nýdanskrar, Á sama tíma að ári. Útgáfa Tilbury hljómar í samnefndri leiksýningu sem verður frumsýnd á næstunni í Borgarleikhúsinu.

Uma snýr aftur

Leikkonan Uma Thurman var svo sannarlega glæsileg í galaveislu í New York á miðvikudagskvöldið en þetta var fyrsta partíið sem hún mætir í síðan hún eignaðist sitt þriðja barn um miðjan júlí.

Stjörnubörn með litað hár

Stjörnubörnin í Hollywood fá frjálsar hendur þegar kemur að hárinu og eru þau ansi ung þegar þau lita það í fyrsta sinn.

Lady Gaga er ólétt

Mikið hefur verið slúðrað um Lady Gaga og skyndilega þyngdaraukningu hennar en lafðin er með aðeins meira kjöt á beinunum þessa dagana.

Bæ bæ skinka - halló náttúrulegt útlit

Mónika Kavalaite og Arnar Tómasson hárgreiðslumeistarar á hárgreiðslustofunni Salon Reykjavík eru nýkomin heim frá París þar sem þau sóttu sýningu á vegum heimssamtakanna Haute Coiffure Francaise. Lífið spurði meistarana um nýjustu straumana þegar kemur að hári. "Sýningar á vegum samtakanna eru haldnar tvisvar á ári en við förum alltaf á þær til að taka sumar- og vetrarlínuna inn. Haustlínan í ár ber heitið V.O. en það stendur fyrir Original Version. Það nýjasta í hári er þegar litir eru annars vegar. Þá er það dökkur grunnur sem er lýstur upp með karmellulitum strípum inn á milli. Þannig kemur falleg hreyfing í hárið." segir Arnar. Skoða myndir sem teknar voru á umræddri sýningu hér. "Náttúrulegt útlit og mikil mýkt í litunum eru áherslurnar í ár en ljósu litirnir eins og svokallaður skinku-litur alveg búinn. Nú er fallegur beislitaður tónn ríkjandi undir og fallegar aflitunarstrípur settar í hárið inn á milli. Hárrótin verður þar af leiðandi ekki eins ljós. Lína einkennist líka mikið af bylgjum og hreyfing í dag. Við eigum allt önnur tæki í dag og aðferðirnar eru nútímalegri og efnin að sama skapi. Glamúrinn, elegans og stærra og mýkra hár er inni," segir Arnar. Hjá herrum er gamla útlitið komið til baka ef við tökum sem dæmi hárgreiðslu James Dean og Elvis Presley. Facebooksíða Salon Reykjavik.

Húllumhæ hjá ´78 á morgun

Samtökin ´78 ætla að byrja vetrarstarf sitt með sannkölluðu Hausthúllumhæi á morgun! Flóamarkaður og gleði að Laugavegi 3, fjórðu hæð. Þá verður Fjölskylduhjálp Íslands með glæsilegan vintage kjólamarkað, allt söluandvirði rennur óskipt til Fjölskylduhjálparinnar.

Rautt frumsýnt í Borgarleikhúsinu í kvöld

Rautt, margverðlaunað meistaraverk John Logan, verður frumsýnt á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu í kvöld, 21. september. Rautt er leikrit um einn áhrifamesta listamann tuttugustu aldarinnar, Mark Rothko, baráttu hans við sjálfan sig - eða öllu heldur við goðsögnina um sjálfan sig - og hinn eilífa ótta listamannsins við að verða úreltur. Verkið var sýnt á West end og Broadway við fádæma undirtektir þar sem leikararnir Alfred Molina og nýstirnið Eddie Redmayne fóru með hlutverk Rothko og aðstoðarmanns hans, Ken. John Logan er margreyndur leikrita og handritshöfundur, skrifaði meðal annars handrit að kvikmyndunum Gladiator, The Aviator og Hugo og er einn þriggja höfunda að handriti næstu James Bond myndar, Skyfall. Guðrún Vimundardóttir þýddi Rautt, Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir, Jóhann Sigurðarson og Hilmar Guðjónssons fara með hlutverk Rothko og Ken. Leikmynd og búninga hannar Helga I. Stefánsdóttir og lýsingu annast Björn Bergsteinn Guðmundsson. Sagan „Það er harmleikur fólginn í hverri pensilstroku“ sagði Mark Rothko um eigin verk. Hann var einn mikilvægasti málari 20. aldarinnar og tók að sér eitt stærsta verkefni listarsögunnar fyrir áður óþekkta upphæð. Þrátt fyrir þennan heiður sækja að honum efasemdir og innri átök brjótast fram í samskiptum hans við unga aðstoðarmanninn, Ken. Átökin eru ekki aðeins milli meistara og lærlings heldur fulltrúa nýrra tíma og hins helga konungs myndlistarinnar. Ólík viðhorf til lífsins takast á og um leið afhjúpast ævi aðstoðarmannsins; sorglegir atburðir fortíðar knýja dyra og átökin hafa óvæntar afleiðingar. Þótt báðir komi sárir úr því einvígi hafa þeir engu að síður unnið sigur, hvor á sinn hátt. Verkið Rautt hefur sópað til sín verðlaunum víða um heim á síðustu árum. Meðal annars hlaut það hin virtu Tony verðlaun árið 2010.

