Fleiri fréttir

Chelsea sagt vera búið að klófesta Sturridge

Samkvæmt heimildum Sky Sports fréttastofunnar hefur enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea unnið kapphlaupið um framherjann efnilega Daniel Sturridge sem var orðinn samningslaus hjá Manchester City.

Taylor til Man. City

Manchester City hefur gengið frá kaupum á hinum 28 ára gamla varamarkverði Stuart Taylor frá Aston Villa. Taylor á að keppa um markvarðastöðuna hjá félaginu við Shay Given.

Hermann búinn að semja við Portsmouth

Landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson hefur ákveðið að endurnýja samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth en Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans staðfesti fregnirnar í samtali við Vísi.

Real vill fá Alonso og Arbeloa

Jorge Valdano hjá Real Madrid hefur staðfest að félagið sé í viðræðum við Liverpool um kaup á þeim Xabi Alonso og Alvaro Arbeloa.

Malouda framlengdi

Franski vængmaðurinn Florent Malouda hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Chelsea. Malouda átti aðeins tólf mánuði eftir af gamla samningnum.

Mascherano heitur fyrir Spáni

Javier Mascherano virðist vera farinn að gera hosur sínar grænar fyrir stórliðunum Barcelona og Real Madrid. Orðaði einn fjölmiðill það þannig í morgun að hann væri orðinn tilbúinn í að vera vatnsberi fyrir Lionel Messi.

Hull ætlar að klófesta Owen

Michael Owen verður brátt á lausu og munu mörg félög á Englandi klárlega reyna að fá hann í sínar raðir. Hull City er eitt þeirra og hefur ólíkt flestum öðrum ekki farið leynt með áhuga sinn á leikmanninum.

Milan hafnaði risatilboði í Pato

Fjölmiðlar segja að AC Milan hafi hafnað risatilboði í brasilíska framherjann Pato þó svo Milan haldi því fram að engin tilboð hafi borist í leikmanninn.

Essien spenntur fyrir Barca og Real.

Ghanamaðurinn Michael Essien er opinn fyrir tilboðum frá Barcelona og Real Madrid að því er umboðsmaður hans segir. Sá segir að það gæti verið einum of freistandi að sleppa tækifærinu ef annað hvort þessara félaga myndi banka á dyrnar.

Eiður bestu kaup sumarsins?

Það er talsvert fjallað um Eið Smára Guðjohnsen í breskum fjölmiðlum í dag en sem kunnugt er var hann settur á sölulista hjá Barcelona í gær.

Ronaldo getur ekki beðið eftir að byrja hjá Real

Cristiano Ronaldo er í viðtali við spænska blaðið Marca í dag þó svo umboðsskrfstofa hans hafi sagt í gær að hann myndi ekki gefa viðtöl á næstunni. Við vonum að þetta viðtal sé þó alvöru annað en skáldskapurinn sem var í News of the World um helgina.

Roque Santa Cruz formlega genginn í raðir Manchester City

Framherjinn Roque Santa Cruz kláraði læknisskoðun og skrifaði undir samning við Manchester City í kvöld en félagið var búið að ná samkomulagi við Blackburn í síðustu viku um kaupverð sem talið er vera í kringum 18 milljónir punda.

Liverpool búið að vinna kapphlaupið um Glen Johnson

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur staðfest að enski landsliðsmaðurinn Glen Johnson hefur skrifað undir samning við félagið en Liverpool og Chelsea voru bæði búin að ná samkomulagi við Portsmouth um kaupverðið sem talið er vera í kringum 18 milljónir punda.

Wolves búið að bjóða í Kevin Doyle

Sky Sports fréttastofan hefur heimildir fyrir því að nýliðar Wolves séu búnir að bjóða 6,5 milljónir punda í Kevin Doyle hjá Reading en framherjinn mun vera með ákvæði í samningi sínum um að b-deildarfélagið verði að samþykkja svo hljóðandi kauptilboð.

Beckham gerir Fit Pilates-æfingar

David Beckham hefur engan áhuga á að hætta í fótbolta og stefnir helst á að spila þar til hann verður fertugur. Einn liður í þeirri áætlun er að gera Fit Pilates-æfingar.

Viðtalið við Ronaldo var skáldað

Umboðsfyrirtæki Portúgalans Cristiano Ronaldo segir að viðtalið sem breska slúðurblaðið News of the World birti um helgina sé hreinn skáldskapur.

Owen á förum frá Newcastle

Michael Owen segir að það sé fjöldi félaga á eftir sér. Þá bæði á Englandi sem og annars staðar í Evrópu. Hann hefur staðfest að ekki komi til greina að spila með Newcastle í ensku 1. deildinni.

Fulham reynir við Morientes

Breska blaðið The Independent greinir frá því í dag að Fulham reyni þessa dagana að lokka spænska framherjann Fernando Morientes til félagsins.

