Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Susan Boyle er þunglynd Susanne Boyle hefur upplýst að hún þjáist af þunglyndi. Hún eigi það til að fá reiðiköst en þetta sé afleiðing af því einelti sem hún mátti þola í æsku. Boyle hefur skotist upp á stjörnuhimininn eftir að hún sló í gegn í Britain Got Talent-sjónvarpsþættinum og nýleg plata hennar hefur selst í bílförmum úti um allan heim. „Ég get farið upp og niður, skapið er alveg eins og jójó,“ segir Boyle í samtali við The Sun. 12.12.2009 06:30
X-mas í ellefta sinn Hinir árlegu X-mas-tónleikar X-ins 977 verða haldnir í ellefta sinn á Sódómu föstudagskvöldið 18. desember. Á meðal þeirra sem koma fram eru Ourlives, Dikta, Agent Fresco og Mammút. Allir listamenn gefa vinnu sína og allur aðgangseyrir rennur til Stígamóta, grasrótarhreyfingar kvenna gegn kynferðislegu ofbeldi. 12.12.2009 06:00
Hendrikka gerir kvikmynd um Baróninn Skartpgripahönnuðurinn Hendrikka Waage og Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndaframleiðandi hafa tryggt sér kvikmyndaréttinn að bókinni Baróninn eftir Þórarin Eldjárn. 12.12.2009 05:30
Rokkað á þaki Turnsins „Þetta var alveg magnað,“ segir Kristófer Eðvarðsson úr rokksveitinni Nögl. Hluti nýs myndbands sveitarinnar við útgáfu hennar af jólalaginu Snjókorn falla var tekinn uppi á þaki Turnsins í Kópavogi. „Það skemmtilega við þetta er að það var akkúrat snjór þennan dag en það hafði ekki snjóað lengi. Það var ískalt þarna uppi og hrikalegt útsýni,“ segir Kristófer. 12.12.2009 05:15
Frægir auglýsa Sign skartgripi Algengt er að skartgripahönnuðir úti í heimi notfæri sér áhrifamátt fræga fólksins til þess að auglýsa vörur sínar. Gullsmiðurinn Sigurður Ingi hefur fetað í þau fótspor. 12.12.2009 05:00
Óvissa um safaríferð Hildar „Vinkona mín fann þessa ferð fyrir mig á netinu,“ segir Hildur Helga Sigurðardóttir blaðamaður sem bókaði tveggja vikna safaríferð til Kenía um jólin ásamt syni sínum, Óðni Páli Ríkharðssyni, 15 ára. Áætluð brottför er í dag, en þegar blaðamaður náði tali af Hildi Helgu í gær ríkti óvissa um ferðina. 12.12.2009 05:00
Stjörnur safna fyrir HIV-samtökin Síðastliðinn laugardag fór fram söfnun Alnæmissjóðs MAC í Smáralind fyrir HIV-Ísland samtökin. Alnæmissjóður MAC hefur stutt við samtökin um árabil og var þeim afhent ávísun upp á 2,2 milljónir króna á laugardag. Fjárins var aflað með sölu á Viva Glam varalitum og glossum sem seldir eru allt árið um kring, en allur hagnaður af sölunni rennur til sjóðsins. Ákveðið hefur verið að framlag MAC á Íslandi í ár renni til fræðsluverkefnis HIV-Ísland þar sem farið verður í alla grunnskóla landsins með fræðslu. Góð stemning ríkti á söfnunardeginum í Smáralind eins og sjá má á meðfylgjandi myndum og fjöldi fólks lagði málefninu lið.- ag 12.12.2009 04:45
David Hasselhoff í vanda Fyrrverandi eiginkona Davids Hasselhoff, Pamela Bach, hefur beðið aðdáendur og vini leikarans um að leggjast á eitt og fá Strandvarðargoðsögnina til að setja tappann í flöskuna. Hasselhoff og Bakkus hafa lengi eldað grátt silfur saman og hann virðist eiga erfitt með að láta vínið í friði, ef marka má orð fyrrverandi eiginkonu hans í bandarískum fjölmiðlum. 12.12.2009 04:30