Þakklæti galdurinn á bak við gott hjónaband

Hver man ekki eftir brúðkaupsþættinum Já í umsjón Elínar Maríu Björnsdóttur athafnakonu með meiru? Lífið tók þessa ævintýragjörnu og atorkusömu konu tali sem býr nú í Svíþjóð með fjölskyldu sinni og sinnir frumkvöðlastarfi sem Practice Leader Education....

Sjónvarpsstjarna frumsýnir frumburðinn

Sjónvarpsstjarna E! stöðvarinnar, Giuliana Rancic, frumsýndi frumburðinn sinn á Twitter í gær. Drengurinn, sem mætti galvaskur með mömmu sinni í vinnuna aðeins þriggja vikna gamall, fæddist með hjálp staðgöngumóður...

Ekki ólétt

Korter eftir leynilegt brúðkaup Blake Lively og Ryan Reynolds og slúðurheimurinn logar yfir því að væntanlegur Lively-Reynolds erfingi sé á leiðinni í heiminn. Hollywoodparið sem gifti sig fyrir tveimur vikum hefur hinsvegar sent frá sér tilkynningu um að þau eigi ekki ennþá von á barni...

Notar sömu aðferð og Ítalirnir

,,Þetta er sama aðferð og Ítalirnir notuðu þegar þeir fundu upp hinn himneska espresso drykk,“ segir Halldór Guðmundsson...

Stjörnufans hjá Wow

Fleiri hundruð gestir mættu í stórglæsilegt innflutningspartý á vegum WOW-flugfélagsins á föstudaginn var...

Með kennslu hjá Fallon

Tískubloggarinn Tavi Gevinson var gestur í spjallþætti Jimmy Fallon og spjallaði þar um tískuvikuna í New York. Gevinson kenndi Fallon einnig að setja upp vanþóknunarsvip.

Tryggvi og sósíalistarnir

Á Facebook-síðu sinni greinir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, frá því að hann hafi í vikunni hitt fyrrum forsætisráðherra Grikklands og formann Sósíalistaflokksins, George Papandreou, í Harvard Law School og átt við hann "athyglisvert samtal". Með færslunni birtir hann mynd af sér og Papandreou að takast í hendur.

Óvænt hlé á tónleikum

Söngdívan Andrea Gylfadóttir fagnaði fimmtíu ára afmæli sínu með stórtónleikum í Eldborgarsal Hörpu um síðustu helgi.

Einhleyp, fimmtug og flott

Leikkonan Andie MacDowell prýðir forsíðu tímaritsins Town and Country með dætrum sínum tveimur, Rainey sem er 22ja ára og Margaret sem er sautján ára.

Amber sýnir óléttubumbuna

Fyrirsætan Amber Rose staðfesti það að hún ætti von á barni með unnusta sínum Wiz Khalifa á nýafstaðinni MTV Video Music-verðlaunahátíð.

Tvífari Kate Middleton

Heidi Agan, 32 ára, hefur í nægu að snúast þessa dagana því hún er nákvæmlega eins og Kate Middleton...

Stone káfar á Sölmu

Barmurinn á mexíkönsku leikkonunni Sölmu Hayek er einn sá frægasti í heimi en leikstjórinn Oliver Stone virðist hafa aðeins of mikinn áhuga á honum.

Aðeins búinn að fá sér

Leikarinn Jude Law var heldur skrautlegur að sjá þegar ljósmyndari náði myndum af honum fyrir utan næturklúbb aðfaranótt sunnudags. Þrátt fyrir að klukkan væri að ganga þrjú og Law væri í heldur annarlegu ástandi hélt hann ótrauður áfram á næstu klúbba.

Kardashian klanið komið á kreik

Sjónvarpsþátturinn Keeping Up With The Kardashians er einn vinsælasti raunveruleikaþáttur heims. Það er ekki að spyrja að því þegar Kardashian klanið fer á kreik að myndatökuvélarnar eru nálægt...

Mömmukoss á milli atriða

Alicia Silverstone baðaði son sinn Bear Blue í kossum og knúsi á milli þess sem hún lék í kvikmyndinni Gods Behaving Badly í New York í vikunni. Lítið hefur sést til Silverstone en hún hefur aðalega verið að sinna móðurhlutverkinu síðan Blu kom í heiminn í maí á síðasta ári.

Enginn smá munur

Bandarísi grínistinn Kathy Griffin sem er 51 árs fór út að skokka í gærdag og viti menn þar voru ljósmyndarar á vappi og mynduðu Kathy. Hún var ómáluð með hárið tekið upp eins og konur eru oftar en ekki þegar þær skokka...

