Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Britney enn og aftur í vandræðum Umferðarlögregla stöðvaði Britney Spears fyrir of hraðan akstur á leið hennar til Las Vegas í gærkvöldi. Lögreglan gaf henni merki um að stöðva á hraðbrautinni en hún lét þó ekki segjast fyrr en eftir þó nokkra kílómetra. 27.8.2007 10:50
Owen Wilson á spítala eftir sjálfsmorðstilraun Hollywoodleikarinn Owen Wilson sem meðal annars gerði garðinn frægan í myndinni Wedding Crashers dvelur nú á spítala eftir sjálfsmorðstilraun. Leikarinn er sagður hafa skorið sig á púls eftir að hafa tekið inn töluvert magn af lyfjum. 27.8.2007 09:53
Reynir nýr ritstjóri DV Reynir Traustason mun taka við starfi ritstjóra DV á næstu dögum. Hann mun starfa við hlið núverandi ritstjóra Sigurjóns M. Egilssonar og verður þeirra verkefni í sameiningu að koma lestri blaðsins á þann stað sem telst viðunandi fyrir eigendur útgáfunnar. Í samtali við Vísi sagðist Reynir ekki geta tjáð sig um málið en að það myndi skýrast seinna í dag. 27.8.2007 09:42
Kate Moss að hverfa Vinir Kate Moss hafa miklar áhyggjur af fyrirsætunni, en hún hefur hríðhorast frá því hún hætti með dóphausnum Pete Doherty. Að sögn Daily Mail hefur hún misst fimm kíló á síðustu þremur vikum, og borðar því sem næst ekkert. 27.8.2007 09:21
Björn vill ekkert annað en Benz Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra er greinilega hrifinn af þýska bílaframleiðandanum Mercedes Benz. Hann á tvo slíka gráa bíla, jeppa og fólksbíl, auk þess sem ráðherrabifreið hans er að sjálfsögðu Benz. 27.8.2007 08:45
Lindsay í ástaratlotum á salerni Leikkonan og djammdrottningin Lindsay Lohan var gómuð í ástaratlotum á salerni meðferðarstofnunarinnar Cirque Lodge í Utah að því er breska götublaðið News of the World heldur fram. Heimildarmaður blaðsins sagði starfsmenn stofnunarinnar hafa heyrt undarleg hljóð koma frá einum af salernisklefunum. 26.8.2007 21:17
Diaz og Law saman í frí á Havaí Stjörnuleikarnir Jude Law og Cameron Diaz ætla saman í frí til Havaí. Þau kynntust við tökur á myndinni The Holiday og fór svo vel með á þeim að þau fóru á nokkur stefnumót. Nú er það hins vegar sumarfrí sem er á döfinni hjá skötuhjúnum. Áfangastaðurinn er Havaí þar sem Diaz dvaldi langdvölum með fyrrverandi kærasta sínum Justin Timberlake. 26.8.2007 10:30
Tvær barnfóstrur löbbuðu út frá Beckham-hjónunum Breska götublaðið News of the World heldur því fram að tvær barnfóstrur sem David og Victoria Beckham höfðu ráðið til að gæta þriggja sona sinna, Brooklyn, Romeo og Cruz, höfðu fengið nóg og sagt upp vegna framkomu hjónanna í sinn garð sem þær segja að hafi verið niðurlægjandi. 26.8.2007 08:55
Leikstjóri Boyz N The Hood varð konu að bana Hollywood leikstjórinn, John Singleton, komst í hann krappann á fimmtudaginn þegar hann ók Lexus bifreið sinni á gangandi vegfaranda. Konan sem varð fyrir bílnum var flutt á spítala þar sem hún var úrskurðuð látin á föstudagsmorgun. 25.8.2007 16:26
Pavarotti útskrifaður af sjúkrahúsi Stórtenórinn Luciano Pavarotti var í dag útskrifaður af sjúkahúsi í Modena á Ítalíu þar sem hann hefur dvalið undanfarnar tvær vikur í alls kyns rannsóknum. Pavarotti var skorinn upp við krabbameini í blöðruhálskirtlinum fyrir einu ári og óttuðust þá margir að hann hefði sungið sinn svanasöng. En nú er þessari hrinu rannsókna lokið og því gat Pavarotti haldið heim á leið. 25.8.2007 16:31
