Handbolti

Guðjón Valur: Þeir voru einfaldlega klókari en við

mynd/pjetur

Guðjón Valur Sigurðsson sagði Rússana hafa verið klókari í leik kvöldsins og sagði engar afsakanir um þreytu duga til við að útskýra tapið.

"Að mínu mati erum við ekki að tapa út af neinu öðru en því að við erum ekki nógu klókir. Þetta er ekki spurning um það að hafa tapað í átta liða úrslitum eða neitt slíkt - því það gerðu Rússarnir líka og þeir eru alveg jafn þreyttir og við. Þeir voru einfaldlega klókari en við í dag," sagði Guðjón Valur í samtali við Arnar Björnsson í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×