Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Glaðbeittur sveitarstjóri fær vínbúð á neðri hæðina „Þetta er nú bara gott dæmi um hvað landsbyggðin getur boðið upp á góða þjónustu við sitt fólk,“ segir Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri í Hrunamannahreppi. Ísólfur, sem er annálaður stuðpinni og gleðimaður, fær að líkindum góða ástæðu til að brosa breitt í vor því nú bendir allt til þess að hreppstjórinn fái góða granna þegar ÁTVR opnar vínbúð í gamla bankahúsinu á Flúðum við Akurgerði 4. Svo skemmtilega vill til að á efri hæð hússins er íbúð þar sem sveitarstjóri býr alla jafnan. 13.3.2009 07:30
Kafka varð ekki langlífur „Það kom bara tilboð á föstudaginn fyrir viku sem við gátum ekki hafnað. Við héldum fyrst að þetta væri bara eitthvert djók en svo komu þeir á mánudeginum til að fylgja tilboðinu eftir og við létum bara slag standa,“ segir Páll Gunnar Ragnarsson, annar eigandi hússins sem stendur við Laugaveg 22. Glöggir vegfarendur í miðbæ Reykjavíkur hafa tekið eftir því að bóhem-staðnum Kafka hefur verið lokað eftir skamman líftíma, um það bil einn og hálfan mánuð. Í staðinn munu eigendur Santa Maria opna þar nýjan veitingastað í dag. Kafka var nefndur eftir þýska skáldinu Franz Kafka sem lést langt fyrir aldur fram aðeins 41 árs að aldri og því má segja að staðurinn hafi fylgt fyrirmyndinni eftir. 13.3.2009 06:45
Oft nefnd kartöflukonan Sigríður Valdís Bergvinsdóttir var útnefnd til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins fyrir að hefja kartöfluna á hærra plan á ári kartöflunnar árið 2008. Hér gefur hún lesendum uppskriftir að góðum kartöfluréttum. 13.3.2009 06:00
Átta stíga á svið í Þýskalandi Átta íslenskir flytjendur hafa verið valdir til að spila í Þýskalandi í tengslum við tónlistarklúbbinn Norðrið. Lay Low reið á vaðið með vel heppnuðum tónleikum í Admiralspalast í Berlín á þriðjudag fyrir framan 400 manns og spilaði svo í Köln kvöldið eftir. 13.3.2009 06:00
Fríar ferðir eru óraunhæfar Skipuleggjendur Hróarskelduhátíðarinnar í Danmörku íhuga að bjóða Íslendingum og Svíum ókeypis ferðir á hátíðina vegna efnahagskreppunnar. Svíar kaupa um 5-10 þúsund miða á hátíðina á ári hverju og Íslendingar um tvö þúsund og því yrði það mikill missir ef þeir kæmust ekki í ár. 13.3.2009 05:00
Þrettándakvöld Þjóðleikhúsið frumsýnir Þrettándakvöld – eða Hvað sem þér viljið eftir William Shakespeare í kvöld á stóra sviðinu. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Nemendaleikhúss en leikstjóri er Argentínumaðurinn Rafael Bianciotto. 13.3.2009 05:00
Torrini fær þrjá stjörnur í Guardian Tónleikagagnrýnandi breska blaðsins Guardian gefur tónleikum Emiliönu Torrini sem fram fóru á Ruby Lounge í Manchester ágætis dóma og verðlaunar hana með þremur stjörnum. Blaðamaðurinn Dave Simpson segir í gagnrýni sinni að tónleikarnir hafi verið fullir af andstæðum. Torrini, með þessa englarödd, hafi skreytt tónleikana með groddalegum sögum af lögum sínum. „Þetta var hrein hamingja, að vera innan um kokkteila og vonda menn,“ sagði Torrini einu sinni og bað síðan um viskí, rétt áður en hún söng lagið Bleeder af nýjustu plötu sinni, Me and Armini. 13.3.2009 04:45
Ólafur Arnalds og gestir spila Ólafur Arnalds, Mammút og Valgeir Sigurðsson spila á Grand Rokk í kvöld í samvinnu við Reykjavík Grapevine og Gogoyoko.com. Þetta eru þriðju tónleikarnir í tónleikaröðinni Grapevine Grand Rock þar sem margir af fremstu flytjendum landins spila saman. Áður hafa stigið á svið listamenn á borð við Singapore Sling, Reykjavík!, Nico Muhly, Evil Madness og Agent Fresco. 13.3.2009 04:30
White með nýja sveit Rokkarinn Jack White úr hljómsveitunum The White Stripes og The Raconteurs, hefur stofnað sína þriðju hljómsveit, The Dead Weather. White hélt fyrir skömmu partí í Nashville þar sem hann tilkynnti um verkefnið og spilaði nýja plötu sem hljómsveitin hefur tekið upp. Hún heitir Horehound og kemur út í júní. Einnig steig hann á svið með sveitinni, sem ætlar í tónleikaferð á árinu. 13.3.2009 04:30
Algjör metsala á bókamarkaðinum í ár „Aldrei séð annað eins. Mesta sala sem við höfum upplifað,“ segir Kristján B. Jónasson formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. Bókamarkaðurinn í Perlunni sem nú er yfirstandandi hefur slegið í gegn meðal landsmanna. Nú þegar hafa verið seldar hundrað og fimmtíu þúsund bækur. Að rúmmáli eins og tuttugu vörubílar. Kristján talar um þetta sem stórbrotið ævintýri hjá bókaþjóðinni sem kaupir bækur eins og hún hafi aldrei heyrt talað um að hér sé kreppa. 13.3.2009 04:00
Endurfundur þeirra sem djömmuðu á Inghól á seinustu öld Laugardaginn 14. mars verður stórviðburður í Hvítahúsinu á Selfossi, en þá verður haldið Inghóls reunion fyrir alla þá sem djömmuðu á Inghól á milli 1993 og 1999. 12.3.2009 21:48
Afrekskona Létt Bylgjunnar valin á ný Létt Bylgjan hyggst endurtaka valið á afrekskonu Létt Bylgjunnar sem valin var í fyrsta sinn í fyrra og óskar nú eftir tilnefningum. Miðvikudagskvöldið 25. mars verður svo glæsilegt konukvöld Létt Bylgjunnar haldið í Smáralindinni. Glæsileg skemmtun með fordrykk í Vetrargarðinum og spennandi dagskrá og uppákomum allt kvöldið. 11.3.2009 08:35
Selma komin í Eurobandið Söngkonan Selma Björnsdóttir hefur gengið til liðs við Eurobandið í stað Regínu Óskar sem á von á barni í lok maí. Að því er kemur fram í tilkynningu frá hljómsveitinni þurfti nýja söngkonan að hafa einhverja tengingu við Eurovision-keppnina og að hafa á sér hinn eina sanna „Eurovision-stimpil“ og kom þá aðeins Selma til greina. 11.3.2009 08:00
Íslensk mannæta á hvíta tjaldið „Ég er ekki alveg búinn að ákveða hvort þetta verði leikin mynd eða teiknimynd. Ég hallast frekar að því að þetta verði teiknimynd,” segir Þórarinn Leifsson en hann, ásamt konu hans Auði Jónsdóttur, ætlar að skrifa kvikmyndahandrit upp úr bók Þórarins, Leyndarmálið hans pabba. Bókin vakti töluverða athygli þegar hún kom út 2007 en hún segir frá systkinum sem glíma við töluverðan vanda; pabbi þeirra sporðrennir nefnilega manneskjum í tíma og ótíma. Þórarinn er auk þess að skrifa handrit að næstu bók sinni sem ráðgert er að komi út í haust. Hann vildi ekkert gefa upp um innihald hennar að svo stöddu. 11.3.2009 07:00
Frábær í Frakklandi Hljómsveitin Jeff Who? fær mjög góða dóma fyrir aðra plötu sína, Jeff Who?, á frönsku tónlistarsíðunni The Wall. Platan kom út á síðasta ári og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna á dögunum. 11.3.2009 06:00
