Fleiri fréttir

Ungverjar lögðu Frakka

Ungverjar lögðu Frakka 31-28 í milliriðli 2 á EM í kvöld. Sigurinn fleytir Ungverjum í þriðja sæti riðilsins en Frakkarnir höfðu að litlu að keppa í leikjnum enda þegar búnir að tryggja sér sæti í undanúrslitunum.

Pólverjar völtuðu yfir Svartfellinga

Pólverjar unnu mjög sannfærandi stórsigur á Svartfellingum í milliriðli 1 á EM í dag 39-23. Mateusz Jachlewski skoraði 6 mörk fyrir Pólverjaen og markvörðurinn Slawomir Szmal varði 21 skot. Petar Kapisoda skoraði 6 fyrir Svartfellinga.

Óli Stef: Hálfgerður skandall

"Við ætluðum að reyna að spila góðan leik og sýna okkar rétta andlit í dag, en það gekk ekki. Fyrri hálfleikurinn var allt í lagi en síðari hálfleikurinn var skandall," sagði Ólafur Stefánsson fyrirliði íslenska landsliðsins í samtali við Rúv eftir tapið gegn Spánverjum á EM.

Alfreð hættur með landsliðið

Alfreð Gíslason er hættur að þjálfa íslenska landsliðið í handknattleik. Hann tilkynnti þetta á blaðamannafundi eftir leik Íslendinga og Spánverja á EM nú áðan.

Garcia fer í dag frá Noregi

Jaliesky Garcia hefur lokið þátttöku á EM í Noregi og heldur í dag frá Noregi til læknisrannsókna.

Ísland úr leik eftir tap fyrir Spáni

Ísland tapaði í dag fyrir Spánverjum á lokaleik sínum á EM í handbolta með átta marka mun. Ísland lendir því í neðsta sæti 2. milliriðils.

Sigfús ekki með í dag

Sigfús Sigurðsson getur ekki leikið með íslenska liðinu gegn Spáni í dag á EM í handbolta.

Danskt dómarapar dæmir leik Íslendinga

Þeir Per Olesen og Lars Ejby Pedersen dæma leik Íslendinga og Spánverja í dag. Aron Kristjánsson, einn sérfræðinga Vísis um EM í handbolta, þekkir vel til þeirra.

Alfreð: Heiner má gefa mér bjór í þakkarskyni

Þjóðverjar og Svíar eru Íslendingum afskaplega þakklátir fyrir sigurinn á Ungverjum í gær. Sigur Íslands á Ungverjaland gerði það að verkum að viðureign liðanna í kvöld er hreinn úrslitaleikur um sæti í undanúrslitum EM í Noregi.

Mikið undir í leikjum dagsins

Vísir tekur hér saman hvað er undir í leikjum dagsins á Evrópumeistaramótinu í handbolta sem fer fram í Noregi.

Danir í heljargreipum fyrir leiki dagsins

Það ríkir gríðarleg spenna í 1. milliriðli á EM í handbolta þar sem fjögur lið eiga öll möguleika á því að komast áfram í undanúrslitin.

Ísland í bláu búningunum í dag

Íslenska landsliðið keppir í bláu landsliðsbúningum sínum í dag sem veit á gott miðað við gengi liðsins hingað til í keppninni.

Óli Stef: Þetta lagar ekki mótið

Ólafur Stefánsson var ánægður með sigurinn á Ungverjum á EM í kvöld en vill bíða með yfirlýsingar þangað til eftir leikinn gegn Spánverjum á morgun.

Áfall fyrir Norðmenn

Ekki er hægt að segja að kvöldið í kvöld hafi verið gestgjöfum Norðmanna á EM sérstaklega gott því nú er ljóst að línumaðurinn sterki Frank Løke getur ekki spilað meira með liðinu eftir að hann meiddist á hné í tapleiknum gegn Slóvenum.

Voru afslappaðir og sýndu sitt besta

„Þetta er mikill léttir. Fyrst og fremst fyrir Alfreð, strákana og alla þá sem eru í kringum liðið. Svo líka fyrir alla þá sem hafa áhuga á handbolta,“ sagði Patrekur Jóhannesson, einn þriggja sérfræðinga Vísis um EM í handbolta.

Gott að koma einu sinni brosandi á hótelið

"Við vorum búnir að vera skelfilegir í leikjunum á undan þannig að auðvitað var gott að ná upp góðum leik og koma einu sinni heim á hótelið með bros á vör," sagði Snorri Steinn Guðjónsson í samtali við Rúv eftir sigurinn á Ungverjum í kvöld. Hann skoraði 11 mörk í leiknum og var besti maður íslenska liðsins ásamt Hreiðari Guðmundssyni markverði.

Hlakkar til að takast á við Spánverjana

"Ég verð að viðurkenna það að mér líður öllu betur núna en eftir síðustu leiki. Ég er mjög ánægður með hvernig liðið spilaði og það var gaman að sjá liðið loksins spila vel í 60 mínútur," sagði Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari í samtali við Rúv eftir glæsilegan sigur íslenska landsliðsins á Ungverjum á EM í kvöld.

