Matur

Gæsabringur með bláberjasósu

1 gæsabringa eða bringa af öðrum villtum fugli á mann

bláber

salt og pipar

Brúnið kjötið vel við háan hita og bætið berjunum við í lokin. Látið kjötið svo kólna við stofuhita áður en það er sett inn í ofn í eldföstu móti og eldað við 180°C í 10-13 mínútur (fer svolítið eftir stærð). Gott er að láta fuglinn standa aðeins áður en hann er skorinn.

Sósa

½ l andasoð 

1 dl púrtvín 

2 dl rjómi 

1 dl bláberjasulta 

1 dl bláber 

salt og pipar

Búið til gott soð, blandið víninu saman við og látið aðeins sjóða niður. Blandið þá rjómanum saman við og látið suðuna koma upp. Bætið því næst sultunni og bláberjunum út í og smakkið til með salti og pipar. Gott er að setja smá gráðaost í sósuna.

Bakaðar haselbach-kartöflur

Afhýðið kartöflurnar og setjið í þar til gert form. Skerið kartöflurnar í þunnar skífur. Bræðið smjör og hellið yfir og stráið einnig salti yfir. Bakið kartöflurnar við 200°C í eina klukkustund. Þegar 20 mínútur eru eftir af tímanum stráið þá parmesanosti yfir. Gott er að ausa smjöri yfir tvisvar á meðan á elduninni stendur.

Með þessu höfum við perur og perlulauk. 

Afhýðið perurnar og skerið í báta. Afhýðið einnig laukinn. Setjið u.þ.b. 3 msk. af smjöri á pönnu og steikið perurnar með lauknum í 3-4 mínútur. Stráið þá 3-4 msk. af sykri yfir til að gera smá karamellu. 

Vín með aðalrétt

Vín: Bolla La Poiane. Valpolicella frá Norður-Ítalíu, mjúkt og margslungið, hentar vel með villibráð og blönduðum kjötréttum. Kryddað, með vott af lakkrís, mosa og vanillu.

Hefur góða fyllingu, rúnað, í góðu jafnvægi og er opið með þægilega ristaða endingu. Vínið geymist í allt að 15 ár. Skal borið fram við 18°C og flaskan á að vera opin í 2 tíma áður en vínið er drukkið. Hentar einstaklega vel með aðalréttum eins og rauðu kjöti, grillmat og hreint alveg stórkostlegt með þroskuðum ostum.

Glös: Magnum-rauðvínsglös






Fleiri fréttir

Sjá meira


×