Hákon krónprins styður Mörtu systur Hákon krónprins Noregs tjáði sig í dag í fyrsta sinn um englaskólann sem systir hans Marta hefur sett á laggirnar við litla hrifningu samlanda sinna. Hákon stendur þétt við bakið á systur sinni og segist gleðjast yfir því að hún hafi fundið eitthvað sem heillar og drífur hana áfram. 25.8.2007 16:21
Katie og Cruise deila ekki svefnherbergi Heimildarmaður Star tímaritsins hefur greint frá því að hjónin Tom Cruise og Katie Holmes deili ekki svefnherbergi. Ástæðan er sú að Tom hrýtur og Katie þarf að eigin sögn að fá sinn fegurðarblund. 24.8.2007 16:30
Nýtt barn hjá Beckham hjónunum? Nýtt land, nýtt hús og nýtt barn hjá Beckham fjölskyldunni! Í viðtali við Daily Mirror á dögunum ræddi Victoria Beckham opinskátt um að hún og maður hennar David Beckham geti vel hugsað sér að bæta við barni. "Okkur langar í annað - kannski á næsta ári," sagði kryddið. 24.8.2007 15:44
Paris keypti barnaföt á meðan Richie sat í steininum Paris Hilton fór í gær og keypti rándýr barnaföt í tískuvöruversluninni Intuition handa vinkonu sinni og fyrrum meðleikkonu úr "Simpel Life" þáttunum, Nicole Richie. Á meðan sat Richie af sér fangelsisdóm sem hún hlaut fyrir akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. 24.8.2007 14:44
Hasselhoff vinnur meiðyrðamál Strandavarðarleikarinn David Hasselhoff vann nýverið meiðyrðamál sem hann höfðaði gegn glanstímaritinu OK. Í blaði sem kom út þriðja júlí er því haldið fram að David hafi haldið upp á það að hafa aftur unnið forræði yfir dætrum sínum með því að hella sig blindfullan á næturklúbbi í Los Angeles. 24.8.2007 13:24
Richie búin að taka út fangelsisvist sína Nicole Richie tók út örskamma fangelsisvist sína í gær en hún sat einungis inni í 82 mínútur. Hin ólétta Nicole hefur varla náð að taka upp úr töskum áður en henni var aftur sleppt lausri. Líklega er vinkona hennar Paris Hilton græn af öfund en hún þurfti að sitja mun lengur inni á dögunum. 24.8.2007 12:52
Þingmenn á skólabekk Þingmennirnir Birkir Jón Jónsson og Magnús Stefánsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra, hafa ákveðið að setjast á skólabekk.Þeir eru báðir byrjaðir í MBA námi í Háskóla Íslands og því ljóst að nóg verður að gera hjá þeim í vetur. 24.8.2007 11:58
Amy og eiginmaður hennar rispuð og marin eftir slagsmál Amy Winehouse ver bónda sinn eftir að bæði sást og heyrðist til heiftarlegra rifrilda þeirra á milli á hóteli í London. Fjöldi mynda náðist af parinu þar sem Blake Fielder-Civil, eiginmaður Amy, var allur klóraður á andliti og hálsi og Amy marin með gat á hnénu og blóðbletti á skónum. 24.8.2007 11:12
Lindsay Lohan dæmd í eins dags fangelsi Örlög Lindsay Lohan eru ráðin. Hún hefur verið dæmd til að sitja einn dag í fangelsi auk þess að gegna tíu daga samfélagsþjónustu. Henni er einnig gert að klára áfengis- og fíkniefnameðferð sem hún er í um þessar mundir. 24.8.2007 10:25
Losar sig við brjóstin Klámstjarnan Jenna Jameson hefur látið fjarlægja sílikonpúða úr frægum brjóstum sínum og hefur sagt skilið við klámheiminn. Jameson kveðst hundrað prósent ákveðin í að leggja klámið á hilluna, en það mun hafa haft sín áhrif á brjóstaminnkunina. 24.8.2007 10:15
Frumburðurinn fæddist á sömu mínútu og myndin hófst „Hún kom í heiminn 21 mínútu yfir átta, nánast á sömu mínútu og myndin byrjaði. Þetta var lygasögu líkast,“ segir leikstjórinn og nýbakaði faðirinn, Gunnar Björn Guðmundsson. Hans fyrsta kvikmynd í fullri lengd, Astrópía, var frumsýnd fyrir troðfullum sal Bíóhallarinnar í Álfabakka í fyrrakvöld en á sama tíma var leikstjórinn sjálfur staddur á fæðingardeildinni að taka á móti frumburði sínum. 24.8.2007 10:00
