Fleiri fréttir

Spila í norskum morgunþætti

Hljómsveitin Hjaltalín kemur fram í norska morgunþættinum God morgen Norge á sjónvarpsstöðinni TV2 8. september. Þetta verður í annað sinn sem sveitin treður þar upp en síðast var hún gestur í þættinum fyrir tveimur árum.

Angelina biður um hjálp

Góðgerðarstjarnan Angelina Jolie sendi frá sér nýtt myndband þar sem hún biður heimsbyggðina að bregðast skjótt við vegna hamfaranna í Pakistan.

Vegas-stíll hjá Palla og Sinfó

Miðar seldust upp á tvenna tónleika Páls Óskars og Sinfóníuhljómsveitar Íslands á nokkrum klukkustundum. Tvennir aukatónleikar verða haldnir til að anna eftirspurn.

Íslendingar keppa í fullnægingu

Fimmtán myndir keppa í flokknum Fyrir opnu hafi á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst 23. september. Ein myndanna er spænsk og nefnist Fake Orgasm og fjallar öðrum þræði um gervifullnægingar kvenna en í raun fjallar hún um kynjafræði og þróun sjálfsmyndar okkar. Í tengslum við sýningu myndarinnar verður efnt til keppni í gervifullnægingum á Næsta bar þar sem strákar og stúlkur munu etja kappi í þessari sérstöku íþróttagrein.

Ásdísi þykir fúlt að flytja frá Búlgaríu

Einstök lofgrein um Ásdísi Rán birtist í gær á vefsíðunni sofiaecho.com en það er ensk vefsíða með fréttum og fróðleik frá Búlgaríu. En Ásdís kveður senn landið og heldur til Bæjaralands í Þýskalandi þar sem eiginmaður hennar, knattspyrnukappinn Garðar Gunnlaugsson, mun leika með þýska 3. deildar liðinu SpVgg Unterhaching næstu tvö árin.

Sigríður Klingenberg spáði fyrir Karli Gústaf Svíakóngi

Spákonan Sigríður Klingenberg var fengin til að spá fyrir Karli Gústavi Svíakonungi á meðan hann dvaldi á Hótel Rangá á dögunum. Þau hittust í litlum glersal á hótelinu og ræddu saman í vel á fjórðu klukkustund. Fullt tungl var þennan dag, 24. ágúst, og gekk fundurinn svo vel að þau hittust aftur daginn eftir á hótelinu og áttu annað spjall. Sigríður spáði einnig fyrir föruneyti Karls, sem samanstóð af fjölda áhrifamanna í Svíþjóð, þar á meðal yfirmanni hjá sænska hernum.

Góð stemning í Austurbæ

Það var ný lykt í loftinu í Austurbæ þegar Fréttablaðið bar að garði til að kíkja á fyrsta rennslið á söngleiknum Buddy Holly. Það er greinilegt að líf er komið í gamla Austurbæjarbíó en áætluð frumsýning á söngleiknum er í byrjun október.

Áttunda og síðasta barnið

Söngvarinn Rod Stewart segir að áttunda barnið hans sem er væntanlegt í heiminn verði hans síðasta. Fyrr í mánuðinum tilkynntu hann og hin 39 ára eiginkona hans, Penny Lancaster, að þau ættu von á sínu öðru barni. Stewart á sex önnur börn úr fjórum samböndum og óttast að hann geti ekki framfleytt fleiri börnum en átta.

Augljóslega kominn tími fyrir nýja bókmenntasögu

Öldin öfgafulla - bókmenntasaga tuttugustu aldarinnar heitir ný bók eftir Dagnýju Kristjánsdóttur, prófessor. Tuttugasta öldin var tímabil mikilla öfga, umbrota og átaka sem bókmenntir tímabilsins endurspegla og túlka. Öldin öfgafulla er ætluð framhaldsskólanemum en nýtist líka þeim sem hafa áhuga á bókmenntum. Það var bókaútgáfan Bjartur sem leitaði til þeirra hjóna, Dagnýjar og Kristján Jóhanns Jónssonar, um að rita bókmenntasögu 19. og 20. aldar.

