Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aleinn á jólunum „Ég hef verið á ýmsum stöðum um jól, jafnt í margmenni sem fámenni, og oftast liðið vel," segir Hemmi Gunn í viðtali við Jól.is. „Eitt skiptið hélt ég aðfangadaginn heilagan með sjálfum mér. Eldaði frábæran mat, fór einn í kirkju og naut kvöldsins í algjörum friði, sem var alveg frábært," segir Hemmi. „En fáir vina og kunningja skyldu að þetta væri mögulegt." Skoða viðtalið við Hemma í heild sinni hér. 14.12.2009 16:00
Sálin á Nasa - myndir Sálin hans Jóns míns vægast sagt tryllti gesti á skemmtistaðnum Nasa um helgina. „Við æfum nú ekki reglulega, mörg laganna eru í blóðinu og fara ekkert þaðan," sagði Stefán aðspurður hvort meðlimir hljómsveitarinnar þurfi nokkuð að æfa sig lengur. Sígildir slagarar hljómsveitarinnar vöktu lukku og stemningin var gríðarlega góð eins og myndirnar, sem Þorgeir ljósmyndari tók, sýna greinilega. 14.12.2009 11:45
Gyðjur á B5 - myndir Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar Gyðja collection fagnaði á veitingastaðnum B5 á laugardaginn þar sem gestum var boðið að ganga rauða dregilinn. En viðburðurinn var einnig með góðgerðarívafi því hluti af ágóða á allri sölu Gyðju í desember rennur í átakið „Á 14.12.2009 08:15
Þreyttur Páll Óskar þráir frí „Ég þrái að liggja uppi í rúmi með tærnar upp í loftið og horfa á DVD. Það móment kemur bara ekki nógu oft,“ segir konungur poppsins, Páll Óskar Hjálmtýsson. 14.12.2009 06:00
Lúinn eftir erfiðar æfingar „Hópurinn er hægt og rólega að komast í form,“ segir Rúnar Freyr Gíslason sem leikur í Faust sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu 15. janúar. Leikritið krefst mikils líkamlegs styrks og hafa Rúnar Freyr og samleikarar hans æft stíft undanfarinn einn og hálfan mánuð undir styrkri stjórn leikstjórans Gísla Arnar Garðarssonar og þrekþjálfarans Jóhannesar Níels Sigurðssonar. 14.12.2009 04:00
Suðurnesja-strákar vilja læra dans „Þegar ég var í háskóla var ég oft með námskeið í Keflavík og á Akureyri. Eftir það var maður oft að hitta gömlu nemendurna og það var verið að skora á mann að koma aftur, svo ég tók bara ákvörðun um að láta verða af þessu núna,“ segir Ásta Bærings dansari sem opnar dansskólann Danscentrum í Reykjanesbæ 11. janúar næstkomandi. 14.12.2009 03:00
Gáfumannahljómsveit sem kynntist á Íslandi Gáfumannahljómsveitin The Esoteric Gender vann nýverið alþjóðlega lagakeppni sem var haldin á Netinu. Hljómsveitin er skipuð erlendum nemum úr Háskóla Íslands og einum háskólaprófessor. 14.12.2009 02:00
Magni: Ekkert til að stressa sig yfir „Konan mín er svo fyrirhyggjusöm að það er búið að kaupa flestar gjafir í byrjun nóvember og þar af leiðandi ekkert til að stressa sig yfir," segir Guðmundur M. Ásgeirsson, betur þekktur sem Magni í Á móti sól, spurður út í jólaundirbúninginn á Jól.is. 13.12.2009 14:30
Tískusýning - myndir Eins og myndirnar, sem Sveinbi ljósmyndari tók, sýna sýndu fyrirsætur undirfatnað, kjóla og skart við góðar undirtektir viðstaddra á tískusýningu verslunarinnar Kiss sem opnaði nýverið netverslun. „Við erum alveg í skýjunum. Móttökurnar voru frábærar og búið að vera brjálað að gera í búðinni síðan," sagði Nadia Tamimi verslunarstjóri Kiss um viðbrögðin. Netverslunin Kiss.is. 13.12.2009 08:00
Vöðvabúntið er jólabarn „Púðursnjór í svarta myrkri, piparkökuilmur, kertaljós og jólatónlist í rólegheitum heima í hreiðrinu með fjölskyldunni," svarar Arnar Grant líkamsræktarfrömuður þegar Jól.is spyr hvað kemur honum í hátíðarskapið. Lesa viðtalið við Arnar Grant hér. 12.12.2009 17:00