Jordan vill líkjast nunnu Fáklædda fyrirsætan Katie Price, betur þekkt undir nafninu Jordan, hyggur á frekari lýtaaðgerðir. Hún hefur þegar gengist undir brjóstastækkun, brjóstalyftingu og fengið botox-sprautur, og áformar að láta lyfta brjóstum sínum á ný í desember. 24.8.2007 09:45
Þyngdarlaus hönnun í Loftkastalanum Guðmundur Hallgrímsson, eða Mundi eins og hann kallar sig, heldur sýningu í Verinu í Loftkastalanum á morgun þar sem hann sýnir vetrarlínu sína. Mundi hannar föt undir merkinu Mundi Design og segir hann fötin framúrstefnuleg og henta best í engu þyngdarafli. 24.8.2007 09:30
Ánægður með undirskriftalista Útvarpsstöðin X-ið 977 hefur farið af stað með undirskriftalista þar sem hún skorar á umboðsmanninn Einar Bárðarson að leggja stráka- og stúlknasveitirnar Luxor og Nylon niður. 24.8.2007 09:15
Erfið ólétta hjá Aguilera Söngkonan Christina Aguilera á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, því óléttan reynist henni erfið. Heimildir herma að Aguilera sé nú komin fjóra mánuði á leið. Væntanlegur erfingi er fyrsta barn hennar og eiginmanns hennar, Jordan Bratman. 24.8.2007 06:00
Níræður faðir vill fleiri börn Elsti faðir heims stendur heldur betur undir nafni og hefur nú eignast sitt 21. barn, níræður að aldri. 24.8.2007 04:00
Mamma í háhæluðum skóm Victoria Beckham er mikið í mun að líta vel út og lætur helst ekki sjá sig á opinberum vettvangi nema hún sé klædd í spáný föt, með hárið greitt og í háhæluðum skóm. Svo virðist sem hún geri engar undantekningar á slíkri hegðan, jafnvel þegar hún fer með fjögurra ára gamlan son sinn, Cruz, í leikskólann. 24.8.2007 03:00
Tískusýning í miðbænum Verslunin ER og hársnyrtistofan 101 Hárhönnun standa fyrir tískusýningu á Skólavörðustígnum á laugardag. Þar fyrir utan mun Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir kynna nýja fatalínu sína undir nafninu Tóta Design. Tískusýning á vegum ER og Hárhönnunar er nú haldin í annað skipti. 24.8.2007 03:00
Dóttirin kom á sömu mínútu og Astrópía var frumsýnd "Hún er stjarna frá fyrstu mínútu," segir Gunnar Björn Guðmundsson leikstjóri myndarinnar Astrópíu og nýbakaður faðir í samtali við Vísi. Dóttir hans fæddist á nákvæmlega sömu mínútu og frumsýning á fyrstu mynd leikstjórans í fullri lengd hófst í gær. "Stúlkan fæddist klukkan 20:21 og á sama augnabliki fékk ég SMS um að sýningin væri að byrja," segir Gunnar. 23.8.2007 15:56
Sultukeppni í Stykkishólmi Sultu og marmelaðikeppni var haldin í Norska húsinu á Dönskum dögum í Stykkishólmi í síðustu viku. Þátttakendur í keppninni voru níu talsins og sendu inn samtals 14 sultur. Fengin var dönsk-íslensk dómnefnd til að dæma sulturnar en keppt var í nokkrum flokkum. 23.8.2007 15:05
Bill Murray tekinn fullur á golfbíl Grínleikarinn Bill Murray gæti átt yfir höfði sér ákæru vegna aksturs undir áhrifum áfengis eftir að hafa keyrt um götur Stokkhólms á golfbíl á mánudaginn. Lögreglumenn í Stokkhólmi komu auga á hægfara farartæki sem keyrði um götur borgarinnar. Þeir stöðvuðu ökumanninn og í ljós kom að þar var sjálfur Bill Murray á ferð. 23.8.2007 13:59
Þrýst á poppstjörnur að hylja líkama sinn Strangtrúaðir múslímar í Malasíu beina þeim tilmælum til poppstjarna sem hyggjast koma fram í landinu að klæðast efnismeiri fötum og draga úr ögrandi danshreyfingum. Múslímskir stúdentar og andstöðuflokkurinn í landinu eru meðal þeirra sem segja vestræna framkomu af því tagi hafa skaðleg áhrif á unglinga landsins. 23.8.2007 12:32