Jón Jónsson heldur tónleika

Hljómsveitin Jón Jónsson kemur fram í fyrsta sinn í langan tíma á skemmtistaðnum Risinu í Tryggvagötu fimmtudagskvöldið 9. september. Hljómsveitin er hugarfóstur Hafnfirðingsins Jóns Ragnars Jónssonar.

Vekur athygli þýskra bloggara

Fjallað var um verslunina Glad I Never á þýsku netsjónvarpsstöðinni Berlinfashion.tv fyrir skemmstu, en verslunin er í eigu Íslendingsins Baldvins Dungal og var opnuð í desember síðastliðinn.

Í hot-jóga kennaranám til Taílands

Gyða Pétursdóttir flytur til Taílands í byrjun október þar sem hún hyggst læra til jógakennara. Gyða mun dvelja ásamt öðrum nemendum á paradísareyjunni Koh Samui og stunda þar hot-jóga, hugleiðslu og læra kennslutækni.

Mynduðu brennandi bústað

Sumarbústaður á Þingvöllum var brenndur margoft við tökur á myndinni Okkar eigin Osló. Um eitt hundrað manns voru á svæðinu, þar á meðal lögregla, slökkvilið og eftirlitsaðilar, til að sjá um að allt gengi vel fyrir sig.

Þröng föt éta upp sálina

Söngkonan Beth Ditto líður illa í þröngum fötum. Hún segir óþægilegan fatnað éta upp sálina hennar. Beth sem skaust upp á stjörnuhimininn með hljómsveitinni The Gossip hefur líka slegið í gegn þegar kemur að klæðaburði en hún er andlit Evans sem er breskur fataframleiðandi fyrir konur með mjúkar línur. Ég er nýbyrjuð að hanna mína eigin fatalínu. Það eru nokkrar flíkur sem ég ætla ekki einu sinni að prófa. Þær hreinlega éta upp sálina á mér bara við að horfa á þessar þröngu litlu flíkur. Það er eitthvað ekki rétt við sniðið á sumum flíkum," sagði Beth. Beth er meðvituð um að það er ekkert mál fyrir konur sem eru mjúkar í vextinum að klæða sig á kynþokkafullan hátt. Það eru óteljandi hlutir sem ekki hafa verið reyndir á fatnað fyrir okkur eins og að setja mittisbeltið á annan stað en vanalega," sagði hún. Beth er fullkomlega sátt við líkama sinn og móðgast ekki þó fólk segi hana vera of þunga. Að vera feitur er ekki neikvætt."

Gefur ekki upp fegrunarleyndarmálin

Leikkonan Jennifer Aniston, 41 árs, gefur engum upp fegrunarleyndarmálin sín, ekki einu sinni bestu vinkonum sínum. Ég segi vinkonum mínum aldrei frá leyndarmálunum mínum þegar kemur að útlitinu. Þær spyrja mig ekki einu sinni," sagði Jennifer. Spurð út í hár hennar sem hefur vakið aðdáun kvenna um heim allan sagði Jennifer: Ég hef látið lita hárið á mér undanfarin ár og nota alltaf L’Oreal Paris efni í hárið á mér til að koma í veg fyrri slitna enda. Annars nota ég alltaf hárnæringu þegar ég þvæ það."

Siggi stormur aftur orðinn fréttamaður

„Nú er ég orðinn fréttamaður aftur," segir Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur. Þeir sem fylgdust með fréttaútsendingum frá ríkisráðsfundinum á Bessastöðum í gær spurðu sig margir hvað Siggi Stormur væri að gera á Álftanesinu. Blaðamaður Vísis hafði samband við Sigga til að fá svarið við þessari áleitnu spurningu.

