Fleiri fréttir

Trumbur og gjöll slegin

Trommuleikarar og áhugamenn um áslátt verða í kvöld aðnjótandi happafengs. Þá flytja tveir ásláttarmenn af heimsklassa nýtt verk eftir Áskel Másson í liði með Sinfóníunni. Það verða þeir Colin Currie frá Englandi og Pedro Carneiro frá Portúgal sem takast á við Crossings og er það í fyrsta sinn sem þeir koma fram hér á landi í frumflutningnum.

U2 setja í gang

Tólfta hljóðversplata U2 kemur út í byrjun mars en fyrsta lagið af henni „Get on your boots“ er byrjað að heyrast. Lagið er hressandi rokkpopp drifið áfram af gítarriffi og venst ágætlega. Þá hefur umslag nýju plötunnar verið opinberað. það er eftir japanska listamanninn Hiroshi Sugimoto, heldur grámygluleg mynd af sjóndeildarhring en rímar vel við titil plötunnar, No line on the horizon. Umslagið er nánast eins og á minimalískri plötu Richards Chartier og Taylors Deupree, Specification. Fifteen, sem kom út fyrir nokkrum árum. Félagarnir ætla þó ekki að kæra.

Kira Kira í tónleikaferð um Evrópu

Kira Kira, eða Kristín Björk Kristjánsdóttir, hóf í síðustu viku tónleikaferð um Evrópu. Ferðin stendur yfir til 7. febrúar og alls spilar Kira Kira á tuttugu tónleikum, þar á meðal í Þýskalandi, Ítalíu, Frakklandi, Hollandi og Danmörku. Einnig er í bígerð tónleikaferð um Bretland í apríl og um Austur-Evrópu í sumar.

Lost hefst að nýju

Sýningar á Lost hófust að nýju í gærkvöldi á ABC sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum með tveimur fyrstu þáttum fimmtu seríunnar. Tveimur söguþráðum verður fylgt í sautján þáttum þessarar seríu.

Þriggja stjörnu diskórokk

Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn. Margir bíða hennar með mikilli eftirvæntingu enda sló sveitin rækilega í gegn fyrir fimm árum með sinni fyrstu plötu.

Tilfinningaþrungin stund Obama - myndband

Forseti Bandaríkjanna Barack Obama og eiginkona hans Michelle Obama dönsuðu fram á rauða nótt í gær. Eins og meðfylgjandi myndband sýnir dönsuðu forsetahjónin og létu vel að hvort öðru við lagið At last í flutningi Beyonce Knowles. Forsetafrúin klæddist síðkjól eftir fatahönnuðinn Jason Wu sem er aðeins 26 ára gamall. Sjá dansinn hér.

Eiginmaður aðþrengdrar eiginkonu með krabbamein

Eiginmaður Marciu Cross, sem fer með eitt aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Aðþrendar eiginkonur hefur verið greindur með krabbamein. Talsmaður hjónananna sendi yfirlýsingu svo hljóðandi: „Hann (Tom) gengst um þessar mundir undir meðferð og hún gengur vel." Tom, 51 ára, og Marcia, 46 ára, giftu sig árið 2006 og eignuðust tæpu ári síðar tvíburana Eden og Savannah. Meðfylgjandi má sjá myndir af fjölskyldunni.

Sjónvarpsþættir Jóns Ólafs á sviðið

„Ég hef gengið með þessa hugmynd í maganum í nokkur ár,“ segir Jón Ólafsson tónlistarmaður. Hann gengst fyrir tónleikaröð í Salnum í Kópavogi sem hann kallar „Af fingrum fram“ og byggir á vinsælum samnefndum sjónvarpsþáttum hans. Fyrstu tónleikarnir verða 19. febrúar og er þá gestur Jóns sjálfur Magnús Eiríksson en sérstakur gestur verður söngkonan Ellen Kristjánsdóttir. „Mér datt í hug að færa þetta konsept úr sjónvarpinu og upp á svið. Ég ræði við Magnús og þá með meiri áherslu á tónlistina en ferilinn eins og var í sjónvarpinu. Hvort til dæmis hann hafi ekki fljótlega fengið ógeð á „Ég er á leiðinni“ eftir gegndarlausa útvarpsspilun þess lags. En mest verður þetta tónlist en ekki kjaftavaðall.“

Miðasalan fer hægt af stað

Danska rokkveislan í Hróarskeldu hefur haft mikið aðdráttarafl hjá íslenskum rokkhundum á ári hverju. Kreppan hefur nú stimplað sig þar inn.

