Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Síðustu leikir skipbrot "Niðurstaðan er svolítil vonbrigði því við vorum svo nálægt því að komast í undanúrslitin," sagð Logi Geirsson sem átti mjög góðan leik í gær og hann stóð sig reyndar alveg frábærlega á þessu fyrsta stórmóti sem hann tekur almennilega þátt í. 3.2.2007 19:48
Króatar tryggðu sér fimmta sætið Króatíska landsliðið tryggði sér í dag fimmta sætið á HM með öruggum sigri á Rússum 34-25 eftir að hafa verið yfir 18-12 í hálfleik. Konstantin Igropulo var markahæstur hjá Rússum með 9 mörk en Vedran Zrnic skoraði 11 mörk fyrir Króata og arkitektinn Ivano Balic skoraði 8 mörk. 3.2.2007 17:44
Alfreð: Sæmilega sáttur með 8. sætið Alfreð Gíslason segist ekki alfarð ósáttur við að ná 8. sætinu á HM í handbolta og segir leikinn við Dani hafa ráðið gríðarlega miklu um niðurstöðuna. Hann segir skort á breidd hafa verið helstu hindrunina fyrir íslenska liðið á mótinu. 3.2.2007 14:52
Ólympíusætið fjarlægur möguleiki Í kjölfar taps íslenska liðsins fyrir Spánverjum í dag eru möguleikar liðsins til að komast á Ólympíuleikana í Kína orðnir nokkuð langsóttir, en sæti 2-7 á HM nú hefði gefið sæti í undankeppni fyrir Ólympíuleikana. 8. sætið þýðir hinsvegar að nú þarf íslenska liðið að tryggja sér sætið í gegn um Evrópumótið - ef liðið kemst þá þangað. 3.2.2007 14:35
Hetjuleg barátta en tap Spánverjar sigruðu Íslendinga 40-36 í leiknum um sjöunda sætið á HM í handbolta. Íslendingar börðust hetjulega í síðari hálfleiknum eftir að þeir lentu átta mörkum undir og náðu mest að minnka muninn í tvö mörk. Spánverjar, sem eru heimsmeistarar síðan 2005, reyndust hinsvegar ókleyfur múr. Fyrri hálfleikurinn varð banabiti íslenska liðsins en þá fóru fjölmörg dauðafæri forgörðum. 3.2.2007 14:19
Spánverjar yfir Þegar fyrri hálfleikur er rétt um hálfnaður eru Spánverjar með eins marks forystu gegn Íslendingum 9-8. Birkir Ívar byrjar vel í markinu og enn getur allt gerst. 3.2.2007 13:16
Leikur Íslands og Spánar hafinn Leikur Íslendinga og Spánverja er hafinn í Köln-Arena fyrir framan 19 þúsund áhorfendur. Lið Íslands er hið sama og það hefur verið í undanförnum leikjum. Staðan er 3-2 fyrir Spáni eftir fimm mínútur. Snorri Steinn Guðjónsson hefur skorað bæði mörk Íslendinga. 3.2.2007 13:04
Góður leikkafli Íslendinga Íslendingar áttu frábæran leikkafla og skoruðu fimm mörk í röð nú um miðbik síðari hálfleiksins gegn Spánverjum. Spánverjar hafa samt sem áður fjögurra marka forystu 27-23. Síðari hálfeikurinn er hálfnaður. 3.2.2007 13:59
Spánverjar með örugga forystu Spánverjar hafa góða forystu gegn Íslendingum þegar flautað hefur verið til hálfleiks, 19-13. Spánverjar komust mest í sjö marka forystu 17-10. Íslensku strákarnir hafa farið illa með fjölmörg dauðafæri og liggur munurinn á liðunum helst í því. Spánverjar eru heimsmeistarar síðan 2005 og ekki þekktir fyrir að glopra niður forystu sem þessari en leikurinn þrátt fyrir allt ekki nema hálfnaður. 3.2.2007 13:33
Frakkar ósáttir við dómgæslu Michael Guigou, leikmaður franska landsliðsins í handknattleik, segir að lélegar ákvarðanir dómaranna í undanúrslitaleiknum við Þjóðverja hafi kostað lið sitt sæti í úrslitunum. 2.2.2007 18:30
Alfreð ósáttur með vinstri vænginn Alfreð Gíslason var þokkalega sáttur við varnarleik og markvörslu íslenska liðsins í leiknum gegn Rússum í kvöld, en öfugt við leikinn við Dani var það sóknarleikurinn sem varð liðinu að falli í kvöld. Alfreð sagði íslenska liðið hafa gefið leikinn frá sér og var ósáttur með frammistöðu leikmanna á vinstri vængnum. 1.2.2007 20:36