Gibson vill nýjan samning hjá Man. Utd

Írski landsliðsmaðurinn Darron Gibson vill ólmur skrifa undir nýjan samning við Englandsmeistara Man. Utd og binda um leið enda á vangaveltur um framtíða hans.

Benzema er ekki að fara neitt

Umboðsmaður franska framherjans Karim Benzema hefur greint frá því að leikmaðurinn ætli sér að spila áfram með Lyon næsta vetur.

Engin boð í Davies

Samkvæmt heimildum fréttastofu Sky Sports mun Blackburn ekki enn hafa lagt fram tilboð í Kevin Davies, leikmann Bolton.

Fá Valencia á gjafverði

Dave Whelan, stjórnarformaður Wigan, telur að Manchester United muni fá Antonio Valencia á gjafverði ef leikmaðurinn fer til United í sumar.

Ekki útilokað að Mascherano fari

Mauricio Pellegrino, þjálfari hjá Liverpoool, segir það ekki útilokað að Javier Mascherano fari frá Liverpool nú í sumar.

Ronaldo: Mér að kenna

Cristiano Ronaldo segir að öll dramatíkin varðandi sig og Real Madrid sé sér að kenna. Hann var þegar búinn að viðurkenna að hann hafi verið búinn að ákveða sig í fyrra að ganga til liðs við félagið.

Hart á leið til Birmingham

Markvörðurinn Joe Hart er á leið til Birmingham þar sem hann verður í láni í eitt ár. David Gold, stjórnarformaður félagsins, segir að það muni valda honum miklum vonbrigðum ef þetta gengur ekki eftir.

Hull hefur áhuga á Owen

Enska úrvalsdeildarfélagið Hull hefur áhuga á að fá Michael Owen í sínar raðir. Þetta staðfesti Paul Duffen, stjórnarformaður félagsins, í samtali við enska fjölmiðla.

Ronaldo ákvað að fara í fyrra

Cristiano Ronaldo segir í viðtali við News of the World í dag að hann hafi ákveðið sig síðasta sumar að fara frá Manchester United.

Ebanks-Blake semur við Wolves

Sylvan Ebanks-Blake, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Wolves, hefur ákveðið að framlengja samning sinn við félagið til næstu fjögurra ára.

Benzema gæti farið til United

Framkvæmdarstjóri Lyon, Bernard Lacombe, segir að það sé vel inn í myndinni að Karim Benzema verði seldur til Manchester United fyrir rétta upphæð.

Ronaldo var búinn að ákveða að fara

Cristiano Ronaldo var búinn að ákveða að fara til Real Madrid áður en Manchester United mætti Barcelona í úrslitum Meistaradeildar Evrópu nú í vor.

Joorabchian: Tevez fékk ekki nægan tíma

Kia Joorabchian, maðurinn sem á samningsrétt Carlos Tevez, segir að Tevez hafi ákveðið að semja ekki við Manchester United þar sem að félagið hafi ekki gefið honum nægan tíma til að íhuga tilboð þeirra.

Tevez ekki áfram hjá United

Manchester United hefur staðfest að Carlos Tevez muni ekki spila með félaginu á næstu leiktíð.

Juventus ekki búið að gefa Dossena upp á bátinn

Ítalska félagið Juventus hefur verið sterklega orðað við hinn 27 ára gamla Andrea Dossena hjá Liverpool, en leikmaðurinn hefur ekki náð að stimpla sig almennilega inn á Anfield eftir að hafa komið frá Udinese á 7 milljónir punda síðasta sumar.

Sevilla segir verðmiðann á Zokora of háan

Forráðamenn spænska félagsins Sevilla og enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham hittust nýverið til þess að leggja lokahönd á bótagreiðslur vegna knattspyrnustjórans Juande Ramos sem yfirgaf Sevilla fyrir Tottenham árið 2007.

Vermaelen genginn formlega í raðir Arsenal

Belgíski landsliðsmaðurinn Thomas Vermaelen gekk í dag frá félagsskiptum sínum frá Ajax til Arsenal eftir að hafa komist í gegnum lækinsskoðun hjá Lundúnafélaginu. Kaupverðið var ekki gefið upp.

Torres: Owen hefur enn mikið fram að færa

Framherjinn Fernando Torres hjá Liverpool trúir því að Michael Owen gæti enn átt erindi í hvaða félag sem er í ensku úrvalsdeildinni, en Owen lék sem kunnugt er með Liverpool á árunum 1996-2004 og skoraði þá 118 mörk í 216 leikjum með félaginu.

Zola reynir að fá þrjá leikmenn frá Inter

Knattspyrnustjórinn Gianfranco Zola hjá West Ham er ekki búinn að gefa upp vonina um að fá þrjá leikmenn frá Ítalíumeisturum Inter í sumar. Talið er að Lundúnafélögin West Ham og Tottenham séu að bítast um miðjumanninn Luis Jimenez frá Chile en hann fékk ekki mörg tækifæri með Inter á síðustu leiktíð.

Sjá næstu 50 fréttir