Fleiri fréttir

Yndislegur metnaður

Hljómsveitin Skátar fær góðan dóma fyrir fyrstu plötu sína, Ghost of the Bollock to Come, í enska tónlistartímaritinu Plan B Magazine. Þar segir að platan sé aldeilis frábær þar sem ýmsum tónlistarstefnum sé blandað saman.

Tónleikaferð lokið

Hljómsveitin The Rolling Stones hefur lokið "A Bigger Bang"-tónleikaferð sinni um heiminn sem hefur staðið yfir í tvö ár. Orðrómur hefur verið á kreiki um að þetta sé síðasta tónleikaferð sveitarinnar, enda Jagger, Richards og félagar komnir vel á sjötugsaldurinn.

Hjaltalín og Magnet - fjórar stjörnur

Norræna menningarhátíðin Reyfi er eitt stórt metnaðarfullt fyrirbæri sem hefur ekki fengið nærri nógu mikla umfjöllun. Menningaratburðir af þessu tagi hefur vantað í íslenskt þjóðlíf. Sérstakur glerskáli hefur verið fluttur til landsins til þess að hýsa aðalatburði hátíðarinnar og sómaði hann sig vel á lóðinni fyrir utan Norræna húsið.

Metgróði vestanhafs

Tekjur af miðasölu í kvikmyndahúsum vestanhafs hafa í fyrsta sinn rofið fjögurra milljarða dollara markið yfir sumartímann sem samsvarar rúmlega 250 milljörðum króna.

Í Höllinni í október

Tónlistarmaðurinn Rúnar Júlíusson heldur stórtónleika í Laugardalshöll 27. október. Þar mun Rúnar, ásamt stórri hljómsveit, flytja mörg sín bestu lög af löngum ferli, auk laga af nýjustu plötu sinni, Snákar í garðinum.

Fyrsta plata Eagles í 28 ár

Sveitarokksveitin The Eagles gefur þann 31. október út sína fyrstu hljóðversplötu með nýju efni í 28 ár. Platan heitir Long Road Out Of Eden og nefnist fyrsta smáskífulagið How Long.

Feðgin sungu með Sniglabandinu

Tónlistarmaðurinn Magnús Þór Sigmundsson steig óvænt á svið með Sniglabandinu er þeir útvörpuðu beint frá Hveragerði síðastliðinn sunnudag. "Ég var bara staddur þarna og þeir kölluðu mig upp," segir Magnús Þór, sem söng með þeim lag sitt "Jörðin sem ég ann".

Eftirpurn eftir Simpson

Mikil eftirspurn er eftir væntanlegri bók O.J. Simpson, If I Did It, sem fjallar um morðin á fyrrverandi eiginkonu hans og kærasta hennar. Bókin verður ekki fáanleg í bókabúðinni þekktu Barnes & Nobles en þess í stað verður hægt að kaupa hana á heimasíðu verslunarinnar, þar sem forsala hefur gengið afar vel.

Britney sökuð um að bursta ekki tennur barna sinna

Barnaverndaryfirvöld í Los Angeles rannsaka nú Britney Spears sem hefur verið ákærð fyrir slæma meðferð á börnum sínum. Ásakanirnar snúast um slæma tannhirðu, lélegt mataræði og vondar svefnvenjur, að því er bandarísk slúðurblöð greina frá í dag.

Sienna Miller vill festa ráð sitt og eignast börn

Sienna Miller hefur ekki setið aðgerðarlaus síðan hún losaði sig við kvennabósann Jude Law og átt ófá stefnumót við hina ýmsu menn. Hún er þó komin með nóg af skyndikynnum og vill fara að festa ráð sitt. Síðasti opinberi kærastinn var fyrirsætan Jamie Burke en hann bjó í New York á meðan Miller bjó í London.

Óttast um Amy og Blake

Tengdafaðir Amy Winehouse hefur miklar áhyggjur af söngkonunni og syninum Blake Fielder-Civil og segist óttast að þau bætist í hóp ungstirna sem látist hafa fyrir aldur fram. Stjúpfaðir Amy hefur einnig lýst yfir áhyggjum sínum og óttast að fíkniefnavandi hjónanna dragi þau til dauða.