Vörubílstjóri sigraði fatahönnunarkeppni

Jóhanna Eva Gunnarsdóttir ,sem starfar sem vörubílstjóri, sigraði Martini fatahönnunarkeppni sem haldin var í gærkvöldi á vegum Iceland Fashion Week á veitingastaðnum Spot sem hafði verið breytt í sýningarsal. „Ég sá þessa Martini-fatahönnunarkeppni auglýsta fyrir nokkru og ákvað að sækja um. Svo var haft samband við mig í byrjun vikunnar og mér boðið að taka þátt," sagði Jóhanna í viðtali við Fréttablaðið. Keppendur ásamt Jóhönnu Evu voru Kristín Rut Ómarsdóttir, Steinunn Ketilsdóttir, Sigríður Björnsdóttir og Krstín Sunna Sveinsdóttir. Eins og meðfylgjandi myndir sem Thorgeir.com tók af sýningarstúlkum, keppendum og gestum í gærkvöldi var stemningin gríðarlega góð.

Trúir á endalausa ástarsorg

Breski leikarinn Dominic Cooper, 32 ára, sem sló í gegn í kvikmyndinni Mamma Mía!, er neikvæður þegar talið berst að ástinni. Hann heldur því fram að í framtíðinni muni hann ekki nokkurn tíman finna hina einu sönnu ást og að hjarta hans verði brotið aftur og aftur. Dominic er á lausu því hann er óheppinn að hans mati. Alltaf! Ég er maður með brotið hjarta og ég held að það verði ávallt þannig hjá mér," svaraði Dominic spurður hvort hjarta hans væri í molum en mótleikkona hans í kvikmyndinni Mamma Mia!, Amanda Seyfried, sagði honum upp fyrir ekki svo löngu. Leikarinn er enn að jafna sig eftir sambandsslitin.

Vill ekki öryggi

Leikkonan Blake Lively sem slegið hefur í gegn í sjónvarpsþáttaröðinni Gossip Girl sem sýnd er á Stöð 2 vill ekki fyrirsjáanlegan frama lengur.

Heilluð af Indlandi

Fatahönnuðurinn Una Hlín Kristjánsdóttir stofnaði merkið Royal Extreme fyrr á árinu og hafa viðtökurnar verið gríðarlega góðar. Una Hlín sótti meðal annars tískuvikuna í Kaupmannahöfn í ágúst og fékk nýverið boð á tískuvikuna í New York sem hefst þann 9. september næstkomandi.

Húðflúr stór mistök

Sjónvarpsstjarnan sem varð hönnuður, Nicole Richie, lét húðflúra orðið jómfrú eða „virgin" á úlnliðinn á sér þegar hún var sextán ára.

Fjármálaöskuhaugar

16 elskendur spruttu fram á sviðið í Kassanum þó þeir væru bara tíu. Það var kannski fyrsta svindlið. Þjóðleikhúsið hóf leikárið með því að bjóða upp á blandaðan hóp ungra áhugasamra leikara sem sjálfir settu saman hraðnámskeið í að græða á vitleysingum og beita þá brögðum sem þegar eru þekkt meðal svikahrappa.

Milljónir hlusta á söng stúlknanna í The Charlies

Stúlkurnar í hljómsveitinni The Charlies, þær Alma Guðmundsdóttir, Steinunn Camilla Sigurðardóttir og Klara Elíasdóttir, halda áfram að vekja verðskuldaða athygli í Borg Englanna. Nýverið bauðst þeim að syngja kynningarlag hins vinsæla sjónvarpsþáttar Dancing With The Stars, en þátturinn er með svipað áhorf og American Idol í Bandaríkjunum.

Mátti ekki fljúga til Íslands

Everything Everything er eitt heitasta bandið sem spilar á Iceland Airwaves-hátíðinni í október. Söngvarinn Jonathan Higgs fékk aldrei að fara til Íslands þegar hann var lítill.

Bingó og Gay Pride

Suðurnesjasveitin Breiðbandið hefur gefið út sína þriðju plötu og nefnist hún Breiðbandið – Bætir á sig. Á plötunni er að finna lagið Popppunktur sem hljómsveitin notaði til að „væla“ sig inn í samnefndan sjónvarpsþátt. Önnur lög á plötunni fjalla um stjórnartíð Gordons Brown, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, bingó í Vinabæ og gleðigönguna Gay Pride. Eiginkonur og bjór koma einnig við sögu sem fyrr. Breiðbandið spilar næst á Ljósanótt í Reykjanesbæ í kvöld á stóra sviðinu.

