Fleiri fréttir

Söngkona gefur út myndasögubók

„Bókin kemur út á mánudaginn," segir Lóa Hjálmtýsdóttir um væntanlega myndasögubók sína Alhæft um þjóðir. Bókin er gefin út af bókaforlaginu Okei bæ-kur og er hluti af bókaflokki sem kallast Litlu sætu.

Vinir kveðja

Síðustu tónleikarnir hjá þeim félögum Friðriki Ómari og Jógvan Hansen verða í Salnum, Kópavogi, í kvöld klukkan átta. Plata þeirra, Vinalög, hefur selst ákaflega vel að undanförnu og er aftur komin á toppinn yfir mest seldu plöturnar á Íslandi. „Við stefnum á gull, vonandi gerist það bara innan tíu daga,“ segir Friðrik í samtali við Fréttablaðið.

Rósa eldar þakkargjörðarkalkún

Rósa Guðbjartsdóttir, sem gaf nýverið út matreiðslubókina „Eldað af lífi og sál" eldaði þakkargjörðarkalkún í sjónvarpsþættinum Ísland í dag í kvöld. Hér má sjá myndir þegar Rósa gaf út matreiðslubókina. Hér fyrir neðan má sjá uppskriftirnar að þakkargjörðarkalkún, fyllingu, sósu, sætum kartöflum og ávaxtasalati að hætti Rósu.

Fjölnir Þorgeirs: Eftirminnileg jól

„Ég set upp jólaseríur og fer að kaupa jólagjafir og mandarínukassa," svarar Fjölnir Þorgeirsson ritstjóri vefsins hestafrettir.is aðspurður út í undirbúninginn hjá honum fyrir jólin. „Tilhugsunin að það séu að koma jól, jólalögin og stemmningin við það," útskýrir Fjölnir þegar talið berst að því hvernig hann kemst í hátíðarskap.

Sjúklega sætar - myndir

Hljómsveitin Gusgus spilaði í Sjallanum á Akureyri um helgina. Eins og myndirnar sýna skemmtu gestir sér konunglega. Troðfullt var út úr dyrum enda er söngvari GusGus, Daníel Ágúst, klárlega flottasti afinn á landinu í dag. Dj Lazer og nýjasta ungstirnið í dag, Dj Oculus, komu norður úr Evróputúr til að hita upp.

Síðustu sýningar

Leikritið Fyrir framan annað fólk fékk prýðisgóðar viðtökur þegar það var frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu í haust. Fram undan eru hins vegar þrjár síðustu sýningarnar. Um helgina verða tvær sýningar, ein á laugardagskvöld en hin á sunnudagskvöld og síðasta sýning er síðan laugardaginn 5. desember.

Sigurrós á sænsku plötuumslagi

Fanfarlo nefnist sænsk hljómsveit sem gerir út frá London. Hún hefur verið að vekja athygli fyrir fyrstu stóru plötuna sína, Reservoir. Myndin framan á umslagi plötunnar er alíslensk því ljósmyndina tók Lilja Birgisdóttir, systir Jónsa í Sigur Rós.

Laugarásvideó rís úr öskustónni

Margur kvikmyndaáhugamaðurinn var harmi sleginn þegar Laugarásvideó brann í lok sumars. Þeir sömu geta nú andað léttar því leigan mun opna aftur á sama stað.

Snýr aftur á heimaslóðir

Svarta kómedían Whatever Works er fyrsta myndin sem Woody Allen tekur upp í New York, í fimm ár. Með aðalhlutverkið fer Larry David, maðurinn á bak við Curb Your Enthusiasm.

Slípað veruleikaflóttapönk

Pönkpopptríóið Morðingjarnir er að senda frá sér plötu númer þrjú, Flóttinn mikli. Enn er hamast í gassaskap og dælt út melódísku eðalpönki. Haukur Viðar Alfreðsson, Morðingi, sagði Dr. Gunna að það sé ekkert kreppupönk á plötunni, bandið hafi afgreitt kreppuna snemma á síðasta ári.

