Mikið undir í leikjum dagsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. janúar 2008 11:36 Ivano Balic og félagar í landsliði Króatíu eiga mikilvægan leik fyrir höndum í dag. Nordic Photos / AFP
Vísir tekur hér saman hvað er undir í leikjum dagsins á Evrópumeistaramótinu í handbolta sem fer fram í Noregi. Lokaumferð milliriðlakeppninnar fer fram í dag og ræðst þá hvaða lið komast áfram í undanúrslit, hvaða lið keppa um 5.-6. sætið og svo 7.-8. sætið. Ísland á möguleika á að komast í í leikinn um 7.-8. sætið ef liðið vinnur Spán í dag og Frakkar tapa ekki fyrir Ungverjum. Milliriðill 1: 15.15 Pólland - Svartfjallaland Þetta er sá leikur sem skiptir hvað minnstu máli í dag. Svartfjallaland hefur ekki enn unnið leik í keppninni og á ekki möguleika að lyfta sér upp úr botnsæti milliriðilsins með sigri í dag. Pólverjar eru sömuleiðis búnir að missa af sæti í undanúrslitunum. Þeir eru einnig búnir að tryggja sér sæti í undankeppni Ólympíuleikanna þar sem liðið lenti í öðru sæti á HM í Þýskalandi í fyrra. Það er því í raun að engu að keppa fyrir þá nema stoltið og vonin um að fá að spila um helgina um annað hvort fimmta eða sjöunda sætið. 17.15 Slóvenía - Danmörk Gríðarlega mikilvægur leikur. Danir tryggja sér sigur í riðlinum með sigri en gætu með tapi dottið niður í þriðja sætið. Slóvenar eiga að sama skapi enn möguleika á að komast áfram með sigri en verða þá að treysta á hagstæð úrslit úr leik Noregs og Króatíu. 19.15 Króatía - Noregur Alíka mikilvægur leikur. Báðar þjóðir geta komist áfram með sigri í dag. Króötum dugir þó jafntefli. Heimamenn fóru af stað af miklum krafti í mótinu og unnu fyrstu fjóra leikina. Þá kom jafntefli við Pólverja og svo tap fyrir Slóvenum í gær. Um leið misstu þeir einn sinn besta leikmann, Frank Löke, í meiðsli. Það er því komið að ögurstundu hjá Norðmönnum. Milliriðill 2: 14.20 Spánn - Ísland Hvorugt lið á möguleika á sæti í undanúrslitunum. Spánverjar eru þegar búnir að tryggja sér sæti í undankeppni Ólympíuleikanna og eru því aðeins að spila upp á stoltið og möguleikann að spila um fimmta eða sjöunda sætið. Íslendingar eru enn að spila upp á sæti í undankeppni ÓL. Sigur í dag gæti fleytt liðinu upp í fjórða sæti riðilsins, ef Frakkar tapa ekki fyrir Ungverjum. Þar er sá möguleiki fyrir hendi að spila við Norðmenn um 7. sætið á mótinu og um leið um sæti í undankeppni ÓL. 16.20 Ungverjaland - Frakkland Sæti í undankeppni ÓL er undir hjá Ungverjum og leggja þeir því ofurkapp á að vinna Frakka í dag sem hafa aftur á móti efni á að hvíla sína sterkustu leikmenn og tapa leiknum. Sigur gæti fleytt Ungverjum í þriðja sæti riðilsins ef Svíar vinna Þjóðverja. 18.15 Þýskaland - Svíþjóð Hreinn úrslitaleikur um hvort liðið nái öðru sætinu í riðlinum og þar með sæti í undanúrslitunum. Svíþjóð dugir jafntefli í leiknum. Flóknara er það ekki.
Mest lesið „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn Eiginkona þjálfara hjá Chiefs skotin Sport Mbappé sár eftir HM Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Íslenski boltinn Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Körfubolti Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Samstarf við rússneskt veðmálafyrirtæki varð Pirlo að falli Fótbolti Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira