Fleiri fréttir

Varð ástfangin af vini sínum

Sveitasöngkonan Shania Twain trúlofaðist kærasta sínum, svissneska viðskiptamanninum Frederic Thiebaud, nýverið. Thiebaud og Twain náðu saman eftir að þáverandi makar þeirra áttu í ástarsambandi. Twain hefur slegið í gegn með lög á borð við You’re Still the One, You’ve Got A Way og That Don’t Impress Me Much og er talin ein ríkasta söngkona heims um þessar mundir.

Gjafmildur Gyllenhaal

Jake Gyllenhaal virðist vera kolfallin fyrir kantrísöngkonunni Taylor Swift en leikarinn gekk heldur betur langt í afmæligjöfum. Swift fyllti 21 ár í byrjun desember og fékk demantsarmband metið upp á 11 milljónir íslenskar krónur, 10 kíló af kaffi, kaffivél og forlátan gítar sem kostaði rúma milljón.

Ólafur Darri með Balta í Hollywood

Ólafur Darri Ólafsson hefur hreppt lítið hlutverk í Hollywood-kvikmyndinni Contraband sem Baltasar Kormákur leikstýrir. Meðal mótleikara Ólafs í myndinni eru þau Kate Beckinsale og Mark Wahlberg en myndin er endurgerð á hinni íslensku Reykjavik-Rotterdam.

Fetar í fótspor Díönu

Harry Bretaprins heimsótti Þýskaland á dögunum og sagði í viðtali við dagblaðið Bild að hann væri mjög ánægður með trúlofun bróður síns og Kate Middleton.

Paltrow alltaf til staðar

Leikkonan Gwyneth Paltrow á börnin Apple og Moses með eiginmanni sínum, Coldplay-söngvaranum Chris Martin. Paltrow segist njóta þess að eyða tíma með börnum sínum og tekur því ekki að sér kvikmyndahlutverk nema hún sé mjög hrifin af handritinu.

Þurfti að yfirgefa flugvél

Hótelerfingjinn Paris Hilton þurfti að yfirgefa flugvél vegna þess að hnífur fannst í vélinni. Hilton var á leið til Hawaii frá Losa Angeles ásamt kærasta sínum Cy Waitz.

Ver Miley

Kelly Osbourne tekur upp hanskann fyrir nýju vinkonu sína söngkonuna Miley Cyrus en hún hefur sætt mikillar gagnrýni í kjölfarið á að myndband af ungstirninu reykja pípu lak á netið. Osbourne segir Cyrus vera duglegustu stelpu sem hún þekkir og að hún eigi alls ekki skilið þessa gagnrýni.

Sér lítið af börnum sínum

Leikkonan Nicole Kidman viðurkenndi í viðtali við tímaritið Hello að hún sæi lítið af börnunum tvemur sem hún ættleiddi ásamt fyrrum eiginmanni sínum, Tom Cruise.

Erfitt að sofa hjá vinkonu

Eitt atriði úr kvikmyndinni Black Swan hefur vakið eftirtekt en það er kynlífsatriði milli aðalleikkvennana Natalie Portman og Mila Kunis. Atriðið var ekki auðvelt fyrir leikkonurnar en þær eru góðar vinkonur.

Talar í fyrsta sinn um dauða Heath Ledger

Tæplega þrjú ár eru liðin síðan leikarinn Heath Ledger féll frá. Í meðfylgjandi myndskeiði opnar barnsmóðir hans, leikkonan Michelle Williams, 30 ára, sig í fyrsta sinn eftir að hann féll frá í viðtali við sjónvarpsþáttinn Nightline. „Á undarlegan máta þá sakna ég ársins sem hann féll frá því möguleikinn á að hann væri á lífi er horfinn. Á þeim tíma þótti mér ekki ólíklegt að hann kæmi gangandi inn um dyrnar eða birtist bak við runna..." sagði Michelle meðal annars.

Ó já það var fagnað eftir frumsýningu Gauragangs

Á meðfylgjandi myndum má sjá aðstandendur myndarinnar Gauragangur fagna saman á Íslenska barnum eftir vel heppnaða frumsýningu. Myndin, sem er í leikstjórn Gunnars B. Guðmundssonar verður tekin til almennra sýninga í kvikmyndahúsum um allt land þann 26. desember. Með hlutverk Orms Óðinssonar fer Alexander Briem og fetar hann þar með í fótspor Ingvars E. Sigurðssonar og Góa.

Vökudeildin fær hundruð húfa

„Það eru komnar hátt í 600 húfur og svo fékk ég líka sjö teppi og eitthvað af sokkapörum,“ segir Hafdís Priscilla Magnúsdóttir, sem ætlar að afhenda vökudeild Barnaspítala Hringsins handprjónaðar húfur handa fyrirburum deildarinnar á morgun, aðfangadag.

