Fleiri fréttir Skammarkrókur laus við lúxus Meðfylgjandi myndir sýna kofa sem er staðsettur í skógi í Bordeaux í Frakklandi. Hugmyndin var að byggja lítinn látlausan kofa sem skaðaði ekki umhverfi sitt á nokkurn hátt. Kofinn minnir helst á skammarkrók fyrir einhvern sem hefur gert eitthvað af sér því lúxusinn er enginn eins og sjá á myndunum. 27.7.2011 10:46 Fléttu-fílingur í Hollywood Í meðfylgjandi myndasafni má sjá frábærar hugmyndir þegar kemur að því að flétta hárið. Nicole Kidman, Rihanna, Jennifer Lopez og Paris Hilton vita hvað þarf til að tolla í tískunni. Í sumar er það fléttað hár og það á rauða dreglinum. Skoða myndir hér. 27.7.2011 10:26 Steindi á sjúklega fræga vini Steindi jr hélt útgáfupartý á skemmtistaðnum Austur síðasta föstudag í tilefni af því að diskurinn hans er loksins kominn út með tónlistinni úr þáttunum hans. Um var að ræða stórt Smirnoff partý í anda þáttanna. Fram komu meðal annars Bjartmar Guðlaugs, Gnúsi Jones, Þórunn Antonía, Berndsen og svo Steindi sjálfur með Bent og Ásgeiri. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var mikið stuð og flestir gestirnir sjúklega frægir. 27.7.2011 09:49 Kona ársins Söngkonan Rihanna hefur verið útnefnd kona ársins af ítalska Vogue og telja þeir hana verðuga fyrirmynd fyrir konur. 27.7.2011 08:30 Stefnir á fatahönnun Leikkonunni Emmu Watson er fleira til lista lagt en að láta til sína taka á hvíta tjaldinu. Watson undirbýr sig undir að hefja háskólanám við Oxford háskóla og ætlar sér að taka kúrsa í fatahönnun og saumaskap. 27.7.2011 08:00 Amy jörðuð Í myndasafni má sjá Mitch Winehouse kveðja dóttur sína, söngkonuna Amy Winehouse, í dag ásamt móður hennar, nánustu fjölskyldu og vinum. Góða nótt engillinn minn. Sofðu rótt. Mamma og pabbi elska þig að eilífu, sagði Mitch eftir að hann rifjaði upp skemmtilega tíma sem hann átti með dóttur sinni. Þá tók hann sérstaklega fram hvað Amy var sátt við tilveruna stuttu áður en hún lést á heimili sínu aðeins 27 ára gömul. Lokalagið sem var spilað í jarðarförinni var lagið So Far Away með Carole King en það var uppáhaldslagið hennar Amy. 26.7.2011 20:08 Geðveikur haldari eða glæný brjóst Söngkonan Beyonce Knowles, 29 ára, vakti mikla lukku þegar hún kom sér fyrir ofan á hvítu píanói á tónleikum sem hún helt í Skotlandi eins og sjá má í myndasafninu. Þá velta slúðurmiðlar vestan hafs sér alvarlega upp úr því hvort söngkonan hafi fjárfest í brjóstahaldara sem fyllir barm hennar eins og sést í myndasafni eða fengið sér ný brjóst með aðstoð lýtalækna. 26.7.2011 15:38 Givenchy - haust 2011 Haustlínu Givenchy 2011 má sjá í myndasafninu. 26.7.2011 15:11
Sjá næstu 50 fréttir
Skammarkrókur laus við lúxus Meðfylgjandi myndir sýna kofa sem er staðsettur í skógi í Bordeaux í Frakklandi. Hugmyndin var að byggja lítinn látlausan kofa sem skaðaði ekki umhverfi sitt á nokkurn hátt. Kofinn minnir helst á skammarkrók fyrir einhvern sem hefur gert eitthvað af sér því lúxusinn er enginn eins og sjá á myndunum. 27.7.2011 10:46
Fléttu-fílingur í Hollywood Í meðfylgjandi myndasafni má sjá frábærar hugmyndir þegar kemur að því að flétta hárið. Nicole Kidman, Rihanna, Jennifer Lopez og Paris Hilton vita hvað þarf til að tolla í tískunni. Í sumar er það fléttað hár og það á rauða dreglinum. Skoða myndir hér. 27.7.2011 10:26