Stjörnur í afmæli Stjána Stuð

Kristján Þórðarson, betur þekktur sem útvarpsmaðurinn Stjáni Stuð, heldur upp á fertugsafmæli sitt í lok maí. Það er ekki vottur af kreppubrag á veislunni og Elton John og Ólafur Ólafsson falla algjörlega í skuggann á poppstjörnunum sem Stjáni býður upp á í sínu afmæli. „Þetta er svona allt að smella núna. Sjonni Brink byrjar þetta, en svo koma meðal annars fram Skítamórall, Á móti sól og Land og synir. Hljómsveitin Hitakútur endar tónleikana. Svo á ég eftir að tala við Ný dönsk, en Ingó og Veðurguðirnir og Greifarnir gefa endanlegt svar í mars. Þetta eru allt vinir og kunningjar,“ segir Stjáni.

Lúnar tær sjónvarpsstjarna nuddaðar upp úr ilmolíum

„Við komum í Þórsmörk að kveldi bóndadags og fáum við karlarnir táslunudd sem er ómissandi þáttur í þessum ferðum. Konurnar nudda þá tær á okkur upp úr ilmolíum,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfréttamaður.

Bjarni Ben er latur við heimilisstörfin

Í nærmynd af Bjarna Benediktssyni verðandi ráðherra í sjónvarpsþættinum Ísland í dag, sem hefst í kvöld strax að loknum fréttum, segir eiginkona hans, Þóra Margrét Baldvinsdóttir, Bjarna meðal annars vera latan við heimilisstörfin en hún þrátt fyrir það styður hún maninn sinn í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.

Frægir mótmæla

Á meðal fjöldans sem mótmælir á þessari stundu á Austurvelli má sjá fræga Íslendinga. Þar mótmælir Gunnar Þórðarson tónlistarmaður, Jón Páll Eyjólfsson leikari, Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður, Jónsi tónlistarmaður og meðlimur Sigurrósar, Stefán Jónsson leikari, Ómar Ragnarsson formaður Íslandshreyfingarinnar svo einhverjir séu nefndir.

Fólk með piparúða í augum kemur hlaupandi

„Það er rosalega mikið að gera alltaf þegar mótmæli eiga sér stað, " svarar Orri Páll Vilhjálmsson vaktstjóri á kaffihúsinu Café París þegar Vísir spyr hvernig mótmælin hafa áhrif á hann. „Þá fyllist húsið sem er jákvætt. Nei kaffigestir eru ekki með neinn æsing heldur eru allir á öllum borðum að tala um ástandið." „Fólkið kemur hérna inn eftir mótmælin og sumir hverjir sem eru búnir að fá piparúða í augun," segir Orri.

Myndir sem Madonna neitaði að birta

Fimmtuga Madonna bannaði birtingu á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af henni fyrir plötuna Hard Candy plötuna. Stílistar hafa gagnrýnt umrædda myndasyrpu harðlega sökum þess hve söngkonan lítur illa út.

Klara Kristín Arndal er nýr ritstjóri Birtu

Nýr ritstjóri hefur tekið við tímaritinu Birtu. Klara Kristín Arndal tók við af Kristjáni Þorvaldssyni rétt eftir áramót og kom fyrsta blaðið undir hennar ritstjórn út síðastliðinn föstudag.

Súlukóngur altarisdrengur hjá Gunnari í Krossinum

„Ég hugsa allt öðruvísi. Þetta afeitrar þig algjörlega, hugurinn opnast og á nýju ári er maður alveg opinn fyrir öllu og mjög jákvæður,“ segir Ásgeir Þór Davíðsson sem flestir þekkja sem Geira á Goldfinger.

Gillz slátrað á Rúbín

Agli „Störe“ Einarssyni tókst ekki að sýna sitt rétta andlit á pókermóti veðmálafyrirtækisins Betsson sem fram fór á Rúbín um helgina. Fjöldi þekktra einstaklinga tók þátt í mótinu.

Logi býður langveikum börnum í bíó

„Þetta er bara eitt af áramótaheitunum mínum, að láta gott af mér leiða á árinu 2009,“ segir handknattleikskappinn Logi Geirsson en hann hyggst bjóða öllum langveikum börnum í bíó á næstunni.

Stóra planið til Rotterdam

„Þetta er stór hátíð og ég hlakka mikið til,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Ólafur Jóhannesson en kvikmynd hans, Stóra planið, verður meðal mynda á kvikmyndahátíðinni í Rotterdam. Sem þykir mikill heiður. Myndin verður sýnd í svokölluðum spectrum-hluta en Ólafi til halds og trausts verða meðal annars leikarar úr myndinni og framleiðendurnir Stefan Schaefer og Michael Imperioli en sá síðarnefndi lék einmitt glæpaforingjann Alexander í Stóra planinu.

Laddi sextugur í tvö ár

Sýningin Laddi 6-tugur fagnar óvæntum tímamótum í kvöld en Laddi sjálfur verður þá 62. Hópurinn kemur saman í síðasta sinn á laugardaginn.