Í kjólum frá Birtu

Sönghópurinn Þrjár raddir klæðist sérhönnuðum kjólum frá fatahönnuðinum Birtu Björnsdóttur þegar hann kemur fram á jólahlaðborði í Turninum í Kópavogi.

Lætur gott af sér leiða

„Amma mín lést úr brjóstakrabbameini svo ég hef alltaf viljað gera eitthvað fyrir krabbameinsfélagið," segir Alan Jones söngvari sem endurgerir lagið All You Need Is Love með Bítlunum. Allan ágóða af sölu gefur hann til rannsókna á brjóstakrabbameini.

Fjaðrir Og Flottheit Hjá Victoria‘S Secret

Árleg tískusýning undirfatafyrirtækisins Victoria‘s Secret fór fram á fimmtudagskvöld á The Lexington Armory í New York. Hljómsveitin Black Eyes Peas opnaði sýninguna með lagi sínu Boom Boom Pow við góðar undirtektir. Áhorfendur voru ekki síður ánægðir þegar ofurfyrirsætan Heidi Klum steig á svið í fyrsta sinn frá því að hún eignaðist sitt fjórða barn fyrir fimm vikum.

Löngu tímabær sólóplata

Bassaleikarinn Bjarni Sveinbjörnsson hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu, sem nefnist About Time. Lögin á plötunni voru samin þegar Bjarni var í námi í Los Angales og einnig eru á henni nýrri lagasmíðar.

Laddi lætur úlnliðsbrot ekki stoppa sig

„Ég flækti fótinn í einhverri stóllöpp og hrasaði bara," segir Þórhallur Sigurðsson, betur þekktur sem Laddi. Hann úlnliðsbrotnaði heima hjá sér og er nú með vinstri höndina í gifsi. „Ég bar hana fyrir mig en maður er víst ekki jafn liðugur og í gamla daga heldur hlunkaðist ég bara niður með þessum afleiðingum."

Kokkarnir vilja styrk frá Seðlabanka

„Við erum búnir að leggja inn skriflega beiðni um styrk upp á 300 þúsund krónur fyrir kaupum á kertum frá Sólheimum í Grímsnesi. Við höfum fengið staðfestingu á að þeir hafi móttekið bréfið en þetta virðist eitthvað standa í þeim,“ segir Úlfar Eysteinsson, matreiðslumeistari á Þremur Frökkum.

Sportbílar og eld-gleypir á tískusýningu

„Við ætlum að fara svolítið USA-leiðina og búa til alvöru tískusýningu með danssýningu og partíi eftir á,“ segir Sveinbjörn Gísli Þorsteinsson eða Sveinbi, eigandi superman.is, sem skipuleggur svokallað Fashion Party 2009 á Rúbín næstkomandi föstudag, 27. nóvember.

Paul á plötu Ringo Starr

Persónulegasta plata Ringo Starr heitir Y not og kemur út í byrjun næsta árs. Þetta er fyrsta platan sem Ringo hljóðvinnur sjálfur og segist hann borubrattur ætla að sjá um þetta framvegis. Þekkt lið eins og Ben Harper, Joss Stone, Joe Walsh, Dave Stewart, Glen Ballard, Richard Marx og Van Dyke Parks kemur við sögu á plötunni og Paul McCartney spilar á bassa í einu lagi og syngur með Ringo í laginu „Walk with You“. Það er sagt vera einlægt lag um gamalgróna vináttu.

FÖGNUÐU NÝRRI ÆVISÖGU

Útgáfuhóf var haldið í Eymundsson á dögunum til að fagna ævisögunni Mynd af Ragnari í Smára sem Jón Karl Helgason ritaði. Jón Karl hefur um árabil rannsakað líf Ragnars í Smára, sem var goðsögn í lifanda lífi. Hann var áberandi í íslensku menningarlífi um áratugaskeið og átti hann í góðu sambandi við helstu listamenn þjóðarinnar.