Rihanna vill Cheryl Cole Söngkonan Rihanna lýsti því yfir í breskum fjölmiðlum að hún vildi leggja sitt af mörkum til að koma Cheryl Cole á framfæri í Bandaríkjunum. Cheryl, sem er gift Chelsea-leikmanninum Ashley Cole, var að gefa út sína fyrstu sólóplötu en hún er ein aðalsprautan í stúlknasveitinni Girls Aloud. Cheryl hefur jafnframt sinnt dómarastörfum með miklum glæsibrag í breska X-Factor ásamt Simon Cowell og það var einmitt í þeim þætti sem Rihanna fékk þessa hugmynd. 12.12.2009 04:15
Joely syrgir systur sína Leikkonan Joely Richardson hefur í fyrsta sinn tjáð sig um dauða systur sinnar, leikkonunnar Natöshu Richardson sem lést fyrr á árinu eftir að hafa dottið á skíðum og hlotið höfuðhögg. 12.12.2009 04:15
Það kraumar í tónlistinni Umsóknarferli Kraums fyrir verkefni sem eiga sér stað árið 2010 hófst í gær, á degi íslenskrar tónlistar. Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað á næsta ári. Tónlistarmenn og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar eru hvattir til að sækja um fyrir sín verkefni. 12.12.2009 04:00
Hljómsveitir frá Garðabæ Hljómsveitir og tónlistarmenn sem eiga það sameiginlegt að vera úr Garðabænum spila á tónleikum í Vídalínskirkju á þriðjudaginn. Fram koma Dikta, Ourlives, Pétur Ben og nýliðinn Daníel Jón. Bæði Dikta og Ourlives voru að senda frá sér plötur fyrir jólin. Dikta gaf út sína þriðju plötu, Get It Together, og Ourlives sína fyrstu sem nefnist We Lost the Race. Fyrsta plata Péturs Ben, Wine For My Weakness, hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2007 sem besta platan. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og miðaverð er 2.000 krónur. Forsala miða fer fram í Ilse Jacobsen á Garðatorgi. 12.12.2009 03:45
Ungfrú Ísland 2008 í jólagír „Svo er fjölskyldan hans pabba með mjög skemmtilega hefð þar sem við tökum eina helgi fyrir jól og förum í bústað og slöppum af, búum til jólaskraut, spilum og borðum góðan mat," segir Alexandra Helga Ívarsdóttir, ungfrú Ísland 2008, í viðtali við Jól.is „Það kemur manni vel í gírinn," bætir hún við. Sjá viðtalið í heild sinni hér. 11.12.2009 18:00
Í hverju ertu frú Obama? - myndir „Trúin á það að friður sé æskilegur dugar sjaldnast til þess að öðlast hann," sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti þegar hann tók við friðarverðlaunum Nóbels í Ósló. Það var hinsvegar jakki eiginkonu hans, Michelle Obama, sem stal senunni. Hann má skoða í myndasafninu. 11.12.2009 17:00
Frægir folar á skólabekk - myndir Á meðfylgjandi myndum má sjá sjónvarpsstjörnurnar Loga Bergmann Eiðsson og Gísla Einarsson ásamt fleiri folum við opnun Bjórskóla Ölgerðarinnar sem tók formlega til starfa í vikunni. Í Bjórskólanum sitja 20 nemendur hverju sinni, í eina kvöldstund og fræðast um bjór, uppruna hans, fjölbreytileika, framleiðsluaðferðir og hráefni. Yfirkennari í Bjórskólanum er Úlfar Linnet, sem sjá má á myndunum leiðbeina nemendum í allan sannleikann um bjórinn á lifandi máta. 11.12.2009 14:45
