Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Brynjar Björn ætlar sér að komast í 25 manna leikmannahóp Reading Sky Sports skrifaði um íslenska miðjumanninn Brynjar Björn Gunnarsson á vefsíðu sinni í dag. Þar kemur fram að Brynjar ætti að fá að vita það fljótlega hvort hann sé inn í myndinni hjá stjóranaum Brian McDermott nú þegar Reading er komið upp í ensku úrvalsdeildina. 26.7.2012 18:15
Kompany samdi við City til 2018 Belgíski miðvörðurinn Vincent Kompany hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistaralið Manchester City til ársins 2018. 26.7.2012 15:30
Roma lagði Liverpool í Boston Ítalska liðið AS Roma lagði Liverpool að velli 2-1 í æfingaleik félaganna á Fenway Park í Boston í nótt. 26.7.2012 14:45
Modric látinn æfa með varaliði Tottenham Króatinn, Luca Modric, miðjumaðurinn öflugi hjá enska úrvalsdeildarliði Tottenham, hefur verið skipað að mæta á æfingu hjá varaliði félagsins þar sem hann neitaði að ferðast með aðalliðinu í æfingaferð félagsins til Bandaríkjanna. Modric hefur beðið félagið afsökunar á því upphlaupi sem fjarvera hans hefur valdið en stendur hinsvegar ennþá fast á sínu að vilja fara frá félaginu. 26.7.2012 10:22
Thierry Henry farinn að tala um aðra endurkomu til Arsenal Thierry Henry átti eftirminnilega endurkomu í lið Arsenal á síðustu leiktíð og nú er Frakkinn farinn að tala um að snúa aftur til Lundúna á komandi tímabili. Henry ræddi möguleikann á því að snúa aftur til Arsenal í viðtali við Sky Sports. 25.7.2012 21:30
Oscar orðinn leikmaður Chelsea Brasilíski miðjumaðurinn Oscar er genginn til liðs við Evrópumeistara Chelsea frá Internacional í heimalandinu. Kaupverðið er talið vera um 25 milljónir punda eða sem nemur um fimm milljörðum íslenskra króna. 25.7.2012 18:43
Swansea hafnaði fyrsta tilboði Liverpool í Joe Allen BBC segir frá því að Liverpool og Swansea séu í viðræðum um kaup á miðjumanninum Joe Allen en þar kom líka fram að Swansea sé þegar búið að hafna einu tilboð frá Liverpool í leikmanninn. Brendan Rodgers þekkir Allen vel enda var hann áður stjóri Swansea. 25.7.2012 17:45
Blatter varar Bale við - FIFA gæti dæmt hann í bann Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur varað Tottenham-manninn Gareth Bale við því að hann gæti átt á hættu að vera dæmdur í bann fyrir að gefa ekki kost á sér í Ólympíulið Breta. 25.7.2012 17:15
Rosicky frá í tvo mánuði Tékkneski landsliðsfyrirliðinn Tomas Rosicky verður ekki með Arsenal í upphafi tímabilsins því hann þurfti að fara í aðra aðgerð á hásin og verður því frá keppni í sex til átta vikur. Þetta kom fram í tékkneskum fjölmiðlum í dag en þar kemur fram að Rosicky sé þegar byrjaður í endurhæfingu eftir seinni aðgerðina. 25.7.2012 16:15
Swansea tapaði fyrsta leiknum án Gylfa og Brendan Rodgers Swansea City lék í nótt fyrsta leikinn sinn á undirbúningstímabilinu fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni en velska liðið er eitt af sex liðum úrvalsdeildarinnar sem eru stödd í æfingaferð í Bandaríkjunum. 25.7.2012 15:30
Kagawa tryggði Manchester United sigur Japanski leikmaðurinn Shinji Kagawa skoraði eina mark leiksins þegar Manchester United vann kínverska liðið Shanghai Shenhua 1-0 í æfingaleik á Shanghai Stadium í Kína í dag. Shanghai Shenhua spilaði án þeirra Didier Drogba og Nicolas Anelka í þessum leik. 25.7.2012 14:04
Litli bróðir Eden Hazard er líka kominn til Chelsea Thorgan Hazard, yngri bróðir Eden Hazard, er orðinn leikmaður Chelsea eins og bróðir sinn. Thorgan er búinn að semja við Evrópumeistarana en Chelsea keypti hann frá franska liðinu Lens. 25.7.2012 13:45