Hjaltalín tekur upp Hljómsveitin Hjaltalín hefur hafið upptökur á annarri plötu sinni. Upptökur fara fram í Hljóðrita í Hafnarfirði undir stjórn Sigurðar Guðmundssonar, Sigga í Hjálmum. Í fréttatilkynningu frá hljómsveitinni kemur fram að fyrsta smáskífa af næstu plötu komi út í næsta mánuði. 11.3.2009 05:30
Kosningaklippingin kallar fram kynþokka þingmanna „Af hverju stjórnmálamenn koma hingað? Tja, hér koma tugir manna og láta klippa sig og það getur því oft verið mikil og heit umræða um pólitíkina,“ segir hárskerinn Kjartan Björnsson. Þingmenn og frambjóðendur í prófkjörum stjórnmálaflokkanna, sem vilja ná góðum úrslitum, ættu að leggja nafn Kjartans og rakarastofu Björns og Kjartans á Selfossi á minnið. Dæmin sýna að þeir sem setjast í stólinn þar ná góðum árangri. 11.3.2009 05:30
Lágkúrulegt á Facebook Fjöldi fólks vandar Svövu Johansen hjá NTC ekki kveðjurnar á Facebook-síðu fataframleiðandans E-label. Ástæðan er frétt sem birtist í Fréttablaðinu þar sem eigendur E-label sökuðu Svövu um að banna þeim að versla við samstarfsaðila NTC í Frakklandi. 11.3.2009 04:00
Þriggja vikna dóttir Mel C Melanie Chisolm, betur þekkt sem Kryddpían Mel C, birti mynd af tveggja vikna dóttur sinni Scarlet Starr. Á heimasíðu söngkonunnar segir Mel C tilganginn með birtingu myndarinnar af mæðgunum svo að fjölmiðla að sýni þeim tillitssemi og láti þær í friði. 10.3.2009 16:14
Armani-sleðar ósáttir við lopann „Sumir vinir mínir sem ég kalla „Armani sleða" sem sofa helst í jakkafötum, hafa verið að senda mér tölvupóst og segja að þetta sé alveg ómögulegt en þeir eru bara að stríða mér," svarar Ármann Kr. Ólafsson alþingismaður aðspurður um lopapeysuna sem hann klæðist á heimasíðu sinni armannkr.is sem telst vissulega til tíðinda í kosningaslag Sjálfstæðisflokksins. „Þetta var þannig að konan mín prjónaði peysu og gaf mér hana. Þá var hún búin að sauma og prjóna kjóla, vettlinga, pils og fleira. Bullandi framleiðsla heima og ég fékk peysuna. Þá varð mér hugsað til þess að þetta var eins og þegar við vorum að byrja að búa. Gömlu gildin sem við þurfum að byggja á núna. Það er kannski út af þessari peysu að þetta slagorð fæðist því núna viljum við byggja á góðum gildum og traustum," segir Ármann Kr. 10.3.2009 13:37
Heroes atriðið úr Astrópíu - myndband Fréttablaðið sagði frá því í morgun að framleiðendur íslensku kvikmyndarinnar Astrópía ætli að krefjast lögbanns á eina vinsælustu sjónvarpsseríuna í bandarísku sjónvarpi, Heroes. Þeir vilja meina að atriði úr nýjustu seríu þáttanna sé stæling á atriði úr myndinni. 10.3.2009 10:52
Safnar ástarbréfum Íslendinga „Ég á eftir að fara í gegnum mína skúffu, en það koma eflaust einhver bréf upp úr henni,“ segir Sunna Dís Másdóttir, meistaranemi í hagnýtri menningarmiðlun, spurð um söfnun ástarbréfa sem hún stendur fyrir í samstarfi við Landsbókasafn Íslands. 10.3.2009 06:00
Súkkulaðimús Súkkulaði og smjör er brætt yfir vatnsbaði. Eggjarauðurnar eru þeyttar með 25 gr af sykri og hvíturnar eru svo þeyttar með 75gr af sykri. Eggjablöndunni er blandað varlega saman við ásamt súkkulaðinu og að lokum er létt þeyttum rjómanum blandað saman við. 10.3.2009 00:01