Manhunt 2 kemur út í Bandaríkjunum

Hinn umdeildi tölvuleikur Manhunt 2 sem bannaður var í Bretlandi og Bandaríkjunum hefur risið upp frá dauðum í breyttri útgáfu. Nýja útgáfan verður leyfð fyrir 17 ára og eldri notendur og kemur út fyrir hrekkjavöku í Bandaríkjunum.

Vel heppnuð afmælisveisla hjá löggunni

Embætti Ríkislögreglustjóra hélt starfsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra veislu í Viðey um helgina. Veislan var haldin í tilefni 10 ára afmælis embættisins þann 1. júlí síðastliðinn. Að sögn Guðmundar Guðjónssonar yfirlögregluþjóns heppnaðist veislan afar vel og voru um 140 manns samankomnir í Viðey.

Renee Zellweger skreppur saman

Leikkonan Renee Zellweger sem flestir muna eftir úr myndunum um hina bústnu og heimilislegu Bridget Jones er svo sannarlega búin að ná af sér þeim aukakílóum sem hún bætti á sig fyrir hlutverkið í myndunum. Nú er svo komið að mörgum þykir nóg um.

Vanræktir hundar á heimili rapparans DMX

Lögregla gerði rassíu á heimili rapparans DMX í Arizona á dögunum og fann þar 12 vanrækta hunda. Auk þess voru þrír hundar grafnir í garði rapparans. Nágrannar gerðu lögreglu viðvart en hundarnir höfðu hvorki fengið vott né þurrt um langt skeið.

Við tökum þyrluna!

Hollywoodparið Brad Pitt og Angelina Jolie hafa mikið látið að sér kveða í alls kyns góðgerðarmálum. Þau hafa ættleitt þrjú börn frá mismunandi heimsálfum og stendur Pitt nú fyrir góðgerðarverkefni í New Orleans sem miðar að uppbyggingu borgarinnar á umhverfisvænan hátt, eftir þær skemmdir sem fellibylurinn Katarina olli fyrir tveimur árum.

Britney enn og aftur í vandræðum

Umferðarlögregla stöðvaði Britney Spears fyrir of hraðan akstur á leið hennar til Las Vegas í gærkvöldi. Lögreglan gaf henni merki um að stöðva á hraðbrautinni en hún lét þó ekki segjast fyrr en eftir þó nokkra kílómetra.

Owen Wilson á spítala eftir sjálfsmorðstilraun

Hollywoodleikarinn Owen Wilson sem meðal annars gerði garðinn frægan í myndinni Wedding Crashers dvelur nú á spítala eftir sjálfsmorðstilraun. Leikarinn er sagður hafa skorið sig á púls eftir að hafa tekið inn töluvert magn af lyfjum.

Reynir nýr ritstjóri DV

Reynir Traustason mun taka við starfi ritstjóra DV á næstu dögum. Hann mun starfa við hlið núverandi ritstjóra Sigurjóns M. Egilssonar og verður þeirra verkefni í sameiningu að koma lestri blaðsins á þann stað sem telst viðunandi fyrir eigendur útgáfunnar. Í samtali við Vísi sagðist Reynir ekki geta tjáð sig um málið en að það myndi skýrast seinna í dag.

Kate Moss að hverfa

Vinir Kate Moss hafa miklar áhyggjur af fyrirsætunni, en hún hefur hríðhorast frá því hún hætti með dóphausnum Pete Doherty. Að sögn Daily Mail hefur hún misst fimm kíló á síðustu þremur vikum, og borðar því sem næst ekkert.

Björn vill ekkert annað en Benz

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra er greinilega hrifinn af þýska bílaframleiðandanum Mercedes Benz. Hann á tvo slíka gráa bíla, jeppa og fólksbíl, auk þess sem ráðherrabifreið hans er að sjálfsögðu Benz.

Xbox ofhitnar

Vandræðunum með leikjatölvuna xbox 360 er ekki lokið. Nú er unnið að því að skipta út þráðlausu kappakstursstýrinu eftir að um fimmtíu tilvik hafa komið upp þar sem stýrin hafa ofhitnað og reyk lagt úr þeim.

Lindsay í ástaratlotum á salerni

Leikkonan og djammdrottningin Lindsay Lohan var gómuð í ástaratlotum á salerni meðferðarstofnunarinnar Cirque Lodge í Utah að því er breska götublaðið News of the World heldur fram. Heimildarmaður blaðsins sagði starfsmenn stofnunarinnar hafa heyrt undarleg hljóð koma frá einum af salernisklefunum.

