Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jafnt í hálfleik framlengingar Staðan er jöfn eftir fyrri hálfleik framlengingar gegn dönum 38-38. Snorri Steinn er búinn að skora tvö af fjórum mörkum Íslands í framlengingunni og heldur áfram að eiga stórleik. 30.1.2007 20:48
Snorri jafnaði á lokasekúndunum Íslendingar jöfnuðu á síðustu sekúndum leiksins gegn Dönum og leikurinn verður framlengdur. Snorri Steinn Guðjónsson reyndist þyngdar sinnar virði í gulli á síðustu mínútum venjulegs leiktíma, en hann hefur skorað alls 12 mörk í leiknum. 30.1.2007 20:33
Danir með yfirhöndina Danir eru að síga framúr en þegar seinni hálfleikur er hálfnaður er staðan 25-22 fyrir Dönum. Íslendingar áttu slæman leikkafla á fyrstu tíu mínútum hálfleiksins á meðan dönsku skytturnar fóru á kostum. 30.1.2007 20:12
Ísland yfir í hálfleik Íslendingar leiða með 17 mörkum gegn 16 mörkum Dana þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Íslendingar náðu mest þriggja marka forystu en Danir náðu að jafna rétt fyrir hálfleikinn. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði hinsvegar á lokasekúndum hálfleiksins og Íslendingar því með forystu sem fyrr segir. 30.1.2007 19:40
Allt í járnum gegn Dönum Það er enn allt í járnum í leik Íslendinga og Dana þegar fyrri hálfleikur er rétt hálfnaður. Danir hafa þó forystu 10-9. Liðin fóru bæði rólega af stað en hefur vaxið ásmeign í sóknarleiknum eftir því sem á hefur liðið. 30.1.2007 19:17
Alfreð: Þurfum að spila frábæran leik Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari segir að íslenska liðinu dugi ekkert minna en frábær leikur ætli það að koma sér í undanúrslitin á HM í Þýskalandi. Leikmenn liðsins taka í sama streng. 29.1.2007 21:30
Þjálfari Dana: Þetta verður eins og í hryllingsmynd Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari Dana, líkir leiknum við Íslendinga á HM í Hamborg á morgun við orrustu sem komi til með að vera eins og hin besta hryllingsmynd að horfa á. Danski þjálfarinn varar við of mikilli bjartsýni. 29.1.2007 20:45
Boldsen: Skipuleggjendur eru heiladauðir Joachim Boldsen, leikmaður danska handboltalandsliðsins, vandar skipuleggjendum Heimsmeistaramótsins í Þýskalandi ekki kveðjurnar og segir "heiladauða" einstaklinga vera ábyrga fyrir klúðrinu sem hefur átt sér stað í miðsölunni fyrir leikinn gegn Íslendingum á morgun. 29.1.2007 19:50
Sverre og Róbert með bestu nýtinguna Sverre Jakobsson og Róbert Gunnarsson eru með langbestu skotnýtinguna af leikmönnum íslenska landsliðsins á HM. Róbert hefur skorað úr 13 af 14 skotum sínum í keppninni til þess og er með 93% skotnýtingu en Sverre hefur gert enn betur og er með 100%. Þess ber þó að geta að hann hefur aðeins skotið tvisvar á markið. 29.1.2007 19:00
Byrjunarlið Íslands er eitt það besta í heimi Peter Henriksen, annar markmanna danska landsliðsins í handbolta, segir að liðinu bíði erfitt verkefni gegn Íslandi í 8-liða úrslitum HM í Þýskalandi. Hann telur byrjunarlið Íslands vera eitt það allra besta í heimi en lykillinn að sigri sé að stöðva Ólaf Stefánsson. 29.1.2007 18:00