Eplasalat og kartöflur Rjóminn er létt þeyttur, selleríið er skorið mjög smátt niður. Vínberin eru skorinn í tvennt. Eplin eru skorin niður smátt, öllu er svo blandað saman og sett í kæli. 10.3.2009 00:01
Rækjukokteill Salat er rifið niður og sett í litlar skálar. Rækjurnar eru settar ofan á salatið ásamt smátt skorni melónu, sósunni hellt yfir, glasið er svo skreytt með tómat, gúrku, sítrónu og steinselju. 10.3.2009 00:01
Hreindýrasteik með púrtvín og villisveppasósu Kjötið er brúnað á pönnu og kryddað með salt og pipar, restin af kryddinu er sett á pönnuna. Kjötið er sett í elfast mót, c.a 5-6 greinar af garðblóðbergi er sett í kringum og ofaná kjötið. Rósmarinið er sett í mótið ásamt rifsberjum og einiberjum. 10.3.2009 00:01
Gæsabringur með bláberjasósu Brúnið kjötið vel við háan hita og bætið berjunum við í lokin. Látið kjötið svo kólna við stofuhita áður en það er sett inn í ofn í eldföstu móti og eldað við 180°C í 10–13 mínútur (fer svolítið eftir stærð). Gott er að láta fuglinn standa aðeins áður en hann er skorinn. 10.3.2009 00:01
Hvít súkkulaði- og temús Hitið mjólk og rjóma að suðu með 2 tepokum úti í. Hellið vökvanum yfir saxað súkkulaðið og hrærið vel saman. Blandið svo mjúku smjörinu saman við ásamt eggjarauðunum, einni í einu. Stífþeytið að síðustu hvíturnar og sykurinn og blandið saman við súkkulaðiblönduna. Setjið þetta strax í form og látið standa í kæli minnst þrjá tíma. 10.3.2009 00:01
Humar með portobello-sveppum Steikið humarinn upp úr smjöri með hvítlauk við háan hita. Skerið sveppina smátt niður og steikið upp úr smjöri og kryddið með salti og pipar. Bætið koníaki, soði og balsamediki út í og látið aðeins sjóða og blandið þá rjómanum saman við. Látið suðuna koma upp og smakkið til með salti og pipar. 10.3.2009 00:01
Rjómalöguð sveppasúpa Sveppirnir eru steiktir uppúr smjöri og hveitinu er blandað saman við, þá er soðinu blandað saman við og hrært þar til kekkjalaust. Þá er mjólk og rjómi blandað saman við ásamt sítrónusafa og kryddi, látið krauma í c.a 5-6 mín við mjög vægan hita. 10.3.2009 00:01
Hamborgarhryggur og eplasalat Hryggurinn er settur inní ofn við 160° í 90 mínútur, gott er að setja smá vatn í botninn svo hann þorni ekki. Hryggurinn er tekinn út og losaður af beininu. 10.3.2009 00:01
Heimalagað rauðkál og rauðvínssósa Eplin og rauðkálið er skorið niður, þetta er sett í pott ásamt smjöri og blandað vel saman. Þá er restinni blandað saman við og soðið við vægan hita í c.a 1 ½ - 2 tíma. Hræra þarf reglulega í pottinum. 10.3.2009 00:01
Nautafille Kjötið er velt upp úr olíu og kryddað með vel með salt og pipar. Þá er kjötið brúnað vel á pönnu, þá er einni góðri matskeið af smjöri sett á pönnuna ásamt sitthvorri greininni af rósmarin og timjan, kjötið er velt upp úr smjörinu og kryddinu. Þá er kjötið tekið til hliðar. 10.3.2009 00:01
Forréttur: nautalund Kjötið er létt brúnað af og lokað vel, kjötið er svo látið standa og kólna. 10.3.2009 00:01
Kartöflumús og meðlæti Kartöflurnar eru bakaðar í ofni ofaná grófu salti í c.a 45 mín við 200° . kartöflurnar eru setta í gegnum sigti, rjóminn er soðin í c.a 3 mín og blandað saman við kartöflurnar og hrært vel saman, þá er smjörinu blandað saman við ásamt kryddi. Í þetta sinn erum við með trufluolíu, steinselju, salt og pipar. Hrærið vel í músinni þar til hún glansar fallega og smakkið vel til. 10.3.2009 00:01