Snýr sér að leikstjórn

Leikkonan Lindsay Lohan tilkynnti á Twitter-síðu sinni í gær að hún hefði lokið við að skrifa handrit að sjónvarpsþætti sem hún hefði selt til sjónvarpsstöðvar.

Góðhjörtuð söngdíva

Söngkonan Lady Gaga pantaði hátt í hundrað pitsur fyrir svanga aðdáendur sína sem höfðu beðið margar klukkustundir í röð til að fá eiginhandaráritun. Á Twitter-síðu sinni skrifaði söngkonan: „Pantaði pitsur fyrir litlu skrímslin mín sem biðu eftir mér í alla nótt fyrir utan Best Buy. Vona að þið séuð svöng... borðið ykkur södd." Söngkonan gaf pitsusendlinum líka dágóða summu í þjórfé.

Allt að gerast hjá Merzedes Club - myndir

Merzedes Club eru tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna sem „dansakt" (dansatriði) ársins fyrir lagið og myndbandið Frelsi á vefsíðunni http://www.eurodanceweb.net. Dómnefnd plötusnúða, útgefenda og pródúsenta velur lög inn í keppnina og aðeins eitt lag kemst frá hverju landi. Ekki er hægt að sækja um þátttöku í þessari keppni heldur kom tilkynning til Merzedes Club um að þau hefðu verið valin inn í keppnina. Ekki hefur íslenskt atriði verið valið inn í þessa keppni áður. Kosning netverja gildir á móti dómnefndinni um dansatriði ársins en undanfarin 3 ár hafa; Basshunter, Ultrabeat VS. Darren Styles og Alex C. Feat. Yass unnið þessa keppni sem hefur staðið yfir árlega frá því 2001. Hægt er að kjósa hér: Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru í Portúgal við tökur á óútkomnu myndbandi sveitarinnar og í kringum tónleika sem hún hélt þar.

Skilja á sviðinu

„Það er búið að vera mjög skemmtilegt. Reyndar er það svo að þegar við förum inn á sviðið hættir hann að vera maðurinn minn og verður í huga mínum hinn viðkunnalegi en dularfulli Höskuldur," svarar Tinna Hrafnsdóttir leikkona spurð hvernig er að leika með unnusta sínum, Sveini Geirrsyni en þau leika saman í leikritinu „Fyrir framan annað fólk" eftir Kristján Þórð Hrafnsson sem sýnt er í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Takið þið þá nokkuð vinnuna með heim? „Við byrjuðum reyndar að æfa leikritið með leikstjóranum á heimili okkar svo það má kannski frekar segja að við höfum tekið heimilið inn í vinnuna. En að öðru leyti tekst okkur vel að aðskilja vinnu og einkalíf," segir Tinna. Sjá heimasíðu Hafnarfjarðarleikhússins.

Hönnuðir láta gott af sér leiða

„Hugmyndin er að koma íslenskum kvenkynshönnuðum á framfæri og láta gott af okkur leiða um leið," segir Þorbjörg Marinósdóttir blaðamaður, en hún stendur fyrir hönnunarpartíi á b5 fimmtudaginn 3. desember. Þar munu íslenskir kvenkynshönnuðir kynna og selja vörur sínar og hver hönnuður mun gefa eina vöru til góðgerðarmála. Þá er fólk hvatt til að mæta með lítinn jólapakka merktan aldri og kyni sem mun fara til þeirra sem minna mega sín.

Merzedes Club keppir í alþjóðlegri söngvakeppni

„Við fundum þetta lag og okkur fannst það fullkomið fyrir Eurodanceweb,“ segir Ítalinn Boris Zuccon, stjórnandi síðunnar Eurodanceweb.net. Lag hljómsveitarinnar Merzedes Club, Meira frelsi, hefur verið valið í alþjóðlega söngvakeppni síðunnar sem er nú haldin í níunda sinn.

Jackson með fernu

Popparinn sálugi Michael Jackson vann fern verðlaun á Bandarísku tónlistarverðlaununum sem voru haldin hátíðleg í Los Angeles. Með verðlaununum skráði Jackson nafn sitt í sögubækur hátíðarinnar því hann hefur þá unnið 23 verðlaun, fleiri en nokkur annar. Hann fékk meðal annars verðlaun í flokknum besti popp- og rokktónlistarmaðurinn og sem besti sálar- og R&B-tónlistarmaðurinn. Það var Jermaine Jackson sem tók á móti verðlaununum fyrir hönd bróður síns.

Opnunarhátíð í Vonarstræti

Það var góð stemning á opnunarhátíð Hönnunar­miðstöðvar Íslands, Hönnunarsjóðs Auroru og Kraums tónlistarsjóðs sem haldin var í tilefni að flutningi starfsemi þeirra í Vonarstræti 4b. Húsið var upphaflega byggt árið 1928 sem verksmiðjuhús til brjóstsykurs- og konfektgerðar.

Dansverkið Shit frumsýnt

Leikhúslistamaðurinn Kristján Ingimarsson er staddur hér á landi þar sem hann setur upp sýningu ásamt Íslenska dansflokknum í Borgarleikhúsinu. Kristján hefur verið búsettur í Danmörku frá árinu 1992 þar sem hann stundaði nám í sviðslistum. Kristján starfar einnig sem sjálfstæður leikstjóri og leikari.

Mikil gróska í prjónaskap

Það ríkir mikið prjónaæði á Íslandi um þessar mundir. Til marks um það er komin út ný prjónabók og kennsludiskur fyrir byrjendur og lengra komna. „Við vildum forvitnast hvað sé að gerast í allri þessari prjónagrósku á Íslandi,“ segir Erla Sigurlaug Sigurðardóttir, sem gefur út bókina Prjónaperlur – prjónað frá grasrótinni, ásamt frænku sinni, Halldóru Skarphéðinsdóttur.

Doðrantur Halldórs um hrunið

„Þegir Egill Örn hjá Forlaginu stakk uppá því að gefa út aðra bók stakk ég uppá því að bókin yrði 320 blaðsíður. Þetta er því alvöru doðrantur um hrunið," segir skopmyndateiknarinn Halldór Baldursson. Í dag kemur út bókin Skuldadagar þar sem finna má teikningar hans frá árunum 2007 og til dagsins í dag.

Syngur í Háskólabíói í febrúar

Emilíana Torrini heldur tónleika með hljómsveit sinni í Háskólabíói laugardaginn 20. febrúar. Hún hélt tvenna tónleika í Háskólabíói í desember í fyrra til að kynna plötu sína Me and Armini og seldist upp á þá báða. Síðan þá hefur frægðarsól hennar risið hratt, sérstaklega vegna hins vinsæla Jungle Drum sem sat á toppi þýska vinsældalistans í margar vikur.

Grínádeila á blekkingarheim Facebook

„Þetta var mjög skemmtilegt,“ segir sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason, sem hefur sent frá sér skáldsöguna Flottastur@feisbúkk ásamt vini sínum Helga Jean Claessen. „Þetta var gert til að búa til bros eða jafnvel tvö.“

Til heiðurs Iron Maiden

Tónleikar til heiðurs þungarokksveitinni Iron Maiden verða haldnir á Sódómu Reykjavík á laugardagskvöld. Hljómsveitin sem flytur tónlist „Járnfrúarinnar" kallar sig MaidenIced og er skipuð fimm meðlimum nokkurra íslenskra þungarokksveita.

Troðfullt - myndir

Eins og myndirnar sýna var mikill mannfjöldi sem safnaðist saman á Kjarvalsstöðum þegar sýning Steinunnar Sigurðardóttur fatahönnuðar var opnuð síðastliðinn laugardag, 21. nóvember. Myndirnar tók ljósmyndarinn Joseph Henry Ritter.

Kona Stebba Hilmars breytir heimilinu í jólaþorp

Stefán Hilmarsson hefur sent frá sér sína fimmtu sólóplötu sem ber heitið Húm. Margir af fremstu lagasmiðum landsins lögðu Stefáni til lög og óhætt er að segja að platan sé uppfull af gæðatónlist. Vísir hafði samband við Stefán til að forvitnast hvað kemur honum í jólagírinn.

