Fleiri fréttir

Aðdáendur Sparks æfir yfir athugasemdum um holdafar

Aðdáendur Idol-stjörnunnar Jordin Sparks sjá rautt eftir að frægur offitusérfræðingur sagði að hún ætti að grenna sig. MeMe Roth frá samtökunum National Action Against Obesity sagði í samtali við The Scoop að henni hafi verið hótað lífláti síðan hún sagði á Fox sjónvarpsstöðinni að Sparks væri of feit.

Er Nicole Richie ófrísk?

Hin ofurgranna Nicole Richie gæti verið ófrísk. Sögusagnirnar hafa flogið og Richie er ekkert að leggja sig fram við að neita þeim. Richie gekkst nýverið undir læknisskoðun, blóð- og þvagprufur og sagði heimildarmaður Life and Style að þær hefðu staðfest að hún væri þunguð.

Aniston ástfangin á ný

Vinurinn Jennifer Aniston virðist hafa fundið ástina að nýju. Tímaritið People Magazine greinir frá því að hún hafi notið lífsins með óþekktu kyntrölli á veitingastað fyrir skömmu.

Hafa tvær vikur til að deyja

Þú hefur tvær vikur til að deyja eftir að þú skráir þig inn á Mukti Bhawan gistiheimilið í Varanasi á Indlandi. Varanasi er heilög borg. Hindúar trúa því að það að deyja í Varanasi og láta dreifa ösku sinni yfir gruggugt vatn Ganges árinnar bjargi þeim úr hringrás dauða og endurfæðinga.

Hilton í fangelsi - dagur tvö

Paris litlu Hilton gengur ekki vel í fangelsinu. Hún grætur í símann og segist hvorki borða né sofa. Hún segir að klefinn sinn sé ískaldur.

Fjölskyldulífið er þreytandi

Fræga fólkið þreytist líka og börnin fjögur taka sinn toll af hjónalífi Angelinu Jolie og Brads Pitt. Leikkonan viðurkenndi í samtali við Marie Claire tímaritið að það væri erfitt fyrir skötuhjúin að finna tíma fyrir sig. Börnin fjögur eru Maddox fimm ára, Pax Thien þriggja ára, Zahara tveggja ára og Shiloh eins árs.

Töframaður sleppur naumlega

Bandaríski sjónhverfingamaðurinn Criss Angel slapp heill á húfi þegar glerbox sem hann hafði dvalið í í sólarhring hrundi úr tólf metra hæð niður á Times Square í New York. Töfrabragðið gekk út á að glerboxið var hulið steypu á meðan það hékk í 12 metra hæð með Angel innanborðs.

Bætist í barnaskarann hjá Brangelinu

Venjulegir ferðamenn láta sér yfirleitt nægja póstkort og lyklakyppur sem minjagripi. Ekki Angelina Jolie og Brad Pitt. Stjörnuparið ferðast mikið og á heilan sæg af börnum sem þau hafa sótt hér og þar um heiminn. Þau eiga nú hinn Fimm ára gamla Maddox frá Kambódíu, Pax Thien, þriggja ára frá Víetnam, Zahöru, tveggja ára, frá Eþíópíu, og Shiloh, líffræðilega eins árs dóttur þeirra.

Lohan leikur sér með hnífa

Kannski að hún Lindsay Lohan hafi haft gott af því að fara í meðferð. Stjarnan drykkfellda skráði sig á dögunum í meðferð eftir að hún var tekin fyrir ölvunarakstur. Hún virðist hafa dundað sér við ýmislegt annað undir áhrifum, því nú ganga myndir af henni og vinkonu hennar í hnífaleik eins og eldur í sinu um netið.

Knútur vex

Brátt sér fyrir endann á því að ísbjarnarhúnninn Knútur dragi að sér athygli fólks fyrir krúttlegheit. Hann er að verða að fullvaxta rándýri.

Verkfall vegna kynkulda

Suður-Afrískir launþegar hafa fleiri umkvörtunarefni en lélegt kaup og langan vinnudag. Monroe Mkalipi, formaður COSATU, sambands verkalýðsfélaga, kvartaði undan því að vinnuskilyrði væru svo erfið að starfsmenn hefðu ekki orku til að sinna skyldum sínum í svefnherberginu.

Mike Tyson í Bollywood mynd

Mike Tyson langar að leika í Bollywood mynd. Boxarinn geðgóði lék á dögunum í tónlistarmyndbandi þar sem hann dansaði við Bollywood-tónlist.

Deilt um milljóna samning

“Við vorum að gera tugmilljóna króna samning við Egil svo þetta er engin smá samningur,” segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, sem hefur farið þess á leit við sjónvarpsmanninn Egil Helgason að hann efni ráðningasamning sem hann telur að þeir hafi gert.

Bannað að hengja út þvott í Búlgaríu

Borgaryfirvöld í Sofiu í Búlgaríu hafa bannað það að fólk hengi upp þvottinn sinn á meðan á heimsókn Bush bandaríkjaforseta stendur. Bannið nær til allra gatna sem bílalest forsetans fer um þann 11. júní.

Fótboltabullan biður Dani afsökunar

Hataðasti maður Danmerkur um þessar mundir, fótboltabullan sem hljóp inn á Parken undir lok leiks Dana og Svía í undankeppni EM og réðst á dómarann, hefur beðist afsökunar á athæfi sínu og biður dönsku þjóðina að fyrirgefa sér.