Fjarvera Páls Óskars heggur skarð í plötusölu „Það eru ekki sambærilegir titlar á markaðinum í ár, eins og í fyrra þegar Páll Óskar var til dæmis að selja gríðarlega vel,“ segir Ásmundur Jónsson, formaður Félags hljómplötuframleiðenda. 11.12.2009 06:30
Skemmtileg mynd um krónuna í bígerð „Við ætlum að forvitnast um þetta fyrirbæri, íslensku krónuna. Þetta er minnsti gjaldmiðill í heimi. Disney-dollarinn er stærri en íslenska krónan,“ segir leikstjórinn og hagfræðingurinn Garðar Stefánsson. 11.12.2009 06:30
Jólaeiturslanga Megasar Megas og Senuþjófarnir hafa staðið í ströngu í Hljóðrita í Hafnarfirði. Stefnan er sett á jólatónleika í Salnum í Kópavogi 16. desember. 11.12.2009 06:15
Þorvaldur er Stebbi Psycho Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikur Stebba Psycho, aðalhlutverkið í kvikmyndinni Svartur á leik, sem gerð er eftir bók Stefáns Mána. Þorvaldur er sem kunnugt er í námi við Julliard-skólann í New York og því veltur nokkuð mikið á að samræma stundaskrá hans og kvikmyndarinnar. 11.12.2009 06:15
Leppalúði með stjörnufans Gleðigjafarnir í Baggalúti sjá um jólafjörið á Rás 2 um þessar mundir í jóladagatalinu og hluti af þeirri dagskrá er að þeir dæla út vikulegum aðventulögum. Eðli málsins samkvæmt eru tvö lög komin út – „Hvað fæ ég fallegt frá þér“ og „Jólalalagið“ – og á sunnudaginn verður þriðja lagið afhjúpað. Baggalútur er ekki í nokkrum vafa um að þetta sé metnaðarfyllsta aðventulag sveitarinnar til þessa. Það heitir „Leppalúði“ og tvær íslenskar stjörnur leggja sveitinni lið, ofurtrommarinn Gulli Briem og Ragga Gísla. 11.12.2009 06:00
Mistök áratugarins Bítillinn fyrrverandi Paul McCartney segir að hjónaband sitt og Heather Mills hafi verið ein stærstu mistök ævi sinnar. Spurður hvort hjónabandið hafi verið mestu mistök áratugarins sagði hann: „Já. Ég held að það komist í efsta sæti.“ McCartney, sem á hina sex ára dóttur Beatrice með Mills, vildi þó ekki gagnrýna eiginkonu sína fyrrverandi í viðtali við tímaritið Q. „Ég vil ekki gera lítið úr neinum. Svona hlutir geta gerst. Ég vil horfa á jákvæðu hliðina sem er sú að ég eignaðist fallega dóttur.“ 11.12.2009 06:00
Nóg að gera hjá Ragga Bjarna „Ég er alltaf eins og brjálæðingur úti um allar trissur,“ segir söngvarinn ástsæli Raggi Bjarna. Hann hefur í nógu að snúast þessa dagana, eins og svo oft áður. Hann hefur verið að syngja í Officeraklúbbnum í Keflavík á jólahlaðborðum auk þess sem hann kemur fram á dvalarheimilum aldraðra og í afmælum. 11.12.2009 06:00
Sextán ára í Eurovision Karen Pálsdóttir, sextán ára stúlka úr Hafnarfirði, tekur þátt í undankeppni Eurovision í janúar. Hún lenti í öðru sæti í Músíktilraunum á síðasta ári. 11.12.2009 06:00
Þrjár íslenskar plötur á áratugalista Rolling Stone Íslenska tónlistarútrásin er svo sannarlega ekki gjaldþrota ef marka má áratugalista bandaríska stórblaðsins Rolling Stone. Fánaberar Íslands koma þó ekki á óvart. 11.12.2009 05:30