Boldsen undir smásjá spænskra stórliða Joachim Boldsen, leikstjórnandi danska handboltalandsliðsins, er undir smásjá spænskra stórliða eftir að hafa spilað eins og engill á HM í Þýskalandi. Boldsen hefur verið á mála hjá Flensburg undanfarin ár en hefur þegar ákveðið að ganga til liðs við AaB í heimalandi sínu á næsta tímabili. Það ku hins vegar vera gamall draumur leikmannsins að reyna fyrir sér á Spáni. 29.1.2007 17:30
Þjálfari Frakka er ekki bjartsýnn Claude Onesta, þjálfari franska landsliðsins í handbolta, er ekki bjartsýnn fyrir viðureign sinna manna gegn Króötum í 8-liða úrslitum Heimsmeistarakeppninnar á morgun. Onesta segir Króata með sigurstranglegasta liðið í Þýskalandi þar sem þeir séu eina taplausa liðið til þessa. Þjálfari Króata segir öll lið eiga jafna möguleika á sigri. 29.1.2007 17:15
Danir eru mun sigurstranglegri en Íslendingar Erik Veje Rasmussen, þjálfari Aarhus í Danmörku og helsti HM-sérfræðingur blaðsins Berlinske Tidende í heimalandi sínu, telur að Danir séu mun sigurstranglegri en Íslendingar í viðureign liðanna í 8-liða úrslitum HM í Þýskalandi. Rasmussen telur að Danir séu einnig með sterkara lið en Rússar og Pólverjar, en það verða væntanlegir mótherjar í undanúrslitum. 29.1.2007 16:30
Guðjón Valur enn í hópi markahæstu manna Guðjón Valur er í 4.-5. sæti á lista markahæstu leikmanna HM í Þýskalandi þegar keppni í milliriðlum er lokið, en hann hefur skorað 47 mörk í sjö leikjum. Ef mörk úr vítaköstum eru dregin frá leikmönnum er Guðjón Valur hins vegar markahæstur allra, en hann hefur aðeins skorað eitt mark úr vítakasti. Tékkinn Filip Jicha er enn markahæstur með 55 mörk. 29.1.2007 15:30
Íslendingar verða lítil hindrun Lars Rasmussen, leikmaður danska landsliðsins í handbolta, hefur trú á að liðið geti komist alla leið í úrslit Heimsmeistarakeppninnar í Þýskalandi. Rasmussen er sannfærður um að Íslendingar verði lítil hindrun fyrir Dani. 29.1.2007 14:00
Íslenska liðið sagt óskamótherjinn Ulrik Wibek, þjálfari danska landsliðsins, segir Íslendinga mjög spennandi andstæðinga en ljóst varð í gær að liðin mætast í átta liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar í handknattleik. Þá er haft eftir Lasse Boesen, einum leikmanna danska liðsins, í Jótlandspóstinum að Íslendingar hafi verið óskamótherjinn í átta liða úrslitum og hann viðurkennir að Danir eigi nú góða möguleika á að ná í undanúrslitin og jafnvel lengra. 29.1.2007 11:51
Alfreð hættir með landsliðið í sumar Alfreð Gíslason segir í viðtali við vefmiðilinn Sport1.de að hann muni hætta með landsliðið í sumar vegna fjölskyldu-ástæðna. Alfreð er þjálfari þýska liðsins VfL Gummersbach og það er ekki mikið um frítíma hjá kappanum enda fara öll fríin með þýska liðinu í verkefni landsliðsins. 29.1.2007 11:46
Guðjón Valur fjórði markahæstur á HM Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður íslenska landsliðsins í handknattleik, er í fjórða sæti yfir markahæstu menn á heimsmeistaramótinu nú þegar keppni í milliriðlum er lokið. Þá hefur Ólafur Stefánsson átt flestar stoðsendingar alla á mótinu. 29.1.2007 10:38
Íslendingar mæta Dönum Nú er orðið ljóst að það verða Danir sem mæta Íslendingum í 8-liða úrslitum HM í handbolta á þriðjudag. Danir lögðu Tékka af velli í Mannheim í kvöld þar sem lokatölur urðu 33-29. Þar sem Spánverjar töpuðu fyrir Króötum í dag fara Danir upp í annað sæti millriðils 2 og mæta þar með Íslendingum, sem höfnuðu í þriðja sæti milliriðils 1. 28.1.2007 21:30
Danir með tveggja marka forystu í hálfleik Þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign Dana og Tékka á HM í handbolta er staðan 17-15, Dönum í vil. Tékkar komu Dönum í opna skjöldu með mikilli baráttu í upphafi leiks og náðu meðal annars 7-2 forystu. Danir hafa hins vegar náð að vinna sig aftur inn í leikinn og gott betur. Ef Danir sigra mæta þeir Íslendingum í 8-liða úrslitum. 28.1.2007 19:55
Logi Geirsson: Þjóðverjar eru væluskjóður “Þetta var bara hrein snilld. Það er ekki hverjum sem er sem tekst að fá 12 þúsund manns upp á móti sér. Þessir Þjóðverjar eru svo miklar væluskjóður. Þetta var skemmtilegast tapleikur sem ég hef spilað á ævinni,” sagði Logi Geirsson eftir leikinn gegn Þýskalandi í dag. Ítarlega verður rætt við Loga í Fréttablaðinu á morgun um atvikið sem varð til þess að hann fékk alla áhorfendur í Halle-höllinni á móti sér. 28.1.2007 19:15
Noregur burstaði Úkraínu og vann Forsetabikarinn Norðmenn unnu Forsetabikarinn svokallaða með því að gjörsigra Úkraínumenn í úrslitaleik í dag, 32-22. Um er að ræða keppni þeirra liða sem komust ekki áfram í milliriðla á HM í Þýskalandi. Norðmenn höfnuðu þar með í 13. sæti Heimsmeistarakeppninnar. 28.1.2007 19:00
Rússar í 8-liða úrslit eftir ótrúlegan sigur á Ungverjum Ungvjerar voru fjórum sekúndum frá því að komast í 8-liða úrslit HM í handbolta en það var þegar svo mikið var eftir þegar Rússar náðu að skora sigurmarkið í leik liðanna nú í kvöld. Rússar sigruðu með einu marki, 26-25, og "stálu" sæti í 8-liða úrslitum af Ungverjunum. 28.1.2007 18:49
Guðjón Valur: Við vorum að spara kraftana Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður íslenska liðsins, viðurkenndi í samtali við fjölmiðla eftir leikinn gegn Þýskalandi á HM í dag að leikmenn liðsins hefðu sparað krafta sína fyrir væntanlega viðureign í 8-liða úrslitum. Leikmenn þýska liðsins segja úrslitin hafa ráðist í fyrri hálfleik. 28.1.2007 18:34
Sverre Jakobsson: Hugurinn við þriðjudaginn “Hugurinn var svolítið við þriðjudaginn. Það er ekki hægt að neita því. Aðalatriðið var að hafa gaman af þessu og sleppa við meiðsli,” sagði Sverre Andreas Jakobsson eftir tapið gegn Þýskalandi í dag, þó brosmildur sem fyrr. 28.1.2007 18:32
Vignir Svavarsson: Ekki merkilegur leikur “Það náðist að bjarga þessu fyrir horn og þetta ekki merkilegur leikur hjá okkur hér í dag.. Hvorki í vörn né sókn,” sagði línumaðurinn Vignir Svavarsson sem náði sér ekki alveg á strik gegn Þjóðverjum í dag. 28.1.2007 18:30
Pólverjar sigruðu Slóvena og tryggðu efsta sætið Slóvenar voru engin fyrirstaða fyrir sterkt lið Pólverja á HM í Þýskalandi í dag og svo fór að Pólverjar unnu 11 marka sigur, 38-27, og tryggðu sér þannig sigur í milliriðli 1. Þar með er endanlega ljóst að Ísland hafnar í þriðja sæti riðilsins og Frakkar í því fjórða, sama hvernig leikur þeirra gegn Túnisum fer í kvöld. 28.1.2007 18:17
Úkraína og Noregur keppa um forsetabikarinn Það verða Úkraína og Noregur sem mætast í úrslitum Forsetabikarsins svokallaða, en það er keppnin sem liðin sem lentu í þriðja sæti undanriðlanna átta á HM fóru í. Norðmenn tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum með því að leggja Suður-Kóreu af velli í gær, 34-32, en Úkraína, sem einmitt lagði Íslendinga af velli í riðlakeppninni, vann Argentínu naumlega, 23-22. 28.1.2007 17:15
Allar líkur á að Ísland mæti Dönum í 8-liða úrslitum Króatar lögðu Spánverja af velli í hreinum úrslitaleik liðanna um toppsætið í milliriðli 2 á HM í Þýskalandi í dag, 29-28. Úrslitin þýða að ef Danir vinna Tékka í kvöld munu þeir fara upp fyrir Spánverja og ná 2. sæti í riðlinum. Ef sú yrði raunin mætast Íslendingar og Danir í 8-liða úrslitum. 28.1.2007 16:52
Christiansen vill ekki mæta Þjóðverjum Lars Christiansen, hornarmaður danska landsliðsins í handbolta, vill með engu móti mæta gestgjöfum Þjóðverja í 8-liða úrslitum HM. Eftir sigur Þjóðverja á Íslendingum í milliriðli 1 dag er líklegast að þeir muni mæta liðinu sem hafnar í þriðja sæti í milliriðli 2. Ef Danir vinna Tékka í dag og Spánn tapar fyrir Króatíu verður Christiansen að ósk sinni. 28.1.2007 16:33
Ísland tapaði fyrir Þýskalandi Íslendingar töpuðu síðasta leik sínum í milliriðli HM í handbolta gegn gestgjöfum Þjóðverja, 33-28. Þjóðverjar höfðu talsverða yfirburði í leiknum og leikur íslenska liðsins bar þess keim að liðið væri þegar búið að tryggja sig áfram í 8-liða úrslit. Nokkuð ljóst er að Ísland hafnar í 3. sæti milliriðilsins. 28.1.2007 15:51
Þjóðverjar bæta við forskotið Þjóðverjar hafa yfir, 26-17, þegar rétt rúmur stundarfjórðungur er eftir af leiknum við Íslendinga sem nú stendur yfir. Þjóðverjar hafa smá saman aukið við forskot sitt þrátt fyrir að Íslendingar hafi að mestu stillt upp sínu sterkasta liði í síðari hálfleik. 28.1.2007 15:32
Erfið staða Íslands - sex mörkum undir í hálfleik Íslendingar eru sex mörkum undir í hálfleik í viðureign sinni gegn Þjóðverjum á HM í Þýskalandi. Staðan er 17-11 en íslenska liðið hefur ekki verið upp á sitt besta, en þess ber að geta að margir lykilmanna liðsins hafa verið hvíldir í fyrri hálfleiknum. 28.1.2007 15:02
Íslendingar undir gegn Þjóðverjum Gestgjafar Þjóðverja hafa undirtökin í viðureign sinni gegn Íslendingum á HM í handbolta sem nú stendur yfir. Þegar 15 mínútur eru liðnar af leiknum er staðan 9-4, Þjóðverjum í vil. Íslendingar stilla upp mikið breyttu liði frá því í gær og lykilmenn eru hvíldir. Markús Máni Michaelsson hefur skorað þrjú af mörkum Íslands. 28.1.2007 14:43
Hreiðar kemur inn í hópinn fyrir Roland Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari gerir eina breytingu á leikmannahópi íslenska landsliðsins í handbolta fyrir leikinn gegn Þjóðverjum á HM í dag. Markvörðurinn Hreiðar Guðmundsson kemur inn í hópinn í stað Roland Vals Eradze, sem hvílir að þessu sinni. Búist er við því að Alfreð geri talsverðar breytingar á byrjunarliði sínu. 28.1.2007 13:26
Grænlenska bomban slær í gegn Það könnuðust fáir við handboltamanninn Angutimmarik Kreutzmann frá Grænlandi áður en HM í handbolta hófst í vikunni. Nú er hin 18 ára gamla skytta, sem gengur undir gælunafninu “grænlenska bomban” í Þýskalandi, á allra manna vörum og undir smásjánni hjá mörgum stórum liðum. Kreutzmann er næst markahæstur það sem af er HM með 43 mörk . 28.1.2007 11:15
Ísland lendir aldrei neðar en í 3. sæti milliriðilsins Nú þegar aðeins ein umferð er eftir af keppni í milliriðlum HM í handbolta liggur nokkuð ljóst fyrir hvaða lið fara í 8-liða úrslit. Lokastaða riðlanna ræðst hins vegar alfarið af leikjum morgundagsins. Þó er ljóst að Ísland verður ávallt fyrir ofan Frakkland, sama hvernig leikir morgundagsins fara, og þar með getur liðið ekki endað neðar en í 3. sæti milliriðilsins. 27.1.2007 21:13
Vinstri öxlin nánast lömuð “Ég er að drepast í öxlinni og í raun alveg einhentur. Ég get lítið notað vinstri öxlina, bara rétt til þess að styðja við boltann," sagði Logi Geirsson, einn besti leikmaður íslenska liðsins gegn Slóvenum í dag, eftir leikinn. 27.1.2007 21:00
Danir höfðu betur gegn Rússum Danir stigu stórt skref í átt að 8-liða úrslitum HM í Þýskalandi eftir 26-24 sigur á Rússum í spennuþrungnum leik í Mannheim í kvöld. Pólverjar unnu níu marka sigur á Túnis, 40-21, og eru komnir á toppinn í milliriðli 1, en fyrr í kvöld höfðu Spánverjar betur gegn Ungverjum, 33-31, í milliriðli 2. 27.1.2007 20:40
Íslendingar sigruðu Slóvena og eru öruggir í 8-liða úrslit Íslendingar báru sigurorð af Slóvenum, 32-31, í viðureign liðanna á HM sem var að ljúka rétt í þessu og tryggðu sér þar með öruggt sæti í 8-liða úrslitum keppninnar. Íslenska liðið er nú komið með sex stig í milliriðli 1 og er í öðru sæti riðilsins þegar aðeins einn leikur er eftir. 27.1.2007 18:23
Íslendingar halda frumkvæðinu Íslendingar halda frumkvæðinu í viðureign sinni gegn Slóveníu og hafa fjögurra marka forystu, 26-22, þegar 15 mínútur eru til leiksloka. Birkir Ívar Guðmundsson hefur staðið sig gríðarlega vel í síðari hálfleik og varið í nokkrum dauðafærum Slóvena. 27.1.2007 18:00
Ísland með tveggja marka forystu Íslendingar leiða með tveimur mörkum, 17-15, í hálfleik gegn Slóvenum. Íslendingar hafa verið með yfirhöndina nánast allan leikinn og náðu mest fimm marka forystu í hálfleiknum. Liðið gaf hins vegar nokkuð eftir undir lok hálfleiksins og hleypti Slóvenum aftur inn í leikinn. Logi Geirsson og Snorri Steinn Guðjónsson hafa skorað mest það sem af er, eða fimm mörk hvor. 27.1.2007 17:30
Íslendingar byrja vel Íslendingar hafa yfir, 9-6, þegar stundarfjórðungur er liðinn af leik liðsins við Slóvena á HM í Þýskalandi. Eftir brösuga byrjun þar sem Slóvenar skoruðu fyrstu tvö mörkin hefur íslenska liðið náð sér mjög vel á strik. Logi Geirsson hefur farið á kostum og hefur skorað fjögur mörk. 27.1.2007 17:15
Þjóðverjar lögðu Frakka Þjóðverjar unnu frækinn en verðskuldaðan sigur á Evrópumeisturum Frakka á HM í handbolta í dag, 29-26, eftir að hafa verið með forystu frá fyrstu mínútu. Með sigrinum hirðir þýska liðið toppsætið af því franska í milliriðli 1. 27.1.2007 17:11
Enn einn sigur Króata Króatar hafa tryggt sér annað af tveimur efstu sætunum í milliriðli 2 á HM í handbolta með 31-29 sigri á Tékkum í dag. Króatía er með átta stig, fullt hús stiga, eftir fjóra leiki og mæta Spánverjum í lokaleik sínum á morgun. Þegar síðari hálfleikur er tæplega hálfnaður í viðureign Þjóðverja og Frakka er staðan 21-15, Þjóðverjum í vil. 27.1.2007 16:39