Fleiri fréttir

Björgólfur með einkaþjálfara í fullu starfi

Ríkasti maður Íslands, Björgólfur Thor Björgólfsson, er mikið á ferð og flugi starfs síns vegna. Það aftrar honum þó ekki frá því að gefa sér tíma til að sinna heilsunni og þegar hann er staddur hér á landi æfir hann af krafti í Laugum.

Vinir í 101 Gallerí

Helgi Þórsson og Morgan Betz opna í dag samsýninguna Bermuda Love Triangle: the story of Doctor Son and Mister Bates, í 101 Gallerí að Hverfisgötu 18a.

Sótti áhrif í íslensk sjómannaklæði

Hildigunnur Sigurðardóttir lauk nýverið við BA í fatahönnun í skóla í Bretlandi. Þar fékk hún hæstu eink­unn fyrir lokalínu sína og fékk þann heiður að sýna á London Graduate Week ásamt útskriftarnemum úr öðrum skólum.

Í fótspor Möðruvallamunka

Minjasafnið á Akureyri, í samvinnu við Amtmannssetrið á Möðruvöllum, stendur fyrir sögugöngu frá miðaldakaupstaðnum Gásum að Möðruvöllum í Hörgárdal. Gangan hefst á því að Kristín Sóley Björnsdóttir, verkefnisstjóri Gásaverkefnisins, veitir gestum leiðsögn um Gásakaupstað.

Það er engin leið að hætta

Það er eins og gömlu jálkarnir í Rolling Stones geti ekki hugsað sér að hætta að rokka. A Bigger Bang-túrinn sem enn er í gangi er stærsta tónleikaferð sögunnar. Eftir helgina kemur út fjögurra diska DVD-pakki með efni frá honum.

Maraþon í hjólastól

Hjónin Guðrún og Sigurður ætla að hlaupa Glitnismaraþonið þann átjánda águst næstkomandi. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir það að Sigurður ætlar að ýta Guðrúnu í hjólastól alla leiðina - 42 kílómetra.

Spector saklaus?

Allt er komið á hvolf í þrálátum réttarhöldum yfir tónlistarframleiðandanum Phil Spector, sem er sakaður um morð á leikkonunni Lönu Clarkson. Réttarlæknir sem bar vitni í réttarhöldunum á dögunum heldur því fram að líklega hefði leikkonan framið sjálfsmorð og Spector hvergi komið þar nærri.

Syndug hjörtu á Rauðasandi

Laugardaginn 28. júlí verður efnt til menningarkvölds að Saurbæ á Rauðasandi undir yfirskriftinni: Við klukknahljóm syndugra hjarta. Tilefnið er ný útgáfa Bókaútgáfunnar Bjarts á skáldsögunni Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson.

Heimildamynd um íslenskan plötusnúð í bígerð

Verið er að leggja smiðshöggið á heimildamyndina From Oakland to Iceland: Hip Hop Homecoming. Myndin fjallar um þrítugan íslenskan plötusnúð, DJ Platurn, sem hefur verið búsettur í Kaliforníu frá sjö ára aldri, og lifir og hrærist í hip-hop og plötusnúða- menningunni þar. Honum er fylgt eftir í heimsókn á æskuslóðirnar haustið 2006 þar sem hann ferðast um landið, kynnist íslenskum plötusnúðum og röppurum og spilar, meðal annars á Iceland Airwaves hátíðinni.

Simpson frumsýnd á morgun

Kvikmyndin um Simpson fjölskylduna verður frumsýnd hér á landi á morgun. Sama dag verður einnig sýndur á Stöð 2 tímamótaþáttur - sá fjögurhundruðasti í röðinni.

Marc Jacobs til Íslands

Aðdáendur hins heimsfræga hönnuðs Marc Jacobs eru væntanlega glaðir núna því í fyrsta sinn eru vörur frá honum væntanlegar í búð á Íslandi. Það er verslunin Kronkron sem mun selja flíkur úr ódýrari línu hans, Marc by Marc Jacobs en þessa dagana eru „Gleðidagar“ í búðinni þar sem verið er að rýma fyrir Marc ásamt öðrum nýjum og hressandi vörum.