Lostafullt ferðalag Tigers Woods Tiger Woods fór á örfáum dögum frá því að vera pabbastrákur yfir í mesta dólg heims. Hann var fyrirmynd ungra drengja um allan heim en nú hugsa foreldrar sig væntanlega tvisvar um áður en þeir kaupa handa börnunum sínum Tiger Woods-varning. Alls hafa sjö hjákonur stigið fram og fleiri virðast vera á leiðinni. Atli Fannar Bjarkason tók saman yfirlit yfir skandalinn, en samkvæmt nýjustu upplýsingum hóf Tiger að hitta aðrar konur mjög fljótlega eftir að hann kvæntist hinni sænsku Elinu Nordegren. 11.12.2009 05:30
Jackson 4 snúa aftur Michael Jackson-bræðurnir fjórir, þeir Marlon, Tito, Jermaine og Jackie, tilkynntu í spjallþætti Larry King á CNN nýverið að þeir hygðust koma saman sem Jackson Four og fara í kjölfarið í tónleikaferð um heiminn á næsta ári. Slíkt tónleikahald yrði til minningar um bróður þeirra, Michael, sem lést langt fyrir aldur fram í júní á þessu ári. 11.12.2009 05:30
Sálin með jólarispu Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns verður dugleg við dansleikjahald á næstunni eftir nokkurra mánaða hlé. Fyrst spilar sveitin á Nasa á laugardagskvöld og viku síðar, eða 19. desember, spilar hún á Sjallanum á Akureyri. Á milli jóla og nýárs spilar Sálin síðan í Hvíta húsinu á Selfossi og á gamlárskvöld verður hún á Broadway. Á nýárskvöld verður dansleikur á Spot í Kópavogi og jólarispunni lýkur síðan í Officeraklúbbnum í Keflavík laugardagskvöldið 2. janúar. 11.12.2009 05:00
Engin Rokklands-plata í ár „Það er frí þetta árið en ég vonast til að koma sterkur inn á næsta ári,“ segir útvarpsmaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson, eða Óli Palli á Rás 2. Rokklands-safnplata hans sem hefur komið út fyrir jól síðastliðin átta ár kemur ekki út í ár. Hin aldræmda kreppa hefur þar töluvert að segja. 11.12.2009 05:00
Flóamarkaður á Íslendingabar Séríslenskur flóamarkaður verður haldinn á öldurhúsinu Cafe Blasen í Kaupmannahöfn nú á laugardag og eru það íslenskir listamenn búsettir í Danmörku sem standa að markaðnum. Meðal þeirra sem taka þátt eru Ágústa Hera Harðardóttir, Einar Thor, Jónas Breki, Örn Tönsberg og útvarpsmaðurinn vinsæli Andri Freyr Viðarsson sem mun leika jólatónlist undir nafninu Sir Honkey Tonk. 11.12.2009 04:45
Hugleikur rappar Myndlistarmaðurinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson mun rappa ásamt hljómsveitinni Human Woman á tónlistarhátíðinni Jól Jólsson sem verður haldin á Hótel Íslandi 18. desember. Human Woman er ný hljómsveit þeirra Jóns Atla Helgasonar og Gísla Galdurs Þorvaldssonar. Jón Atli hefur áður spilað með hljómsveitum á borð við Hairdoctor, Bang Gang og Fídel. Gísla Galdur þekkir fólk úr sveitum á borð við Trabant, Motion Boys og Ghostigital. Hugleikur hefur áður getið sér orð á tónlistarsviðinu, meðal annars með hljómsveitinni Útburðir. Þetta verða fyrstu tónleikar Human Woman og kemur hún fram á hátíðinni ásamt flytjendum á borð við Gus Gus, FM Belfast, Egil Sæbjörnsson, Lúdó og Stefán og Ben Frost. 11.12.2009 04:45
