Alfreð hættur með landsliðið 24. janúar 2008 16:26 AFP
Alfreð Gíslason er hættur að þjálfa íslenska landsliðið í handknattleik. Hann tilkynnti þetta á blaðamannafundi eftir leik Íslendinga og Spánverja á EM nú áðan. Samningur Alfreðs er við það að renna út og mun hann ekki framlengja samning sinn. Alfreð ætlaði upphaflega ekki að vera jafn lengi með landsliðið og raun ber vitni, en vegna góðs árangurs landsliðsins undir hans stjórn, var hann beittur mikilli pressu til að halda áfram. Skemmst er að minnast undirskriftalista sem tekinn var saman hér á Vísi í fyrra þar sem skorað var á Alfreð að halda áfram eftir HM í Þýskalandi. Alfreð sagði fjölskylduaðstæður ráða miklu í ákvörðun sinni, enda hafi lítill tími gefist til að sinna öðru en handbolta síðan hann gerðist þjálfari landsliðsins samhliða því að þjálfa þýska liðið Gummersbach. "Ég ætla að þakka ykkur fyrir samstarfið, þetta var síðasti leikur minn sem landsliðsþjálfari," sagði Alfreð við blaðamenn sem söfnuðust saman hjá honum eftir blaðamannafund í dag. "Þetta er því miður þannig út af fjölskylduástæðum og út frá sjálfum mér að vera ekki í þessu tvöfalda hlutverki áfram. Þetta er alltof mikil vinna en ég vil líka þakka HSÍ fyrir frábær samskipti og það var virkilega gaman að taka þátt í þessu. Ég tel mig hafa gert mitt besta í þessu þrátt fyrir að það hafi kannski ekki sést í þessari keppni," sagði Alfreð og sagðist stoltur af starfi sínu með landsliðinu. Smelltu hér til að lesa viðtal við Alfreð á Í Blíðu og Stríðu.
Mest lesið „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Valgeir þurfti fjórar mínútur til að skora fyrsta mark sitt fyrir Viborg Fótbolti Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Íslenski boltinn „Flott frammistaða miðað við aðstæður“ Fótbolti „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Sjá meira
Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Íslenski boltinn