Ítölsk matargerð í blóðinu

Myndlistarkonan Ásdís Spanó eldar forláta pastarétti, enda rennur ítalskt blóð í æðum hennar. Pabbi er ítalskur og við höfum búið úti, einu sinni þegar ég var mjög ung og svo aftur þegar ég var ellefu ára,“ útskýrði Ásdís, sem segir ítalska matargerð því eðlilega vera í uppáhaldi hjá fjölskyldunni.

Í beinu sambandi við Jónas

„Ég vil meina að Jónas sé að tala í gegnum mig,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Valdimar Leifsson sem er að ljúka tökum á sjónvarpsmynd í fullri lengd um Jónas Hallgrímsson, einn af Fjölnismönnum okkar á nítjándu öld. Myndin er samansett af leiknum atriðum og viðtölum og er að sögn leikstjórans eins konar ljóð til Jónasar í kabarettstíl.

Reykholtshátíð er hafin

Alþjóðleg tónlistarhátíð í Reykholti var í gær sett í ellefta sinn. Karlakór Basil dómkirkjunnar í Moskvu opnar hátíðina í kvöld, með tónleikum sínum klukkan 20. Kórinn syngur aftur á morgun á sama tíma. Hann vakti mikla hrifningu áheyrenda á Listahátíð í Reykjavík árið 2004 og er nú aftur kominn til landsins.

Hefur varla séð sig í sjónvarpinu

„Þetta hefur gengið betur en ég bjóst við,“ segir Einar Magnús Einarsson sem nýverið hóf störf sem veðurfréttamaður í Ríkissjónvarpinu. Einar birtist fyrst á skjánum á miðvikudaginn í síðustu viku og hefur sýnt fína takta þrátt fyrir reynsluleysið.

Reykjavík skynjuð á nýjan og framandi hátt

Í sumar hafa menningarstofnanir Reykjavíkurborgar staðið fyrir kvöldgöngum frá Kvosinni þriðja sumarið í röð. Í kvöld kl. 20 mun Ilmur Stefánsdóttir myndlistarkona fara fyrir göngunni og varpa nýju ljósi á miðbæ Reykjavíkur á leiðinni.

Þjóðlegir skór eftir íslenska hönnuði

Fyrir helgi kom ný sending af hinum svokölluðu Cruser-skóm í verslanir Skór.is og skóbúðina Far á Laugavegi. Mynstrin á þeim hafa vakið mikla athygli enda eru þau mörg hver afar þjóðleg og búin til af íslenskum hönnuðum.

Stærsta verkefni Hómers Simpson

Simpson-fjölskyldan mætir í íslensk kvikmyndahús á morgun. Sú heimsókn á eflaust eftir að gleðja marga Íslendinga enda hafa þau Hómer, Marge, Bart, Lísa og Maggie verið heimilisvinir okkar síðustu 18 árin.

Guðjón í Oz kaupir Næpuna af Baltasar

Guðjón Már Guðmundsson, gjarnan kenndur við Oz, hefur keypt hið sögufræga hús Næpuna af hjónunum Baltasar Kormáki og Lilju Pálmadóttur sem auglýstu húsið til sölu í júnímánuði.

Guacamole-nasl frá Gullu

Hönnuðurinn Guðlaug Halldórsdóttir er næsti gestur Völu í Mat og lífsstíl. „Eins og allir sem hafa verið í þáttunum er Gulla, eins og hún er oftast kölluð, mjög skapandi og skemmtileg í eldhúsinu,“ sagði Vala.

Syngur til heiðurs móður á stórtónleikum á Akureyri

Stórtónleikar með Kristján Jóhannsson óperusöngvara í fararbroddi verða haldnir í Íþróttahöllinni á Akureyri í september. tórtónleikarnir fara fram sunnudaginn 9. september, og að ósk Kristjáns munu þeir bera yfirskriftina „Fyrir mömmu“, en móðir hans, Fanney Oddgeirsdóttir, verður níræð 14. september næstkomandi.

Góð stemning á G! í Færeyjum

Hin stórfenglega tónlistarhátíð G! festival fór fram í hinum þúsund manna bæ Götu í Færeyjum um síðustu helgi. Steinþór Helgi Arnsteinsson var á staðnum og skemmti sér konunglega ásamt um fimmtungi færeysku þjóðarinnar.

