Fleiri fréttir

Kærasta Spiderman sveiflaði sér í meðferð

Enn fjölgar Hollywood-stjörnum á snúrunni. Nú er það kærasta Spiderman, Kirsten Dunst sem komin er í meðferð. Hún gafst upp á gjálífinu eftir erfiða viku á Sundance kvikmyndahátíðiðnni og skellti sér í prógram hjá Cirque Lodge meðferðarstofnuninni í Utah.

Vantar nýjustu Die Hard myndina í safnið

„Nei, ég á þessa mynd ekki á DVD og þess vegna ekki allt safnið,“ segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra aðspurður hvort hann sé búinn að fá sér nýjustu Die Hard myndina á DVD.

Woody óttast um Scarlett

Woody Allen óttast að Scarlett Johanson muni eyðileggja starfsframa sinn með því að fara of mikið út á lífið. Leikstjórinn sem vann með hinni 23 ára Hollywoodstjörnu í myndinni Match Point segir að hún sé bæði falleg og hæfileikarík. „Johanson er svo falleg og kynþokkafull og svo hæfileikarík ... hún getur gert allt,“ sagði hann í viðtali við spjallsíðu the New York Post.

Jeremy Clarkson kemur ekki – veðurtepptur í London

Jeremy Clarkson einn umsjónarmanna þáttarins Top Gear, ætlaði að koma til landsins í dag til þess að vera viðstaddur sérstaka forsýningu í Laugarásbíó í kvöld. Hann er hinsvegar veðurtepptur í London og kemur ekki til landsins.

Óskarinn að renna út á tíma

Skipuleggjendur Óskarsverðlaunahátíðarinna segjast vera að renna út á tíma með að komast að samkomulagi til að forðast að hátíðin verði fyrir barðinu á verkfalli handritshöfunda. Hætta er á að verðlaunin verði sniðgengin af Hollywoodstjörnum og umfang hennar því orðið minna ef handritshöfundar samþykkja ekki að hætta við verkfallsvörð við hátíðina 24. febrúar næstkomandi.

Foreldrar Spears óttast um líf hennar

Foreldrar bandarísku söngkonunnar Britney Spears eru allt annað en sáttir við að dóttir þeirra hafi verið útskrifuð af sjúkrahúsi í gær.

Amy Winehouse flytur til Osbournes fjölskyldunnar

Það er klikkað en gæti virkað. Amy Winehouse ætlar að flytja inn til Osbournes fjölskyldunnar. Það hljómar ekkert vel að flytja inn til klikkuðustu fjölskyldu veraldar þegar maður ætlar að taka það rólega eftir meðferð.

35 milljónum veitt úr styrktarsjóði Baugs Group

„Ég vil læra íslensku" námsefni í íslensku sem annað tungumál, er eitt þeirra verkefna sem hlaut styrk í dag, við úthlutun úr Styrktarsjóði Baugs Group. Fjörutíu og sex einstaklingar og félög hlutu styrki úr sjóðnum, samtals um 35 og hálf milljón króna. Í tilkynningu frá Baugi Group segir að tæplega 350 umsóknir hafi borist að þessu sinni en þetta er í fimmta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum.

Gray's Anatomy stjarna með húðkrabba

Leikarinn Eric Danes, sem leikur hinn kynþokkafulla Mark Sloan í Gray's Anatomy, segir í nýjasta tölublaði OK Magazine frá sínum eigin læknaraunum.

Dauði Heaths var slys

Dauði Heaths Ledgers var slys, tilkominn vegna misnotkunar á lyfsseðilsskyldum lyfjum. Þetta er niðurstaða eiturefnarannsóknar sem réttarmeinafræðingar kynntu í dag.

Ólafur F. betlar nammi í Garðabæ

Í dag er öskudagur. Flest öll börn landsins hafa því klætt sig í grímubúning og sungið fyrir landsmenn eins og venja er. Misjafnt er hvað börnin vilja vera á öskudaginn.

Glanssamkvæmum kringum Óskarinn fækkar

Einu af flottustu samkvæmunum kringum Óskarsverðlaunahátíðina, Vanity Fair partýinu, hefur verið aflýst, til að sýna stuðning við verkfall handritshöfunda.

Áfengismeðferð besta fegrunarráðið?

Amy Winehouse fékk dagsleyfi frá meðferð í dag til að heimsækja eiginmanninn, Blake Fielder-Civil, í fangelsið. Aldrei þessu vant leit söngkonan stórvel út, og brosti meira að segja að ljósmyndurum undan svartri heysátunni.

Jeremy Clarkson kemur til landsins á morgun

Jeremy Clarkson einn umsjónarmanna þáttarins, Top Gear, kemur til landsins á morgun. Verður hann viðstaddur sérstaka forsýningu á Top Gear þætti í Laugarásbíó annað kvöld.