Nýtt U2 lag frumflutt í dag

Hljómsveitin U2 frumflutti fyrsta lagið á væntanlegum geisladiski sínum í dag. Lagið, sem heitir „Get On Your Boots“ var flutt í Írska ríkisútvarpinu RTE í þætti hjá Dave Fanning.

Villurnar pirra eingöngu lögmenn

„Það er ekki hægt að segja að ég hafi beinlínis aðstoðað handritshöfundana. Þeir komu til mín einu sinni á stuttan fund í upphafi þegar þeir voru að móta sínar hugmyndir. Þá svona til að þreifa á starfi lögmanna. Ég kom ekkert að handritsgerð og las það ekki yfir," svarar Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður þegar Vísir spyr hann út í hans aðstoð við handritsgerð sjónvarsþáttanna Réttur sem hóf sýningar á Stöð 2 í gærkvöldi.

Hefur ekki fundið þá einu réttu

Ingólfur Þórarinsson, 22 ára, betur þekktur sem Ingó úr Veðurguðunum, komst áfram í undankeppni Júróvisjón um helgina með lagið Undir regnboganum eftir Hallgrím Óskarsson. Vísir hafði samband við Ingólf til að forvitnast meðal annars um stelpurnar sem syngja með honum lagið, skófatnaðinn og ástarmálin.

Mexíkóar stela íslenskri auglýsingu

„Maður hefur séð hugmyndir sem íslenskar auglýsingastofur hafa notað erlendis frá en ég hef ekki séð þetta fara í þessa áttina,“ segir Ársæll Baldursson, framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Ó-ið. Auglýsing sem stofan gerði fyrir Dominos á Íslandi hefur nú verið „endurgerð“ fyrir Dominos í Mexíkó. Reyndar án leyfis.

Logi umvafinn kvenfólki

Auðunn Blöndal bauð til veglegrar veislu á fimmtudagskvöldið til að fagna fyrsta þætti Atvinnumannanna okkar. Logi Geirsson, stjarna fyrsta þáttarins, var að sjálfsögðu á svæðinu.„Hann er bara stofnun eða eins og strákarnir í landsliðinu segja, Logi er bara spaði,“ segir Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður Stöðvar 2 og fyrrum aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins.

Carell keypti litla verslun

Gamanleikarinn Steve Carell keypti nýlega litla verslun í 155 ára gömlu húsi í bænum Marshfield Hills í Massachusetts þar sem hann býr hluta úr árinu. Réð hann í framhaldinu mágkonu sína sem verslunarstjóra.

Ástvinanudd hjá Ingva Hrafni

„Pældu bara í því! Nú getur þú tekið konuna þína, sett hana fyrir framan sjónvarpið og sagt við hana: Fylgstu nú með. Og lærðu hvernig þú getur verið almennileg við mig,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson sjónvarpsstjóri á ÍNN.

Bjargvættirnir frá Danmörku

„Ég veit ekki hvort fjáröflunin sem slík verður eitthvað sem öllu máli skiptir. Aðallega er þetta nú að sýna samstöðu, vekja athygli á málstaðnum og létta fólki lífið með rokktónleikum,“ segir Jacob Binzer aka Cobber, gítarleikari D-A-D, í samtali við Fréttablaðið.

Atli samdi fyrir Nixon/Frost

Íslenska tónskáldið Atli Örvarsson kom að gerð tónlistarinnar við kvikmyndina Nixon/Frost. Lærimeistari Atla, Hans Zimmer, er opinberlega skráður fyrir tónlistinni en Atli var í hópnum sem samdi hana. Nixon/Frost hefur fengið lofsamlega dóma, var meðal annars tilnefnd til Golden Globe sem besta mynd ársins. Tapaði þar fyrir Slumdog Millionaire í leikstjórn Danny Boyle. Hún er engu að síður sögð líkleg til að hljóta Óskarstilnefningu þegar þær verða tilkynntar 22. janúar.

Gerir mynd um Phoenix

Leikarinn Casey Affleck ætlar að leikstýra heimildarmynd um nýhafinn tónlistarferil kollega síns og mágs, Joaquin Phoenix. Síðasta haust tilkynnti Phoenix öllum að óvörum að hann ætlaði að gefa leiklistina upp á bátinn og einbeita sér að tónlistinni. Ætlar hann að reyna fyrir sér í rappinu og mun Sean Combs taka upp fyrstu plötu hans.

Ungt fólk notar innkaupatöskur

Innkaupatöskur á hjólum njóta nú vinsælda hjá ungum sem öldnum samkvæmt því sem afgreiðsludömur í þremur verslunum segja. „Einu sinni voru þessar töskur kallaðar gömlukonutöskur en það er löngu hætt,“ segir María G. Maríusdóttir hjá Drangey í Smáralind.