Þjálfari Dana: Leikurinn við Íslendinga sat í okkur Ulrik Wilbek, þjálfari Dana, var að vonum vonsvikinn í kvöld eftir að baráttuglaðir lærisveinar hans féllu úr leik í undanúrslitunum á HM eftir maraþoneinvígi við Pólverja. Hann segir leikinn við Íslendinga enn hafa setið í hugum og limum danska liðsins í kvöld. 1.2.2007 23:04
Guðjón Valur: Þeir voru einfaldlega klókari en við Guðjón Valur Sigurðsson sagði Rússana hafa verið klókari í leik kvöldsins og sagði engar afsakanir um þreytu duga til við að útskýra tapið. 1.2.2007 19:22
Óli Stef: Sjaldan séð okkur svona lélega Ólafur Stefánsson var skiljanlega daufur í dálkinn þegar Arnar Björnsson íþróttafréttamaður náði tali af honum eftir leikinn við Rússa í kvöld. Hann sagðist sjaldan hafa séð íslenska liðið jafn lélegt í sóknarleiknum. 1.2.2007 19:12
Birkir Ívar: Hissa á áhugaleysi leikmanna Birkir Ívar Guðmundsson markvörður var hundfúll með frammistöðu íslenska liðsins í kvöld þegar það lá fyrir Rússum á HM í handbolta. 1.2.2007 19:05
Tap fyrir Rússum Íslenska landsliðið tapaði í kvöld fyrir Rússum 28-25 og leika því um 7. sætið á HM í handbolta. Rússar höfðu yfir í leikhléi 16-14, en íslenska liðið komst í fyrsta sinn yfir um miðjan síðari hálfleik. Eftir það tóku Rússar öll völd og tryggðu sér sigurinn með því að breyta stöðunni úr 22-24 í 27-22 sér í hag. 1.2.2007 18:02
Pólverjar í úrslit gegn Þjóðverjum Það verða Pólverjar sem leika til úrslita um heimsmeistaratitilinn í handbolta gegn heimamönnum Þjóðverjum. Spútniklið keppninnar vann í kvöld sigur á Dönum í enn einum maraþonleiknum 36-33 eftir tvær framlengingar og hávaðadramatík. Danir leika um bronsið gegn Frökkum. 1.2.2007 21:28
Þjóðverjar í úrslit Þjóðverjar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum á HM í handbolta með dramatískum sigri á Frökkum 32-31 í tvíframlengdum og sögulegum leik. Þjóðverjar mæta því annað hvort Dönum eða Pólverjum í úrslitaleik mótsins um helgina. Markus Baur og Holger Glandorf skoruðu 5 mörk hvor fyrir Þjóðverja en Daniel Narcisse skoraði 8 mörk og Joel Abati 7 fyrir Frakka. 1.2.2007 20:12
Króatar spila um fimmta sætið Króatar tryggðu sér í dag leik um fimmta sætið á HM í handbolta þegar liðið vann sannfærandi sigur á ríkjandi heimsmeisturum Spánverja 35-27 eftir að hafa leitt í hálfleik 16-12. Ivano Balic var frábær í liði Króata með 9 mörk en Tomás González skoraði 6 fyrir Spánverja. 1.2.2007 16:00
Markahæstur í mótlæti Snorri Steinn Guðjónsson er sá leikmaður íslenska handboltalandsliðsins sem hefur skorað flest mörk þegar íslenska landsliðið hefur verið undir í leikjum sínum á HM í handbolta. Óskar Ófeigur Jónsson, blaðamaður á Fréttablaðinu, hefur tekið saman skemmtilegan tölfræðipakka um framlag Snorra á HM til þessa. 1.2.2007 13:53
Rússar yfir í hálfleik Rússar hafa yfir 16-14 þegar flautað hefur verið til hálfleiks gegn Íslendingum. Rússar náðu að koast í 16-12 en íslenska liðið náði að laga stöðuna aðeins fyrir hlé. Birkir Ívar hefur verið besti maður íslenska liðsins og er kominn með um 10 skot varin. Sóknarleikur íslenska liðsins hefur verið nokkuð brokkgengur í hálfleiknum og væri staðan eflaust mun verri ef ekki væri fyrir fína markvörslu. 1.2.2007 17:08
Rússar yfir eftir 15 mínútur Rússar hafa yfir gegn Íslendingum 9-7 þegar 15 mínútur eru liðnar af leik liðanna í Hamburg. Birkir Ívar hefur verið mjög drjúgur í íslenska liðinu en Rússar náðu að snúa stöðunni úr 5-7 í 9-7 á skömmum tíma. 1.2.2007 16:48
Arnór kemur inn fyrir Einar Örn Arnór Atlason hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn á ný fyrir leikinn gegn Rússum sem hefst í Hamburg klukkan 16:30. Snorri Steinn Guðjónsson er með flensu en kemur þó til með að spila leikinn og heilsufar Roland Vals Eradze er enn spurningamerki. 1.2.2007 16:06