Iðnaðarráðherra í sæluvímu „Heimalagað konfekt, bækur, jólasíld og rúgbrauð," svarar Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra spurð hvað kemur henni í hátíðarskap á Jól.is. „Mmmm, bara við að tala um þetta þá hríslast um mig alla alger sæla," segir Katrín brosandi. Viðtalið við Katrínu í heild sinni hér. 12.12.2009 10:00
Smellirnir skiluðu litlu „Ég gef mömmu alltaf mjög flottar jólagjafir, en hún verður kannski aðeins flottari núna. Og svo ætla ég að skella mér á sólarströnd í viku fyrir peninginn. Ég var búinn að ákveða það. Fyrst ég grísaði á að semja þetta lag var ég búinn að ákveða að nýta innkomuna fyrir það í það sem lagið fjallar um,“ segir Ingó í Veðurguðunum, sem líkt og aðrir lagahöfundar fékk STEF-greiðslur útborgaðar á fimmtudaginn. 12.12.2009 07:15
Ugla fór á kostum Nokkrar vinkonur tóku sig til og héldu fyrsta stelpu-uppistandið á Næsta bar á miðvikudaginn var. Á meðal þeirra sem tróðu upp var Ugla Egilsdóttir leikkona, sem var síðust á svið en vakti rífandi lukku meðal gesta. 12.12.2009 06:45
Susan Boyle er þunglynd Susanne Boyle hefur upplýst að hún þjáist af þunglyndi. Hún eigi það til að fá reiðiköst en þetta sé afleiðing af því einelti sem hún mátti þola í æsku. Boyle hefur skotist upp á stjörnuhimininn eftir að hún sló í gegn í Britain Got Talent-sjónvarpsþættinum og nýleg plata hennar hefur selst í bílförmum úti um allan heim. „Ég get farið upp og niður, skapið er alveg eins og jójó,“ segir Boyle í samtali við The Sun. 12.12.2009 06:30
X-mas í ellefta sinn Hinir árlegu X-mas-tónleikar X-ins 977 verða haldnir í ellefta sinn á Sódómu föstudagskvöldið 18. desember. Á meðal þeirra sem koma fram eru Ourlives, Dikta, Agent Fresco og Mammút. Allir listamenn gefa vinnu sína og allur aðgangseyrir rennur til Stígamóta, grasrótarhreyfingar kvenna gegn kynferðislegu ofbeldi. 12.12.2009 06:00
Hendrikka gerir kvikmynd um Baróninn Skartpgripahönnuðurinn Hendrikka Waage og Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndaframleiðandi hafa tryggt sér kvikmyndaréttinn að bókinni Baróninn eftir Þórarin Eldjárn. 12.12.2009 05:30
Rokkað á þaki Turnsins „Þetta var alveg magnað,“ segir Kristófer Eðvarðsson úr rokksveitinni Nögl. Hluti nýs myndbands sveitarinnar við útgáfu hennar af jólalaginu Snjókorn falla var tekinn uppi á þaki Turnsins í Kópavogi. „Það skemmtilega við þetta er að það var akkúrat snjór þennan dag en það hafði ekki snjóað lengi. Það var ískalt þarna uppi og hrikalegt útsýni,“ segir Kristófer. 12.12.2009 05:15
Frægir auglýsa Sign skartgripi Algengt er að skartgripahönnuðir úti í heimi notfæri sér áhrifamátt fræga fólksins til þess að auglýsa vörur sínar. Gullsmiðurinn Sigurður Ingi hefur fetað í þau fótspor. 12.12.2009 05:00
Óvissa um safaríferð Hildar „Vinkona mín fann þessa ferð fyrir mig á netinu,“ segir Hildur Helga Sigurðardóttir blaðamaður sem bókaði tveggja vikna safaríferð til Kenía um jólin ásamt syni sínum, Óðni Páli Ríkharðssyni, 15 ára. Áætluð brottför er í dag, en þegar blaðamaður náði tali af Hildi Helgu í gær ríkti óvissa um ferðina. 12.12.2009 05:00