Spilist hátt fyrir hámarks áhrif

Á heildina litið frábær plata. Skilaboðin til íslenskra tónlistaráhugamanna eru þess vegna einföld: Kaupa Okkar og hækka í botn!

Ókind rýfur fjögurra ára þögn

Rokksveitin Ókind rís upp frá dauðum og spilar í eina kvöldstund á Faktorý á laugardagskvöld. Ókind spratt fullsköpuð fram árið 2002 og náði öðru sæti í Músíktilraunum. Á næstu fjórum árum gaf hún út plöturnar Heimsenda 18 og Hvar í Hvergilandi, sem báðar hlutu náð fyrir augum og eyrum gagnrýnenda. Haustið 2006 tilkynnti Ókind að nú væri þetta orðið gott í bili. Svo þagnaði hún í fjögur ár.

Norrænt velferðarLókal

Lókal, alþjóðlegri leiklistarhátíð í Reykjavík, var hleypt af stokkunum í gær og stendur hún fram á sunnudag. Norræn leikverk eru í öndvegi á hátíðinni, en norræn samtímaleikritun hefur átt erfitt uppdráttar í íslenskum leikhúsum undanfarin ár.

Aulalöggurnar Will Ferrell og Mark Wahlberg

Allen Gamle og Terry Hoitz eru „hinar" löggurnar. Þeir fá auðveldustu málin, keyra ekki um á hraðskreiðum bílum né fylla líkama þjófa af blýi á götum úti.

Draugar Romans Polanski

Nafn Romans Polanski hefur oftar verið nefnt í tengslum við 33 ára gamalt dómsmál og Manson-fjölskylduna en kvikmyndagerð hans. Hann þykir þó sýna gamalkunna takta í sinni nýjustu mynd, Ghost Writer.

Fjölþreifinn en góður við konur

Kvennaljóminn velski, Tom Jones, segist alltaf hafa komið vel fram við konur, hann hafi til að mynda aldrei hugsað um kvenkynsaðdáendur sína sem „grúppíur“.

Verkjaði alls staðar

Sex and the City stjarnan, leikkonan Kim Cattral, segir að hana hafi verkjað í líkamann eftir að hafa mátað fötin sem hún klæddist í myndinni SATC II því mátunin tók heila eilífð að hennar mati.

House-leikkona hrifin af kjól frá tískumerkinu Emami

Leikkonan Jennifer Morrison, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt sem læknirinn Allison Cameron í sjónvarpsþáttunum House, var brúðarmær í brúðkaupi Anítu Briem. Brúðarmeyjar Anítu klæddust sérsaumuðum silkikjólum frá tískumerkinu Emami og að sögn Brynjars Ingólfssonar, framkvæmdastjóra Emami, var Morrison afskaplega hrifin af hönnun fyrirtækisins.

Jolie og Depp náðu vel saman

Þýski leikstjórinn Florian Henckel von Donnersmarck var hissa að sjá og uppilfa hvað Johnny Depp og Angelina Jolie náðu vel saman á settinu. Florian, sem leikstýrir stjörnunum tveimur í væntanlegri kvikmynd sem ber heitið The Tourist segir að strax og Jolie og Depp hittust byrjuðu þau að hlæja og grínast eins og krakkar. “Johnny og Angie smullu strax saman. Ég sá það strax frá fyrsta fundi okkar," sagði leikstjórinn. Leikaraparið tengdist á einstakan hátt og sló á létta strengi. Það var virkilega gaman að vinna með þeim. Þau eru bæði með fjörugt ímyndunarafl og hlógu stöðugt og léku sér. Það kom mér líka á óvart að þau höfðu aldrei hist fyrr en núna. Ég er stoltur að hafa kynnt þau fyrir hvort öðru," sagði hann.