Redknapp ætlar að hjálpa til að bjarga Portsmouth Harry Redknapp, fyrrum stjóri Tottenham og Portsmouth, ætlar að reyna að gera sitt í að bjarga Portsmouth frá því að vera lagt niður vegna gjaldþrots. Portsmouth verður að redda fjármagni fyrir 10. ágúst ef félagið ætlar að halda áfram rekstri. 25.7.2012 13:00
Svona lagði Gylfi upp markið fyrir Bale í nótt Gylfi Þór Sigurðsson og Gareth Bale eru strax byrjaðir að ná vel saman hjá Tottenham. Gylfi lagði upp mark fyrir Bale í 1-1 jafnteflisleik á móti Los Angeles Galaxy í nótt og hefur Gylfi því átt þátt í marki í fyrstu tveimur leikjum sínum í búningi Spurs. 25.7.2012 12:30
Tottenham réttlætir fjarveru Bale á ÓL Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur komið Gareth Bale, til varnar en Bale hefur verið gagnrýndur fyrir að draga sig út úr Ólympíulandsliði Breta vegna meiðsla. Bale lék engu að síður í 73 mínútur og skoraði eitt mark í æfingaleik Tottenham gegn LA Galaxy í gærkvöld. 25.7.2012 10:15
Gylfi lagði upp mark fyrir Tottenham gegn LA Galaxy Gylfi Sigurðsson lagði upp mark fyrir Tottenham í æfingaleik gegn bandaríska liðinun LA Galaxy sem fram fór í gær. Gareth Bale skoraði markið með góðum skalla á 17. mínútu eftir fyrirgjöf frá íslenska landsliðsmanninum. David Lopes jafnaði fyrir heimamenn undir lok fyrri hálfleiks. 25.7.2012 09:58
Gylfi Þór og félagar mæta La Galaxy í nótt Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Tottenham Hotspur eru nú staddir í Bandaríkjunum þar sem þeir mæta LA Galaxy í æfingaleik í nótt. Gylfi verður væntanlega í byrjunarliði Tottenham í fyrsta sinn. Leikurinn fer fram í The Home Depot Center í Kaliforníu og hefst klukkan tvö að íslenskum tíma. 24.7.2012 23:30
QPR búið að finna leið til að flýta endurkomu Joey Barton QPR er hugsanlega búið að finna leið til þess að fá vandræðagemlinginn Joey Barton fyrr til baka úr tólf leikja banninu sem miðjumaðurinn skapheiti var dæmdur í vegna framkomu sinnar í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar síðasta vor. 24.7.2012 20:30
Arsenal-maður tekinn á teppið fyrir twitter-skrif Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur kært Arsenal-manninn Emmanuel Frimpong fyrir skrif hans inn á twitter-síðu sína um helgina. Frimpong brást illa við skilaboðum Tottenham-stuðningsmanns inn á twitter-síðu sinni og svaraði honum í reiðikasti. Frimpong tók ummæli sín fljótlega út af síðu sinni en það var of seint. 24.7.2012 16:30
Enginn Drogba á móti Manchester United? Didier Drogba missir hugsanlega af leik Shanghai Shenhua og Manchester United á morgun vegna meiðsla en margir höfðu beðið spenntir eftir því að sjá Drogba glíma við United-vörnina með nýju kínversku liðsfélögunum sínum. 24.7.2012 16:00
Koscielny samdi á ný við Arsenal | fimm ára samningur Laurent Koscielny hefur framlengt samingi sínum við enska úrvalsdeildarliðið Arsenal til fimm ára. Varnarmaðurinn sem er 26 ára gamall var einn besti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð en hann kom til Englands frá Lorient í Frakklandi árið 2010. 24.7.2012 10:30
Gylfi Þór í nýrri auglýsingu frá Stöð 2 Sport Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Tottenham, leikur í nýrri auglýsingu frá Stöð 2 Sport um enska boltann sem hefst nú eftir örfáar vikur. 24.7.2012 00:30
Wilshere verður ekki klár með Arsenal í fyrstu umferð Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að Jack Wilshere leikmaður liðsins verði jafnvel ekki klár í slaginn með liðinu fyrr en í október. Enski landsliðsmaðurinn var frá allt síðasta keppnistímabil vegna meiðsla og hann fór nýlega í hnéaðgerð sem framkvæmd var af sérfræðingum í Svíþjóð. 23.7.2012 16:00