Skáldin guggnuðu á bátnum

"Við lentum því miður á bát sem hafði aldrei áður verið róið á. Hann var ekki þannig búinn að við næðum okkar besta hraða og þær færeysku höfðu því betur sem fyrr," segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri bókaútgáfunnar JPV, sem þurfti ásamt liði sínu að láta í minnipokann fyrir færeyska saumaklúbbnum Stokkarnir í hinni árlegu róðrakeppni sem haldin er á sjómannadaginn.

Húðflúrhátíð á Grand Rokk

Íslensk húðflúrhátíð verður haldin dagana 8. til 10. júní á skemmtistaðnum Grand Rokk. Á hátíðinni munu húðflúrmeistarar frá Bandaríkjunum, Danmörku og Íslandi bjóða upp á húðflúr fyrir gesti og gangandi en þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin.

Heimsþekktur dansdómari til landsins

Dansgúrúinn Dan Karaty, sem hefur öðlast heimsframa með dómarastörfum sínum í þættinum So You Think You Can Dance, er væntanlegur til Íslands í sumar. Helgina 28.-29. júlí mun hann kenna upprennandi dönsurum hér á landi á dansfestivali Dansstúdíó World Class.

Engar hárlengingar fyrir Paris Hilton

Paris Hilton þarf að losa sig við hárlengingarnar í fangelsinu. Þá er henni líka bannað að lita á sér hárið. Sýslumaðurinn í Lynwood hefur staðfest þetta. Reglur fangelsisins banna hárlengingar og litanir, og undir það verður Hilton að gangast líkt og aðrir fangar.

Paris Hilton ætlar í fangelsi með stæl

Her stílista, hárgreiðslufólks og förðunarfræðinga mun sjá um það að Paris Hilton verði eins glæsileg og hægt er á myndunum sem verða teknar af henni á leið í fangelsið.

Knútur er hættur að vera krútt

Knútur er ekki krútt lengur. Ísbjarnarhúnninn frægi, sem brætt hefur hjörtu gesta í Berlínardýragarðinum er að verða fullorðinn. Beittar tennur, sterkbyggður skrokkur og gulur og tjásulegur feldur eru fylgifiskar þess að fullorðnast. Að minnsta kosti ef maður er ísbjörn.

Niles kominn út úr skápnum

Hyde Pierce, sem er betur þekktur sem Niles, bróðir geðlæknisins Fraser, er kominn út úr skápunum. Eða samt ekki alveg. Pierce sem er 48 ára hefur aldrei rætt kynhneigð sína opinberlega, og ekki haft fyrir því að slá á vangaveltur um það hvers vegna hann sé enn ógiftur.

Garðar Thór gengur í hjónaband.

Sjarmatröllið Garðar Thór Corters og unnusta hans Tinna Lind Gunnarsdóttir ætla að gifta sig í sumar. Tinna, sem er nýútskrifuð leikkona, og Garðar hafa verið saman í sjö ár. Í viðtali við Sirkus tímaritið í dag kemur fram að Tinna ætli að flytja til Englands á næstunni, enda eiginmaðurinn tilvonandi að gera góða hluti þar.

Tryggja sýningarrétt á verðlaunamyndum Cannes

Græna ljósið hefur tryggt sér sýningarrétt á langstærstum hluta þeirra mynda sem unnu til verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Meðal þeirra er rúmanska sigurmyndin “4 months, 3 weeks and 2 days”, en aðrar athyglisverðar myndir eru meðal annars heimildarmynd um dauða rússneska njósnarans Alexanders Litvinenko og tengs Putin forseta við mál hans.

Íslenskur bruggari í stórsókn

Bjórum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hlotnuðust þrenn gullverðlaun á nýafstaðinni Monde selection bjórkeppni í Belgíu. Sem bruggmeistari Ölgerðarinnar er það Guðmundur Mar Magnússon sem á heiðurinn af stórsókninni í bjórbruggi.

Íslandsmet í Esjugöngu

Næstkomandi laugardag verður gerð tilraun í því að setja Íslandsmet í fjölda manns á Esjuna á einum degi. Fjallgönguhópurinn 5tindamenn standa fyrir uppákomunni.

RÚV skráð á lögheimili útvarpsstjóra

„Bíddu, ha?" voru fyrstu viðbrögð útvarpsstjórans Páls Magnússonar þegar honum var bent á að Ríkisútvarpið ohf. væri skráð á lögheimili hans í símaskránni á netinu. Síðan skellti hann upp úr. „Þetta finnst mér alveg ótrúlegt. Það er allavega ljóst að Ríkisútvarpið er ekki rekið frá mínu heimili," sagði Páll hlæjandi og bætti við að þetta hljóti að vera mistök af hálfu Símaskrárinnar.

Fimmti frægasti nörd í heimi

„Þetta er bara svona nánast eins og Forbes-listinn,“ sagði Jón Gnarr upp með sér þegar blaðamaður Fréttablaðsins greindi honum frá því að nafn hans væri hið fimmta sem kæmi upp á uppsláttarvefritinu wikipedia.org, ef leitað er að frægum nördum, eða „famous nerds.“ Jóni þótti staðsetningin á listanum mikil upphefð, en á Wikipediu fást ríflega 700 leitarniðurstöður með þessum orðum. Hann kvaðst mjög stoltur af nördískunni.

Bryan Ferry: Dylanesque - þrjár stjörnur

Eins og nafnið gefur til kynna þá hefur þessi nýja plata Bryans Ferry eingöngu að geyma lög eftir Bob Dylan. Ferry hefur gert plötur með lögum annarra áður, en þetta er í fyrsta sinn sem hann gefur út plötu eingöngu með lögum eftir einn höfund.

Sjá næstu 50 fréttir