Danir burstuðu Pólverja

Danir unnu í dag stórsigur á Pólverjum í milliriðli 1 á EM í handbolta 36-26 eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik. Lasse Boesen skoraði 8 mörk fyrir Dani og Lars Christiansen skoraði 6, en Mariusz Jurasik var með 7 mörk hjá Pólverjum.

Frakkar í undanúrslit

Evrópumeistarar Frakka tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitunum á EM í handbolta með því að leggja heimsmeistara Þjóðverja 26-23 í hörkuleik í Þrándheimi.

Sverre kemur inn fyrir Einar

Sverre Jakobsson kemur aftur inn í íslenska landsliðshópinn á EM í kvöld í stað Einars Hólmgeirssonar sem verður hvíldur gegn Ungverjum í kvöld. Þegar hefur komið fram að Jaliesky Garcia getur ekki spilað vegna veikinda. Leikur Íslendinga og Ungverja hefst klukkan 19:15 í kvöld.

Upp með húmorinn

„Leikmenn þurfa að rífa upp húmorinn og hafa gaman af þessu. Það er gaman að skora mörk,“ sagði Sigurður Sveinsson, einn þriggja sérfræðinga Vísis um EM í handbolta.

Ólafur: Mótið er búið

Ólafur Stefánsson segir í samtali við TV2 í Danmörku að íslenska liðið hafi spilað hræðilega á EM í handbolta í Noregi.

391 milljón króna í breskan handbolta

Bretar ætla að ausa pening í að byggja upp handboltalandslið en hægt er að sækja um sæti í landsliðinu á heimasíðu breska handboltasambandsins.

Ómögulegt að ná í Ronaldo

Predrag Mijatovic, yfirmaður íþróttamála hjá Real Madrid, segir það ómögulegt fyrir félagið að ætla að fá Cristiano Ronaldo til þess.

Garcia væntanlega úr leik

Ekki er útlit fyrir að Jaliesky Garcia leiki aftur með íslenska landsliðinu á EM í handbolta. Hann er veikur, með hita og uppköst.

Jafnt hjá Noregi og Póllandi

Noregur og Pólland gerðu 24-24 jafntefli í milliriðli 1 í kvöld. Leikurinn var mjög dramatískur og fjögur rauð spjöld fóru á loft. Pólverjar skoruðu þrjú síðustu mörk leiksins eftir að heimamenn höfðu haft forystu nær allan seinni hálfleik.

Of lítil batamerki

„Það var ótrúlegt að fylgjast með upphafinu í þessum leik. Við vorum að leika gríðarlega illa og lentum mjög illa undir," sagði Aron Kristjánsson, einn af sérfræðingum Vísis um Evrópumótið í handbolta, um tap Íslands gegn Þýskalandi.

Frakkland vann Spán

Frakkar standa vel að vígi í milliriðli 2 en þeir eru með sex stig eftir að hafa unnið Spánverja 28-27 í leik milli tveggja af sigurstranglegustu liðum mótsins. Mikil spenna var undir lokin en Frakkar fögnuðu sigri.

Danir stóðust prófið með sæmd

Danska landsliðið gerði sér lítið fyrir og vann tíu marka sigur á Króatíu 30-20 í milliriðli 1. Danir eru því komnir með fjögur stig í riðlinum og komust upp að hlið Króata.

Ólafur: Ósáttur með allt

Ólafur Stefánsson, fyrirliði Íslands, var auðvitað ósáttur með tapið gegn Þýskalandi. „Þegar þú tapar leik þá ertu að sjálfsögðu ekki sáttur. Ég vildi vinna þennan leik og við vildum sýna okkar rétta andlit," sagði Ólafur á blaðamannafundi eftir leik.

Vignir: Hef enga skýringu

Vignir Svavarsson var einn besti leikmaður Íslands gegn Þýskalandi í dag en átti engar skýringar á reiðum höndum fyrir tapinu.

Slóvenar komnir með tvö stig í milliriðlinum

Á meðan Íslendingar voru að kljást við Þjóðverja þá mættust Slóvenía og Svartfjallaland í milliriðli 1. Bæði lið voru stigalaus í milliriðlinum fyrir leikinn en Slóvenía vann 31-29 sigur.

Alfreð: Vorum freðnir í byrjun

„Við byrjuðum þennan leik alveg skelfilega og menn voru algerlega frosnir fyrstu tíu mínúturnar,“ sagði Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari í samtali við Rúv.

Hetjuleg barátta dugði ekki til

Ísland tapaði þriðja leik sínum af fjórum á EM í handbolta. Í þetta sinn fyrir heimsmeisturum Þjóðverja, 35-27.

Ólafur inn fyrir Sverre

Ólafur Stefánsson kemur inn í íslenska landsliðshópinn sem mætir Þýskaland í dag á kostnað Sverre Andreas Jakobssonar.

Sjá næstu 50 fréttir