Handbolti

Króatar tryggðu sér fimmta sætið

Ivano Balic var að venju óstöðvandi í liði Króata, skoraði 8 mörk og gaf 5 stoðsendingar
Ivano Balic var að venju óstöðvandi í liði Króata, skoraði 8 mörk og gaf 5 stoðsendingar
Króatíska landsliðið tryggði sér í dag fimmta sætið á HM með öruggum sigri á Rússum 34-25 eftir að hafa verið yfir 18-12 í hálfleik. Konstantin Igropulo var markahæstur hjá Rússum með 9 mörk en Vedran Zrnic skoraði 11 mörk fyrir Króata og arkitektinn Ivano Balic skoraði 8 mörk.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×