Enski boltinn

Taylor til Man. City

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Taylor í leik með Arsenal gegn Man. Utd
Taylor í leik með Arsenal gegn Man. Utd Nordic Photos/AFP

Manchester City hefur gengið frá kaupum á hinum 28 ára gamla varamarkverði Stuart Taylor frá Aston Villa. Taylor á að keppa um markvarðastöðuna hjá félaginu við Shay Given.

Ekki var gefið upp hvað City greiddi mikið fyrir markvörðinn sem eitt sinn spilaði með enska U-21 árs landsliðinu.

Taylor er annar leikmaðurinn sem fer frá Aston Villa til Man. City. City hafði áður keypt Gareth Barry frá félaginu á 12 milljónir punda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×