Alvöru aðdáendur sjá báðar

„Það er nú alltaf svolítil tilhlökkun í manni fyrir frumsýningu en maður er orðinn svo sjóaður að maður lætur það ekki á sig fá lengur,“ segir Jakob Þór Einarsson sem leikstýrir íslensku talsetningunni á Simpsons-myndinni.

Köttur spáir fyrir um dauða vistmanna á hjúkrunarheimili

Köttur nokkur á hjúkrunarheimili á Rhode Island í Bandaríkjunum hefur óvenjulegan hæfileika til að segja fyrir um andlát vistmanna þar. Þegar Óskar, eins og kötturinn er nefndur, hjúfrar sig upp að einhverjum, veit starfsfólk heimilisins að viðkomandi á líklega ekki langt eftir. Þetta hefur Óskar gert í 25 skipti, og hafa vistmennirnir allir verið látnir innan fjögurra klukkustunda. Nú er svo komið að starfsfólk spítalans er farið að hringja í ættingja fólks ef að Óskar sýnir því áhuga, til að vara þá við yfirvofandi dauða þess.

Lohan í fangabúningi

Það er ekki búið að setja Lindsay Lohan inn ennþá, en það er samt búið að klæða hana í fangabúning. Vaxmyndina af henni að minnsta kosti. Vaxmyndasafn Madame Tussauds í New York ákvað í kjölfar annarar handtöku stjörnunnar fyrir ölvunarakstur að klæða styttuna af henni í fangelsisröndóttan samfesting. Safnið gerði það sama við styttuna af Paris Hilton í síðasta mánuði meðan hún afplánaði dóm sinn fyrir ölvunarakstur.

ÍSMÓT í byrjun september

Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara, ÍSMÓT 2007, fer fram í nýju Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal helgina 1. og 2. september næstkomandi.

G! Festival í Færeyjum

Tónlistarhátíðin G Festival var haldin í Götu í Færeyjum um helgina en þetta er stærsta tónlistarhátíð landsins. Um fimmtungur þjóðarinnar heimsækir bæinn sem telur aðeins þúsund manns. Frægasti íbúi bæjarins, Eivör Pálsdóttir, tróð þar upp en hún átti einmnitt afmæli á laugardag. Íslenskar hljómsveitir eru fastagestir á hátíðinni og í ár tróðu þrjár íslenskar sveitir þar upp.

Frá Royal Albert Hall til Íslands

Þrír af aðalgestum Kirkjulistahátíðar koma fram á tónleikum í tónleikaröðinni „BBC Proms" í Royal Albert Hall aðeins örfáum dögum áður en þeir koma til landsins og taka þátt í flutningi á h-moll messunni eftir Bach við opnun Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju 11.ágúst.

Syndug hjörtu á Rauðasandi

Laugardaginn 28. júlí verður efnt til menningarkvölds að Saurbæ á Rauðasandi undir yfirskriftinni: Við klukknahljóm syndugra hjarta. Tilefnið er ný útgáfa Bókaútgáfunnar Bjarts á skáldsögunni Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson.

Gönguferð um Vatnsdalsárgil

Laugardaginn 28. júlí stendur Ferðaþjónustan á Hofi í Vatnsdal fyrir gönguferð með Vatnsdalsárgili. Þar eru margir fossar, sem þykja hver öðrum fallegri. Má þar nefna Skínanda, Kerafoss, Skessufoss og Dalsfoss.

Kate Moss flýr Doherty

Fyrirsætan Kate Moss er endanlega búin að fá nóg af Pete Doherty. Hún hefur skipt um lás á íbúðinni sinni og leitar að húsi.

Keppni við Akranes gæti orðið ljúfsár hefnd

„Okkur hafa borist þó nokkrar tillögur en það hefur ekki enn verið valið í liðið. Einhver nöfn hafa þó borið oftar á góma en önnur,“ segir Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar.

Var alveg biðarinnar virði

„Það verður búið að skreyta Laugaveginn þegar ég kem heim,“ segir kvikmyndatökumaðurinn Óttar Guðnason. Hann er nú loksins kominn til Berlínar þar sem undirbúningur fyrir hasarmyndina Stopping Power er kominn á fullt. Leikstjóri myndarinnar er enginn annar en hinn hollenski Jan de Bont sem sjálfur hóf feril sinn í kvikmyndatökustólnum.