Steindi á sjúklega fræga vini Steindi jr hélt útgáfupartý á skemmtistaðnum Austur síðasta föstudag í tilefni af því að diskurinn hans er loksins kominn út með tónlistinni úr þáttunum hans. Um var að ræða stórt Smirnoff partý í anda þáttanna. Fram komu meðal annars Bjartmar Guðlaugs, Gnúsi Jones, Þórunn Antonía, Berndsen og svo Steindi sjálfur með Bent og Ásgeiri. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var mikið stuð og flestir gestirnir sjúklega frægir. 27.7.2011 09:49
Kona ársins Söngkonan Rihanna hefur verið útnefnd kona ársins af ítalska Vogue og telja þeir hana verðuga fyrirmynd fyrir konur. 27.7.2011 08:30
Stefnir á fatahönnun Leikkonunni Emmu Watson er fleira til lista lagt en að láta til sína taka á hvíta tjaldinu. Watson undirbýr sig undir að hefja háskólanám við Oxford háskóla og ætlar sér að taka kúrsa í fatahönnun og saumaskap. 27.7.2011 08:00
Amy jörðuð Í myndasafni má sjá Mitch Winehouse kveðja dóttur sína, söngkonuna Amy Winehouse, í dag ásamt móður hennar, nánustu fjölskyldu og vinum. Góða nótt engillinn minn. Sofðu rótt. Mamma og pabbi elska þig að eilífu, sagði Mitch eftir að hann rifjaði upp skemmtilega tíma sem hann átti með dóttur sinni. Þá tók hann sérstaklega fram hvað Amy var sátt við tilveruna stuttu áður en hún lést á heimili sínu aðeins 27 ára gömul. Lokalagið sem var spilað í jarðarförinni var lagið So Far Away með Carole King en það var uppáhaldslagið hennar Amy. 26.7.2011 20:08
Geðveikur haldari eða glæný brjóst Söngkonan Beyonce Knowles, 29 ára, vakti mikla lukku þegar hún kom sér fyrir ofan á hvítu píanói á tónleikum sem hún helt í Skotlandi eins og sjá má í myndasafninu. Þá velta slúðurmiðlar vestan hafs sér alvarlega upp úr því hvort söngkonan hafi fjárfest í brjóstahaldara sem fyllir barm hennar eins og sést í myndasafni eða fengið sér ný brjóst með aðstoð lýtalækna. 26.7.2011 15:38
Hvað þykist þið vera að fela? Heitasta parið í Hollywood, leikkonan Blake Lively, 23 ára, og leikarinn Leonardo DiCaprio, 36 ára, reyndi allt hvað það gat síðasta sunnudag til að þekkjast ekki fyrir utan tónleikahöllina þar sem Stevie Wonder hélt tónleika. Eins og myndirnar sýna voru þau bæði með hatta á höfðinu og pössuðu sig á því að standa ekki nálægt hvort öðru. Þá má einnig sjá Blake við tökur á sjónvarpsþáttaröðinni Gossip Girl í meðfylgjandi myndasafni. 26.7.2011 14:13
Jolie og börnin Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, var mynduð fyrir utan skemmtigarð í London í gærdag með börnum sínum; Zahara, 6 ára, Shiloh, 5 ára og tvíburunum Knox og Vivienne, 3 ára. Á meðfylgjandi myndum má sjá að Angelina var klædd í Weitzman leðurstígvél með Dolce&Gabbana sólgleraugu á nefinu. Hún var með þessar líka fínu tekjur árið 2010. Sjá hér. 26.7.2011 11:25
Lopez jafnar sig á lúxussnekkju Nýfráskilin Jennifer Lopez slakaði á eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af henni á lúxussnekkjunni hennar, sem ber heitið Never Say Never, 24. júlí síðastliðinn á Miami þegar hún hélt upp á 42 ára afmælið sitt. Á myndunum má einnig sjá umboðsmann Jennifer og vin, Benny Medina. Hún skrifaði Twitter síðuna sína seint á afmælisdaginn sinn: Þakka ykkur öllum fyrir afmæliskveðjurnar. Ég skemmti mér vel umkringd fjölskyldu og vinum. 26.7.2011 10:33
Niðurbrotnir foreldrar Winehouse Mitch og Janis Winehouse voru mynduð fyrir utan heimili dóttur þeirra, söngkonunnar Amy Winehouse sem lést nýliðna helgi aðeins 27 ára gömul. Mitch, sem er fyrrum leigubílstjóri, reyndi allt hvað hann gat til að halda aftur tárunum, en allt kom fyrir ekki maðurinn brotnaði niður og brast í grát sem og móðir Amy þegar þau fóru í gegnum þúsundir samúðarkorta, blóma og gjafa frá aðdáendum söngkonunnar. Amy snæddi með móður sinni daginn áður en hún féll frá. Það var Andrew Morris, lífvörður söngkonunnar, sem fann hana látna á heimili hennar. Þá má einnig sjá bróðir Amy og fyrrverandi unnusta, Reg, sem hætti með henni fyrir ekki svo löngu síðan. 25.7.2011 20:00
Fullyrðir að Ásdís Rán er með listahæfileika Eygló Gunnþórsdóttir málari fullyrðir að dóttir hennar, Ásdís Rán, er með listahæfileika eins og hún sjálf í meðfylgjandi myndskeiði sem var tekið í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag þegar Eygló sýndi okkur verkin sín. Lokadagur sýningarinnar er á morgun, þriðjudag. Facebooksíða Eyglóar. 25.7.2011 17:58
Saga sem verður að heyrast „Mig dreymdi alltaf um að verða rithöfundur þegar ég var fjögurra ára. Það má því kannski segja að draumurinn sé að rætast,“ segir Lilja Katrín Gunnarsdóttir, leikkona og blaðamaður. Lilja er með bók í bígerð og nýtir hverja lausa stund í sumarfríinu til að skrifa. Bókin er sannsöguleg og fjallar um harða forræðisdeilu íslenskrar móður við bandarískan barnsföður sinn. 25.7.2011 16:00
Nilli gengur til liðs við Týndu kynslóðina „Okkur finnst mjög skemmtilegt að fá Nilla til liðs við okkur,“ segir Björn Bragi Arnarsson, annar af stjórnendum sjónvarpsþáttarins Týnda kynslóðin, sem hefur göngu sína á Stöð 2 í ágúst. 25.7.2011 15:00
Bransasagan skrifuð í partíi Steindans okkar Steindi Jr. og samstarfsmenn hans buðu í partí á Austri á föstudagskvöld til að fagna útgáfu plötunnar Án djóks samt djók. Margt var um manninn og á meðal þeirra sem tróðu upp var Bjartmar Guðlaugsson. Hann tilkynnti gestum áður en hann renndi í slagarana að hann væri pabbi Steinda. 25.7.2011 15:00
Best launaðar í bransanum Samkvæmt Forbes.com eru Angelina Jolie og Sarah Jessica Parker hæst launuðu leikkonurnar í Hollwood. Báðar þénuðu þær rúma þrjá milljarða í fyrra (3.463.500.000,00 Iskr). Angelina Jolie er án efa stærsta nafnið í bransanum í dag sem leikkona og leikstjóri á meðan Sarah Jessica Parker malar gull á Sex and the City ævintýrinu og sölu á ilmvötnum sem eru markaðssett í hennar nafni. Í þriðja sæti á umræddum lista er Reese Witherspoon, þar á eftir Julia Roberts og í fimmta sæti situr Kristen Stewart. 25.7.2011 13:35
Íslensk söngva- og dansmynd á leiðinni „Við erum bara búnir að fara á hnefanum í gegnum þessa mynd,“ segir Elvar Gunnarsson, kvikmyndagerðarmaður og höfundur kvikmyndarinnar Einn. Elvar útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Íslands árið 2005 og hóf að vinna hjá skólanum í kjölfarið. „Ég var deildarstjóri í Kvikmyndaskólanum en ég hætti til þess að gera þessa mynd,“ segir Elvar. 25.7.2011 13:00