Stjörnur safna fyrir HIV-samtökin Síðastliðinn laugardag fór fram söfnun Alnæmissjóðs MAC í Smáralind fyrir HIV-Ísland samtökin. Alnæmissjóður MAC hefur stutt við samtökin um árabil og var þeim afhent ávísun upp á 2,2 milljónir króna á laugardag. Fjárins var aflað með sölu á Viva Glam varalitum og glossum sem seldir eru allt árið um kring, en allur hagnaður af sölunni rennur til sjóðsins. Ákveðið hefur verið að framlag MAC á Íslandi í ár renni til fræðsluverkefnis HIV-Ísland þar sem farið verður í alla grunnskóla landsins með fræðslu. Góð stemning ríkti á söfnunardeginum í Smáralind eins og sjá má á meðfylgjandi myndum og fjöldi fólks lagði málefninu lið.- ag 12.12.2009 04:45
David Hasselhoff í vanda Fyrrverandi eiginkona Davids Hasselhoff, Pamela Bach, hefur beðið aðdáendur og vini leikarans um að leggjast á eitt og fá Strandvarðargoðsögnina til að setja tappann í flöskuna. Hasselhoff og Bakkus hafa lengi eldað grátt silfur saman og hann virðist eiga erfitt með að láta vínið í friði, ef marka má orð fyrrverandi eiginkonu hans í bandarískum fjölmiðlum. 12.12.2009 04:30
Rihanna vill Cheryl Cole Söngkonan Rihanna lýsti því yfir í breskum fjölmiðlum að hún vildi leggja sitt af mörkum til að koma Cheryl Cole á framfæri í Bandaríkjunum. Cheryl, sem er gift Chelsea-leikmanninum Ashley Cole, var að gefa út sína fyrstu sólóplötu en hún er ein aðalsprautan í stúlknasveitinni Girls Aloud. Cheryl hefur jafnframt sinnt dómarastörfum með miklum glæsibrag í breska X-Factor ásamt Simon Cowell og það var einmitt í þeim þætti sem Rihanna fékk þessa hugmynd. 12.12.2009 04:15
Joely syrgir systur sína Leikkonan Joely Richardson hefur í fyrsta sinn tjáð sig um dauða systur sinnar, leikkonunnar Natöshu Richardson sem lést fyrr á árinu eftir að hafa dottið á skíðum og hlotið höfuðhögg. 12.12.2009 04:15
Það kraumar í tónlistinni Umsóknarferli Kraums fyrir verkefni sem eiga sér stað árið 2010 hófst í gær, á degi íslenskrar tónlistar. Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað á næsta ári. Tónlistarmenn og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar eru hvattir til að sækja um fyrir sín verkefni. 12.12.2009 04:00
Hljómsveitir frá Garðabæ Hljómsveitir og tónlistarmenn sem eiga það sameiginlegt að vera úr Garðabænum spila á tónleikum í Vídalínskirkju á þriðjudaginn. Fram koma Dikta, Ourlives, Pétur Ben og nýliðinn Daníel Jón. Bæði Dikta og Ourlives voru að senda frá sér plötur fyrir jólin. Dikta gaf út sína þriðju plötu, Get It Together, og Ourlives sína fyrstu sem nefnist We Lost the Race. Fyrsta plata Péturs Ben, Wine For My Weakness, hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2007 sem besta platan. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og miðaverð er 2.000 krónur. Forsala miða fer fram í Ilse Jacobsen á Garðatorgi. 12.12.2009 03:45
Ungfrú Ísland 2008 í jólagír „Svo er fjölskyldan hans pabba með mjög skemmtilega hefð þar sem við tökum eina helgi fyrir jól og förum í bústað og slöppum af, búum til jólaskraut, spilum og borðum góðan mat," segir Alexandra Helga Ívarsdóttir, ungfrú Ísland 2008, í viðtali við Jól.is „Það kemur manni vel í gírinn," bætir hún við. Sjá viðtalið í heild sinni hér. 11.12.2009 18:00
Í hverju ertu frú Obama? - myndir „Trúin á það að friður sé æskilegur dugar sjaldnast til þess að öðlast hann," sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti þegar hann tók við friðarverðlaunum Nóbels í Ósló. Það var hinsvegar jakki eiginkonu hans, Michelle Obama, sem stal senunni. Hann má skoða í myndasafninu. 11.12.2009 17:00
Frægir folar á skólabekk - myndir Á meðfylgjandi myndum má sjá sjónvarpsstjörnurnar Loga Bergmann Eiðsson og Gísla Einarsson ásamt fleiri folum við opnun Bjórskóla Ölgerðarinnar sem tók formlega til starfa í vikunni. Í Bjórskólanum sitja 20 nemendur hverju sinni, í eina kvöldstund og fræðast um bjór, uppruna hans, fjölbreytileika, framleiðsluaðferðir og hráefni. Yfirkennari í Bjórskólanum er Úlfar Linnet, sem sjá má á myndunum leiðbeina nemendum í allan sannleikann um bjórinn á lifandi máta. 11.12.2009 14:45
Fjarvera Páls Óskars heggur skarð í plötusölu „Það eru ekki sambærilegir titlar á markaðinum í ár, eins og í fyrra þegar Páll Óskar var til dæmis að selja gríðarlega vel,“ segir Ásmundur Jónsson, formaður Félags hljómplötuframleiðenda. 11.12.2009 06:30
Skemmtileg mynd um krónuna í bígerð „Við ætlum að forvitnast um þetta fyrirbæri, íslensku krónuna. Þetta er minnsti gjaldmiðill í heimi. Disney-dollarinn er stærri en íslenska krónan,“ segir leikstjórinn og hagfræðingurinn Garðar Stefánsson. 11.12.2009 06:30
Jólaeiturslanga Megasar Megas og Senuþjófarnir hafa staðið í ströngu í Hljóðrita í Hafnarfirði. Stefnan er sett á jólatónleika í Salnum í Kópavogi 16. desember. 11.12.2009 06:15
Þorvaldur er Stebbi Psycho Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikur Stebba Psycho, aðalhlutverkið í kvikmyndinni Svartur á leik, sem gerð er eftir bók Stefáns Mána. Þorvaldur er sem kunnugt er í námi við Julliard-skólann í New York og því veltur nokkuð mikið á að samræma stundaskrá hans og kvikmyndarinnar. 11.12.2009 06:15
Leppalúði með stjörnufans Gleðigjafarnir í Baggalúti sjá um jólafjörið á Rás 2 um þessar mundir í jóladagatalinu og hluti af þeirri dagskrá er að þeir dæla út vikulegum aðventulögum. Eðli málsins samkvæmt eru tvö lög komin út – „Hvað fæ ég fallegt frá þér“ og „Jólalalagið“ – og á sunnudaginn verður þriðja lagið afhjúpað. Baggalútur er ekki í nokkrum vafa um að þetta sé metnaðarfyllsta aðventulag sveitarinnar til þessa. Það heitir „Leppalúði“ og tvær íslenskar stjörnur leggja sveitinni lið, ofurtrommarinn Gulli Briem og Ragga Gísla. 11.12.2009 06:00
Mistök áratugarins Bítillinn fyrrverandi Paul McCartney segir að hjónaband sitt og Heather Mills hafi verið ein stærstu mistök ævi sinnar. Spurður hvort hjónabandið hafi verið mestu mistök áratugarins sagði hann: „Já. Ég held að það komist í efsta sæti.“ McCartney, sem á hina sex ára dóttur Beatrice með Mills, vildi þó ekki gagnrýna eiginkonu sína fyrrverandi í viðtali við tímaritið Q. „Ég vil ekki gera lítið úr neinum. Svona hlutir geta gerst. Ég vil horfa á jákvæðu hliðina sem er sú að ég eignaðist fallega dóttur.“ 11.12.2009 06:00
Nóg að gera hjá Ragga Bjarna „Ég er alltaf eins og brjálæðingur úti um allar trissur,“ segir söngvarinn ástsæli Raggi Bjarna. Hann hefur í nógu að snúast þessa dagana, eins og svo oft áður. Hann hefur verið að syngja í Officeraklúbbnum í Keflavík á jólahlaðborðum auk þess sem hann kemur fram á dvalarheimilum aldraðra og í afmælum. 11.12.2009 06:00
Sextán ára í Eurovision Karen Pálsdóttir, sextán ára stúlka úr Hafnarfirði, tekur þátt í undankeppni Eurovision í janúar. Hún lenti í öðru sæti í Músíktilraunum á síðasta ári. 11.12.2009 06:00
Þrjár íslenskar plötur á áratugalista Rolling Stone Íslenska tónlistarútrásin er svo sannarlega ekki gjaldþrota ef marka má áratugalista bandaríska stórblaðsins Rolling Stone. Fánaberar Íslands koma þó ekki á óvart. 11.12.2009 05:30
Lostafullt ferðalag Tigers Woods Tiger Woods fór á örfáum dögum frá því að vera pabbastrákur yfir í mesta dólg heims. Hann var fyrirmynd ungra drengja um allan heim en nú hugsa foreldrar sig væntanlega tvisvar um áður en þeir kaupa handa börnunum sínum Tiger Woods-varning. Alls hafa sjö hjákonur stigið fram og fleiri virðast vera á leiðinni. Atli Fannar Bjarkason tók saman yfirlit yfir skandalinn, en samkvæmt nýjustu upplýsingum hóf Tiger að hitta aðrar konur mjög fljótlega eftir að hann kvæntist hinni sænsku Elinu Nordegren. 11.12.2009 05:30