Dreymir um að drepa Hitler

Stórleikarinn Tom Cruise sagði í morgun að hann hefði alltaf dreymt um að myrða Adolf Hitler. Það væri ein stærsta ástæða þess að hann ákvað að taka að sér hlutverk í mynd sem snerist um morðtilræði gegn hinum illræmda kanslara.

Skoppa tók á móti 10 þúsundasta gestinum

Skoppa, sem er aðalpersónan í kvikmyndinni Skoppa og Skrítla í bíó, tók á móti 10 þúsundasta gesti myndarinnar í Borgarbíói á Akureyri í dag. Það var Jóhanna Hlynsdóttir sem var svo heppin að vera gestur númer 10 þúsund. Hún og Andrés Ívar bróðir hennar voru svo heppin að hitta Skoppu, Lúsí og sjálfan Bakara Svakara í bíó.

Segir flugið vera í Sullenberger-blóðinu

Jón Gerald Sullenberger er að láta kanna fyrir sig hvort Chesley Sullenberger flugstjórinn sem nauðlenti flugvélinn í Hudson flóa við New York í gær sé frændi sinn. Hann segir að flugið sé í Sullenberger-blóðinu en sonur Jóns Geralds byrjaði að fljúga 14 ára gamall.

Klæðnaður Evu og Ragnhildar Steinunnar leyndó

„Fólk var að tala um að við höfðum ekki verið nógu hátíðlegar í klæðnaði síðasta laugardag," segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sjónvarpskona þegar Vísir ber undir hana umtal um mynstruðu lopapeysurnar sem hún og samstarfskona hennar, Eva María Jónsdóttir, klæddust síðasta laugardag í fyrsta þætti af fjórum í undankeppni Júróvisjón í ár. „Við ætlum að taka það til greina í næsta þætti. En við viljum samt ekki segja hvað eða hvernig," segir Ragnhildur leyndardómsfull. „Við erum spenntar að heyra öll hin lögin í keppninni. Það er ekki vinnufriður hérna í Efstaleiti því við hlæjum svo mikið við að skoða gömlu Júróvisjónlögin," segir Ragnhildur áður en kvatt er. Þátturinn er á dagskrá RÚV klukkan 20:10 annað kvöld.

Karlarnir hafa grennst rosalega, segir Jónína Ben

„Það liggur beinast við að koma með svona starfsemi til Íslands á erfiðum tímum," svarar Jónína Benediktsdóttir sem er stödd í Póllandi aðspurð út í detoxmeðferðir sem hún starfrækir hér á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit. „Það ætti hvergi annarsstaðar að vera betra en að hreinsa sig á Íslandi þar sem mengunin er minnst," bætir hún við. „Ég vinn með pólska lækninum og við vinnum á netinu og verðum í skype-sambandi. Við tölum saman í gegnum internetið," svarar Jónina spurð hvort hún flytji detox-fagfólk með sér hingað frá Póllandi. „Nokkrir íslenskir læknar ætla að kynna sér starfsemina. Þá kemur í ljós hvort þeir eru tilbúnir að viðurkenna detoxmeðferðina sem læknismeðferð eða ekki. Ég geri þetta ekki án lækna það er alveg víst," segir Jónina.

Tók viðtal við hund

Björn Þorláksson þáttastjórnandi Sjónvarps Norðurlands og fréttamaður hjá Stöð 2 gerði í dag tilraun til að taka viðtal við hund í Föstudagsþætti N4. Björn spurði hvað hundinum fyndist um ástandið í efnahagslífi þjóðarinnar og velti upp þeirri spurningu hvort það að fá hund í settið væri verri hugmynd en að fá stjórnmálamenn í spjall, stjórnmálamenn sem margir hverjir virðast sekir um lýðskrum og ábyrgðarleysi gagnvart almenningi.

Óþolandi ástand - myndband

Orðrómur hefur verið uppi um að kærusturnar Lindsay Lohan og Samantha Ronson sem gerðu tilraun til að versla eins og meðfylgjandi myndband sýnir, væru hættar saman.

Breytingar hjá Birtíngi - Mannlíf í útgáfuhlé

Forsvarsmenn Birtíngs útgáfufélags segjast í ljósi aðstæðna neyðast til þess að gera skipulagsbreytingar á útgáfustarfsemi félagsins. Kostnaður á pappír og öðrum aðföngum er sagður hafa hækkað meira en nokkrun gat órað fyrir auk þess sem sala hefur dregist saman hjá félaginu. Í pósti frá Elínu Ragnarsdóttur, framkvæmdarstjóra félagsins segir að sú blanda sé banvæn ef ekkert sé að gert.

Sjá næstu 50 fréttir