Haustlína Gwen Stefani Meðfylgjandi má sjá haustlínu L.A.M.B. sem er fatalína söngkonunnar Gwen Stefani. 25.7.2011 12:39
Hera, Erpur og Haffi Haff saman í Gay Pride-laginu „Erpur er ljúfari en lamb. Það á nú yfirleitt við um svona pörupilta. Þeir eru alltaf mjög ljúfir í samstarfi," segir söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir um samstarfið við rapparann Erp Eyvindarson. 25.7.2011 12:00
Lykill að kynþokka Ísraelska fyrirsætan Bar Refaeli, 26 ára, nýtur lífsins eins og sjá má í myndasafni með David Fisher sem hefur séð til þess að henni leiðist ekki eftir að leikarinn Leonardo DiCaprio sagði henni upp. Í nýlegu viðtali við breska Vogue upplýsir Bar hvernig hún fer að því að halda sér í formi: Leyndarmálið er að lifa heilbrigðu lífi. Það er mikilvægt ef þú vilt líta vel út og vera kynþokkafull. Kynþokkinn kemur innan frá þannig að ef þú borðar rétt, hreyfir þig og passar þig að hafa gaman og slappa af þess á milli kemur hitt af sjálfu sér. 25.7.2011 11:13
ELLA opnar í miðborginni Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar ELLA, fyrsta kvenfataverslun Elínrósu Líndal, opnaði að Ingólfsstræti 5 í miðborginni. ,,Viðtökurnar voru framar öllum væntingum. Ég held að það hafi verið í kringum 300 manns sem komu við og fögnuðu þessum áfanga með okkur," sagði Elínrós eigandi. Herdís Anna Þorvaldsdóttir hannaði verslunina. Þetta er fyrsta verslunin sem Herdís hannar en Herdís hefur tekið að sér verkefni tengd heimilum og þyrluþjónustu svo eitthvað sé nefnt. 25.7.2011 10:15
500m² stofa Þriggja manna fjölskylda býr í þessu glæsilega 500m² húsi í Vín í Austurriki sem skoða má í myndasafninu. Um er að ræða fjögurra hæða heimili. Jarðhæð og þrjár hæðir, þar sem garðurinn er beint framhald af stofu og eldhúsi hússins. 25.7.2011 09:16
Elítan tók formlega á móti Ásdísi Rán "Þetta var Ásdís Rán welcome party sem var haldið til heiðurs mér," útskýrir Ásdís Rán fyrirsæta sem flutti nýverið aftur til Búlgaríu spurð út í meðfylgjandi myndaseríu sem var tekin 20. júlí síðastliðinn þegar búlgarska elítan tók á móti henni, Garðari Gunnlaugssyni eiginmanni hennar og syni, Róbert Andra. Það var Evgeni Minchev, einn þekktasti blaðamógullinn í Búlgaríu sem hélt það fyrir mig. Þetta var alveg yndislegt og gott að fá svona hlýjar móttökur. Gestirnir voru allskonar þekkt fólk úr viðskipta- og entertainment heiminum, fulltrúar tímarita, verslana og svo framvegis, segir Ásdís og bætir við: Bio effect íslensku droparnir voru með kynningu í partýinu þar sem þeir eru að setja vöruna á markað hér í Búlgaríu og kynntu þá í samstarfi við mig. Ég er að selja part af fyrirtækinu mínu hérna í Búlgaríu núna og er að fara á fullt í IceQueen framleiðslu fyrir erlendan markað. Það er að taka mestan minn tíma. Einnig er ég að byrja að hanna fyrir Hagkaup undirfatalínu, casual línu og fleira," svarar Ásdís spurð hvað hún er að brasa um þessar mundir. Ég er á forsíðunni á ítalska World & pleasure í ágúst og annari búlgarskri forsíðu sem kemur út í september en einmitt það blað kemur til með að halda svaka IceQueen þema event í tilefni af útkomu blaðsins þannig að skemmtanaglaðir Íslendingar ættu að gera sig ready fyrir trip to Búlgaríu," segir hún. Ég er líka að vinna að gerð raunveruleika sjónvarpsþáttar sem verður sýndur á Íslandi og Búlgaríu ef allt gengur eftir óskum. Mig vantar bara kostanda núna," segir Ásdís. 25.7.2011 08:40