Eivör með tónleika Færeyska söngkonan Eivör Pálsdóttir heldur tónleika í Rammagerðinni á sunnudaginn klukkan 15. Tónleikarnir eru kærkomin sárabót fyrir þá sem náðu ekki að tryggja sér miða á tvenna, uppselda tónleika Eivarar sem verða í Fríkirkjunni um helgina. Eivör er nýbúinn að senda frá sér tónleikaplötu sem heitir Live. Hún inniheldur upptökur frá árunum 2005 til 2009 frá tónleikum í Færeyjum, Íslandi, Japan, Danmörku, Austurríki og Þýskalandi. Einnig er stutt síðan hún spilaði á hinni virtu heimstónlistarhátíð Vomex. 11.12.2009 04:30
Garland og Elton John í guðatölu Tónlistarmaðurinn Elton John og leikkonan Judy Garland hafa verið kjörin mestu átrúnaðargoð allra tíma í nýrri skoðanakönnun sem var gerð á meðal samkynhneigðra. 11.12.2009 04:30
Skottmarkaður við Kjarvalsstaði Við höfum fengið mikil viðbrögð frá íbúunum í hverfinu og stæðið verður fullt af bílum,“ segir Steinunn Þórhallsdóttir formaður 3. hverfis, Hlíða, Holta og Norðurmýrar. Íbúar hverfisins ætla að endurtaka svokallaðan Skottmarkað frá því í haust á bílastæði Kjarvalsstaða á morgun milli klukkan 12 og 14. Á skottmarkaði er heimilisbíllinn notaður sem sölubás og getur fólk selt allt milli himins og jarðar úr bílskottum sínum, en viðburðurinn er ókeypis og opinn öllum. 11.12.2009 04:30
Glímir við ástarsorg Alexa Ray Joel, dóttir popparans Billy Joel og fyrirsætunnar Christie Brinkley, var flutt á spítala fyrr í vikunni, en talið er að hún hafi reynt að taka eigið líf. Brinkley og Joel sendu frá sér tilkynningu á miðvikudaginn þar sem þau sögðu líðan dóttur sinnar eftir atvikum og að hún væri útskrifuð af spítala og dveldi nú á heimili móður sinnar. 11.12.2009 04:30
Rómantík hjá Jolie og Pitt Life & Style-tímaritið greinir frá því að stjörnuparið Angelina Jolie og Brad Pitt hafi fagnað því með rómantískum hætti að þau væru búin að vera saman í fimm ár. Og krakkaskarinn var víst skilinn eftir heima, aldrei þessu vant. Ofurstjörnurnar gættu þess vandlega að enginn myndi frétta af þessu afmæli sem átti sér stað hinn 28. nóvember og tókst svo vel til að þetta barst fyrst inn á borð bandarískra slúðurblaða í vikunni. 11.12.2009 04:15
Endurgerir rokkballöðu Hin unga söngkona Miley Cyrus ætlar að endurgera rokkballöðuna Every Rose Has It‘s Thorn sem hárprúða hljómsveitin Poison gerði vinsælt á sínum tíma. Cyrus hefur eytt miklum tíma í hljóðveri ásamt Bret Michaels, söngvara Poison, við upptökur á laginu. „Every Rose er eitt af uppáhaldslögum Miley,“ var haft eftir Trish Cyrus, móður Miley. 11.12.2009 04:15
Látlaus vinna sjö daga vikunnar í sex ár Dan Brown er án efa í flokki vinsælustu rithöfunda allra tíma. Bók hans Da Vinci-lykillinn hefur selst í yfir áttatíu milljónum eintaka á heimsvísu og nýjasta bók hans, Týnda táknið, skaust beint í efsta sæti metsölulista New York Times þegar hún kom út nú í haust og sat þar samfleytt í sjö vikur. Bókin kom út á íslensku í lok nóvember hjá bókaforlaginu Bjarti og hefur hlotið fádæma góðar viðtökur hjá íslenskum lesendum. 11.12.2009 04:15
