Fleiri fréttir

Poppuð Pippa

Pippa Middleton, 28 ára, systir hertogaynjunnar af Cambridge, vakti athygli þegar hún arkaði til vinnu í miðborg Lundúna síðasta fimmtudag...

Stóri dagurinn hjá Balta á fimmtudag

Kvikmyndin Contraband verður frumsýnd á fimmtudaginn í Bandaríkjunum en hún er endurgerð hinnar rómuðu íslensku kvikmyndar, Reykjavik-Rotterdam eftir Óskar Jónasson. Myndin skartar Mark Wahlberg og Kate Beckinsale í aðalhlutverkum en Baltasar Kormákur situr í leikstjórastólnum. Hann lék hins vegar aðalhlutverkið í íslensku útgáfunni sem fékk feykilega góða dóma og mikla aðsókn.

Slasaður Brad

48 ára leikarinn Brad Pitt gekk við staf og leiddi jafnframt unnustu sína, Angelinu Jolie, á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Kaliforníu á laugardag eins og sjá má á meðfylgjandi myndum...

Óhræddur við stjörnur Vesturports

"Ég hef akkurat verið að vísa fólki á sýningu Vesturports því það er eiginlega að verða uppselt á allar sýningar hjá okkur,“ segir Kári Viðarsson, forsvarsmaður nýjasta atvinnuleikhússins á Íslandi, Frystiklefinn á Rifi. Leikhúsið ætlar að setja á svið sýningu sína um sjálfan Axlar-Björn, Góðir hálsar, sem sýnd var við góðar undirtektir í ágúst í fyrra. Hún var þá sýnd í takmarkaðan tíma þar sem leikararnir þurftu frá að hverfa vegna anna á öðrum vettvangi.

Maus með tónleika á Eurosonic

Hljómsveitin Maus spilar á Eurosonic-hátíðinni í Hollandi síðar í mánuðinum. Ekki er þó um að ræða endurkomu hinnar íslensku Maus heldur hollensku sveitina sem ber sama nafn og hún.

Forsetinn kom með barnabarninu í Borgarleikhúsið

Leikverkið Fanný og Alexander, sem byggt er á sjónvarpsþáttum og kvikmynd Ingimars Bergman, var frumsýnt á föstudagskvöldið í Borgarleikhúsinu. Með aðalhlutverkin í sýningunni fara þau Hilmar Guðjónsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Kristbjörg Kjeld og Gunnar Eyjólfsson en leikstjóri er Stefán Baldursson. Alls taka tuttugu leikarar þátt í sýningunni.

Frægur skilnaðarlögfræðingur hjálpar Önnu

Í bandarískum fjölmiðlum er því haldið fram að bílasalinn Cal Worthington hafi gert glæsibifreið Önnu Mjallar Ólafsdóttur upptæka, en þau standa nú í skilnaði. Anna er sögð hafa ráðið einn þekktasta skilnaðarlögfræðing Bandaríkjanna. Anna Mjöll og Worthington giftu sig síðasta vor, en skömmu fyrir áramót óskaði hún eftir skilnaði. Worthington er einn þekktasti og auðugasti bílasali Bandaríkjanna, og fjölmiðlar vestanhafs greina nú frá því að harka sé tekin að færast í skilnaðnn. Samkvæmt gögnum sem fjölmiðlar vitnar til lítur Worthington svo á að honum sé einungis skylt að greiða Önnu andvirði tæprar hálfrar milljónar á mánuði næsta hálfa árið, en Anna telji að henni beri að minnsta kosti helmingur í glæsihýsi í Beverly Hills sem hann hafi gefið henni í brúðargjöf.

Barn Beyoncé fæddist í gær

Söngkonan Beyoncé Knowles, 30 ára, og rapparinn Jay-Z, 42 ára, eignuðust stúlku í gærkvöldi. Stúlkan hefur verið nefnd Blue Ivy Carter...

Enn ein skilnaðarslúðursagan

Leikarinn Johnny Depp, 48 ára, á ekki sjö dagana sæla þegar kemur að hjónabandinu ef marka má slúðurheiminn vestan hafs. Kvikmyndirnar hans ganga vel en aðra sögu er að segja...

Ragnar í Pain of Salvation

Tónlistarmaðurinn Ragnar Sólberg, úr hljómsveitinni Sign, hefur gengið til liðs við sænsku progg-þungarokkhljómsveitina Pain of Salvation, sem er gríðarlega stórt nafn í heimi þungarokksins.