Angelina Jolie öfundsjúk Brad Pitt hefur ítrekað sést í fylgd með konu úr tökuliði kvikmyndarinnar World War Z og hefur það valdið vangaveltum um ástand sambands hans og Angelinu Jolie. 25.7.2011 08:00
Ósátt við unnustann Söngkonan Jessica Simpson þolir ekki hversu snemma unnusti hennar, fyrrverandi fótboltakappinn Eric Johnson, vaknar. Johnson, sem er atvinnulaus, vaknar klukkan hálf sex á morgnana til þess að mæta í ræktina. 24.7.2011 14:00
Sonur Nicolas Cage handtekinn aftur Weston Cage, sonur leikarans Nicolas Cage, var handtekinn í vikunni vegna heimilisofbeldis. Þetta er í annað skiptið á innan við mánuði sem Cage er handtekinn fyrir þessar sakir. 24.7.2011 11:30
Sagt að Amy hafi tekið of stóran skammt af eiturlyfjum Dauði Amy Winhouse er enn óupplýstur. Hún fannst á heimili sínu í norður-London, látin, 27 ára að aldri. Í erlendum fjölmiðlum er haft eftir ónafngreindum heimildarmönnum að hún hafi látist af of stórum skammti fíkniefnum. Amy Winhouse átti í sífelldri baráttu við ávanabindandi efni og fór sú barátta fram fyrir allra augum. 24.7.2011 09:34
Reynslubolti ráðinn dagskrárstjóri „Þetta var einfaldlega áskorun sem ég gat ekki skorast undan,“ segir Hilmar Björnsson, nýráðinn dagskrárstjóri sjónvarpstöðvarinnar Skjár einn. 24.7.2011 09:00
Kærastan beið úti Michael Sheen mun eiga í vandræðum með barnsmóður sína, leikkonuna Kate Beckinsale, og núverandi kærustu sína, leikkonuna Rachel McAdams. Samkvæmt In Touch Weekly semur Beckinsale ekki vel við McAdams. 23.7.2011 19:30
Innileg með Badgley Leikkonan Zoe Kravitz hefur tvisvar sést í slagtogi við Gossip Girl-stjörnuna Penn Badgley. Kravitz er í sambandi með írska leikaranum Michael Fassbender. 23.7.2011 17:00
Eyjamenn með allar klær úti í lundaleit fyrir Þjóðhátíð „Ég og fjölskylda mín eldum alltaf lunda á Þjóðhátíð og höfum oft boðið fólki upp á hann. Í ár þarf maður að halda aðeins að sér höndum og bjóða fyrst sínum nánustu,“ segir Magnús Bragason, lundaverkandi í Vestmannaeyjum. 23.7.2011 15:00
Endurkoma í fjölmiðlaheiminn Fyrrum ritstjóri franska Vogue, Carine Roitfeld, er á leiðinni aftur í blöðin en hún hefur verið í pásu frá fjölmiðlaheiminum síðan henni var sagt upp hjá franska Vogue. Roitfeld hefur tekið að sér að stílisera myndaþátt með stjörnuljósmyndaranum Mario Testino í V Magazine. 23.7.2011 13:00
Óskarsverðlaunahafi á Café Rosenberg Óskarsverðlaunahafinn Glen Hansard heldur tónleika á Café Rosenberg, þriðjudagskvöldið 26. júlí, en hann kemur einnig fram á Bræðslunni í kvöld. Glen er forsprakki hjómsveitarinnar The Swell Season sem hélt tónleika hér á landi í fyrra. Hljómsveitin hlaut Óskarsverðlaunin árið 2008 fyrir lagið „Falling Slowly“ úr kvikmyndinni „Once“, en lagið hlaut verðlaun fyrir besta frumsamda lag í kvikmynd. Glen Hansard hefur undanfarið verið að hita upp fyrir forsprakka Pearl Jam, Eddie Vedder, en sá síðarnefndi gaf nýlega út sólóplötuna „Ukulele Songs“. Miðasala fyrir tónleikana á Café Rosenberg hófst á fimmtudag, en aðeins 120 aðgöngumiðar voru í boði í forsölu og seldist upp á skömmum tíma. 23.7.2011 12:00
