Ivano Balic í nærmynd 19. janúar 2007 13:00 Ivano Balic hefur verið einn allra besti handboltamaður heimsins undanfarin ár NordicPhotos/GettyImages
Ivano Balic, sem nú er 27 ára og á hátindi ferils síns sló fyrst í gegn í lokakeppni HM í Portúgal 2003, ekki síst í úrslitaleiknum þar sem hann átti stórleik gegn langt um stærri og sterkari Þjóðverjum. Frábær tækni og framúrskarandi leikskilningur eru það sem gera Balic að einum fremsta handboltamanni í heimi, hann sannar að þeir kostir eru ekki síður mikilvægir en stærð og styrkur. Með góðum rökum má halda því fram að Balic sé sá besti í sinni stöðu í heiminum í dag. Hann tekur sárasjaldan rangar ákvarðanir og dreifir afar vel spilinu á milli þess að spila upp á skyttur, skapa pláss á línunni og stimpla út á hornamennina, hann lætur alla samherja sína blómstra. Leikur hans ber þess einnig skýr merki að hann lék körfubolta sem barn og unglingur og fór tiltölulega seint að spila handbolta. Þrátt fyrir nokkur arðvænleg tilboð frá stærstu félagsliðum Evrópu ákvað Balic að leika fyrir Metkovic Jambo í heimalandi sínu allt til ársins 2004 en þá skrifaði hann undir verðmætan samning við spænsku risana í Portland San Antonio. Það tók Balic nokkurn tíma að aðlagast leiknum á Spáni og eins þurfti hann að aðlagast spænskum lífstíl en á síðasta tímabili fór hann að blómstra og sanna verðgildi sitt fyrir Spánverjunum. Miklu skipti þegar æskuvinur hans, Davor Dominikovic hóf að leika með honum á Spáni. Þrátt fyrir yfirlýst áhugaleysi á varnarleik og þrátt fyrir að hafa stundum brugðist þegar Króatar hafa lent í mótlæti er Ivano Balic sá eini í sögu handboltans sem hefur verið valinn mikilvægasti leikmaður fimm stórmóta í röð: HM í Portúgal 2003, EM 2004 í Slóveníu, Ólympíleikarnir 2004 í Aþenu, HM 2005 í Túnis og EM 2006 í Sviss.Staða: LeikstjórnandiFæddur: 1. apríl 1979 í Split í KróatíuFélagslið: Portland San Antonio á Spáni
Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Sport Ein stærsta stjarna NFL fær að heyra það: Þú ert feitur Sport Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Fleiri fréttir Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Enn á ný er Íslendingur á bak við sigur Magdeburg í Meistaradeildinni Gísli fékk „deja vu“: Árangur sem aðeins Íslendingar hafa náð Gísli Þorgeir bestur í annað sinn Sjá meira