Nýtt lag frá Doors

Bandaríska hljómsveitin The Doors ætlar að gefa út sitt fyrsta „nýja“ lag í fjörutíu ár. Það verður frumflutt á Facebook-síðu sveitarinnar á mánudaginn. Söngvarinn sálugi Jim Morrison syngur lagið, sem nefnist She Smells So Nice. Það var upphaflega tekið upp vegna plötunnar LA Woman sem kom út 1971 en komst ekki inn á hana. Það var upptökustjórinn Bruce Botnick sem fann upptökuna og dustaði rykið af henni. Lagið mun vera mjög blúsað og kraftmikið. Það verður að finna á tvöfaldri viðhafnarútgáfu LA Woman, auk annars óútgefins lags, Rock Me.

Kiwanuka er bjartasta von BBC

Sálarsöngvarinn Michael Kiwanuka hefur verið kjörinn bjartasta von ársins 2012 af breska ríkisútvarpinu, BBC. Honum hefur verið líkt við Bill Withers sem er þekktur fyrir lög á borð við Ain"t No Sunshine og Just the Two of Us. Þrír af helstu áhrifavöldum Kiwanuka eru Otis Redding, Bob Dylan og Miles Davis.

Hörku frumsýning

Hasarmyndin Haywire var frumsýnd á fimmtudaginn og mættu leikarar og aðstandendur myndarinnar í sínu fínasta pússi á viðburðinn. Með aðalhlutverkin fer fríður hópur leikara og má þar á meðal nefna Ginu Carano, Antonio Banderas, Ewan McGregor, Channing Tatum og Michael Fassbender. Myndin fjallar um hermann sem leitar hefnda eftir að hafa verið svikinn af félögum sínum.

Gítarleikari Morrissey með Smutty Smiff á Ellefunni

Gítarleikarinn Boz Boorer er einn nánasti samstarfsmaður söngvaransMorrissey. Hann er á leiðinni til landsins í næstu viku og kemur fram ásamt hljómsveit Smutty Smiff. „Boz er hljómsveitarstjóri Morrissey." segir rokkabillífrumkvöðullinn og útvarpsmaðurinn Smutty Smiff.

Justin Bieber með nýtt tattú

Meðfylgjandi myndir voru teknar af Justin Bieber á pizzastað í fyrradag þar sem glænýtt húðflúr, mynd af Jesú, má greinilega sjá aftan á vinstri fótlegg söngvarans...

Friðrik mætti með mömmu sína á Bessastaði

"Þetta er miklu meira en við bjuggumst við,“ segir söngvarinn Friðrik Ómar. Rúmlega sautján milljónir króna söfnuðust á samstöðutónleikum hans og Jógvans Hansen í Hörpunni í nóvember vegna óveðursins sem gekk yfir Færeyjar í nóvember í fyrra. Tónleikarnir voru sýndir í Sjónvarpinu og þeim útvarpað á Rás 2 og á meðan voru landsmenn hvattir til að leggja söfnuninni lið.

Adele komin á fast

Söngkonan Adele var nýlega mynduð með manni sem fjölmiðlar ytra telja að sé nýi kærastinn hennar. Adele er 23 ára, en hinn meinti kærasti er 36 ára og heitir Simon Konecki. Útlit hans þykir svipa til leikarans Zach Galifianakis og er ekki leiðum að líkjast. Hann starfar hjá góðgerðarsjóðnum Drop4Drop, sem vinnur að því að gefa fólki aðgang að hreinu vatni. Adele sló í gegn í fyrra með plötunni 21 en uppspretta hennar er sambandsslit Adele og fyrrverandi kærasta hennar.

17 ára aldursmunur

Leikarinn Ryan Philippe er byrjaður með fyrirsætunni og leikkonunni Paulinu Slagter en 17 ára aldursmunur er á parinu. Philippe er 37 ára gamall og Slaget nýorðin 20 og slá slúðurmiðlar vestanhafs því upp að daman hafi ekki einu sinni aldur til að kaupa sér áfengi. Slagter er að koma sér áfram í Hollywood sem leikkona og hefur hingað til leikið í sjónvarpsþáttunum Entourage. Philippe var giftur leikkonunni Reese Witherspoon í sjö ár en hún gekk í það heilaga með umboðsmanninum Jim Toth í fyrra.

Sienna Miller ófrísk

Meðfylgjandi myndir voru teknar í París af bresku leikkonunni Siennu Miller, 30 ára, með unnusta sínum Tom Sturridge, 26 ára, en þau eiga von á barni saman...