Minningarmót um Eið Arnarson um næstu helgi Á föstudag og laugardag verður haldið minningarmót í handbolta um Eið Arnarson og fer það fram á Strandgötu og Ásvöllum Fjögur lið taka þátt í mótinu, Haukar, Haukar U, Fylkir og lið Halldórs Ingólfssonar Stavanger frá Noregi. 31.1.2007 16:30
Íslendingar eru með besta sóknarliðið á HM Dönsku landsliðsmennirnir í handknattleik sem rætt er við í dönskum fjölmiðlum í dag viðurkenna að heppnin hafi verið á bandi Dana í leiknum gegn Íslendingum í gær. Þá er Íslendingum hrósað fyrir baráttu sína og segir Kasper Hvidt, markvörður Dana, í samtali við Poitiken að Íslendingar spili besta sóknarleikinn á HM. 31.1.2007 10:53
Íslendingar með besta sóknarliðið á HM Dönsku landsliðsmennirnir í handknattleik sem rætt er við í dönskum fjölmiðlum í dag viðurkenna að heppnin hafi verið á bandi Dana í leiknum gegn Íslendingum í gær. Þá er Íslendingum hrósað fyrir baráttu sína og segir Kasper Hvidt, markvörður Dana, í samtali við Poitiken að Íslendingar spili besta sóknarleikinn á HM. 31.1.2007 09:45
Íslenski draumurinn úti Danir sigruðu með marki á lokasekúndu framlengingar í átta liða úrslitum á HM í handbolta, lokastaðan 42-41 fyrir Dönum. Íslendingar voru með pálmann í höndunum þegar um hálf mínúta var eftir, staðan jöfn og Íslendingar með boltann en glopruðu tækifærinu og því fór sem fór. Íslendingar leika því um 5-8 sætið á HM. 30.1.2007 20:57
Snorri Steinn: Það er enginn stórleikur ef þú tapar Snorri Steinn Guðjónsson vildi ekki hlusta á neitt tal um frábæra frammistöðu sína eftir tapið gegn Dönum í kvöld og sagði góðan leik sinn litlu máli skipta ef ekki næðist sigur. Snorri sagðist vonsvikinn yfir tapinu, en sagði þó enn möguleika á að gera gott úr mótinu í keppninni um fimmta sætið. 30.1.2007 22:39
Logi Geirsson: Líklega versta reynsla okkar allra Logi Geirsson sagði að tapið fyrir Dönum í kvöld væri líklega versta reynsla allra leikmanna íslenska landsliðsins á ferlinum. Hann vill meina að brotið hafi verið á Alexander Petersson í síðustu sókn íslenska liðsins og var súr yfir þeim mistökum sem íslenska liðið gerði á lokasprettinum - ekki síst sínum eigin. 30.1.2007 22:34
Guðjón Valur: Tvö síðustu mörkin voru skandall Guðjón Valur Sigurðsson átti vart orð þegar Arnar Björnsson ræddi við hann eftir leikinn í kvöld. Guðjón sagði vörn og markvörslu hafa brugðist og var hundsvekktur með að tapa leiknum, því íslenska liðið væri að hans mati betra en það danska. 30.1.2007 22:32
Birkir Ívar: Gríðarleg vonbrigði Markvörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson sagði tapið fyrir Dönum í kvöld gríðarleg vonbrigði og sagði vörnina og markvörsluna ekki hafa brugðist í leiknum. 30.1.2007 22:25
Oechsler: Réðum ekkert við Snorra Stein Anders Oechsler, leikmaður danska landsliðsins átti frábæran leik gegn íslendingum í kvöld en skrifaði sigurinn skuldlaust á dönsku liðsheildina. Hann viðurkenndi að liðið hefði ekki átt eitt einasta svar við stórleik Snorra Steins Guðjónssonar. 30.1.2007 23:22
Mundi ekki eftir framlengingunni Markvörðurinn sterki Kasper Hvidt var bæði raunsær og afar glaður eftir sigurinn á Íslendingum. „Þetta var alveg frábært. Mann langar bara að fara á handahlaupum um salinn, þetta var svo mikil snilld", sagði Hvidt í samtali við TV2. 30.1.2007 23:11
Wilbek drjúgur með sig Landsliðsþjálfari Dana, Ulrik Wilbek var glaður og reifur eftir 42-41 sigurinn á Íslendingum í kvöld. „Það er bara eitt að gera í leikjum sem þessum; þó að vörnin virki illa verður að halda ró sinni og nýta hverja sókn", sagði Wilbek við TV2. 30.1.2007 23:03
Enginn ljós punktur í þessu Maður leiksins í kvöld, Snorri Steinn Guðjónsson, var ekkert að fegra hlutina frekar en hann er vanur í samtali við Rúv eftir leikinn í kvöld. Snorri sagði enga ljósa punkta í svona tapi og sagði að varnarleikurinn hefði orðið liðinu að falli. "Mér er alveg sama hvort ég skora 25 mörk eða 15 - ef við töpum skiptir það engu máli," sagði Snorri. 30.1.2007 21:26
Ólýsanlega sárt Guðmundur Guðmundsson aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins var að vonum bragðdaufur eftir tapið gegn Dönum í kvöld og sagði það ólýsanlega sárt. Hann sagðist þó mjög stoltur af íslenska liðinu fyrir frammistöðu þess í kvöld. 30.1.2007 21:08
Frakkar í undanúrslitin Frakkar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitunum á HM með því að leggja Króata að velli 21-18 í baráttuleik. Frakkar voru yfir 10-9 í hálfleik og mæta heimamönnum Þjóðverjum í undanúrslitunum. 30.1.2007 20:40
Pólverjar í undanúrslitin Pólverjar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Rússa 28-27 í 8-liða úrslitunum á HM í kvöld og hafa þar með tryggt sér sæti í undanúrslitum mótsins. Það er því ljóst að Pólverjar verða mótherjar íslenska liðsins ef það nær að leggja Dani nú í kvöld. 30.1.2007 18:07
Þjóðverjar í undanúrslit eftir sigur á Spánverjum Þjóðverjar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitunum á HM með fræknum sigri á ríkjandi heimsmeisturum Spánverja í 8-liða úrslitum 27-25. Heimamenn höfðu yfir 15-12 í hálfleik og voru vel studdir af 19.000 áhorfendum í troðfullri Köln Arena. Þjóðverjar mæta annað hvort Frökkum eða Króötum í undanúrslitunum. 30.1.2007 17:53
Þjóðverjar yfir gegn Spánverjum Nú er kominn hálfleikur í fyrri viðureignunum tveimur í átta liða úrslitunum á HM í handbolta. Heimamenn Þjóðverjar hafa yfir 15-12 gegn Spánverjum og þá hafa Pólverjar tveggja marka forskot gegn Rússum 16-14. 30.1.2007 17:19
Slóvenar hirtu 9. sætið Slóvenía tryggði sér í dag níunda sætið á HM í handbolta með naumum 34-33 sigri á Ungverjum eftir að hafa verið þremur mörkum undir í hálfleik 16-13. Matjaz Brumen skoraði 13 mörk fyrir Slóvena en Gábor Császár 8 fyrir Ungverja. Egyptar tryggðu sér 11. sætið með sigri á Tékkum 25-21 eftir að jafnt var í hálfleik 13-13. 30.1.2007 17:12
Leegaard verður ekki með Dönum í kvöld Danska landsliðið hefur orðið fyrir miklu áfalli fyrir leikinn gegn Íslendingum í kvöld, en hinn örvhenti Per Leergaard getur ekki spilað í kvöld vegna flensu. Hann er eini örvhenti leikmaður danska liðsins og því er ljóst að þetta eru slæm tíðindi fyrir lærisveina Ulrik Wilbek. Hans Lindberg kemur inn í danska liðið í stað félaga síns frá liði Viborg í Danmörku. 30.1.2007 15:45
Þýski handboltinn byrjar aftur á Sýn í næsta mánuði Þýski boltinn byrjar fljótlega að rúlla aftur eftir að HM í handbolta lýkur og verður sjónvarpsstöðin Sýn með toppleiki í beinni útsendingu í febrúar. Fyrsti leikurinn í beinni verður viðureign Gummersbach og Wilhalmshavener þann 9. febrúar klukkan 18:30. 30.1.2007 14:15
Alfreð dreymir um að spila á "heimavelli" um helgina Alfreð Gíslason viðurkennir að það væri draumur fyrir sig ef íslenska liðið næði í undanúrslitin á HM um helgina, því þá fengi liðið "heimaleik" í Köln þar sem hann stýrir liði Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni. 30.1.2007 13:05
Hentar mér vel að mæta Fúsa Michael Knudsen, leikmaður danska landsliðsins, segir að það henti sér vel að mæta Sigfúsi Sigurðssyni, línumanni íslenska landsliðsins í kvöld. Hann segist hafa mætt öðrum eins tröllum á mótinu til þessa. 30.1.2007 12:55