Fleiri fréttir

Sirrý skrifar bók um Örlagadaga, síðasti þátturinn á dagskrá í kvöld.

Sjónvarpskonan Sirrý sest í kvöld við skriftir, en hún ætlar að skrifa bók unna upp úr sjónvarpsþætti sínum Örlagadeginum. „Þetta eru tvær seríur, fjórtán og þrjátíu þættir, svo af nógu er að taka.“ segir Sirrý. Hún segist hafa fundið fyrir þrýstingi um að koma þessum oft á tíðum mögnuðu lífsreynslusögum til stærri hóps, fólks sem ekki hefur haft aðgang að Stöð 2, eða hefur misst úr þætti.

Þotuliðið fagnaði nýju ári á Hótel Borg

Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, Svafa Grönfeld, rektor Háskólans í Reykjavík, og Sindri Sindrason stjórnarfomaður Eimskips voru meðal gesta á nýársfagnaði á Hótel Borg.

Þjóðin fór ekki á annan endann yfir Remax auglýsingu

Það eru skiptar skoðanir um fyrstu auglýsinguna sem landsmönnum er boðið upp á í miðju áramótaskaupsins. Skaupið er líklega langvinsælasta sjónvarpsefni á landinu, og er vart mannsbarn sem ekki situr límt fyrir framan skjáinn þessar síðustu stundir ársins. Margir höfðu spáð því að það fyrirtæki sem auglýsti í þessu heilagasta sjónvarpsefni landsins myndi uppskera óvild þjóðarinnar.

Jón Ásgeir á nýrri einkaþotu til að vígja nýja lúxussnekkju

Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson flaug ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Pálmadóttur til Jamaíka seinnipartinn í gær. Fararkosturinn var glæný einkaþota Jóns Ásgeirs af gerðinni Falcon 2000 og tilgangur ferðarinnar er að vígja nýja lúxussnekkju þeirra hjóna.

Bubbi sáttur við sjálfan sig í Skaupinu

„Það er nú bara einn leikari sem er með licence to kill á Bubba og það er Hjálmar Hjálmarsson,“ segir Bubbi Morthens um frammistöðu Jóns Gnarr í Áramótaskaupinu.

Habitat-parið gengur í hjónaband

„Það voru einhverjir guðir góðir við okkur,“ sagði Ingibjörg Þorvaldsdóttir, en hún og Jón Arnar Guðbrandsson giftu sig í Dómkirkjunni í miðju aftakaveðrinu sunnudaginn 30. desember síðastliðinn. „Athöfnin var klukkan hálfsex og við vorum svo heppin að það lægði akkúrat á meðan svo það komust allir inn í kirkjuna.“

Giftist sterkustu konu Bretlands

Benedikt Magnússon kraftajötunn giftist sterkustu konu Bretlands um næstu helgi. Sú heppna heitir Gemma Taylor og er sterkasta kona Bretlands.

Lindsay nær í þrjá gæja á sólarhring

Lindsay Lohan er kannski hætt að drekka, en hún er alls ekkert hætt að skemmta sér. Leikkonan var viðstödd kvikmyndahátíð í Capri á Ítalíu á dögunum, þar sem hún náði að kela við þrjá ítalska karlmenn á einum sólarhring.

Tarantino í hettupeysu á nýársfagnaði

Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Quentin Tarantino heiðraði gesti á nýársfagnaði á Hótel Loftleiðum með nærveru sinni ásamt vinum sínum Eli Roth og Eyþóri Guðjónssyni.

Viktoría skrifar bók

Victoria Beckham, sem eitt sinn upplýsti að hún hefði aldrei lesið bók til enda ætlar sjálf að skrifa bók, að sögn breska blaðsins Daily Star.

Rooney rokkar og kærastan rakar saman seðlunum

Knattspyrnukappinn Wayne Rooney hjá Manchester United hefur fengið nýtt áhugamál. Breska dagblaðið The Sun segir frá því að nú standi yfir framkvæmdir heima hjá drengnum en hann er að láta innrétta tónlistarstúdíó sem kostar um hálfan milljarð íslenskra króna.

Hlómsveitin Bermuda kaupir auglýsingu fyrir Skaupið

„Það var maður sem sá okkur spila á tónleikum og leyst svona vel á. Hann spurði síðan hvort hann gæti ekki aðstoðað okkur og við fengum hann til þess að kaupa sjónvarpsauglýsingu handa okkur,“ segir Gunnar Þortseinsson trommuleikari hljómsveitarinnar Bermuda.

Kallinn fluttur til geðhjúkrunarfræðingsins

„Ég vil þakka fyrir titilinn símtal ársins á Bylgjunni,“ segir konan sem hringdi inn á Bylgjuna á dögunum og upplýsti hlustendur um bólfarir mannsins síns með geðhjúkrunarfræðingi á Landspítalanum.