Jamie Kennedy í annarlegu ástandi

Grínistinn og Íslandsvinurinn Jamie Kennedy mætti á tölvuleikjaráðstefnuna E3 á dögunum og var með uppistand. Það hefði verið í góðu lagi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að Jamie var í afar annarlegu ástandi með úfið hár og í fráhnepptri skyrtu.

Fá hjálp frá framleiðanda Bráðavaktarinnar

Nokkrar stjörnur úr bandaríska sjónvarpsgeiranum eru væntanlegar hingað til lands í ágúst, þar sem þær munu miðla af reynslu sinni til íslensks sjónvarpsfólks á ráðstefnu á vegum fyrirtækisins MediaXchange.

Lindsay nær nýjum lægðum

Hollywoodstjarnan og vandræðagemsinn Lindsay Lohan er enn og aftur umfjöllunarefni fjölmiðla. Nú er því haldið fram að áfengismeðferð sem hún fór í hafi engan árangur borið. Lindsay hafi meira að segja neytt áfengis meðan á meðferðinni stóð.

Campbell auglýsir kleinuhringi

Ofurfyrirsætan Naomi Campbell komst í fréttirnar fyrir skömmu þegar út spurðist að hún hefði samþykkt að leika í auglýsingu fyrir bandaríska kleinuhringjafyrirtækið Dunkin" Donuts.

Brynja Björk á ævintýraslóðum í Perú

„Við lentum hérna 7. júlí og förum 28. til New York,“ segir Brynja Björk Garðarsdóttir, blaðamaður á Mannlífi og fyrrum þáttastjórnandi á sjónvarpsstöðinni Sirkus. Ólíkt þeirri ímynd sem var kynnt í sjónvarpsþættinum fræga um næturlífið í Reykjavík er Brynja fjarri öllum skarkala borgarlífsins. Hún er nefnilega í Perú.

Blunt samdi plötu á Ibiza

Næsta plata breska popparans James Blunt, All the Lost Souls, kemur út 18. september. Fyrsta smáskífulagið af plötunni, 1973, er væntanlegt á öldur ljósvakans. Fékk Blunt innblásturinn að laginu þegar hann dvaldi á Ibiza við Spán þar sem hann samdi plötuna.

LungA lokið

Vikulangri Listahátíð ungs fólks á Austurlandi lauk í gær með uppskeruhátíð á Seyðisfirði og gekk hátíðin vel fyrir sig.

Perez fílar Pál Óskar

Páll Óskar Hjálmtýsson fékk sína fimmtán mínútna frægð í bandaríska slúðurheiminum á fimmtudaginn þegar slúðurbloggarinn Perez Hilton póstaði nýjasta myndbandi Palla, við lagið Allt fyrir ástina, á síðunni sinni.

Endurútgáfa frá Ego

Tvær fyrstu plötur Ego, Breyttir tímar og Í mynd, hafa verið endurútgefnar í tilefni þess að 25 ár eru liðin frá útgáfu þeirra. Ego var stofnuð haustið 1981 og gaf út sína fyrstu plötu, Breyttir tímar, 1. apríl 1982.

Ferðast um Afganistan

Leikarinn Jude Law er staddur í Afganistan til að kynna hinn árlega friðardag Sameinuðu þjóðanna hinn 21. september. Með honum í för er breski kvikmyndagerðarmaðurinn Jeremy Gilley sem er að búa til heimildarmynd um heimsóknina.

Del Toro leikur Che Guevara

Leikarinn Benecio del Toro hefur tekið að sér hlutverk argentínska byltingarsinnans Ernesto Che Guevara í nýrri kvikmynd eftir Steven Soderbergh. Myndin, sem nefnist Guerilla, verður tekin upp á níu vikum víðs vegar um Spán. Verður eingöngu töluð spænska í henni.

Fyrsta tónleikaferðin í tíu ár

Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson fer í tveggja vikna tónleikaferð um Ísland hinn 28. júlí ásamt átta manna hljómsveit sem er skipuð dönskum og íslenskum tónlistarmönnum. Með í för verður danska hljómsveitin Jazirkus.

Sjá næstu 50 fréttir