Æi fáið ykkur herbergi

Slefið slitnaði ekki á milli knattspyrnumannsins Cristiano Ronaldo, 26 ára, og unnustu hans, rússneska undirfatamódelinu Irinu Shayk, 25 ára, þegar þau mættu á verðlaunahátíð á Spáni en kappinn spilar með Real Madrid...

Verðlaunatímabilið að hefjast

Fyrstu mánuðir nýs árs eru sælkeraveisla fyrir unnendur verðlaunamynda og strax um helgina verða frumsýndar tvær myndir sem hafa verið nefndar sem hugsanlegir kandídatar í Óskarsverðlaunakapphlaupinu.

Inga Lind gerir þáttaröð um offitu

Inga Lind Karlsdóttir, fyrrum sjónvarpskona, er nú á fullu að viða að sér efni um offitu Íslendinga. Hún hefur stofnað fyrirtækið ilk ehf. í kringum framleiðslu á heimildarþáttaröð sem hún hyggst gera um þetta vandamál en það virðist sífellt verða stærra og umfangsmeira hér á landi.

Ný plata frá The Killers

Brandon Flowers, söngvari The Killers, segir að hljómsveitin ætli pottþétt að gefa út nýja plötu á þessu ári. Í samtali við BBC sagðist hann ekki vita nákvæmlega hvenær hún kæmi út. "Við viljum ekki búa til Hot Fuss 2, Sam's Town 2 eða Day & Age 2. Kannski tökum við það besta úr þessu öllu og gerum það sem við kunnum,“ sagði Flowers. Fjögur ár eru liðin síðan Day & Age kom út. Trommarinn Ronnie Vannucci hefur áður upplýst að gítarleikur verði meira áberandi á nýju plötunni og að þeir væru búnir að semja nokkur frábær Killers-lög.

Hjúkrar eiginmanninum

Mariah Carey eyddi jólafríinu í að hjúkra eiginmanni sínum, Nick Cannon, en hann veiktist í nýrum milli jóla og nýárs. Carey birti mynd af sér á samskiptavefnum Twitter þar sem hún liggur í sjúkrarúmi ásamt Cannon og biðlaði í leiðinni til aðdáenda sinna að biðja fyrir bata eiginmannsins.

Söngkonan komin á fyrirsætuskrá

Söngkonunni ungu Lönu Del Rey er spáð frægð og frama á þessu ári en hún hefur nú skrifað undir samning við eina stærstu fyrirsætuskrifstofu heims; Next. Þykir samningurinn ávísun þess að Del Rey séu ætlaðir stórir hlutir á árinu en í lok mánaðarins kemur út ný plata með söngkonunni, sem átti eitt af lögum ársins 2011, Video Games.

Svona lítur kærasta Marc Anthony út

Marc Anthony, fyrrum eiginmaður Jennifer Lopez birti mynd af sér og nýrri kærustu, fyrirsætunni Shannon De Lima, á Facebook-síðu sinni...

Bogomil Font gerist framkvæmdastjóri ÚTÓN

„Ég geri mitt besta í þessu,“ segir tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson sem tekur 1. febrúar við starfi framkvæmdastjóra Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, ÚTÓN. Fréttablaðið greindi frá því fyrir áramót að þetta væri í bígerð og í gærmorgun gekk stjórn ÚTÓN frá ráðningunni.

Anthony kominn með nýja

Jennifer Lopez skartaði nýjum kærasta um jólin og leyfði paparözzum að mynda sig í bak og fyrir með honum. Marc Anthony, sem frú Lopez skildi við á síðasta ári, var ekki lengi að svara fyrir sig og birti mynd af sér og nýrri kærustu, fyrirsætunni Shannon De Lima, á Facebook-síðu sinni. De Lima, sem er frá Venesúela, á fjögurra ára gamlan son af fyrra sambandi og er ákaflega fræg í heimalandi sínu. Anthony sér varla sólina fyrir nýju ástinni í lífi sínu og kallar hana meðal annars Frelsisstyttuna sína á Twitter. Sonur Anthony af fyrra sambandi föður síns og Debbie Rosado notaði einnig Twitter til að óska pabba sínum til hamingju með sambandið.

Alltaf jafngaman á Íslandi

„Ég hef ferðast um heiminn og kynnst alls konar fólki sem túlkar listina á mismunandi hátt. Það er eitthvað við íslensku menninguna og fólkið hérna sem ég elska og þess vegna kem ég hingað aftur og aftur,“ segir bandaríski saxófónleikarinn Andrew D"Angelo.