Tarantino með íslenskri snót á Tapas

Hollywoodleikstjórinn Quentin Tarantino sem staddur er hér á landi skellti sér á Tapas barinn í gærkvöldi. Snæddi hann þar kvöldverð með ungri íslenskri snót.

Tarantino áramótateitið verður á Rex

Quentin Tarantino er búinn að tryggja sér skemmtistaðinn Rex í Austurstræti fyrir gamlárskvöld. Samkvæmt heimildum Vísis hefur hann fengið ungan mann að nafni Roman Olney, sem er klúbbeigandi í London, til þess að sjá um að skipuleggja veisluna.

Mest pirrandi manneskja ársins

Lesendur Parade tímaritsins völdu Rosie O´Donnell mest pirrandi manneskju ársins 2007. Rosie hlaut atkvæði 44% þeirra sem kusu en á eftir henni kom Paris Hilton með 24% atkvæða. Frjálshyggjupostulinn Ann Coulter fékk svo 16% og Heather Mills 12%.

Uppselt á tónleika til styrktar krabbameinssjúkum börnum

Uppselt er á tónleika sem Popp-landslið Íslands stendur fyrir í Háskólabíó í dag. „Þetta er fyrir löngu orðin fastur viðburður í dagatalinu hjá okkur og ég er bæði hrærður og þakklátur yfir þessum frábæru viðtökum. Þetta er auðvitað fyrst og síðast þessum frábæru listamönnum að þakka.

Lindsay Lohan verður verðlaunuð

Lindsay Lohan á von á verðlaunum. Það vekur sérstaka athygli að verðlaunin sem hún fær eru ekki veitt fyrir metfjölda áfengismeðferða. Nei, Lohan verður verðlaunuð á Capri kvikmyndahátíðinni næstkomandi föstudag. Hún er þegar mætt til Capri, þar sem hún spókar sig á götunum og ráfar um búðir.

Nicole Kidman er ófrísk

Nicole Kidman og Keith Urban, eiginmaður hennar, eiga von á erfingja. Þau tilkynntu fjölskyldum sínum um þetta um jólin, samkvæmt Daily Mail. Þetta verður fyrsta barnið sem Kidman elur sjálf, en hún og Tom Cruise ættleiddu tvö börn saman. Þau eru nú 12 og 14 ára gömul.

Flókið samband fólks í Texas

Í kvöld dregur til tíðinda í íslensku leikhúslífi þar sem nýr atvinnuleikhópur sem kallast Silfurtunglið frumsýnir leikritið Fool for Love í Austurbæ.

Slegin í andlitið á tónleikum Idolstjörnu

Vísir sagði frá því í morgun að ráðist hefði verið á mann í Bankastræti fyrir utan skemmtistaðinn Sólon. Var hann sleginn í andlitið og kinnbeins- og nefbrotinn auk þess sem nokkrar tennur brotnuðu.

Angelina Jolie elskar kynlífssenur

Leikonan kynþokkafulla Angelina Jolie, ætlar ekkert að láta það að vera betri helmingur fallegasta pars í heimi trufla sig í því sem hún hefur gaman af. Og leikkonan veit fátt skemmtilegra en að leika í kynlífssenum. ,,Þið eruð tveir fullorðnir einstaklingar og hafið gaman hvort að öðru og vitið að það þýðir ekkert" sagði leikkonan.

Tarantino og Eli Roth dúða sig að hætti Íslendinga

Félagarnir Quentin Tarantino og Eli Roth til Íslands í gær til þess að vera yfir áramótin. Kannski að þeir hafi lesið veðurspána fyrir gamlárskvöld, en eitt af því fyrsta sem þeir félagar gerðu var að fara í verslun 66°Norður í Bankastræti og birgja sig upp af hlýjum og flottum fatnaði.

Nýjasta viðbótin í Spears fjölskylduna rangt feðruð?

Enn flækjast málin hjá Jamie litlu Lynn Spears. Bandarískt tímarit heldur því fram að Casey Aldridge sé alls ekki pabbi ófædds barns hennar, heldur yfirmaður við sjónvarpsþátt hennar, Zoey 101 á Nickelodeon stöðinni. Sá mun vera töluvert eldri en hinn nítján ára Casey.

Sean Connery er feitt, gamalt skrímsli, segir nágranni

Kynþokkafyllsti eldri borgari í heimi, Sean Connery, á í harðvítugum deilum við nágranna sinn. Svo mjög að dómari í máli sem nágranninn höfðaði gegn Bondinum, sá sig knúinn til að skipa málsaðilum að hegða sér eins og fullorðið fólk.

Á engin málverk eftir sjálfan sig

Um tveggja ára biðlisti er eftir olíumálverkum listmálarans Eggerts Péturssonar, sem vakið hefur mikla athygli fyrir blómamyndir sínar undanfarin ár, en tvær sýningar á verkum hans voru haldnar hér á landi á árinu og vöktu báðar mikla athygli, annars vegar yfirlitssýning á Kjarvalsstöðum og hins vegar sýning í galleríi I8.

