Ísland kemst ekki í leikinn um 5.-6. sætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. janúar 2008 19:06 Íslenski landsliðshópurinn sem keppir á EM í Noregi. Mynd/Pjetur
Nú er það endanlega ljóst að Ísland getur ekki náð þriðja sætinu í 2. milliriðli á EM í handbolta og getur því ekki spilað um 5.-6. sætið á mótinu. Ísland getur mest náð fjórum stigum í riðlinum. Svíþjóð er nú með fimm stig í öðru sæti og Þýskaland fjögur stig í því þriðja. Efstu tvö sætin tryggja sæti í undanúrslitum og þriðja sætið rétt til að keppa um 5.-6. sætið á mótinu. Liðin sem lenda í fjórða sæti í milliriðlunum tveimur leika um 7.-8. sætið á mótinu á sunnudaginn kemur. Hins vegar gæti komið til þess að sá leikur fari ekki fram ef liðin sem lenda í fimmta sæti milliriðlana keppast um eitt laust sæti í undankeppni Ólympíuleikanna. Ef það verður tilfellið keppa þau um 9.-10. sætið á mótinu og hinn leikurinn fellur niður. Ísland getur ekki lengur náð Svíþjóð að stigum, aðeins Þjóðverjum. En ef Ísland og Þýskaland verða jöfn að stigum ræður árangur í innbyrðisviðureignum og þar hafa Þjóðverjar betur. Ungverjar gætu reyndar einnig blandað sér í þessa umræðu með því að gera jafntefli við Frakka á morgun því þá verða þeir einnig með fjögur stig. Það breytir þó engu því Þjóðverjar unnu bæði Íslendinga og Ungverja og eru því með best árangurinn í innbyrðisviðureignum þessara þriggja liða. Ungverjar gætu reyndar komið sér í fimm stig með sigri á Frökkum á morgun og þar með í þriðja sæti riðilsins, ef Þýskaland tapar fyrir Svíþjóð. Allt ofantalið miðast við að Ísland vinni bæði Ungverjaland í kvöld og svo Spán á morgun.
Mest lesið Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Fleiri fréttir Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Danir svöruðu fyrir Portúgalstapið og unnu Evrópumeistarana Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason „Mig kitlar svakalega í puttana“ Hættu við að dæma víti og Norðmenn unnu Spánverja EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Strákarnir hans Arons unnu risasigur Alfreð og hans menn með fullt hús stiga eftir hádramatík Óðinn á eitt flottasta mark EM Myndasyrpa: Allir kátir á æfingu í Malmö Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Segir Svía hafa efni á að tapa fyrir Íslandi Gísli Þorgeir sá fjórði stoðsendingahæsti á EM „Ég er bara Króati á morgun“ Alfreð þurfti að breyta plönum hratt fyrir stund hefndar „Nú vitum við allavega að Danir eru mannlegir“ Donni þarf líka að fara í aðgerð „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Haukakonur upp í þriðja sætið Strákarnir hans Dags fengu skell Elín Rósa var atkvæðamikil þegar Blomberg-Lippe fór á toppinn Liðið sem fylgdi Íslandi á HM náði ekki að vinna leik EM í dag: Liðsstyrkur og meiðsli í Malmö Elvar kemur inn fyrir Elvar Lærisveinar Dags spila bönnuðu lögin í klefanum Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Þarf að beisla Einar aðeins en líst vel á samstarfið Sjá meira