Man Utd færist nær því að semja við Lucas Moura Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að félagið sé ekki langt frá því að ganga frá samningum við Lucas Moura. Brasilíski miðjumaðurinn er aðeins 19 ára gamall og hefur hann leikið með Sao Paulo í heimalandinu og hefur félagið hafnað 27 milljón punda tilboði frá Man Utd – eða sem nemur 5,2 milljarða kr. 23.7.2012 13:45
Rafael van der Vaart hefur samúð með Modric Rafael van der Vaart, fyrrum leikmaður Real Madrid og núverandi leikmaður Tottenham segist hafa samúð með samherja sínum, Luka Modric, vegna þeirrar pattstöðu sem upp er komin varðandi vistarskipti Modric frá Tottenham til Real. Luka Modric hefur ítrekað lýst áhuga sínum á að ganga til liðs við Spánarmeistarana en félögin virðast ekki ná að koma sér saman um kaupverðið. 23.7.2012 11:30
Piazon tryggði Chelsea jafntefli gegn PSG Franska stórliðið PSG og enska úrvalsdeildarliðið Chelsea áttust við í æfingaleik í New York í Bandaríkjunum í gær. Lucas Piazon jafnaði fyrir Chelsea átta mínútum fyrir leikslok. Leikurinn fór fram á hinum sögufræga Yankee Stadium. Brasilíumennirnir Piazon og Ramires voru mennirnir á bak við markið en Ramires lagði það upp fyrir landa sinn. Nene skoraði mark PSG snemma í fyrri hálfleik. Sænski landsliðsframherjinn Zlatan Ibrahimovic var ekki í leikmannahóp PSG. 23.7.2012 09:00
Manchester City undirbýr 25 milljóna punda tilboð í De Rossi Manchester City undirbýr nú tilboð í miðjumanninn Daniele De Rossi frá Roma en ensku meistararnir ætla að greiða 25 milljónir punda fyrir þennan frábæra leikmann. 22.7.2012 20:15
Villas-Boas ósáttur við Modric Líkurnar á því að Luka Modric hafi leikið sinn síðasta leik fyrir Tottenham halda áfram að aukast. André Villas-Boas, stjóri Tottenham, hefur gagnrýnt Modric harðlega fyrir að ferðast ekki með liðinu til Bandaríkjanna þar sem liðið er í æfingaferð. 22.7.2012 12:09
Aftur meiðist Smalling | Missir af upphafi tímabilsins Chris Smalling, varnarmaður Manchester United, verður frá knattspyrnuiðkun næstu tíu vikurnar. Kappinn gekkst undir uppskurð vegna meiðsla á fæti en Smalling missti af síðustu vikum liðins tímabils vegna nárameiðsla. 22.7.2012 11:00
Liverpool gerði jafntefli í fyrsta leik undir stjórn Rodgers Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool gerði í kvöld 1-1 jafntefli við Toronto í æfingaleik í Kanada. Leikurinn var sá fyrsti sem félagið leikur undir stjórn Brendan Rodgers en fjölmarga lykilmenn vantaði í lið Liverpool. 21.7.2012 23:43
Engin uppgjöf hjá Darren Fletcher Darren Fletcher, hinn 28 ára miðjumaður Manchester United, gefur lítið fyrir þann orðróm að hann muni þurfa að leggja skóna á hilluna langt fyrir aldur fram. Fletcher hefur glímt við sáraristilbólgu og kom aðeins tíu sinnum við sögu hjá United á síðustu leiktíð. 21.7.2012 17:15
Oscar búinn með læknisskoðun hjá Chelsea Brasilíski miðjumaðurinn Oscar hefur greint frá því að hann hafi farið í læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea. Hann ætlar þó ekki að taka ákvörðun um framtíð sína fyrr en að loknum Ólympíuleikunum. 21.7.2012 16:30
Bebe bjargaði United | Myndband Portúgalinn Bebe var hetja Manchester United í 1-1 jafntefli gegn Ajax Cape Town í æfingaleik í Suður-Afríku í dag. 21.7.2012 15:14
Rodgers þarf ekki að skila Liverpool Meistaradeildarsæti John Henry, aðaleigandi enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, segist ekki gera þá kröfu til nýs knattspyrnustjóra Brendan Rodgers að Liverpool vinni sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. 21.7.2012 14:45
Juventus vill tefla fram van Persie og Suarez Ítalska knattspyrnufélagið Juventus hefur tjáð Robin van Persie að það vilji að Hollendingurinn spili í framlínu liðsins við hlið Luis Suarez, framherja Liverpool. BBC greinir frá þessu. 21.7.2012 11:00
Heiðar skoraði og lagði upp mark á þrettán mínútum Heiðar Helguson lét heldur betur til sín taka þær þrettán mínútur sem hann spilaði í 5-0 sigri Queens Park Rangers á Kelantan í æfingaleik í Malasíu í kvöld. 20.7.2012 21:50
Manchesterliðin vilja borga 3 milljarða kr. fyrir Robin van Persie Dailymail greinir frá því að Manchester City og Manchester United hafi lagt fram tilboð í hollenska landsliðsframherjann Robin van Persie. Ítalska meistaraliðið Juventus hefur einnig sýnt Arsenal-leikmanninum áhuga. Manchesterliðin vilja kaupa leikmanninn á 15 milljónir punda eða sem nemur 3 milljörðum kr. 20.7.2012 12:00
Ferguson: Dalglish missti starfið útaf Suarez málinu Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Kenny Dalglish hafi misst starf sitt sem knattspyrnustjóri hjá Liverpool vegna þess að hann hafi tekið ranga ákvörðun í "Suarez-Evra“ málinu á síðustu leiktíð. 20.7.2012 10:00
Pearce ósáttur við skorður settar af enska knattspyrnusambandinu Stuart Pearce, þjálfari Ólympíuliðs Breta í knattspyrnu, er ósáttur við að hafa ekki fengið að velja þá leikmenn Englands eru voru í landsliðshópnum á Evrópumótinu fyrr í sumar. 19.7.2012 22:00
Tottenham vill fá 7 milljarða kr. fyrir Modric Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham, segir að Luka Modric verði aðeins seldur ef rétt fæst fyrir króatíska landsliðsmanninn. Tottenham vill fá 35 milljónir punda eða sem nemur 7 milljörðum ísl. kr. Þrjú lið sem hafa áhuga á Modric hafa rætt með formlegum hætti við Tottenham en talið er að þau séu Real Madrid, Manchester United og PSG í Frakklandi. 19.7.2012 12:00
Chelsea hefur áhuga á fá Moses frá Wigan Roberto Di Matteo, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur staðfest að félagið hafi áhuga á að fá sóknamanninn Victor Moses sem leikur með Wigan í ensku úrvalsdeildinni. Dave Whelan, eigandi Wigan, er ekki sáttur við það verð sem Chelsea vill greiða fyrir hinn 21 árs gamla Moses og hefur Wigan hafnað þremur tilboðum frá Chelsea í leikmanninn. 19.7.2012 11:15
Ledley King leggur skóna á hilluna Ledley King, fyrirliði enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham, hefur lagt skóna á hilluna en hann er aðeins 31 árs gamall. King hefur glímt við meiðslí mörg ár og var greint frá ákvörðun hans á heimasíðu félagsins. 19.7.2012 10:43
Ferguson yrði glaður ef Berbatov færi ekki frá Man Utd Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að hann yrði glaður ef Dimitar Berbatov tæki þá ákvörðun að vera áfram í herbúðum liðsins. Búlgarski framherjinn hefur ekki verið í aðalhlutverki hjá Manchester United frá því hann var ekki valinn í leikmannahóp Man Utd fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 2010. Berbatov hefur lýst því yfir að hann hafi hug á því að finna sér nýtt lið en hann er samningsbundinn Man Utd og félagið vill fá eitthvað fyrir leikmanninn. 19.7.2012 09:00
Fulham kannast ekki við tilboð Liverpool í Dempsey Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham neitar því að félagið hafi fengið nokkuð tilboð í Bandaríkjamanninn Clint Dempsey. Liverpool sýnir kappanum mikinn áhuga. 18.7.2012 20:40
Gylfi skoraði í sínum fyrsta leik með Tottenham | Myndband Gylfi Þór Sigurðsson skoraði í sínum fyrsta leik með enska úrvalsdeildarfélaginu Tottenham Hotspur í kvöld. Tottenham mætti C-deildarliðinu Stevenage á útivelli og hafði að lokum 2-0 sigur. 18.7.2012 20:21