Handbolti

Frakkar ósáttir við dómgæslu

AFP

Michael Guigou, leikmaður franska landsliðsins í handknattleik, segir að lélegar ákvarðanir dómaranna í undanúrslitaleiknum við Þjóðverja hafi kostað lið sitt sæti í úrslitunum.

"Dómararnir voru mjög ósamkvæmir sjálfum sér í þessum leik, sérstaklega undir lok síðari framlengingar, þegar þeir virtust bara flauta út í loftið. Þetta var ömurlegt, en hvað getur maður s.s. gert? Það er ekki eins og maður geti lagt fram formlega kvörtun yfir þessu og fengið annan leik," sagði Guigou hundfúll og vildi ekkert ræða um leikinn við Dani um þriðja sætið fyrr en hann væri búinn að jafna sig á tapinu gegn Þjóðverjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×