Skráning að hefjast á Músíktilraunir

Undirbúningur fyrir Músíktilraunir 2008 er að hefjast. Keppnina þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, en vandfundinn er sá íslenski tónlistamaður sem ekki hefur komið nálægt henni á einn eða annan hátt.

Pabbi J-Lo staðfestir að hún eigi von á tvíburum

Jennifer Lopez á von á tvíburum. Pabbi hennar staðfesti þetta í samtali við Escándalo TV sjónvarpsstöðina á dögunum. Hann sagði dóttur sína vera í skýjunum, enda hefði hana lengi langað í börn.

Jordan er óánægð með brjóstin

Glamúrmódelinu Jordan finnst brjóst sín allt of stór, þrátt fyrir að hún hafi látið minnka þau í desember síðastliðnum. Jordan, sem réttu nafni heitir Katie Price, hafði ætlað að fara úr stærð 32G niður í 32C. Þegar bólgan hjaðnaði og marið hvarf kom hinsvegar í ljós að þau voru enn í stærð 32F.

Tarantúlan reyndi að sleppa

Tarantúlan sem lögregla á Suðurnesjum lagði hald á við húsleit í gærkvöldi, reyndi að flýja örlög sín hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja í morgun.

Paul McCartney og Heather Mills brýna sverðin

Bítillinn Paul McCartney og fyrrverandi spúsa hans Heather Mills búa sig nú undir fimm daga réttarhöld til að ákveða endanlega hve mikið hún hún fær úr búinu. Eftir miklu er að sælast, en Paul er talinn rúmlega hundrað milljarða virði.

Keyrði á vegg til að sýna sig fyrir kærustunni

Veðrið undanfarnar vikur hefur glatt margan bílaáhugamanninn, en þeir geta nú æft handbremsubeygjur á snjó og ís líkt og aldrei fyrr. Vísi barst í dag myndband úr öryggismyndavél á bílaplani R. Sigmundsson frá 20. janúar þar sem stoltur pickup eigandi sýnir listir sýnar, með misjöfnum árangri.

Íþróttaálfurinn blandar sér ekki í bresk stjórnmál

„Þetta er algjör þvæla frá upphafi til enda,“ segir Kristján Kristjánsson upplýsingafulltrúi Latabæjar. Hann segir ekkert hæft í frétt breska blaðsins Daily Telegraph þar sem greint er frá því að íþróttaálfurinn verði andlit stefnu íhaldsflokksins í offitumálum barna, sem verður kynnt á fimmtudaginn.

Hefner reynir að barna kærustuna

Playboy kóngurinn Hugh Hefner hefur engan tíma til að sóla sig á Flórída og spila golf með jafnöldrum sínum. Hinn áttræði Hefner stendur nú í ströngu við að reyna að barna kærustuna sína, hina 28 ára Holly Madison.

Íhaldsmenn vilja íþróttaálfinn

David Cameron leiðtogi íhaldsmanna í Bretlandi bindur vonir við að íþróttaálfurinn muni hvetja bresk börn í baráttunni við skvapið.

Foreldrar Ragnars í Danmörku

Almennar sýningar hefjast í lok febrúar á Foreldrum Ragnars Bragasonar og Vesturports, en Börn hefur verið þar í sýningum frá desember og hlotið afar lofsamlega dóma.

Leggur Indland að fótum sér

Vinjettuhöfundurinn Ármann Reynisson ferðaðist um þvert Indland í um tvo mánuði til þess að viða að sér efni og fá nýtt blóð í sagnabrunninn. Vinjettur Ármanns féllu Indverjum almennt mjög vel í geð.

Metáhorf á Super Bowl

Úrslitaleikurinn í Super Bowl sem fram fór síðustu nótt sló 12 ára gamalt áhorfsmet en 97,5 milljónir manna sátu límdar fyrir framan sjónvarpstækin á meðan á leiknum stóð. Gamla metið var frá 1996 þegar Dallas bar sigurorð af Pittsburgh. Raunar var áhorfið í gær svo mikið að aðeins einn sjónvarpsviðburður státar af meira áhorfi í sögu sjónvarpsins í Bandaríkjunum.

Eggert Þorleifs í nýjum gamanþætti á Stöð 2

Rjómi gamanleikara landsins mun koma saman í nýjum grínþætti sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur. Þátturinn ber vinnuheitið Ríkið og verður „sketsa" þáttur í svipuðum anda og Fóstbræður, Svínasúpan og Stelpurnar. Ríkið verður í leikstjórn Silju Hauksdóttur, og mun skarta stjörnum á borð við Eggert Þorleifsson, Sveppa og Audda auk ýmissa leikara sem eru að stíga sín fyrstu skref. Sigurjón Kjartansson skrifar handritið ásamt fjöldi valinkunna spéfugla.