Skandall skekur H&M

Mikill styr stendur þessa dagana um eina af uppáhaldsbúðum Íslendinga, Hennes & Mauritz. Sænska dagblaðið Expressen sakar verslanakeðjuna um að ljúga að viðskiptavinum sínum. Málið snýst um fatnað sem stenst ekki gæðakröfur fyrirtækisins. Það hefur verið yfirlýst stefna H&M að flíkurnar séu gefnar til hjálparstofnana en Expressen segir að það sé rangt, fyrirtækið eyðileggi í raun fatnaðinn og hendi honum.

Kvartaði undan Scarlett

Leikararnir Ryan Reynolds og Scarlett Johansson tilkynntu í byrjun mánaðarins að þau væru að skilja eftir rúmlega tveggja ára hjónaband. Samkvæmt tímaritinu US Weekly var það Johansson sem átti frumkvæðið að skilnaðinum og situr Reynolds því eftir með sárt ennið.

Byggir hlöðu fyrir svín

Leikkonan Reese Witherspoon stendur í stórræðum þessa dagana en hún er að byggja skýli við húsið sitt. Witherspoon er forfallinn dýraaðdáandi og var í raun knúin til að byggja yfir skepnurnar sínar, geitur, asna, svín og hænur.

Enn bætir í borðspilin

„Mér fannst vanta hressandi spil þar sem enginn þarf að svara sérhæfðum spurningum, ráða í orð eða leika hlutverk,“ segir Arnaldur Gauti Johnson, sem gefur út spilið Fjör til enda nú fyrir jól.

Vill fá börnin heim

Leikkonan Nicole Kidman á erfitt með að sætta sig við að börnin tvö sem hún ættleiddi með Tom Cruise kjósi frekar að búa með föður sínum og konu hans Katie Holmes.

Tólf kíló fokin af kónginum

„Jú, ég er orðinn svolítið lúinn á aðfangadag. Ég reyni yfirleitt að leggja mig með börnunum í klukkutíma en ef það tekst ekki er ég orðinn eilítið þreyttur um kvöldið,“ segir Bubbi Morthens, sem hefur verið á þönum fyrir hver jól síðustu 26 ár.

Þjóðin elskar Helga Björns og Justin Bieber

Helgi Björnsson og Justin Bieber eiga söluhæstu plötur ársins hér á landi í innlenda og erlenda geiranum. 36 ár skilja að þessa ólíku en áhrifamiklu söngvara.

Kraumur gaf sex verðlaun

Sex flytjendur fengu Kraumsverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn í gær, en það voru Apparat Organ Quartet, Ég, Nolo, Ólöf Arnalds, Daníel Bjarnason og Jónas Sigurðsson. Alls voru tuttugu plötur sem gefnar voru út á þessu ári í pottinum.

Loksins saman um jólin

„Við höfum verið saman í fjögur ár en þetta verða fyrstu jólin okkar saman,“ segir söngvarinn Friðrik Ómar. Hann var á leiðinni norður þegar Fréttablaðið hafði uppi á honum og ætlaði að leigja sér bíl til að keyra.

Aftur líf í Sirkushúsinu

Þrjú ár eru liðin síðan skemmtistaðnum Sirkus var lokað á Klapparstíg þar eð rífa átti húsið. Nú dúkkar þar upp verslun með tölvuvörur.

Ágætis bíójól fram undan

Jól og áramót eru yfirleitt ágætis tími til að skella sér í kvikmyndahús. Íslenskar unglingaraunir, tæknibrelluskrímsli og danskir grínistar eru meðal þess sem rekur á fjörurnar.

Avatar oftast stolið 2010

Ævintýramyndinni Avatar var oftast stolið á netinu árið 2010, samkvæmt upplýsingum frá skráaskiptabloggsíðunni Torr­entFreak. Alls var myndinni halað niður 16,6 milljón sinnum.

Steed Lord landar auglýsindadíl

Í meðfylgjandi mynskeiði má sjá meðlimi hljómsveitarinnar Steed Lord, söngkonuna Svölu Björgvinsdóttur og bræðurna Egil og Edda Eðvarðssyni, leika aðalhlutverk í auglýsingu skóframleiðandans WeSC. Hljómsveitin hefur meira en nóg að gera við að skapa og flytja rafmagnaða danstónlist með popp ívafi en meðlimir eru búsettir í Los Angeles.

Fáklædd Disney-stjarna hneykslar

Fjölmiðlafulltrúar Disney hafa í nægu að snúast þessa dagana við að berja niður sögusagnir um eiturlyfjanotkun stjarnanna sinna og stöðva útbreiðslu kynlífsmyndbanda með þeim. Fyrst var það Miley Cyrus sem virtist reykja salvíu á myndbandi og nú eru það ansi djarfar myndir af nýjustu Disney-stjörnunni, Demi Lovato, en henni hefur einmitt verið spáð svipaðri frægð og velgengni og fröken Cyrus.

Daðrar við mótleikkonu

Leikarinn Johnny Depp er fallinn kylliflatur fyrir hinni 19 ára gömlu leikkonu, Kristen Steph­enson-Pino. Frá þessu greinir slúðurritið Star og hefur á orði að Depp hafi ekki farið leynt með aðdáun sína á fegurðardísinni. Depp og Stephenson-Pino leika saman í myndinni Pirates of the Caribbean og er þeim vel til vina að sögn blaðsins.

