Lífið

Giftist sterkustu konu Bretlands

Benedikt Magnússon
Benedikt Magnússon

Benedikt Magnússon kraftajötunn giftist sterkustu konu Bretlands um næstu helgi. Sú heppna heitir Gemma Taylor og er sterkasta kona Bretlands.

Kunnugir segja að samband þeirra hafi ávalt verið mjög sterkt en parið hefur verið saman í tæp tvö ár. Gemma sem er 24 ára gömul hefur tvisvar sigrað keppnina um sterkustu konu Bretlands en hefur tekið sér frí frá lóðunum upp á síðkastið.

Parið hefur búið á Íslandi undanfarið eitt ár en Benedikt er núverandi sterkasti maður Íslands. „Við erum að fara í brúðkaupið, en þau hefðu nú getað gert þetta í sumar þegar það er heitar. Veðrið þarna er ögn kaldara en hér og við vonum að við missum af mesta kuldabolanum þarna uppfrá," sagði Ron Taylor faðir brúðarinnar við breska vefmiðlinn Gazette Herald.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×