Danir í heljargreipum fyrir leiki dagsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. janúar 2008 11:17 Munu Danir fagna eftir viðureignir dagsins? Nordic Photos / Bongarts
Það ríkir gríðarleg spenna í 1. milliriðli á EM í handbolta þar sem fjögur lið eiga öll möguleika á því að komast áfram í undanúrslitin. Danir hafa farið á kostum í milliriðlakeppninni og unnið Króata og Pólverja, bæði með tíu marka mun. En þrátt fyrir það er það langt í frá öruggt að Danir komist áfram í undanúrslitin þó svo að liðið standi best fyrir leiki dagsins. Hérna eru mögulegar niðurstöður riðlakeppninnar eftir því hvernig leikir dagsins fara. Danmörk vinnur Slóveníu: Danir tryggja sér efsta sætið í milliriðlinum og mæta annað hvort Þjóðverjum eða Svíum í undanúrslitum. Danmörk og Slóvenía gera jafntefli: Danir lenda í að minnsta kosti í öðru sæti í riðlinum, annað hvort á eftir Noregi eða Króatíu. Ef þær þjóðir gera einnig jafntefli vinna Danir riðilinn. Ef Danir lenda í öðru sæti í riðlinum mæta þeir Frökkum í undanúrslitum. Danmörk tapar fyrir Slóveníu og Króatía vinnur Noreg: Danir komast ekki áfram í undanúrslitin. Króatar vinna riðilinn og Danir og Slóvenar ljúka bæði keppni með sex stig í milliriðlinum. Slóvenar komast áfram á betri árangri í innbyrðisviðureign liðanna. Danmörk tapar fyrir Slóveníu og Króatía og Noregur gera jafntefli: Danir komast ekki áfram í undanúrslitin. Króatía vinnur riðilinn og Slóvenía, Danmörk og Noregur verða öll með sex stig. Slóvenía stendur þó best í innbyrðisviðureignum og komast þannig í undanúrslitin. Danmörk tapar fyrir Slóveníu og Noregur vinnur Króatíu: Norðmenn vinna riðilinn. Slóvenía, Króatía og Danmörk verða þá öll með sex stig. Danmörk hefur þá í þeirri stöðu efni á að tapa með sjö marka mun fyrir Slóveníu. Vinni Slóvenar með átta mörkum komast þeir áfram í undanúrslitin og Danir og Króatar sitja eftir. Króatar komast hvort eð er ekki áfram þar sem liðið er með slakasta árangurinn í innbyrðis viðureignum liðanna.
Mest lesið Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Fótbolti „Algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu“ Sport Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Körfubolti Þurftu að stækka þýska meistaraskjöldinn Fótbolti „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi Íslenski boltinn Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti „Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Fótbolti „Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“ Fótbolti KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli aftur með yfir fimmtíu prósent markvörslu Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Elín Klara og félagar sópuðu Skuru í sumarfrí Riðill Íslands á EM klár: Mætast aftur eftir frækna sigurinn Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla Haukakonur með frábæran sigur í Eyjum Viktor Gísli með 54 prósent markvörslu í spænsku deildinni Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úrslitakeppninni Benedikt byrjaði úrslitakeppnina vel Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ „Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Díana fer aftur til Fram Sópurinn aftur inn í skáp hjá bæði Birgi Steini og Einari Braga Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Sjá meira