Rebecca De Mornay tekin fyrir ölvunarakstur

Það er ekki bara unga fólkið í Hollywood sem er nappað fyrir ölvunarakstur þessa dagana. Rebecca De Mornay virðist að minnsta kosti á árunum sínum 48 ekki hafa lært að það borgar sig að láta bílinn vera hafi maður fengið sér neðan í því. Hún var í gær formlega ákærð fyrir ölvunarakstur.

Jennifer Aniston með nýjan kærasta

Jennifer Aniston er komin með nýjan mann upp á arminn og hefur því væntanlega eitthvað annað að hugsa um en endalausar fréttir af sínum fyrrverandi og hans núverandi, hinni ægifögru Angelinu Jolie. Raunar afþakkaði Jennifer boð móður Brads Pitts um að verja jólunum með henni, til þess að vera með sínum heittelskaða.

Jessica Alba trúlofast

Jessica Alba hefur trúlofast kærasta sínum og verðandi barnsföður, Cash Warren. Um jólin sást glitta í rixavaxinn demantshring á fingri Jessicu, og fór orðrómur þá af stað um að parið ætlaði að láta pússa sig saman.

Sean Penn að skilja

Sean Penn og eiginkona hans Robin Wright Penn eru að skilja. Talsmaður hjónanna staðfesti þetta við People tímaritið, en vildi ekki útskýra málavexti nánar.

Íslenskt skítviðri um áramót

Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur er ekki bjartsýnn á gott skotveður um áramótin. ,,Þetta er ekkert veður, þetta er eiginlega bara viðrini." segir Siggi.

Sextíu milljónir fyrir frásögn af meðgöngunni

Tímaritið OK greiddi Jamie Lynn Spears, systur Britney og Lynne móður þeirra eina milljón bandaríkjadala, eða sem samsvarar um 60 milljónir íslenskra króna, fyrir einkaréttinn á frásögn af meðgöngu Jamie og forkaupsrétt á öðru efni sem tengist þungun hennar, svo sem einkarétt á að birta fyrstu myndir af barninu.

Standa fyrir stefnumótum á Xbox Live

„Við erum aðallega að vinna í því að fá Xbox Live! til landsins, en síðan erum við með ýmislegt fleira planað fyrir næsta ár,“ segir Örvar G. Friðriksson, umsjónarmaður xbox360.is, vefsíðu íslenska Xbox samfélagsins.

Tarantino lentur og fagnar nýju ári á Íslandi

Leikstjórinn síglaði Quentin Tarantino ætlar að fagna nýju ári á Íslandi. Tarantino sem fyrir löngu er orðinn einn af bestu vinum Íslands kom með flugi frá New York í morgun.

Mischa Barton tekin fyrir ölvunarakstur

OC stjarnan Mischa Barton var handtekin í morgun grunuð um ölvun við akstur. Hún er próflaus og hafði undir höndum ólögleg fíkniefni. Barton er enn í haldi lögreglu, en verður látin laus gegn tíu þúsund dollara tryggingu.

Britney á hóteli með paparassa

Britney Spears hefur tekið upp nýjar og óvæntar aðferðir til að kljást við paparassana sem fylgja henni í hvert fótmál. Aðfaranótt sunnudags var Britney á ferð með paparassahernum sínum, þegar hún ákvað skyndilega að hoppa upp í bíl hjá einum þeirra, Adnan Ghalib.

Síðasta 90s partýið á gamlárskvöld

DJ Kiki-Ow og DJ Curver halda á gamlárskvöld sitt síðasta 90s Partí á Nasa. Skötuhjúin hafa undanfarin tvö ár tryllt lýðinn með NO LIMITS-kvöldum sínum, þar sem fólk hefur veifað ,,glowsticks" og dansað sig sveitt við ljúfa tóna tíunda áratugarins.

McDonalds í jólamatinn hjá Brangelinu

Fylltir kalkúnar og annað hefðbundið jólagotterí voru ekkert að þvælast fyrir á jólaborði Brads Pitt og Angelinu Jolie þetta árið. Þvert á leiðbeiningar manneldisráðs borðaði fallegasta fólk heims sveittan hamborgara í jólamatinn.

Ilmur Kristjáns á uppleið í fjármálageiranum

Silja Hauksdóttir og Ilmur Kristjánsdóttur ásamt handritsmógúlnum Sigurjóni Kjartanssyni sitja nú sveitt við skriftir fyrir nýja gamanþáttaröð með dramatísku spennu-ívafi sem sýnd verður á Stöð 2 á næsta ári.

Rihanna í jólaboði Abramovich

Það eru ekki bara íslenskir auðmenn sem vilja alþjóðlegar poppstjörnur í veislurnar sínar. Roman Abramovich bauð til að mynda upp á söngkonuna Rihönnu í jólaboði sínu í Moskvu um síðustu helgi.

Sjá næstu 50 fréttir