Amy Winehouse fær flestar tilnefningar til Mobo verðlaunanna Söngkonan Amy Winehouse fær flestar tilnefningar til Mobo (Music of Black Orgin) verðlaunanna í ár. Hún er tilnefnd í flokkunum besta söngkonan, besta R&B atriðið, besta myndbandið og besta lagið. 23.8.2007 10:47
Perez Hilton langar til Íslands Konungur slúðursíðanna, Perez Hilton, sem sjálfur kallar sig „The Queen of All Media“ virðist hafa gerst sérlegur verndari íslensk tónlistarlífs. Á þriðjudag mælti hann með tónlist Hafdísar Huldar Þrastardóttur á afar fjölsóttri síðu sinni, undir fyrirsögninni „Sætur lítill álfur“. 23.8.2007 10:15
Doherty kærður fyrir líkamsárás Lögregla í Bretlandi rannsakar nú ásakanir á hendur Pete Doherty söngvara hljómsveitarinnar Babyshambles um að hann hafi ráðist á ljósmyndara í verslunarmiðstöð í Crewkerne. Cath Mead segist hafa hlotið marbletti og misst flyksur úr hárinu eftir ryskingar við söngvarann. 23.8.2007 10:00
Lúxus-heilsurækt fyrir efnaða fólkið „Þetta verður flottasta aðstaða landsins með bestu þjónustu sem völ er á,“ segir líkamsræktarfrömuðurinn Goran Kristófer Micic en í haust mun opna ný og stórglæsileg líkamsræktarstöð á Grand Hótel, Grand Spa. 23.8.2007 10:00
Leikstjóri Astrópíu missti af frumsýningunni Gunnar Björn Guðmundsson leikstjóri missti af frumsýningunni fyrstu bíómyndar sinnar í fullri lengd, þar sam hann var upptekinn við að taka á móti fyrsta barni sínu og unnustu sinnar Láru Hafberg. 23.8.2007 09:52
Svanhildur nýr ritstjóri Íslands í dag Svanhildur Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri Íslands í dag. Svanhildur hefur starfað við dagskrárgerði í Íslandi í dag frá árinu 2004 en fram að þeim tíma hafði hún starfað við dagskrárgerð á RÚV í fimm ár bæði í útvarpi og sjónvarpi, m.a. í Kastljósi. 23.8.2007 09:13
Snýr baki við fjölskyldunni Fjölskylda, vinir og samstarfsmenn Kate Moss eru í sárum eftir að fyrirsætan ákvað að stökkva á ný í faðm eiturlyfjafíkilsins og rugludallsins Pete Doherty. 23.8.2007 09:00
Tínir sveppi í kvöldmatinn Stefán Sigurðsson, framkvæmdastjóri Perlunnar, tínir reglulega villisveppi á íslenskum leynistöðum. 23.8.2007 08:45
Hausthreinsun með safakúr Þeir eru ófáir sem nota haustið til að efna gömul heit og byrja í líkamsrækt eða á hollu mataræði. Fyrir þá sem vilja rífstarta haustinu er tilvalið að taka léttan detox-kúr. Hildur Guðmundsdóttir, eigandi Yggdrasils, benti á safaföstu sem góðan valkost. 23.8.2007 08:30
Góð kynning í New York Fatahönnuðurinn Steinunn Sigurðardóttir, sem hlaut nýverið norrænu hönnunarverðlaunin Gínuna, snýr heim frá New York í dag. Þar var hún stödd til að koma haustlínu sinni fyrir í versluninni Takashimaya á Fifth Avenue. „Þeir voru að kynna línuna mína núna á þriðjudaginn,“ útskýrði Steinunn. 23.8.2007 08:15
Robbie í góðu formi Söngvarinn Robbie Williams þykir sjaldan eða aldrei hafa litið betur út og er að sögn kunnugra í sínu besta formi. Ástæðan fyrir bættu heilsufari söngvarans mun fyrst og fremst vera nýja kærastan, Clare Staples, sem ku sjá til þess að Robbie passi upp á mataræðið, hreyfi sig reglulega og smakki ekki dropa af áfengi. 23.8.2007 08:00
Seacrest í stað O"Brien American Idol-kynnirinn Ryan Seacrest verður kynnir á Emmy-verðlaunahátíðinni sem verður haldin í Hollywood í næsta mánuði. Tekur hann við kyndlinum af spjallþáttastjórnandanum Conan O"Brien sem var kynnir í fyrra. 23.8.2007 07:00
Richards og Ronnie reykja í London Tveir meðlimir The Rolling Stones, þeir Keith Richards og Ronnie Wood, virtu reykingabann að vettugi og kveiktu sér í sígarettum á tónleikum í London fyrir skömmu. 23.8.2007 05:45