Stormsker ritar ævisögu Völu Grand

„Það er oft með fólk sem er kannski ekki nema 25 ára, það hefur stundum lifað meira og merkilegra lífi heldur en þeir sem eru níræðir,“ segir tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker.

Bieber hefur kysst margar

Söngvarinn Justin Bieber segist hafa kysst margar stelpur á undanförnum árum. „Ég hef átt nokkrar kærustur. Ég byrjaði að hitta stelpur þegar ég var þrettán ára. Ég var ekkert svo ungur,“ sagði hinn sextán ára Bieber í viðtali við tímaritið Heat.

Ásdís Rán á ísbarnum á Kaffi Reykjavík

Fyrirsætan Ásdís Rán hefur verið dugleg við að koma sér og nýrri snyrtivörulínu sinni á framfæri. Fyrst hélt hún jólaboð á skemmtistaðnum Replay við Grensás og í gær blés hún til blaðamannafundar á ísbarnum á Kaffi Reykjavík.

Á vel upp alin börn

Móðir leikkonunnar Gwyneth Paltrow heldur því fram að börnin Apple, sex ára, og Moses, fjögurra ára, séu þægustu börn í heimi. Amman, leikkonan Blythe Danner, segir Paltrow og eiginmann hennar, Chris Martin, vera afbragðs uppalendur og láta frægðina ekki koma í veg fyrir að halda venjulegt heimili.

Gerir ekki tvo hluti í einu

Justin Timberlake á erfitt með að einbeita sér að tveimur hlutum í einu og því situr tónlistarferillinn á hakanum á meðan kvikmyndirnar eiga hug hans allan.

Í hamingjukasti

Leikkonan Cameron Diaz virðist vera búin að finna hamingjuna aftur með hafnaboltahetjunni Alex Rodriguez. Diaz var lengi vel í ástarsorg eftir fyrirsætuna Paul Schulfor en eftir að hún byrjaði með Rodriguez hefur hún blómstrað að sögn vina. Á dögunum sást til parsins í fríi í Mexíkó þar sem vel fór á með Diaz og dætrum Rodriguez svo ætla má að sambandið sé komið á alvarlegt stig.

Gefur árinu puttann

Breska söngkonan Lily Allen virðist endanlega vera búin að gefast upp á árinu 2010. Um helgina sendu hún út þau skilaboð á samskiptamiðlinum Twitter að hún gæfi árinu puttann en þá var hún veðurteppt á Heathrow-flugvelli en mikil snjókoma hefur sett flug úr skorðum í Evrópu.

Klovn-mynd er klámmynd

Klovn-myndin er að verða ein vinsælasta gamanmyndin í sögu Danmerkur og stjörnurnar tvær, Casper Christensen og Frank Hvam, mala gull. En nú hefur aðeins hægst á lukkuhjólinu því sumir vilja meina að myndin sé argasta klám.

Stefán Máni hrósar Gillz

Stefán Máni Sigþórsson tekur ekki þátt í jólabókaflóðinu í ár en á engu að síður glæpasögu ársins í Frakklandi. Stefán kveðst stoltur af Agli Gillz Einars­syni og auglýsingu hans sem gjaldfelldi stjörnu­gjafir á einu bretti.

DVD-salan dreifðari en undanfarin ár

DVD-salan er dreifðari en mörg undanfarin ár að mati dreifingaraðila og fáir toppar um jólin eins og hefð hefur verið fyrir. Fjölskyldustjarnan Sveppi og vinirnir Bósi og Viddi úr Toy Story 3 verða hins vegar eflaust í toppsætum metsölulista þegar jólaösin klárast. „Niðurhalið hefur eiginlega verið að drepa sjónvarpsþættina,“ segir Konstantín Mikaelson hjá Senu og á þar við sölu á erlendum sjónvarpsseríum.

Fyrirsæta hannar gjafapappír

Elísabet Davíðsdóttir fyrirsæta og móðir hennar hafa hannað gjafapappír með munstri úr náttúrunni.

Íslenskt og enskt rokk og ról

„Þetta eru ég og bróðir minn Egill og hinir svokölluðu Birmingham Bad Boys,“ segir Skúli Jónsson úr hljómsveitinni Porquesi, sem hefur gefið út sína fyrstu plötu, This Is Forever.

Svíturnar á Hótel Borg lagðar undir partí

Menningarheimarnir blönduðust saman í partíi á Hótel Borg á föstudaginn. Öfgarnar voru slíkar að fólk talaði um fyrsta og síðasta skiptið sem Björk Guðmundsdóttir og Ásgeir Kolbeins væru á sama stað, á sama tíma, í sama rými.

Julia Stiles segist vera saklaus

Leikkonan Julia Stiles hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún þvertekur fyrir að hafa átt í ástarsambandi við mótleikara sinn úr sjónvarpsþáttunum Dexter, Michael C. Hall.

Sjá næstu 50 fréttir