Shakira á von á barni

Kynþokkafulla söngkonan Shakira staðfesti þær gleðifréttir í gær á blogginu sínu að hún ætti von á sínu fyrsta barni með unnusta sínum og fótboltastjörnunni Gerard Pique.

Heimsfrægar vinkonur

Gwyneth Paltrow, 39 ára, og vinkona hennar, Cameron Diaz, 40 ára, voru vægast sagt glæsilegar þegar þær mættu til að styðja Barack Obama í kosningabaráttunni klæddar í hvítt og bleikt í London í gærkvöldi. Ekki nóg með að leikkonurnar geri það gott í Hollywood heldur eru þær góðar vinkonur. Skoða má skvísurnar í meðfylgjandi myndaalbúmi.

Barnshafandi Kate Middleton

Forsíða Star tímaritsins segir að Kate Middleton eigi von á tvíburum. Á forsíðunni er birt mynd af hertogaynjunni með bros á vör sem tekin var af henni í opinberri heimsókn í Singapore á dögunum þar sem hún fangaði athyglina vægast sagt en með henni var eiginmaður hennar Vilhjálmur Bretaprins. Ef upprunalega myndin af Kate er borin saman við forsíðuna má sjá að búið er að eiga töluvert við myndina þannig að Kate virðist vera með stærri maga en hún er í raunveruleikanum en það er önnur saga.

Hættur við apana

Leikstjórinn Rupert Wyatt er hættur við að leikstýra framhaldsmynd Rise of the Planet of the Apes vegna þrýstings frá framleiðendum myndarinnar.

Er óskaplega friðsamur maður

„Ég vona bara að engum þyki þetta mjög ósmekklegt,“ segir Egill Helgason um nýja auglýsingu fyrir bókmenntaþátt hans Kiljuna í Sjónvarpinu. Hún hefur vakið mikla athygli og þykir Egill sýna skemmtileg tilþrif í hlutverk King Kong sem ryður frá sér bókaháhýsum af miklum þrótti.

Eignaðist litla stúlku

Tónlistarmaðurinn og fyrrum glaumgosinn Robbie Williams varð faðir í vikunni. Williams deildi gleðifregnunum á bloggi sínu en hann og eiginkona hans, Ayda Fields, urðu stoltir foreldrar lítillar stúlku á þriðjudaginn. „Gjöriði svo vel, þetta er Theodora Rose Williams, betur þekkt sem Teddy. Fæddist 15.33 þann 18.9.12. Barni, móður og föður heilsast vel. Takk fyrir hamingjuóskirnar.“

Stiller leigir reisulegt hús í Stykkishólmi

Ben Stiller er enn staddur hér á landi við tökur á myndinni The Secret Life of Walter Mitty. Tökurnar hafa vakið mikla athygli enda hafa lítil bæjarfélög nánast farið á hliðina við komu fjöldans sem gerir myndina.

Sífelldar skiptingar

Bardagakappinn Gunnar Nelson keppir sinn fyrsta bardaga í The Ultimate Fighting Championships í lok mánaðarins.

Ekki í skapi fyrir ljósmyndara

Leikkonan Selma Blair var sko aldeilis ekki á því að láta mynda sig þegar hún fór í ræktina í gær. Selma lét nokkur ófögur orð falla um ljósmyndarana áður en hún dreif sig inn að púla...

Þreytuleg í göngutúr

Stjörnuhjónin Helena Bonham Carter og Tim Burton fengu sér göngutúr í sólskininu í Hampstead í London á dögunum. Þau voru ekkert alltof hress og geispaði...

Þetta kallar maður gleraugu

Rokkbarnið Kelly Osbourne hefur verið dugleg við að sjúga í sig nýjustu tískustraumana á tískuvikunum í New York og London...

Gift í þriðja sinn

Söngkonan Annie Lennox gekk í það heilaga um helgina. Sá heppni er bandaríski læknirinn Mitch Besser. Þau giftu sig á bát á Thames-ánni og voru 150 vinir og fjölskyldumeðlimir viðstaddi...

Enn grennist Nigella

Sjónvarpskokkurinn Nigella Lawson hefur skafið af sér ansi mörg kíló síðustu misseri eftir að hún byrjaði að passa mataræðið. Hún prýðir forsíðu tímaritsins...

Stutta hárið slær í gegn

Hárgreiðsla söng- og leikkonunnar Miley Cyrus vekur athygli hvart sem hún mætir. Hvort sem það er rauði dregillinn eða fyrir utan matvöruverslun lítur hún alltaf stórkostlega vel út með stutta hnakkinn og síða toppinn. Í myndasafninu má sjá fjölda mynda sem teknar hafa verið af Miley undanfarna daga og myndir sem hún hefur sett á Twitter síðuna sína.

Sjá næstu 50 fréttir