Eva Mendez í meðferð

Leikkonan Eva Mendes hefur trendinu í Hollywood og skráð sig í meðferð. Samkvæmt heimildum TMZ hefur leikkonan dvalið í nokkrar vikur á meðferðarheimilinu Cirque Lodge í Utah fylki til að reyna að komast yfir eiturlyfjafíkn sína.

Íslenskt réttardrama væntanlegt næsta vetur

Það stefnir vafalaust í fráhvarfseinkenni hjá mörgum nú þegar síðasti þátturinn af Pressu er afstaðinn og búið að afhjúpa hinn illa Davíð. Þeir geta þó tekið gleði sína á ný, en nýtt réttardrama úr smiðju Sigurjóns Kjartanssonar er væntanlegt á Stöð 2 á næstu misserum.

Börn Michaels Jacksons fest á filmu

Sjaldgæfar myndir náðust af börnum Michaels Jacksons á dögunum, þegar hann gleymdi að hylja andlit þeirra í á leiksýningu í Las Vegas. Ekki er víst að myndirnar geri mikið til að draga úr efasemdum um faðerni þeirra, en erfitt er að sjá svip með föður og börnum. Það þarf þó ekki að segja mikið, en eins og frægt er orðið er ekki mikið upprunalegt framan í Michael.

Angelina er hrædd um tvíburana

Þó opinberlega hafi ekkert verið gefið út um yfirvofandi fjölgun í barnaskara Brangelinu segja vinir Jolie að ekki einungis sé hún ófrísk, hún glími líka við sérdeilis erfiða meðgöngu.

Liza Minnelli stal senunni í New York

Liza Minnelli kom áhorfendum New York tískuvikunnar á óvart í gær þegar hún söng einkennislag sitt „New York, New York“ á tískusýningarpalli rauðkjólasýningar Heart Truth. Sýningunni er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um hjartasjúkdóma hjá konum. Þar koma fram söngkonur, leikkonur og fyrirsætur í rauðum kjólum þekktra tískuhönnuða.

Fyrrverandi kona Ledger miður sín

Fyrrverandi sambýliskona leikarans Heath Ledger segist vera miður sín vegna fráfalls hans og biður um að hún og dóttir þeirra fái að syrgja í friði.

Síðasta sýningarhelgi og ljósmyndaraspjall

Nú stendur yfir síðasta sýningarhelgi sýningarinnar Undrabörn sem vakið hefur mikla athygli síðan hún var opnuð í Þjóðminjasafninu í september síðastliðnum. Á sýningunni má sjá ljósmyndir Mary Ellen Mark og Ívars Brynjólfssonar og kvikmyndina Alexander eftir Martin Bell sem er sýnd í fyrirlestrasalnum á hverjum degi, þrisvar á dag.

Spice Girls stytta tónleikaferðalag

Spice Girls kenna fjölskyldu- og einkaskuldbindingum um að þær hafa stytt heimstónleikaferðalag sitt og halda síðustu tónleikana í Toronto í Kanada 26. febrúar. Hætt verður við fyrirhugaða tónleika í Peking, Sydney, Höfðaborg og Buenos Aires.

Snipes sýknaður af ákæru um fjársvik

Bandaríski kvikmyndaleikarinn Wesley Snipes hefur verið dæmdur fyrir að skila ekki skattframtali af bandarískum dómstól, en hann var sýknaður af alvarlegri ákærum um fjársvik. Kvikmyndastjarnan var ákærð fyrir að greiða ekki skatt af tæplega fjögurra milljarða króna tekjum á árunum 1999 til 2004.

Faðir Spears úrskurðaður lögráðaaðili

James Spears faðir Britney Spears er nú lögráðaaðili yfir dóttur sinni og eigum hennar samkvæmt úrskurði dómstóls í Los Angeles. Söngkonan var flutt á geðdeild UCLA sjúkrahússins á fimmtudag eftir langvarandi óreglu og persónuleg vandamál. Dómstóll getur svipt manneskju lögræði sem ekki getur séð um sig sjálfa eða stjórnað eigin lífi.

Í þriðja sinn á forsíðu Playboy

Skutlurnar Holly Madison, Bridget Marquardt og Kendra Wilkinson, kærustur Playboy-kóngsins Hughs Hefner, birtast í þriðja sinn á forsíðu tímaritsins á næstunni.

Aðdáendur Sigga Páls fagna

Sigurður Pálsson hlaut á fimmtudaginn Íslensku bókmenntaverðlaunin 2007 í flokki fagurbókmennta fyrir Minnisbók. Fáir fögnuðu sigri Sigurðar jafn innilega og meðlimir Singapore Sling. Þeir voru staddir úti í Berlín í gær þegar þeir heyrðu fréttirnar. „Þetta voru frábær tíðindi,“ segir Henrik Björnsson söngvari. „Við opnuðum kampavínsflösku um leið og við heyrðum þetta.

Sjá næstu 50 fréttir