Féll þrjá metra í miðri sýningu „Ég var skíthræddur um að ég hefði slasað mig alveg hrikalega,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari. 23.7.2011 10:00
Laðar að sér ferfætlinga í Róm „Ég veit ekki hvað þetta er með mig og dýrin mín, þau eru öll svo einstök,“ segir Gunnlaug Þorvaldsdóttir tónlistarmaður sem búsett hefur verið í Róm síðastliðin ár. 23.7.2011 08:00
"Þarna verða allir snargeðveikir án þess að vera á eyrunum" "Þetta er hátíð fyrir þá sem telja að áfengi og hugleiðsla fari ekki saman, né fíkniefni og fjallganga og að það hæfi ekki að drekka í útilegum með börnum frekar en í fermingarveislum eða barnaafmælum," segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, um edrú útivistarhátíðina Sjálfstætt fólk sem haldinn verður að Hlöðum í Hvalfirði um verslunarmannahelgina, 29. júlí til 1. ágúst. 22.7.2011 17:15
Vildi skilja um jólin Jennifer Lopez var orðin óhamingjusöm í hjónabandi sínu töluvert áður en hún sótti um skilnað. Lopez ætlaði að ljúka sambandinu um síðustu jól en Marc Anthony taldi hana á að leita til hjónabandsráðgjafa til að halda sambandinu gangandi. 22.7.2011 17:15
Upplifir sig sem Sherlock Holmes Söngkonan Joss Stone slapp með skrekkinn fyrir rúmum mánuði síðan þegar lögreglan handtók tvo menn í grennd við heimili hennar í Devon grunaða um að hafa ætlað að ræna henni. Stone tjáði sig nýverið um atburðinn og sagðist hafa upplifað sig sem Sherlock Holmes síðan þá. 22.7.2011 16:00
Sífellt fleiri bændur skoða framleiðslu á rjómaís „Hingað koma oft hundrað manns á dag og um helgar fer fjöldinn alveg upp í 200-300 á dag,“ segir Helga Guðmundsdóttir, bóndi á Erpsstöðum en þar er til sölu ferskur ís sem búinn er til á bænum. 22.7.2011 15:00
Kennir Qi Gong á útihátíð „Þetta er ekki leikfimi heldur lífsmáti og snýst um að læra að gera það sem við getum ekki verið án, að anda,“ segir Gunnar Eyjólfsson um æfingar og hugmyndafræði Qi Gong. Gunnar verður á útihátíðinni Sjálfstætt fólk að Hvölum í Hvalfirði um verslunarmannahelgina til að kenna og kynna æfingarnar. 22.7.2011 14:00
Eygló Gunnþórsdóttir opnar sína fyrstu málverkasýningu Eygló Gunnþórsdóttir opnaði sína fyrstu málverkasýningu í ráðhúsi Reykjavíkur þann 15. júlí síðastliðinn og var vel mætt. Hún eyddi áður mestum hluta tíma síns í að vinna fyrir dóttur sína, Ásdísi Rán Gunnarsdóttur, en hefur nú látið listamannsdrauminn rætast. 22.7.2011 10:31
Gæti verið á leið í Playboy (myndband) "Ég er að taka þátt í keppni sem snýst um það að koma fram í Playboy og hosta partý á Playboy mansion hjá Hefner," segir Bryndís Gyða fyrirsæta í meðfylgjandi myndskeiði spurð út í umrædda keppni. 22.7.2011 10:30
Kærir gallabuxnaframleiðanda Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hefur kært gallabuxnaframleiðandann Old Navy vegna auglýsingar þar sem tvífari hennar sést spóka sig um í gallabuxum frá fyrirtækinu. 22.7.2011 10:00
Gerir allt í hófi Sofia Vergara, sem hefur slegið í gegn í gamanþáttunum Modern Family, hefur vermt ýmsa lista yfir fegurstu konur heims. Leikkonan kvartar þó ekki undan því að vera nefnd kyntákn líkt og Jessica Biel og Megan Fox heldur segist njóta þess til hins ýtrasta. 22.7.2011 07:00