Jackson 4 snúa aftur Michael Jackson-bræðurnir fjórir, þeir Marlon, Tito, Jermaine og Jackie, tilkynntu í spjallþætti Larry King á CNN nýverið að þeir hygðust koma saman sem Jackson Four og fara í kjölfarið í tónleikaferð um heiminn á næsta ári. Slíkt tónleikahald yrði til minningar um bróður þeirra, Michael, sem lést langt fyrir aldur fram í júní á þessu ári. 11.12.2009 05:30
Sálin með jólarispu Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns verður dugleg við dansleikjahald á næstunni eftir nokkurra mánaða hlé. Fyrst spilar sveitin á Nasa á laugardagskvöld og viku síðar, eða 19. desember, spilar hún á Sjallanum á Akureyri. Á milli jóla og nýárs spilar Sálin síðan í Hvíta húsinu á Selfossi og á gamlárskvöld verður hún á Broadway. Á nýárskvöld verður dansleikur á Spot í Kópavogi og jólarispunni lýkur síðan í Officeraklúbbnum í Keflavík laugardagskvöldið 2. janúar. 11.12.2009 05:00
Engin Rokklands-plata í ár „Það er frí þetta árið en ég vonast til að koma sterkur inn á næsta ári,“ segir útvarpsmaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson, eða Óli Palli á Rás 2. Rokklands-safnplata hans sem hefur komið út fyrir jól síðastliðin átta ár kemur ekki út í ár. Hin aldræmda kreppa hefur þar töluvert að segja. 11.12.2009 05:00
Flóamarkaður á Íslendingabar Séríslenskur flóamarkaður verður haldinn á öldurhúsinu Cafe Blasen í Kaupmannahöfn nú á laugardag og eru það íslenskir listamenn búsettir í Danmörku sem standa að markaðnum. Meðal þeirra sem taka þátt eru Ágústa Hera Harðardóttir, Einar Thor, Jónas Breki, Örn Tönsberg og útvarpsmaðurinn vinsæli Andri Freyr Viðarsson sem mun leika jólatónlist undir nafninu Sir Honkey Tonk. 11.12.2009 04:45
Hugleikur rappar Myndlistarmaðurinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson mun rappa ásamt hljómsveitinni Human Woman á tónlistarhátíðinni Jól Jólsson sem verður haldin á Hótel Íslandi 18. desember. Human Woman er ný hljómsveit þeirra Jóns Atla Helgasonar og Gísla Galdurs Þorvaldssonar. Jón Atli hefur áður spilað með hljómsveitum á borð við Hairdoctor, Bang Gang og Fídel. Gísla Galdur þekkir fólk úr sveitum á borð við Trabant, Motion Boys og Ghostigital. Hugleikur hefur áður getið sér orð á tónlistarsviðinu, meðal annars með hljómsveitinni Útburðir. Þetta verða fyrstu tónleikar Human Woman og kemur hún fram á hátíðinni ásamt flytjendum á borð við Gus Gus, FM Belfast, Egil Sæbjörnsson, Lúdó og Stefán og Ben Frost. 11.12.2009 04:45
Eivör með tónleika Færeyska söngkonan Eivör Pálsdóttir heldur tónleika í Rammagerðinni á sunnudaginn klukkan 15. Tónleikarnir eru kærkomin sárabót fyrir þá sem náðu ekki að tryggja sér miða á tvenna, uppselda tónleika Eivarar sem verða í Fríkirkjunni um helgina. Eivör er nýbúinn að senda frá sér tónleikaplötu sem heitir Live. Hún inniheldur upptökur frá árunum 2005 til 2009 frá tónleikum í Færeyjum, Íslandi, Japan, Danmörku, Austurríki og Þýskalandi. Einnig er stutt síðan hún spilaði á hinni virtu heimstónlistarhátíð Vomex. 11.12.2009 04:30
Garland og Elton John í guðatölu Tónlistarmaðurinn Elton John og leikkonan Judy Garland hafa verið kjörin mestu átrúnaðargoð allra tíma í nýrri skoðanakönnun sem var gerð á meðal samkynhneigðra. 11.12.2009 04:30