Hafdís Huld flytur til Íslands

„Ég var orðin leið á að vera með heimþrá,“ segir söngkonan Hafdís Huld sem flytur til landsins eftir tvær vikur. Hafdís hefur verið búsett í Bretlandi undanfarin sjö ár, en hún og Alisdair Wright, sambýlismaður hennar, hafa fundið sér hús í Mosfellsdalnum og eru nú í óðaönn að pakka.

Jennifer bíður eftir Brad

Samkvæmt tímaritinu In Touch mun Jennifer Aniston bíða þolinmóð eftir því að fyrrverandi eiginmaður hennar, Brad Pitt, skilji við Angelinu Jolie og taki aftur saman við sig. Á meðan Aniston dvaldi í Mexíkó átti hún í einhverjum símasamskiptum við Pitt og samkvæmt heimildarmanni voru þau nokkuð innileg.

Færeyingar vilja Sirkús

Hinn goðsagnakenndi skemmtistaður Sirkús mun opna þann 11. desember í Þórshöfn í Færeyjum. Það eru þau Jóel Briem, sonur Sigríðar Guðlaugsdóttur, fyrrum eiganda Sirkús, og Sunneva Eysturstein sem eiga staðinn ásamt Sigríði.

Sigur Rósar-kvöld í París

Sérstakt Sigur Rósar-kvöld verður haldið í kvikmyndahúsinu Elysées Biarritz í París næsta laugardag. Þar verða sýndar heimildarmyndirnar Heima og Hlemmur, sem hafa báðar að geyma tónlist Sigur Rósar, ásamt stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, Síðasti bærinn, með tónlist hljómborðsleikarans Kjartans Sveinssonar.

Unga fólkið í aðalhlutverki

Grunnskólanemendur sýndu færni sína með myndavélarnar í keppni sem 66° Norður stóð fyrir. Menntamálaráðherra taldi sig sjá framtíðarkvikmyndagerðarfólk í keppninni.

Stjörnurnar sáu Bræður Sigurjóns í New York

„Undirtektirnar voru sannast sagt ótrúlegar og í rauninni bjóst ég ekki við þeim svona sterkum,“ segir Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi. Forsýning var á kvikmynd hans, Brothers, á sunnudagskvöldið í SVA Theater í New York að viðstöddum aðalleikurum myndarinnar, þeim Natalie Portman og Tobey Maguire, og leikstjóranum Jim Sheridan. Fjöldi nafntogaðra gesta lagði leið sína í kvikmyndahúsið og nægir þar að nefna The Edge, gítarleikara U2, en sveitin á einmitt titilag myndarinnar. Þá var Ang Lee einnig meðal gesta sem og gamli Karate Kid-leikarinn, Ralph Macchio.

Ekki vinsæl

Samkvæmt nýjustu heimildum semur Khloe Kardashian ekki sérstaklega vel við aðrar eiginkonur leikmanna LA Lakers, en Khloe giftist nýlega körfuboltamanninum Lamar Odum sem spilar með liðinu.

Svona færðu rennisléttan maga

„Lykillinn að sléttum og tónuðum magavöðvum felst í réttu mataræði og svokölluðum brennsluæfingum, þar sem að púlsinn fer upp í brennslupúls," svarar Arnar Grant líkamsræktarfrömuður þegar Vísir spyr hann hvernig hægt er að fá rennisléttan maga.

Umdeild fegurðardrottning eyðir jólunum á Íslandi

„Ég vil synda í Bláa lóninu um jólin. Ég verð vonandi búin að bóka farið í næstu viku,“ sagði Rachel Kum, ungfrú Singapore, á vefsíðu sinni í vikunni. Rechel kemur til landsins í desember og verður samkvæmt heimildum Fréttablaðsins í fylgd með vini sínum.

Sjá næstu 50 fréttir