Rihanna í vax

Madame Tussaud-safnið í Washington afhjúpaði á þriðjudaginn vaxmynd af söngkonunni Rihönnu.

Ánægð með afturendann

Raunveruleikasjónvarpsstjarnan Kendra Wilkinson er óhrædd við að segja það sem hún hugsar en nú síðast lét hún hafa eftir sér á opinberum vettvangi að afturendinn á henni sé það stærsta og fallegasta á líkama hennar. Kendra sem varð fræg í sjónvarpsþáttunum um Hugh Hefner og stelpurnar hans í sjónvarpsþáttunum The Girls Next Door hefur lagt mikið á sig undanfarið til að komast í líkamlega gott form eftir að hún eignaðist son í desember á síðasta ári með eiginmanni sínum, fótboltahetjunni Hank Baskett. Rassinn á mér er það stærsta og fallegasta á líkama mínum akkúrat núna. Mér líður mjög vel með hann. Ég þarf meira að segja að berjast til fá Hank til að láta mig í friði," sagði Kendra.

Sakaður um framhjáhald

Leikarinn Ashton Kutcher er brjálaður þessa dagana því nú gengur sú kjaftasaga að hann haldi framhjá eiginkonu sinni, leikkonunni Demi Moore. Snemma í morgun upplýsti tímaritið Star að vitni sáu Ashton kyssa ljóshærða konu innilega og sú kona hefur verið gift honum síðustu fimm árin. Ég fékk sjokk við að sjá hann í hörkukerleríi við fallega unga konu sem var greinilega ekki Demi," er haft eftir vitni. Star heldur því fram að hjónaband Demi og Ashton standi á brauðfótum. Alveg frá byrjun var Demi sagt að sambandið myndi aldrei ganga upp og að hann myndi pottþétt svíkja hana. Hún verður eyðilögð og gjörsamlega niðurbrotin þegar hún fréttir þetta," var jafnframt haft eftir heimildarmanni.

Kjólarnir á Emmy

Emmy-verðlaunin voru afhent í 62. sinn um helgina og skörtuðu stjörnurnar sínu fegursta er þær gengu eftir rauða dreglinum.

Þrjóska heldur Baggalúti á lífi

„Sumarfríið var mjög gott, bæði fyrir okkur og sérstaklega fyrir lesendur. Núna erum við búnir að hlaða öll hugsanleg batterí," segir Bragi Valdimar Skúlason, Baggalútur.

Clooney í pólitíkina

Bandaríska stórstjarnan George Clooney er orðaður við ótal verkefni þessa dagana í Hollywood. Samkvæmt vef Empire-kvikmyndatímaritsins þykir líklegast að næsta kvikmynd hans verði Farragut North. Clooney hyggst ekki leika í myndinni heldur leikstýra en Farragut North yrði byggð á samnefndu leikriti Beu Willimons sem sett var upp á Broadway 2007 við góðar undirtektir gagnrýnenda.

Douglas vongóður um bata

Leikarinn Michael Douglas greindist með krabbamein í hálsi fyrir skemmstu og hefur nú lokið fyrstu viku sinni í meðferð. Douglas var gestur í spjallþætti Davids Letterman og þar ræddi hann opinskátt um veikindi sín.

Bieber kætir aðdáendur

Ungstirnið Justin Bieber kom aðdáendum sínum í New York nokkuð á óvart á tónleikum sínum síðastliðið þriðjudagskvöld. Í stað þess að standa einn á sviðinu og syngja sitt sykursæta popp fékk hann listamenn á borð við Usher, Boys II Men og Miley Cyrus uppá svið til sín.

Stolt af söguþræðinum

Bandaríska leikkonan Jessica Alba kveðst vera stolt af söguþræði kvikmyndarinnar Machete en myndin verður frumsýnd um helgina í Bandaríkjunum. Alba segist venjulega vera að skemmta fólki með leik sínum en er ánægð með að getað leikið í kvikmynd sem hafi sterkan pólitískan undirtón.

Sjá næstu 50 fréttir