Þurftu að hætta í dagvinnunni

„Við tókum skrefið og ákváðum að hætta í dagvinnunni og fara í þetta á fullu,“ segir Hörður Kristbjörnsson. Hann og félagi hans Daníel Freyr Atlason hafa sagt upp störfum hjá auglýsingafyrirtækinu Jónsson & Lemack"s til að einbeita sér að vefsíðunni Live Project. Þriðji meðlimurinn, Benedikt Freyr Jónsson, ætlar að halda áfram í sinni dagvinnu.

Ber að ofan á lúxussnekkju

American Idol dómarinn Simon Cowell var ber að ofan með sólgleraugun á sínum stað á risastórri lúxussnekkju með unnustu sinni, Mezhgan Hussainy, við Gustavia höfnina í St. Barths í karabíska hafinu...

Leikur óvænt í Vesalingunum

„Þetta leggst vel í mig. Það er gaman að vera kominn þarna aftur,“ segir Þórhallur Sigurðsson, Laddi. Hann hefur tekið við hlutverki kráareigandans Thénardiers í söngleiknum Vesalingarnir sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu í mars. 22 ár eru liðin síðan Laddi steig síðast á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu, eða þegar hann lék Fagin í söngleiknum Oliver!.

Klipptur út úr fyrsta Skaupinu

„Þetta voru töluvert margar senur en ég er ekkert svekktur og skil mjög vel að þetta skyldi hafa verið gert. Auðvitað var leiðinlegt að sjá á eftir þessum atriðum enda í fyrsta skipti sem ég leik í Skaupinu,“ segir leikarinn Atli Þór Albertsson.

Madonna skíðar maður!

Madonnu, 53 ára, er margt til lista lagt en hún ásamt kærastanum, Brahim Zaibat, skíðaði niður brekkurnar í Gstaad í Sviss, eins og sjá má í myndasafni, með börnunum David, Rocco, Mercy og elstu dóttur hennar, Lourdes, í gær...

Hörkukroppur korter eftir meðgöngu

Leikkonan Jessica Alba, 30 ára, var með snuð þegar hún ásamt eiginmanni sínum, Cash Warren, tveimur dætrum þeirra og aðstoðarkonu lentu á LAX flugvellinum í Los Angeles nýkomin úr fríi í Mexíkó...

Ingó týndist en fer ekki á taugum

„Hann náði einhvern veginn ekki í gegn. Hann fékk ekki þá útvarpsspilun sem hann hefur fengið oft áður og týndist svolítið,“ segir Eiður Arnarsson hjá Senu um fyrstu sólóplötu Ingólfs Þórarinssonar, Ingó, sem kom út fyrir jólin á vegum fyrirtækisins.

Patti samdi lag um Amy

Söngkonan Patti Smith hefur samið lag um Amy Winehouse, sem lést í júlí á síðasta ári 27 ára gömul. Í viðtali við tímaritið Uncut sagði Smith að lagið yrði á væntanlegri plötu söngkonunnar. „Þetta litla lag sem er helgað Amy blómstraði í hljóðverinu," sagði Patti Smith. „Við vorum þar að vinna í annarri tónlist þegar Amy lést. Ég skrifaði lítið ljóð og bassaleikarinn minn, Tony Shanahan, kom með smá laglínu og þetta tvennt passaðifullkomlega saman."

Hætt við skilnaðinn

Söngkonan Sinéad O"Connor er hætt við að skilja við fjórða eiginmann sinn, Barry Herridge. Parið gifti sig óvænt í Las Vegas í byrjun desember en hætti saman aðeins sextán dögum síðar.

Loksins trúlofuð

Rétt fyrir jólin bað söngvarinn og leikarinn Justin Timberlake, 30 ára, leikkonuna Jessicu Biel, 29 ára, um að trúlofast sér...

Plata frá Bloc Party á árinu

Kele Okereke, söngvari Bloc Party, hefur staðfest að plata sé væntanleg frá hljómsveitinni á þessu ári. Hljómsveitin hefur unnið að plötunni í New York, sem var einmitt sögusvið prakkarastriks sem hljómsveitin setti á svið á árinu. Þá tjáði Okereke fjölmiðlum að hann hefði verið rekinn úr bandinu, sem væri að leita að söngvara. Þetta ku hafa verið spaug og hann er ennþá söngvari hljómsveitarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir