Handbolti

Óli Stef: Sjaldan séð okkur svona lélega

mynd/pjetur

Ólafur Stefánsson var skiljanlega daufur í dálkinn þegar Arnar Björnsson íþróttafréttamaður náði tali af honum eftir leikinn við Rússa í kvöld. Hann sagðist sjaldan hafa séð íslenska liðið jafn lélegt í sóknarleiknum.

"Þetta hefði verið allt í lagi ef við hefðum verið að spila þokkalega og tapað, en ég hef bara sjaldan séð okkur svona lélega. Þetta minnti mig á Úkraínuleikinn og við vorum bara hörmulegir - sérstaklega í seinni hálfleik. Vörnin var þokkaleg í dag, miklu betri en gegn Dönum en í dag var það bara sóknin sem var mjög slök og við vorum bara á hælunum," sagði Ólafur Stefánsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×