PS3 tekur upp úr sjónvarpi

Sony kynnti í vikunni nýja viðbót við Playstation 3 leikjatölvuna, PlayTV, sem breytir tölvunni í upptökutæki. Tækið gerir notendum kleift að taka upp og spila stafrænar sjónvarpsútsendingar í gegnum leikjatölvuna.

Diaz og Law saman í frí á Havaí

Stjörnuleikarnir Jude Law og Cameron Diaz ætla saman í frí til Havaí. Þau kynntust við tökur á myndinni The Holiday og fór svo vel með á þeim að þau fóru á nokkur stefnumót. Nú er það hins vegar sumarfrí sem er á döfinni hjá skötuhjúnum. Áfangastaðurinn er Havaí þar sem Diaz dvaldi langdvölum með fyrrverandi kærasta sínum Justin Timberlake.

Tvær barnfóstrur löbbuðu út frá Beckham-hjónunum

Breska götublaðið News of the World heldur því fram að tvær barnfóstrur sem David og Victoria Beckham höfðu ráðið til að gæta þriggja sona sinna, Brooklyn, Romeo og Cruz, höfðu fengið nóg og sagt upp vegna framkomu hjónanna í sinn garð sem þær segja að hafi verið niðurlægjandi.

Leikstjóri Boyz N The Hood varð konu að bana

Hollywood leikstjórinn, John Singleton, komst í hann krappann á fimmtudaginn þegar hann ók Lexus bifreið sinni á gangandi vegfaranda. Konan sem varð fyrir bílnum var flutt á spítala þar sem hún var úrskurðuð látin á föstudagsmorgun.

Pavarotti útskrifaður af sjúkrahúsi

Stórtenórinn Luciano Pavarotti var í dag útskrifaður af sjúkahúsi í Modena á Ítalíu þar sem hann hefur dvalið undanfarnar tvær vikur í alls kyns rannsóknum. Pavarotti var skorinn upp við krabbameini í blöðruhálskirtlinum fyrir einu ári og óttuðust þá margir að hann hefði sungið sinn svanasöng. En nú er þessari hrinu rannsókna lokið og því gat Pavarotti haldið heim á leið.

Hákon krónprins styður Mörtu systur

Hákon krónprins Noregs tjáði sig í dag í fyrsta sinn um englaskólann sem systir hans Marta hefur sett á laggirnar við litla hrifningu samlanda sinna. Hákon stendur þétt við bakið á systur sinni og segist gleðjast yfir því að hún hafi fundið eitthvað sem heillar og drífur hana áfram.

Magni - Magni: Tvær stjörnur

Það verður að segjast eins og er að þessi fyrsta sólóplata Magna veldur vonbrigðum. Orðið sem kemur upp í hugann þegar maður hlustar á hana er meðalmennska. Lagasmíðarnar og textarnir eru klisjukenndir og það sama á við um hljóminn og útsetningarnar.

Tölvuleikur varpar ljósi á hræðsluástand

Tölvuleikur sem gefur spilendum raflost varpar ljósi á hvernig maðurinn bregst við yfirvofandi hættu. Rannsóknin leiddi í ljós að mismunandi svæði heilans voru notuð eftir því hversu mikil hættan á raflosti var. Segulsneiðmyndir af heilanum sýndu að virkni fór úr framheilanum í miðheilan þegar kvíði varð að skelfingu.

Katie og Cruise deila ekki svefnherbergi

Heimildarmaður Star tímaritsins hefur greint frá því að hjónin Tom Cruise og Katie Holmes deili ekki svefnherbergi. Ástæðan er sú að Tom hrýtur og Katie þarf að eigin sögn að fá sinn fegurðarblund.

Nýtt barn hjá Beckham hjónunum?

Nýtt land, nýtt hús og nýtt barn hjá Beckham fjölskyldunni! Í viðtali við Daily Mirror á dögunum ræddi Victoria Beckham opinskátt um að hún og maður hennar David Beckham geti vel hugsað sér að bæta við barni. "Okkur langar í annað - kannski á næsta ári," sagði kryddið.

Paris keypti barnaföt á meðan Richie sat í steininum

Paris Hilton fór í gær og keypti rándýr barnaföt í tískuvöruversluninni Intuition handa vinkonu sinni og fyrrum meðleikkonu úr "Simpel Life" þáttunum, Nicole Richie. Á meðan sat Richie af sér fangelsisdóm sem hún hlaut fyrir akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

Hasselhoff vinnur meiðyrðamál

Strandavarðarleikarinn David Hasselhoff vann nýverið meiðyrðamál sem hann höfðaði gegn glanstímaritinu OK. Í blaði sem kom út þriðja júlí er því haldið fram að David hafi haldið upp á það að hafa aftur unnið forræði yfir dætrum sínum með því að hella sig blindfullan á næturklúbbi í Los Angeles.

Richie búin að taka út fangelsisvist sína

Nicole Richie tók út örskamma fangelsisvist sína í gær en hún sat einungis inni í 82 mínútur. Hin ólétta Nicole hefur varla náð að taka upp úr töskum áður en henni var aftur sleppt lausri. Líklega er vinkona hennar Paris Hilton græn af öfund en hún þurfti að sitja mun lengur inni á dögunum.

Þingmenn á skólabekk

Þingmennirnir Birkir Jón Jónsson og Magnús Stefánsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra, hafa ákveðið að setjast á skólabekk.Þeir eru báðir byrjaðir í MBA námi í Háskóla Íslands og því ljóst að nóg verður að gera hjá þeim í vetur.

Amy og eiginmaður hennar rispuð og marin eftir slagsmál

Amy Winehouse ver bónda sinn eftir að bæði sást og heyrðist til heiftarlegra rifrilda þeirra á milli á hóteli í London. Fjöldi mynda náðist af parinu þar sem Blake Fielder-Civil, eiginmaður Amy, var allur klóraður á andliti og hálsi og Amy marin með gat á hnénu og blóðbletti á skónum.

Lindsay Lohan dæmd í eins dags fangelsi

Örlög Lindsay Lohan eru ráðin. Hún hefur verið dæmd til að sitja einn dag í fangelsi auk þess að gegna tíu daga samfélagsþjónustu. Henni er einnig gert að klára áfengis- og fíkniefnameðferð sem hún er í um þessar mundir.

Losar sig við brjóstin

Klámstjarnan Jenna Jameson hefur látið fjarlægja sílikonpúða úr frægum brjóstum sínum og hefur sagt skilið við klámheiminn. Jameson kveðst hundrað prósent ákveðin í að leggja klámið á hilluna, en það mun hafa haft sín áhrif á brjóstaminnkunina.

Frumburðurinn fæddist á sömu mínútu og myndin hófst

„Hún kom í heiminn 21 mínútu yfir átta, nánast á sömu mínútu og myndin byrjaði. Þetta var lygasögu líkast,“ segir leikstjórinn og nýbakaði faðirinn, Gunnar Björn Guðmundsson. Hans fyrsta kvikmynd í fullri lengd, Astrópía, var frumsýnd fyrir troðfullum sal Bíóhallarinnar í Álfabakka í fyrrakvöld en á sama tíma var leikstjórinn sjálfur staddur á fæðingardeildinni að taka á móti frumburði sínum.

Jordan vill líkjast nunnu

Fáklædda fyrirsætan Katie Price, betur þekkt undir nafninu Jordan, hyggur á frekari lýtaaðgerðir. Hún hefur þegar gengist undir brjóstastækkun, brjóstalyftingu og fengið botox-sprautur, og áformar að láta lyfta brjóstum sínum á ný í desember.

Þyngdarlaus hönnun í Loftkastalanum

Guðmundur Hallgrímsson, eða Mundi eins og hann kallar sig, heldur sýningu í Verinu í Loftkastalanum á morgun þar sem hann sýnir vetrarlínu sína. Mundi hannar föt undir merkinu Mundi Design og segir hann fötin framúrstefnuleg og henta best í engu þyngdarafli.

Justin í nýrri mynd Myers

Popparinn Justin Timberlake hefur bæst í leikarahóp nýjustu myndar Mike Myers, The Love Guru. Timberlake og Myers hafa áður unnið saman við talsetningu þriðju myndarinnar um tröllið Shrek.

Ánægður með undirskriftalista

Útvarpsstöðin X-ið 977 hefur farið af stað með undirskriftalista þar sem hún skorar á umboðsmanninn Einar Bárðarson að leggja stráka- og stúlknasveitirnar Luxor og Nylon niður.

Sjá næstu 50 fréttir