Súkkulaðisúpa Mjólkin er hituð að suðu með anis, lime berkinum og sultuhleypi. Hellið svo helmingnum af mjólkinni yfir súkkulaðið og leysið súkkulaðið varlega upp, hellið svo restinni yfir og blandið vel saman, látið súpuna standa helst yfir nótt. Gott er að píska súpuna aðeins áður en hún er borinn fram með pískara. 10.3.2009 00:01
Nauta carpaccio Kjötið er skorið mjög þunnt niður og raðað á diska. Þá er kjötið kryddað með salt og pipar. Rifið börkinn þunnt niður og dass af sítrónusafa er hellt yfir. Þá er olíu og trufluolía hellt yfir kjötið. Fallegt salat er sett í miðjuna á diskinum. brjótið svo parmesaninn yfir kjötið. Ristið furuhneturnar og setjið yfir allann diskinn. 10.3.2009 00:01
Kalkúna fylling Smjörið er bræt á pönnu g smátt saxaður laukurinn er látinn saman við og steikjast í c.a 10 mín, eða þar til meyr. Eplin eru skorin niður í litla bita, skinkan er skorinn smátt ásamt sellerí. Brauðið er skorið í litla teninga, þá eru kryddjurtirnar saxaðar smátt niður og börkurinn af appelsínunni er rifinn mjög smátt. 10.3.2009 00:01
Meðlæti með kalkún Innmaturinn er steiktur fyrst og brúnaður vel, þá er restinn sett saman við og steikt áfram. Þá er 1 ½ L af vatni sett saman við og soðið við vægan hita í c.a 1 ½ klst. Fleytið allri fitu af ef einhver er á meðan suðan fer fram. 10.3.2009 00:01
Fylltur kalkúnn Fuglinn er látinn þyðna í 2 sólarhringa í kæli og gott er að taka fuglinn út og láta hann standa við stofuhita daginn sem hann er eldaður. Takið innmatinn úr fuglinum og þerrið skinnið vel á fuglinum. Skolið fuglinn að innan með vatni. 10.3.2009 00:01
Reykt önd með hindberja vinagrettu Hneturnar eru létt ristaðar á þurri pönnu, þá er 2-3 tsk af sykri blandað saman við og hnetunum vellt uppúr bræddum sykrinum, kælið svo hneturnar. Púrrulaukurinn er skorinn í langar og þunnar ræmur og steiktur uppúr mikið af olíu þar til vel steiktur, þerrið svo laukinn. 10.3.2009 00:01
Villisveppa ragú Sveppirnir eru steiktir á pönnu uppúr olíu og smöri ef vill. Steikið sveppina vel og kryddið með salt og pipar. Setjið rjómann saman við í restina og látið sjóða vel niður. 10.3.2009 00:01
Krónhjartarsteik Kjötið er brúnað á pönnu og kryddað með salt og pipar, nokkrar timjangreinar eru steiktar með. Kjötið er sett í eldfast mót og eldað við 180° í c.a 12 mín eða þar til kjarninn er kominn í c.a 55° látið kjötið standa í c.a 5-7 mín áður en það er skorið. 10.3.2009 00:01
Support sigrar á kvikmyndahátíð "Myndin fjallar um mann sem liggur fyrir dauðanum á gjörgæslu," svarar Börkur aðspurður um verðlaunamyndina. "Hún er svo stutt að það má eiginlega ekki segja meira frá því en mMyndina má sjá í heild sinni á heimasíðunni minni," segir Börkur. 9.3.2009 15:30
Ég er ekki sár - myndband Díana Lind Monzon sem komst ekki áfram í Idol stjörnuleit síðasta föstudag var að eigin sögn ekki sár þrátt fyrir vægast sagt harða gagnrýni dómnefndar eftir að hún flutti lagið Horfðu til himins. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá stutt viðtal við Díönu Lind eftir flutninginn. 9.3.2009 13:23