Kimi í jólaskapi Útgáfufyrirtækið Kimi Records heldur árlegan útgáfu- og jólafögnuð sinn á Sódómu Reykjavík laugardaginn 12. desember. Þar stíga á svið fimm hljómsveitir sem allar hafa gefið út hjá Kimi á árinu. Þær eru Sudden Weather Change, Retrön, Morðingjarnir, Kimono og Me, The Slumbering Napoleon. Miðaverð er 1.000 krónur. Einnig er hægt að borga 2.000 krónur og fá plötu í kaupbæti. 11.12.2009 04:00
Fær ekki að snúa aftur Jo Wood, fyrrverandi eiginkona Ronnies Wood, hefur staðfest við fjölmiðla að hann sé hættur með hinni barnungu fyrirsætu Ekaterinu Ivanóvu. Jo hefur jafnframt lýst því yfir að Ronnie fái ekki að stíga fæti inn fyrir hennar dyr. „Hann er ekki velkominn aftur,“ sagði Jo í samtali við Daily Mail. Jo og Ronnie, sem er liðsmaður The Rolling Stones, voru gift í 23 ár þegar þau skildu fremur óvænt eftir að Ronnie vildi yngja aðeins upp. 11.12.2009 04:00
Eignuðust strák Gisele Bundchen eignaðist lítinn dreng í gær. Samkvæmt bandaríska tímaritinu People gekk fæðingin vel, en settur fæðingardagur var næstkomandi mánudagur. 11.12.2009 04:00
Bjargaði fjörutíu mannslífum Bandaríska leikkonan Lindsay Lohan heldur því fram á Tweeter-síður sinni að hún hafi bjargað fjörutíu mannslífum á Indlandi. Lindsay er þar á vegum BBC til að gera heimildarmynd um mansal og segir jafnframt að starf hennar sé þegar farið að bera árangur. Lohan þarf nauðsynlega á því að halda að lappa aðeins upp á ímyndina eftir fremur mögur ár í sviðsljósinu þar sem allt hefur snúist um áfengi og taumlaust líferni. 11.12.2009 04:00
Enginn Blake Guðdóttir Amy Winehouse, vandræðagemsans í bresku tónlistarlífi, hefur vísað því á bug að hún sé tekin saman aftur við Blake Fielder-Civil. Orðrómur þess efnis fór á kreik í bresku pressunni eftir að það spurðist út að þau hefðu eytt nákvæmlega 36 klukkustundum saman í íbúð í Sheffield. Dionne Bromfield, umrædd guðdóttir, sagði við Bang Showbiz þegar hún var spurð út í þetta að sögusagnirnar væru úr lausu lofti gripnar. 11.12.2009 03:45
Ekstra jólafílingur hjá Ella í Jeff who? „Það er nú ekkert sérstakt sem ég geri til að undirbúa jólin," segir Elís Pétursson bassaleikari hljómsveitarinnar Jeff who? „Maður setur upp jólatré, skreytir og ef maður er í ekstra fíling þá kannski brennir maður smá greni. Ég kaupi iðulega jólagjafir mjög seint." Sjá viðtalið við Elís hér. Jól.is 10.12.2009 19:00
Hvaða svipur er þetta Gummi? „Við æfum nú ekki reglulega, mörg laganna eru í blóðinu og fara ekkert þaðan," svarar Stefán. Gefið þið hvor öðrum jólagjafir? „Nei, það hefur ekki tíðkast." Lesa má viðtalið í heild sinni hér. 10.12.2009 17:30
Þetta er vandræðalegt - myndir Söngkonan Mariah Carey kyssti eiginmann sinn, Nick Cannon, á eftirminnilegan hátt á rauða dreglinum. Eins og myndirnar sýna leit Nick út fyrir að líða illa þegar hún skellti á hann kossinum. Skoða má kossinn betur í myndasafninu. 10.12.2009 16:00